Dagblaðið - 30.04.1979, Blaðsíða 34
34 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 30. APRÍL 1979.
GUNNAR ÞÓRÐARSON — Hljóðritun diskóplötunnar hans fer að hluta fram i Ked Hus stúdíóinu í London. Þar var
einmitt plata Amii Stewart, Knock On Wood, hljóðrituð að hluta — hjá Geoff Calver.
Gunnar Þórðarson
gerir diskóplötu
Söngvarar diskóplötunnar verða
Jóhann Eiríksson, Ragnhildur Gísla-
dóttir og Ellen Kristjánsdóttir.
Jóhann semur einnig tvö eða þrjú
laganna á plötunni. Gunnar semur
annars sjálfur megnið af tónlistinni.
Meðal annars verður á plötunni
gamalt lag eftir hann, Þú og ég. Þá
verður þar einnig lag Sigfúsar
Halldórssonar, Vegir liggja til allra,
átta.
„Fyrst ætlaði ég að nota lagið
Sveitin milli sanda eftir Magnús
Blöndal Jóhannsson, en svo kom í
Ijós að Brunaliðið hyggst verða með
það lag á næstu plötu sinni,” sagði
Gunnar. „Ég söðlaði því um og valdi
lagið hans Fúsa.”
Næsta I verkefni Gunnars
Þórðarsonar,' eftir að hann hefur
lokið við upptökustjórn á plötu
Ljósanna j bænum, er diskóplata!
Upptökur á henni hefjast eftir um
það bil hálfan mánuð i Red Bus
stúdíóinu í London.
„Ég er þegar byrjaður að vinna að
þessari nýju plötu, semja lög og ýmis-
legt fleira,” sagði Gunnar er hann
ræddi við Dagblaðið um
diskóplötuna. Grunnhljóðfærin
verða tekin upp í Red Bus, þar sem
Geoff Calver vinnur. Síðan verður
söngnum og nokkrum auka-
hljóðfærum bætt við hérna heima.
Platan ætti síðan að öllu forfalla-
lausu að koma út í júli.”
TRESMIÐIR
2—3 trésmiðir óskast til starfa
úti á landi. Uppl. í síma
94—3183.
íslenzk diskóplata hefur ekki verið
gerð áður, ef frá er talin Reykinga-
platan sem út kom i jan. Þá hafa
nokkrar hljómsveitir og söngvarar
haft eitt og eitt diskólag á plötum
sínum. Til dæmis er lagið Fyrsti
kossinn eftir Gunnar Þórðarson á
síðustu plötu Ruthar Reginalds.
-ÁT-
Agnetha
undirbýr
framtíð-
inaán
ABBA
Agnetha Fáltskog, ABBA-
söngkonan sem nýlega tilkynnti að
hún hygðist skilja við mann sinn,
Björn Ulvaeus, er nú þegar farin að
velta fyrir sér framtiðinni án ABBA.
Áður en langt um líður er væntanleg
á plötumarkaðinn Agnethas Greatest
Hits — plata með vinsælustu lögum
Agnethu.
Í vetur hljóðritaði söngkonan nýtt
lag eftir sjálfa sig, Nár Du Tager Mig
I Din Favn. Það verður að finna á
nýju plötunni ásamt lögum sem hún
flutti áður en ABBA varð til. —
Agnetha varð fyrst þekkt i byrjun
þessa áratugs er hún söng lagið Hvis
Tárer Var Guld sem varð geysivin-
sælt í Svíþjóð.
,,Ég hef þörf fyrir að semja lög,"
segir Agnetha. „Hver veit nema ég
eigi eftir að semja lög á heila plötu
áður en langt um liður — Reyndar
liggur mér ekkert á en þaðer ákaflega
góð tilfinning að vita að maður getur
horftð að einhverju ákveðnu eflir að
ABBA verður lögð niður.”
Sumrinu ætlar Agnetha Fáltskog
að eyða i sænska skerjagarðinum —
án hinna þrigga — og hvíla sig fyrir
heimsferð hljómsveitarinnar í haust.
„Skoðun mín á þessari hljóm-
leikaferð er tvíbent,” segir hún.
„Það er ákaflega gaman að hitta alla
aðdáendurna aftur og skemmta
þeim. Á hinn bóginn verður þessi
ferð ákaflega erfið og mér hefur
aldrei þótt sérlega skemmtilegt að
ferðast.”
ÚrEXTRA BLADET
Strax í fyrsta
flokki....
x
NÝTT HAPPDRÆTTISÁR 79-80
MARGIR STÓRVINNINGAR «qe
MIÐI ER MÖGULEIKI
Vinningur til íbúöarkaupa aö verömæti 10 milljónir.
SIMCA MATRA RANCHO bifreiö að verðmæti 6,5 millj.
8 bifreiöavinningar á 1,5 milljónir hver.
25 utanferöir á 250 og 500 þúsund hver og 465
húsbúnaöarvinningar á 25, 50 og 100 þúsund krónur
hver.
Dregið veröur í 1. flokki 3. maí.
Sala á lausum miöum og endurnýjun flokksmiða og
ársmiða stendur yfir.
Mánaðarverö miöa er kr. 1000 en ársmiöa 12000.
Reykjavík er dauð
Lifi Stormsveitin!
Ný hljómsveit ~ Storms\eitin -
er risin úr öskuslonni, stofnuð .i
rústum hljómsveitanna Reykjavíkur
og Rokkóperu. Þrátt fyrir storma-
samt nafn er hljómsveitin ekki
stofnuð með neinum látum, fer þess í
stað rólega af stað og kemur
sennilega ekki fyrir almenningssjónir
fyrF en eftir þrjár til fjórar vikur.
„Við komum fyrst fram á
hljóðfærakynningu hjá verzluninni
Tónkvísl fyrir nokkrum dögum,”
sögðu liðsmenn Stormsveitarinnar er
Dagblaðið hitti þá að máli fyrir
helgina. „Reyndar vorum við þá
auglýstir sem hljómsveitin Reykjavík
en við viljum taka það skýrt fram að
sú hljómsveit á ekkert skylt við
Stormsveitina.”
Stormsveitarmennirnir Björn
Thoroddsen, Einar og Eyjólfur Jóns-
sýnir störfuðu þó með Reykjavik á
meðan hún var og hét. Úr
Rokkóperu koma þeir Ágúst
Ragnarsson og Hjörtur Howser.
Sjötti maðurinn, Brynjólfur Stefáns-
son, er nýliði í poppinu. DB var þó
trúað fyrir því að eitt sinn hefði hann
verið viðloðandi Stellu bjútí, hver svo
sem sú sómakona var.
Enn sem komið er leikur Stórm-
sveitin eingöngu frumsamda tónlist.
Allir meðlimirnir sex semja lög, hver
STORMSVEITIN — glæný hljómsveit á íslenzka poppmarkaðinum. Hún
verður tilbúin með danslagaprógrammið sitt eftir nokkrar vikur.
í sínu horni. Þeir segjast ætla að
koma frumsarnda efninu á framfæri í
bland við hressilega erlenda tónlist
sem er vinsæl hverju sinni.
„Við ætluni að halda okkur frá
diskótónlist en leika þess i stað gott
rokk í anda Toto og slíkra
hljómsveita,” segja Stormsveitar-
liðarnir. „Alla vega stefnum við að
því fyrst og fremst að engum eigi eftir
að leiðast á böllunum hjá okkur.”
-ÁT-