Dagblaðið - 06.06.1979, Side 4

Dagblaðið - 06.06.1979, Side 4
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1979. I DB á ne ytendamarkaði Sumaráætlun Flugleiða fyrir Austurland: 18 ferdir til Egilsstaða á viku DB hefur borizt sumaráætlun Flugleiða fyrir Austurland. Sam- kvæmt henni verður flogið í sumar til Egilsstaða, Norðfjarðar og Horna- fjarðar. Til Egilsstaða eru flestar ferðir, 18 í viku, þegar áætlun hefur OSP HARGREIÐSLUSTOFAN MIKLUBRAUT PERMANENT KLIPPINGAR BARNAKLIPPINGAR LAGNINGAR BLASTRAR LITANIR GERUM GÖT I EYRU SÍMI24596 RAQNHILDUR BJARNADÓTTIR HJÖRDÍS STURLAUQSDÓTTIR að fullu tekið gildi. A mánudögum, miðvikudögum, föstudögum og laugardögum eru þrjár ferðir, aðra daga tvær ferðir. Morgunferðir eru alla daga, brott- för frá Reykjavík kl. 10.00 og kvöld- ferðir alla virka daga, brottför frá Reykjavík kl. 19.00. Þáeru síðdegis- ferðir kl. 14.30 frá Reykjavík á mánudögum, miðvikudögum og fimmtudögum. Á laugardögum er þriðja ferð kl. 11.15, en eftir 1. júni kl. 09.00. Morgunflug á laugardegi heldur áfram til Færeyja og er Egils- staðaflugvöllur þannig eini völlur landsins utan Keflavíkur og Reykja- víkur sem tengir ísland við útlandið. Á miðvikudögum og laugardögum halda Flugleiðavélarnar til Norð- fjarðar og fljúga þaðan beint til Reykjavikur. REKHU0L T0LLUÐ SEM LUXUSVARA Kosta frá 65-150 þúsund Þetta karlmannshjól af gerðinni SCO fæst í verzluninni Örninn og hefur kostað 122.000 kr. DB-mynd Hörður. Lavonit er tékkneskt og kostar kvenhjól af þeirri tegund kr. 65.100. Fjölskylduhjólið vinsæla Eska frá Tékkóslóvakíu kostar 79.980. Því fylgir ljósker og handbremsa. Minnsta barnahjólið í Fálkanum er einnig tékkneskt og heitir Velanmos og fæst á 40.430 kr. örninn öminn hefur um langt árabil haft umboð fyrir hin léttstígu SCO-hjól. Stórt hjól af þeirri tegund fyrir kven- fólk fæst nú fyrir 153.000 kr. Sama tegund, en aðeins minni, fyrir karl- menn fæst á kr. 122.000. Winther barnahjól fyrir 3—6 ára kostar 47.800 en fyrir 4—8 ára kostar það 60.400. Er hjól lúxusvara? Þess er að geta að ástæðan fyrir því að reiðhjól era heldur dýr er sú að þau eru verðlögð sem lúxusvara og leggur ríkið á þau alla hugsanlega tolla, þ.á m. vörugjald. Sem dæmi um álögur ríkisins sagði afgreiðslu- kona í Erninum okkur frá því að hjól sem kostar hjá þeim um 150.000 kr. mundi kosta um 50.000 ef opinber gjöld væru felld niður. -GM DB-mynd Hörður. Áhugi á reiðhjólum hefur aukizt mjög upp á síðkastið, ekki sízt eftir hinar miklu hækkanir á bensíni. Hjólreiðamenn era algengari sjón á götum og gangstéttum Reykjavíkur en löngum áður, og nýverið stofnuðu þeir með sér hjólreiðaklúbb. En hvað kostar nýtt reiðhjól? DB fór í tvær grónar reiðhjólaverzlanir í Reykjavík, Fálkann og örninn, og athugaði það. Fálkinn í verzluninni Fálkanum er hægt að fá enskt Raleigh-hjól á kr. 124.950. Þetta er hjól fyrir fullorðna karl- menn. Verðið er frá því i fyrra. Fjölskylduhjólið Eska fæst f verzluninni Fálkinn og hefur kostað 79.980. GLUGGASMÍÐI Tek að mór smíöi á öllum gluggum í hús yðar og svalahurðum. Fasttilboð. VönduÓ vinna og fullkomnustu vólar sem völ er á til gluggasmíði. Upplýsingar í síma 11253kl. 9—12f.h. ogeftirkl. 18. NES-GLUGGAR öm Follxson, T^^^^^^^lndarbrauH9^Sol|Jarnam®sL^^ Samgöngumiðstöð á Egilsstöðum Á Egilsstaðaflugvelli tengist Flug- leiðaflugið Flugfélagi Austurlands sem hefur áætlun til átta staða. Þannig tengist flug frá Reykjavík flugi til Bakkafjarðar, Vopnafjarðar. Borgarfjarðar, Norðfjaröar, Breið- dalsvíkur, Djúpavogs, Hornafjarðar og Akureyrar. Með þessu fyrirkomu- lagi eru t.d. daglegar flugferðir tnilli Norðfjarðar, Egilsstaða og Reykja- víkur, en til annarra staða á Austur- landi era flugferðir þrjá til fimm daga í viku. Þessar ferðir tengja þannig Austurland ekki einungis við Suðvesturland heldur einnig við Suð- austurland og Norðurland. Flugfélag Norðurlands flýgur þrisvar í viku frá Akureyri til Egilsstaða og tengist þar Flugfélagi Austurlands. -GM. v___ Katlar úr kopar: ER GRÆNILÍTUR- INN HÆTTULEGUR? 4802—7180 hringdi: Hraðsuðukatlar úr krómuðum eir (kopar) erá mikið notaðir hér, enda þægilegir. Með tímanum kemur græn húö innan á þá. Er þessi húð eitrað og ketillinn þá varasamur? Er hægt að hreinsa húðir.a af og þá hvernig? Eða krómhúða ketillinn að nýju? Ketilseljendur hér virðast ekki hafa upplýsingar um þetta. Heilbrigðiseftirlit ríkisins hafði eftirfarandi um málið að segja: Græni liturinn (húðin) sem bréf- ritari hefur orðið var við er að öllum líkindum svonefnd „spanskgræna” sem samanstendur af koparkarbónati og koparhýdroxíði sem myndast þeg- ar kopar í belg eða rafskauti ketilsins kemst í snertingu við vatn, súrefni og kolsýru andrúmsloftsins. Efni þessi era hættuleg, en þau era þó bæði torleyst í jafnt heitu sem köldu vatni við það sýrastig, sem yfirleitt ríkir í islenzku neyzluvatni, bæði heitu og köldu. Ekki er því ástæða til þess að ætla að neytendum sé veruleg hætta búin vegna þessa, enda mun hin umrædda húð einungis vera örþunn og um lítið efnismagn að ræða í flestum til- vikum. Séu hins vegar súrir vökvar settir í slíka katla er umtalsverð hætta á upplausn koparsambanda fyrir hendi. Annars má segja að athuganir á vandamálum sem þessum eru af mjög skornum skammti hérlendis vegna fjársveltis viðkomandi stofnana. Raddir neytenda Ódýr barnamatur í Kópavogi og Breiðholti krónur en hefur sem sagt verið lækkað og er það óvenjulegt á þessum verðbólgutímum. Nálð hárunum með vír Húsmóðir i Hafnarfirði hringdi: í sambandi við greinar í blaðinu um daginn um það hvernig losa bæri stíflu úr baðkarsrörum langar mig að fræða fólk um það, að þegar rörin stíflast hjá mér næ ég stíflunni úr með löngum vír. Þegar vírnum er stungið niður í niðurfall kersins loða föst hár við hann og koma upp með honum. Þetta er miklu betri aðferð en að hella einhverjum baneitraðum hreinsiefnum niður í niðurfallið. Húsmóðir i Kópavogi hringdi: Vegna greinar í blaðinu á mánudag í síðustu viku um að barna- matur í krakkum kostaði litlar 181 krónu, ef um grænmeti væri að ræða, langar mig til að koma því á framfæri, að í þremur verzlunum, þar sem ég kaupi að jafnaði barna- mat, kostar krakkan aðeins 160 krónur. Það eru búðirnar Vörðufell, Vogur og Sparimarkaðurinn í Kópa- vogi. í gær fór ég svo inn í Straumnes í Breiðholti og þar kostaði krukka af grænmetismauki enn minna, eða 136 krónur. Bananamauk kostaði í sömu búð 124 krónur. S.S. í Rjúpufelli hringdi: Þið nefnduð um daginn að Linolac barnamjólkurduft mætti kosta 1863 krónur. í verzluninni Kron við Vörðufell kostar mjólkin hins vegar 1740 krónur og í SS- verzluninni við Iðufell aðeins 1160 krónur. Um daginn var verðið 1392

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.