Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.04.1979, Qupperneq 22

Dagblaðið - 30.04.1979, Qupperneq 22
22 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Liverpool féll ekki á síðustu hindrun! —gerði jaf ntef li við Forest í Nottingham á laugardag Liverpool komsl yfir síðustu hindr- unina á leið sinni i 11. meistaralitil félagsins, þegar það gerði jafntefli við Knglandsmeistara Forest í Nott- ingham á laugardag. Ekkert mark skorað i spennandi leik, sem ekki var að sama skapi vel leikinn. Liverpool hafði frumkvæðið lengstum — Terry McDermott átti skot bæði í þverslá og stöng Forest-marksins og Peter Shilton víðsfjarri — en Nottingham- liðið rétti talsvert sinn hlut, þegar líða lók á síðari hálflcikinn. Var þá óheppið að skora ekki eftir slæmt út- hlaup Ray Clemence. Knattspyrnu- maður ársins á Englandi, Kenny Dalglish, fékk tækifæri, sem hann misnotaði á fyrstu mínútu leiksins. Eftir það slapp hann ekki úr vörzlu Larry Lloyd, fyrrum leikmanns I.iverpool, og nú eins af máttar- stólpum Forest. Fyrir bragðið var sókn Liverpool ekki eins skörp og oftast áður. 10 mín. fyrir leikslok var Steve Heighway kippt út af — hann lék í stað David Johnson, sem er meiddur — og Sammy Lee kom inn sem varamaður. Annar leikur hans með Liverpool. Það vakti athygli að hetja Forcst frá Evrópuleiknum í Köln, lan Bowyer, var varamaður og kom ekki inn á. Trevor Francis tók stöðu hans hjá Forest. Eftir þessi úr- slit hefur Livcrpool sjö stiga forustu á Forest og WBA og hefur aðeins leikið einum leik meira. Meistaralil- illinn er svo gott sem i höfn. Derby County náði jafntefli gegn Man. Utd. á Old Trafford á laugar- dag og þarf nú aðeins eitt stig til að tryggja sæti sitt í 1. deild. Það var slakur leikur og ekkert mark skorað en United lék án hinna þekktu leik- manna sinna, Buchan, McQueen og Greenhoff-bræðranna, sem allir eiga við meiðsli að stríða. Úlfarnir tryggðu sæti sitt í 1. deild með jafn- tefli gegn Bolton á heimavelli. John Richards skoraði mark Úlfanna en Neil Whatmore jafnaði fyrir Bolton. QPR vann stórsigur á Coventry, 5-1, — fyrsti sigur liðsins síðan í desem- ber, en sá sigur kemur of seint til þess að einhver von sé að liðið haldi sæti sínu í 1. deild á kostnað Derby. Clive Allen, ungur piltur, sem lék sinn fyrsta leik með QPR, skoraði þríveg- is. Hann er sonur Les Allen, sem lengi lék hjá QPR, og var siðar um tíma framkvæmdastjóri liðsins. Til þess að halda sæti sinu þarf QPR að vinna þá þrjá leiki, sem liðið á eftir — og Derby að tapa. Það skeður varla — QPR á m.a. eftir að leika við Leeds, sem stefnir að sæti i UEFA- keppninni, á útivelli. En nóg um það. Lítum á úrslitin á laugardag. 1. daild Arscnal — Norwlch l-| skoruðu fyrir QPR auk Allen en Ian Wallace skoraði fyrsta mark leiksins fyrir Coventry. Mickey Burns skoraði mark Middlesbro — Ali Brown jafnaði fyrir WBA og þar vakti athygli að Cyrille Regis var varamaður hjá WBA, kom inn í s.h. fyrir Laurie Cunningham. Hampton, bakvörður Leeds, var rekinn af velli í Bristol. Muhren og Brazil skoruðu mörk lpswich í f.h. en Hoddle mark Tottenham i þeim síðari. Langley náði forustu fyrir Chelsea í Birming- ham en Aston Villa skoraði tvivegis í síðari hálfleik. 2. daild Brighlon — Blackburn 2-1 Sigurvegarar Grindavikur i 2. deild kvenna ásamt þjálfara sfnum Þór Ottescn. Grindavík í 1. deild Handknattlciksstúlkurnar ur Grindavík tryggðu sér sæti í 1. deild kvenna í síðustu viku, þegar þær sigr- uðu ÍBK i aukaleik um efsta sætið í deildinni. Næsta vetur leikur Grinda- jvík þvi i fyrsta sinn í 1. deild kvenna. ÍBK átti svo á föstudag og laugardag að leika við Víking um sæti í I. deild næsta vetur en mætti ekki til leiks. Vik- ingsstúlkumar mættu hins vegar i Laugardalshöll á föstudag og í Keflavik á laugardag — klæddu sig úr á báðum stöðum og mættu til leiks, þegar dóm- ararnir flautuðu leikina á. Síðan aftur af — og leikirnir voru dæmdir tapaðir ÍBK. Keflvíkingar höfðu beðið um að leikjunum yrði frestað en Ólafur A. Jónsson, formaður mótanefndar, sagði: „Þessu verður ekki breytt — ÍBK hefur tapað leikjunum.” í tilefni þessa máls báðu ÍBK-stúlkurnar DB að birta eftirfarandi. Reykjavík 27. apríl 1979. „Við undirrituð, leikmenn og þjálf- ari mfl. ÍBK í handknattleik kvenna, mótmælum harðlega þeirri svivirðilegu framkomu mótanefndar HSÍ að ætlast til þess, að við leikum 4 úrslitaleiki á 5 dögum, þ.e. 24., 26., 27. og 28. apríl. Þessi mótmæli sýnum við í verki með því að mæta ekki til leiks 27. og 28. april. Jafnframt skorum við á móta- nefnd HSÍ að endurskoða afstöðu sína | og ákveða leikdaga úrslitaleikjanna við Víking á sanngjaman hátt svo að við ( fáum tima til þess að jafna okkur eftir hina erfiðu leiki sem fram fóru 24. og ( 26. apríl sl. Ef það verður ekki gert og Víkingi dæmdur sigurinn þá lítum við ( svo á, að mótanefnd HSÍ hafi fært Vík- ingi sigurinn á silfurfati og mismunað ( þannig liðunum gróflega. Við krefj- umst þess ennfremur að mál þetta verði tekið fyrir hjá mótanefnd HSÍ þegar i kvöld og að við verðum upplýst um niðurstöður fundarins þegar að honum Ioknum.” Aston Villa — Chelsea Brislol City — Leeds 2-1 0-0 Burnlcy — Orienl 0-1 Everton — Birmingham 1-0 C. Palace — Nolls Co. 2-0 Ipswich — Tollenham 2-1 Fulham — Leicester 3-0 Man. Uid. — Derby 0-0 Millwall — Brístol Rov. 0-3 Middlesbro — WBA 1-1 Oldham — Cambridge 4-1 QPR — Coventry 5-1 Prcslon — Lulon 2-2 Southamplon — Man. Cily 1-0 Shoff. Utd. — Charllon 2-1 Wolves — Bollon 1-1 Sloke— Newcastle 0-0 Sunderland — Cardiff 1-2 Andy King skoraði sigurmark Wesl Ham — Wrexham 1-1 Everton. Shanks og Mick Walsh Það er allt á suðupunkti í deildinni — jafnt á toppi sem á botni. Erfitt að spá í hvaða lið komast í 1. deild en Lundúnaliðið Crystal Palace stendur bezt að vígi. Vann Notts County með mörkum Swindelhurst og Murphy á laugardag. Brighton hafði yfirburði gegn Blackburn en vann þó aðeins 2- 1. Maybank, 18. min., og Rolling, 58. mín., skoruðu mörk Brighton en kappinn kunni, John Aston, mark Blackburn á 86. mín. og 26 þúsund áhorfendur voru á nálum lokaminút- umar. Aston, sem lengi vel lék með Man. Utd., kom inn sem varamaður og skoraði fallegasta mark leiksins. Hins vegar tókst Stoke ekki að sigra Newcastle þrátt fyrir stórsókn allan AÐALFUNDUR V.S.1.1979 Páll Sieuriónsson Ágúst Valfells 'ÍXMIMSmSÆP Magnús Magnússon DAGSKRA Miðvikudagur 2. maí Kl. 9.15 Setning. Ræða: Páll Sigurjónsson, formaður VSÍ. Ræða: Magnús Magnússon, félagsmálaráðherra. Erindi: ísland árið 2000, framleiðsla, fjólksfjöldi, lífskjör. Dr. Ágúst Valfell. F yrirspur nir/umr æður. 12.00 Fundarhlé. 13.30 Framkvæmdastjóri gerir grein fyrir skýrslu og reikningum. Skýrsla skipulagsnefndar. Umræður, afgreiðsla reikninga. Tillögur gjaldanefndar. 15.30 Fundarhlé (kaffí) Kjaramálaráðstefna VSÍ Skipan nefnda. 16.30 Fundi frestað. Fimmtudagur 3. maí Kl. 09.00 Nefndastörf. 13.30 Umræður um lagabreytingatillögur gjaldanefndar. Afgreiðsla tillagna. Umræður um kjaramálastefnu. Afgreiðsla tillagna. Kjör stjórnar og endurskoðenda. 17.00 Móttaka í húsakynnum VSÍ. leikinn. Það vantaði yfirvegun i sóknarleikinn, auk þess, sem leik- menn liðsins voru óheppnir. O’Callaghan átti skot i þverslá. New- castle átti eitt skot á mark í leiknum, sem eitthvað kvað að. En verra var þó hjá Sunderland, sem tapaði á heimavelli fyrir Cardiff- liði, sem er í mikilli sókn og hefur gert efstu liðunum lifið leitt. Jack Ashurst, bakvörður Sunderland, mun þó lengi naga sig í handarbökin ef Sunderland kemst ekki upp. Hann lét markvörð Cardiff verja frá sér vítaspyrnu snemma leiks. Leikmenn Cardiff brunuðu upp og Moore skoraði. Síðan kom Bishop Cardiff í 0-2 áður en Ashurst skoraði umdeilt mark. Átti skot í þverslá. Knötturinn hrökk niður á marklínuna og dómar- inn dæmdi mark. Sunderland tókst ekki að jafna og síðasti leikur liðsins er erfiður. Gegn Wrexham i Wales. Stoke á útiíeík við Notts County — Brighton útileik í Newcastle, svo enn getur allt skeð i deildinni. Þrjú lið fara upp og West Ham verður varla meðal þeirra. Á eftir þrjá útileiki og tókst ekki að sigra Wrexham i Lundúnum á laugardag, það þó Wrexham missti markvörð sinn útaf slasaðan. Billy Bonds skoraði mark WH eftir að knötturinn var greinilega handleikinn — hrein gjöf, en Shinton jafnaði nokkru fyrir leikslok þó Wrexham léki með 10 mönnum. Allt bendir nú til þess, að Millwall og Charlton falli niður t 3. deild ásamt Blackburn. Charlton, sem ekki hefur sigrað i 15 leikjum, tapaði í Sheffield og hefur nú sama stiga- fjölda og Sheff. Utd. en á aðeins eftir einn leik. Millwall steinlá fyrir Bristol Rovers á heimavelli og stendur illa að vígi. Á eftir sex leiki en í fyrravor lék Millwall það bragð að sigra í sex síð- ustu leikjum sinum og bjarga sér frá falli. Það skeður varla nú — einkum eftir þetta mikla tap á laugardag. 3. deild Brenlford — Mansfield 1-0 Bury — Colchesler 2-2 Chesler — Sheff. Wcd. 2-2 Cheslerfield — Rolherham 1-0 Exeter — Carlisle 3-2 Gillingham — Shrewsbury 2-1 Hull City — Swindon Oxford — Lincoln Peterbro — Blackpool Swansea — Soulhend Walford — Plymouth 2-2 Tranmere — Walsall 0-0 Stóra spurningin er: Kemst Wat- ford ekki upp eftir að hafa haft for- ustú í deildinni nær allt tímabilið? — Lítið sem ekkcrt gengur hjá liðinu nú — og fjögur lið tapað færri stigum. Swansea virtist stefna í 2r deild en staða efstu liða er nú þannig: Swansea 44 23 11 10 79-58 57 Walford 43 21 12 10 75-50 54 Gillingham Shrewsbury Carlisle Swindon 42 19 16 7 58-38 54 41 17 18 6 50-36 52 45 15 22 8 53-41 52 41 22 7 12 64-43 51 Swindon og Gillingham eiga eftir að leika innbyrðis — Watford á þrjá heimaleiki en erfiðan útileik gegn Sheff. Wed. — Swansea útileik við Plymouth. Það er því mjög erfitt að spá um hvaða þrjú lið komast í 2. deild. 4. deild Barnsley — Rochdale 0-3 Bradford — Crewe 6-0 Doncaster—Aldershot 1-1 Huddersfield — Portsmoulh 2-0 Newport — Grimsby 1-1 Northampton — Hereford 2-1 Reading—Halifax 1-0 Scunthorpe — Torquay 2-2 Wigan — Daríinglon 2-2 Wimbledon — Hartlepool 3-1 York — Boumemouth 2-1 Fimmtudag og fösludag: Halifax — Bradford 2-0 Northamplon — Barnsley 0-1 Slockport — Port Vale 0-0 Grimsby og Reading hafa þegar tryggt sér sæti í 3. deild næsta leik- tímabil. Hafa 61 stig. Barnsley og Wimbledon 55 stig, Aldershot 54 og Wigan 52. Síðasttöldu liðin hafa litla möguleika — nær lokið leikjum sín um. - hsím. Staðan í 1. og 2. deild er nú 1- 1 2- 1 1-2 3-2 þannig: l.deild Liverpool 37 25 8 4 72-15 58 WBA 36 20 11 6 67-33 51 Notl. For. 36 17 17 2 52-21 51 Everton 40 17 16 7 51-37 50 Leeds 39 17 14 8 65-44 48 Arsenal 40 17 12 11 60-47 46 lpswich 39 18 8 13 54-45 44 A. Villa 37 14 14 9 54-41 42 Coventry 41 13 16 12 55-68 42 Man.Utd. 38 14 13 11 55-58 41 Bristol City 41 15 10 16 47-49 40 Southampton 38 12 15 11 46-48 39 Middlesbro 40 14 10 16 52-48 38 Norwich 41 7 22 12 50-56 36 Totlenham 39 11 14 14 43-59 36 Man. Cily 38 11 13 14 50-49 35 Bolton 39 12 10 17 52-68 34 Wolves 39 12 8 19 41-62 32 Derby 41 10 11 20 44-68 31 QPR 39 6 13 20 41-62 25 Birmingham 39 5 9 25 33-59 19 Chelsea 39 5 8 26 40-87 18 2. deild Brighlon 41 22 10 9 69-38 54 Sloke 41 19 16 6 57-31 54 Sunderland 41 21 11 9 68-43 53 C. Palace 40 17 19 4 48-24 53 Wcsl Ham 39 18 13 8 69-36 49 Notts Co. 40 14 15 11 47-58 43 Fulham 40 13 15 12 49-43 41 Orienl 41 15 10 16 51-50 40 Burnley 38 14 11 13 50-56 39 Preslon 40 10 18 12 57-57 38 Newcaslle 39 15 8 16 44-52 38 Cambridge 41 11 16 14 43-53 38 Brislol Rov. 38 13 10 15 47-54 36 Cardiff 38 14 8 16 52-69 36 Leicesler 40 10 15 15 41-50 35 Oldham 39 11 13 15 46-58 35 Wrexham 35 11 12 12 39-33 34 Luton 40 12 10 18 58-55 34 Charllon 41 10 13 18 58-69 33 Sheff. Uid. 39 11 11 17 50-65 33 Millwall 36 9 8 19 36-52 26 Blackburn 39 7 10 22 37-71 24

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.