Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 30.04.1979, Qupperneq 39

Dagblaðið - 30.04.1979, Qupperneq 39
DAGBLAÐIÐ. MANUDAGUR 30. APRIL 1979. <§ » Útvarp Sjónvarp (-------------------r--------------------------\ MAÐUR BORGAR BARA FELAGSGJALDK) —útvarp annað kvöld kl. 19.35: Hin félagslega deyfð Verkamenh vinna það langan vinnutima að þeir hafa hvorld tima né orku til að taka þátt í félagsstörfum. DB-mynd Sv. Þorm. Að kvöldi fyrsta maí, dags verka- lýðsins, verður á dagskrá útvarpsins þáttur í umsjón Krtstínar Mántylá skrifstofustjóra Alþýðusambands íslands og Hauks Más Haraldssonar blaðafulltrúa samtakanna. Þátturinn nefnist Maður borgar bara félagsgjald- ið. Kristín var spurð um efni hans. „Þemað er sá langi vinnutími sem fólk hér vinnur. Hann hefur ýmsar afleiðingar eins og félagslega upplausn en við ætlum ekkert að fjalla um það atriði. Það sem við ætlum að fjalla um er afleiðing hans á félagsstarfsemi. Sem sagt félagsleg deyfð. Við byrjum þáttinn á viðtölum við verkafólk og menn frá verkalýðssam- tökunum. Viðtölin eru frá landinu öllu, sum gömul og önnur ný en öll um sama efni. Þá berum við saman þessa hluti i skáldsögum ogí veruleikanum. Einhver tónlist verður í þættinum en ekki er ennþá fullráðið hver hún verður,” sagði Kristín. Sú félagslega deyfð er Kristín talar um er meiri en líklega flestir telja. Verka- lýðsfélögum hefur reynzt erfitt að fá fólk á vinnustöðum til þess að taka þátt í hinum ýmsu verkefnum fyrir félögin og jafnvel að taka þátt í launadeilum. Sérstaklega hefur þetta átt við um kon- urnar. Þykir mörgum karlmanninum það sýna að konur kæri sig ekkert um jafnrétti í raun, þær vilji láta karlana hafa fyrir hlutunum fyrir sig. En vinna kvenna er oft á tíðum mun meiri en karla, þar sem heimilisstörf dæmast samkvæmt gamalli venju meira á kven- fólk. Það hefur því ennþá minni tíma og orku til félagsstarfa en karlmenn- irnir, sem sumir hafa þó lítið af hvoru tveggja. En þó allir tali um að nú eigi að stytta vinnutímann og æ styttri vinnuvika sé lögboðin gerist ekkert i þá átt að minnka vinnu. Bæði efnahags- lífið og líf fjölskyldunnar krefst orðið þess að bæði hjónin vinni svo gott sem myrkranna á milli og geri ekki annað. DS. V__________ (---------- KVÖLDVAKA: útvarpannað Mamma j Diddúar kvöid ki. 2i.oo syngur einsöng Dóra Stefánsdóttir Fyrsti liður kvöldvökunnar í útvarp- inu annað kvöld er að Margrét Matthíasdóttir syngur íslenzk lög. Er þetta í fyrsta sinn sem Margrét syngur í útvarpið en hún hefur undanfarin ár sungið með Skagfirzku söngsveitinni ásamt því sem hún hefur sungið í kirkjukór í fjöldaára. En fjölskylda Margrétar er ekki með öllu óþekkt í heimi sönglistarinnar. Margrét er gift Hjálmtý Hjálmtýssyni sem nýlega söng í sjónvarpssal og eiga þau saman 7 börn. Þekktust þeirra er Sigrún sem alþýða manna kallar Diddú. önnur dóttir þeirra Margrétar og Hjálmtýs heitir Jóhanna Steinunn og stundar hún nám i Menntaskólanum við Hamrahlíð. f kringum hana er búið að stofna hljómsveit og hún syngur inn á sjónvarpsauglýsingu fyrir ferðaskrif- stofuna Útsýn. Margrét var spurð að því hvort hin börnin væru ekkert að leita sér frama á söngbrautinni. „Nei, ekki eins og er. En héma í gamla daga, á meðan þau voru lítil, sungu þau stundum öll saman í barna- tímanum í útvarpinu.” Hjálmtýr er nýkominn frá London þar sem hann söng með Polýfónkórn- um um helgina og Diddú fór þangað út um helgina til að halda áfram söng- námi sínu. En lögin sem Margrét ætlar að syngja annað kvöld eru eins og áður sagði öll íslenzk: eftir Hallgrím Helga- son, Skúla Halldórsson, og er það frumflutt lag, Sigvalda Kaldalóns og Sigurð Þórðarson. DS. r Margrét Matthíasdóttir hefur sungið einsöng með Skagfirzku söngsveitinni undanfarin ár, auk þess sem hún syngur í Fríkirkjukórnum. Annað kvöld fáum við að heyra i henni í fyrsta sinn í útvarpi. DB-mynd Hörður. J Pólar h.f. EINHOLTI 6 39 Vöm-og brauðpeningar- Vöruávísanir Peningaseðlar og mynt Gömul umslög og póstkort FRÍMERKI Allt fyrir saf narann Hjá Magna Laugavegi 15 Sími 23011 Náttfata- markaöur Ingólfsstræti 6 Nýjar vörur daglega Peysur og barnafatnaður brjöstahaldarar, yfir- stærðir í undirfötum og margt margt fieira. Látið ekki happ úr hendi sleppa. Túlípaninn Ingólfsstræti 6. BARÁTTUHÁTÍÐ Sameining 1. maí - gegn kjaraskerðingu Kl. 14 Kröfuganga frá Hlemmi. Kl. 15 Útrfundir á Hallæris- plani. Sætaferðir á innifund. Kl. 16 Innifundir í Sigtúni. Sérstök barna- skemmtun á 2. hæð. Kl. 20 Dansiball i Hreyfils- húsi. ONYX-LAMPAR NÝKOMNIR P0STSENDUM LANDSINS MESTA LAMPAÚRVAL LJÓS & ORKA Suðurlandsbraut 12 sími 84488

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.