Dagblaðið - 30.04.1979, Page 23

Dagblaðið - 30.04.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979. 23 "——————^——■ Steinhljóð hleypir af stokkunum Hljómplötur með Manuelu Wiesler, Julian Dawson Lyell, Gísla Magnússyni og Halldóri Haraldssyni ur, og hefði þetta gengið sérstaklega vel, enda frábært listafólk að verki. Útgefendur voru að því spurðir hvort afráðið væri að koma þessum plötum á alþjóðlegan markað. Kváðu þeir svo vera og væru uppi plön um að hafa samband við útvarpsstöðvar og erlenda dreifingaraðila en einnig minntust þeir á það að þeir hefðu rætt sín á milli um áskriftarfyrir- komulag hér á landi til að tryggja grundvöllinn. En þeir sögðust halda ótrauðir áfram og nú væri farið að vinna við plötu Áskels Mássonar, Jóns Þórarinssonar og Atla Heimis Sveinssonar. Manuela sagðist síðan vera afar ánægð yfir að sjá plöturnar og m undi hún hafa þær í pússi sínu á ferða- Iögum erlendis og reyna að koma þeim á framfæri. Verkin eftir Francaix, Jolivet og Boulez sagði hún vera til á hljómplötum en verk þeirra Atla Heimis og Þorkels væru í fyrsta sinn á plötu. Fór Manuela lofs- yrðum um undirleikara sinn, Julian Dawson Lyell, sem staddur var er- lendis. Fjórhentur vinskapur Halldór sagði að það væru mjög fáar upptökur til af „Vorblóti” Stravinskys fyrir tvo píanóleikara en gat um útsetningu þeirra Bracha Eden og Alexander Tamir á Decca. Sagði hann að þeir Gísli hefðu hlustað mikið á þá upptöku en ekki tekið mið af henni því það væri ýmislegt í þeirri túlkun sem þeir gætu ekki sætt sig við. Gat hann þess til gamans að þeir væru nú komnir í samband við þessa tvo Rússa og ætluðu að senda þeim sína útsetn- ingu. Aðspurður um það hvers vegna þeir hefðu valið þetta verk Lutoslawskis á móti Stravinsky sagði Halldór að það væri ágætlega samið og i því væri ekki ósvipaður andi og í „Vorblótinu” — en erfitt væri að finna góð fjórhent píanóverk. Eftir helgina mun svo tónlistargagnrýn- andi DB, Eyjólfur Melsted, skrifa sérstaklega um þessar nýju hljóm- plötur Steinhljóðs. -A.l. „Það er varla að ég trúi því að hún sé komin,” sagði Manuela Wiesler og brosti breitt er hún handfjatlaði nýja hljómplötu sína á blaðamannafundi Steinhljóðs í fyrradag. Viðstaddir voru einnig þeir Gísli Magnússon og Halldór Haraldsson píanóleikarar en þeir fögnuðu einnig áfanga því Stein- hljóð var líka að gefa út plötu með leik þeirra. Jónatan Garðarsson, full- trúi Steinars h/f, hafði orð fyrir út- gefendum og skýrði frá því hvernig Steinhljóð hefði orðið til. Nokkrum forsvarsmönnum Hljóðrita í Hafnar- firði, m.a. Jóni Þór Hannessyni og Karli Sighvatssyni, datt á síðasta ári i hug að slá tvær flugur i einu höggi — að koma til móts við íslenzka tón- listarmenn og tónskáld sem verið hefðu utangarðs í hljómplötuútgáfu landsins og nýta að fullu getu og tíma upptöku stúdíósins. íslensk verk og erlend Sagði Jónatan að strax hefði verið farið að ræða við fólk á borð við Manuelu Wiesler, Gísla, Halldór, Atla Heimi Sveinsson, Áskel Másson og fleiri. Seinnipart ársins 1978 hefði verið farið að vinna að plötu með Manuelu og skozka píanóleikaranum Julian Dawson Lyell, þar sem þau léku tónlist eftir Jean Francaix, lánaði Hljóðriti alla upptökuvinnu og listamennirnir sjálfir tóku ekkert fyrir sinn snúð. En Jónatan tók það fram að um leið og plötur þessar færu að skila hagnaði yrði honum skipt til jafns milli útgáfunnar og listamannanna — en eins og stendur væru aðeins gefin út 1000 eintök af þessum tveimur hljómplötum. Voru allir aðstandendur einnig sammála um það að þáttur Ríkisútvarpsins í þessu máli væru ómetanlegur og lofuðu sérstaklega greiðasemi þeirra Þorsteins Hannessonar og Guðmundar Gilssonar en hlutar upp- tökunnar fóru fram i stúdíói hljóð- varps. Lýsti Jónatan síðan þeim erfiðleikum sem fylgt hefðu útgáf- unni. Deutsche grammofon með í spilinu Hefði Steinhljóð haldið að við pressun þessara verka giltu sömu reglur og um poppplötur og höfðu sent frumupptökur („master”) til London, en þar hefðu menn vísað þeim frá og leitt þá í allan sannleik um muninn á pressun popps og klassískra verka sem mun t.d. felast í því að hærri tíðni er notuð í klassík. Var þá Ieitað á náðir CBS í Hollandi og var gengið frá plötunum þar, m .a. í samvinnu við dótturfyrirtæki Halldór Haraldsson, Manuela Wiesler og Gísli Magnússon skoða frágang á umslögum. „ Við byrjuðum árið 1979 með Ayds og þannig ætlum við að halda áfram ” Liz og Joanna Lawrence eru mæðgur. Hvorug þeirra var feit en báðar máttu við því að missa fáein kíló. Þær voru báðar ákveðnar I því að byrja árið 1979 fallega grannar. Svo að þær tóku að fækka við sig hitaeiningum í byrjun desember og héldu matarlystinni i skefjum með aðstoð Ayds — líka um jólin! Og þær nutu máltíðanna með hinum i fjölskyldunni. Hvernig fóru þær að þessu? Liz: „Ég þurfti að losa mig við 3—4 kiló. Þessi fáu aukakiló voru nóg til þess að ég var svolítið feitabollulcg i bikinibaðfötunum mínum þegar ég heim- sótti systur mína í Kaliforníu síðasta sumar. Ég ákvað þvi að prófa Ayds. Ástæðan til þess aö mér geðjast svo vel að Ayds er sú að mér finnst gaman að borða og ég vil njóta máltiðanna með fjölskyldunni. Ayds hjálpar mér að borða minni skammta og forðast fitandi fæðu.” Joanna: „Ég er nýbyrjuð að vinna sem Ijósmyndafyrirsæta ég varð að losa mig við 7—8 kfló til þess að passa i nr. 10, sem er það númer sem fyrirsætur nota. Það krefst heilmikillar orku að þjóta um á milli Ijósmyndara og maður verður að borða almennilega. Og það er einmitt það sem Ayds gerir — það hjálpar mér að borða almennilega.” „Þetta er sko allt á hreinu,” segir Karl Sighvatsson sem stjornaði upptökum. André Jolivet, Pierre Boulez og íslenzku tónskáldin Atla Heimi Sveinsson og Þorkel Sigurbjörnsson, en þá hefðu þeir Gísli Magnússon og Halldór Haraidsson verið búnir að æfa og flytja píanóversjón af „Vorblóti” Stravinskys. Var ákveðið að taka þetta verk upp ásamt öðru fjórhentu píanóverki, „Tilbrigði um stef eftir Paganini” eftir pólska tón- skáldið Lutoslawski. Strax þá hefði verið farið að ræða það hverjir skyldu standa að jæssari útgáfu og hvernig ætti að fram- kvæma hana fjárhagslega. Enginn á kaupi Hljóðriti taldi sig fyrst og fremst upptökufyrirtæki en ekki útgáfu og þá komu Steinar h/f til sögunnar og buðust til að sjá um útgáfu og dreifingarhliðina. Duttu menn þá niður á heitið Steinhljóð fyrir þennan sérstaka flokk af hljómplötum. Síðan Deutsche Grammofon, sem ætti að tryggja tóngæði. Við þetta tafðist út- gáfan og tókst ekki að koma plötun- um á jólamarkað. „Kannski sem betur fer,” sögðu þeir Jón Þór og Karl Sighvatsson, „þær hefðu drukknað þá.” Aðspurð um það hvernig upptökurnar hefðu tekizt sögðust þau Manuela, Gísli og Halldór ekki enn hafa heyrt plöt- urnar og iðuðu í skinninu að komast heim og skella þeim á fóninn. Þeir Jónatan, Jón Þór og Karl sögðust að vísu ekki vera hlutlausir aðilar i málinu en létu þó í Ijós þá skoðun að þeir væru mjög ánægðir meðárangurinn. Á alþjóða- markað Karl var að því spurður hve langan tíma upptökurnar hefðu tekið. Sagði hann að u.þ.b. 30 tímar hefðu farið í hverja plötu, miðað við 150—200 tíma sem stundum færu í poppplöt- Hvernig Ayds verkar Það er álit margra \isindamanna að þegar blóðsykurinn minnkar, segi heilinn: „Ég er svangur!” Augljóslega gerist þetta oftast skömmu fyrir venjulegan matmálstíma en það getur lika gerzt á milli mála. F.f þú horðar eitt eða tvö Ayds (gjarnan með heitum drykk sem hjálpar þér að mclta það) hálftíma fvrir rnáltið, eykst blóðsykurinn og matarlystin minnkar. Hvers vegna Ayds verkar Ayds hjálpar til að hafa hemil á matarlystinni. Það hjálpar til að borða hita- einingasnauða fœðu og forðast fitandi mat. Það er eina leiðin til að grennast og halda áfram að vera grannur. Og — vegna þess að það tekur tíma að venj- ast nýjum matarsiðum — fæst Ayds i pökkum sem innihalda fjögurra vikna birgðir. Hver skammtur inniheldur 25 hitaeininaar.j esss^síswiv'íe.ft'í!"^'rsFiMmA snn

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.