Dagblaðið - 06.06.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ1979.
Allt brunnið ofan af bátnum — stýrishúsið horfið — þegar varðskipsmenn komu að Draupni.
Rétt fyrir hádegið sökk Draupnir
skyndilega og ekkert varð cftir nema
brak á sjónum.
DB-myndir RLA
DRAUPNIR SOKKINN
Hann var illa farinn, mótorbáturinn
Draupnir KE-65, þegar varðskipið Týr
kom að honum út af Snæfellsnesi á
sunnudagsmorguninn. Þá hafði nær
allt brunnið sem brunnið gat, eins og
fram kom í DB í gær.
Draupnir var tekinn í tog um tíu-
leytið á laugardagsmorgun en tæpum
tveimur tímum síðar sökk báturinn
skyndilega og var þá ekkert eftir nema
brak á yfirborði sjávar.
-ÓV
TVEIMUR TIMUM SIÐAR VAR
Reykjavíkurskákmótið:
„Geri frekar ráð fyrir
að vera með”
r
— segir Friðrik Olafsson
„Það er dálítið erfitt fyrir mig að
segja til um það strax, þar sem ég veit
ekki hvernig mínum tíma verður hag-
að, en ég geri frekar ráð fyrir því,”
sagði Friðrik Ólafsson er Dagblaðið
spurði hvort hann hygðist þekkjast boð
^xáksambands íslands um að taka þátt
í Reykjavíkurmótinu í skák sem verður
haldið í febrúar-marz á næsta ári.
,,Ég stefni að því að tefia eitthvað á
hverju ári,” sagði Friðrik, ,,og ég gæti
alveg gert það hér eins og annars
staðar.”
Eins og fram hefur komið í fréttum
hefur ýmsum af sterkustu skákmönn-
um heimsins verið boðið að taka þátt í
þessu móti, t.d. Tal, Kortsnoj, Larsen,
Timman, Hiibner og Browne. Að-
spurður um líkumar á því að Tal feng-
ist til að tefla á móti með Kortsnoj
sagði Friðrik að FIDE hefði sent frá sér
yfirlýsingu þar sem hvatt er til þess að
einstakir skákmenn verði ekki útilok-
aðir frá skákmótum en Rússar hafa
sem kunnugt er neitað að taka þátt í
mótum þar sem Kortsnoj er meðal þátt-
takenda. Sagði Friðrik að líta mætti á
Reykjavíkurmótið sem prófstein í því
máli.
-GAJ
Friðrik kynnti „lce-
landic Modem” á Spáni
— Spánverjar ætla að halda mót með þvífyrirkomulagi
„Ég geri að sjálfsögðu mitt bezta til
að útbreiða þetta kerfi, ekki sízt þar
sem það vill svo til að ég er höfundur
að því,” sagði Friðrik Ólafsson, forseti
FIDE, er Dagblaðið hafði samband við
hann í gær og spurði hvort hann mundi
beita áhrifum stnum sem forseti FIDE
til að vinna að útbreiðslu hins svokall-
aða „Icelandic Modem” fyrirkomu-
lags en í Dagblaðinu í gær var sagt frá
grein sem David Levy, þekktur skák-
dálkahöfundur, skrifaði og taldi að
þetta fyrirkomulag ætti mikla framtíð
fyrir sér í skákheiminum.
Friðrik sagði að hann hefði verið á
Spáni um daginn og útskýrt þetta kerfi
fyrir skákmönnum í Barcelona. Þeim
hefði litizt mjög vel á það og hefðu nú
ákveðið að halda mót með sínum beztu
skákmönnum þar sem þetta kerfi yrði
notað.
„Það sem vakti fyrir mér,” sagði
Friðrik, „var að gera skákina aðgengi-
legri fyrir áhorfendur þar sem skákin er
núna í dálítið þunglamalegu formi og
gengur seint fyrir sig. Þetta er fyrst og
fremst gert fyrir áhorfendur og skák-
menn verða þvi að fóma einhverju á
móti.”
Þá spurði DB Friðrik hvemig honum
litist á róttækari breytingar á skákinni,
eins og þá hugmynd sem fram hefur
komið og sagt var frá í Þjóðviljanum
nýlega, sem byggist á því að skákmenn
ráða hvar á 1. eða 8. línu þeir stilla
þungu mönnunum í upphafi skákarinn-
ar. Friðrik sagðist ekki trúaður á að
slíkar hugmyndir ættu eftir að verða að
veruleika. Slíkt mundi bara leiða af sér
nýja „teóríu” og sömu „principin”
mundu gilda eftir sem áður. Slík breyt-
ing mundi því ekki þjóna neinum til-
gangi þegar til lengdar léti og væri að
sínu mati fyrst og fremst „breyting
breytinganna vegna”. -GAJ
Deila um kjör sumarmanna íFríhöfninni
„Augljóst
brotá
samn-
ingum”
— segir BSRB — „ráðnir á eðiiiegum kjörum”,
segir framkvæmdastjóri Fríhafnarinnar
„Þetta er augljóst brot á samning-
um um vinnutíma og brot á lögum
um starfskjör launþega,” sagði Krist-
ján Thorlacius, formaður BSRB, i
samtali við DB í gær. Á föstudaginn
kom BSRB í veg fyrir að tíu sumaraf-
leysingamenn hæfu störf í Fríhöfn-
inni á Keflavíkurflugvelli þar sem
álitið er aö kjör þeirra séu ekki í sam-
ræmi við samninga BSRB. Einkum er
sett út á tilhögun vinnutíma þessara
starfsmanna.
Kristján Thorlacius kvaðst hafa
haft samband við Benedikt Gröndal
utanríkisráðherra, sem er yfirmaður
Frihafnarinnar, og hefði verið ákveð-
ið að sumarmennirnir tiu hæfu ekki
störf fyrr en samningar hefðu tekizt
um deiluefnið við stéttarfélag þeirra,
Starfsmannafélag ríkisstofnana.
„Það kemur ekki til greina að við
höfum mislesið samninga,” sagði
Þórður Magnússon, framkvæmda-
stjóri Fríhafnarinnar. „Þessir starfs-
menn voru ráðnir á eðlilegum kjör-
um.” Þórður kvaðst álíta að ástæðan
fyrir afskiptum BSRB væri óróleiki
innan sambandsins vegna væntan-
legra kosninga.
-'iM
■V - •' ^ ■ ■■ • - M
....... , \
Pylsuvagn í miðbæ Kópavogs
Bæjarráð Kópavogs hefur sam- bæjarsvæði Kópavogs.
þykkt að veita ungum Kópavogsbúa, Hér er um tilraun að ræða sem
Kristjóni Benediktssyni, leyfi til eins væntanlega mun lífga upp á miðbæ
árs til þess að reka pylsuvagn á mið- Kópavogs. -JH
V.
Reiðhjólaskoðun
f Reykjavík 1979
Lögreglan og Umferðarnefnd Reykjavíkur
efna til reiðhjólaskoðunar fyrir börn á
aldrinum 7—14 ára.
Fimmtudagur 7. júní
Hvassaleitisskóli kl. 09.30
Fossvogsskóli kl. 11.00
Breiðholtsskóli kl. 14.00
Árbæjarskóli kl. 15.30
Föstudagur 8. júní
Vogaskóli kl. 09.30
Langholtsskóli kl. 14.00
Breiðagerðisskóli kl. 15.30
Mánudagur 11. júní
Fellaskóli kl. 09.30
Hlíðaskóli kl. 11.00
Melaskóli kl. 14.00
Austurbæjarskóli kl. 15.30
Þriðjudagur 12. júní
Hólabrekkuskóli kl. 09.30
Ölduselsskóli kl. 11.00
Álftamýrarskóli kl. 14.00
Laugarnesskóli kl. 15.30
Börn úr öðrum skólum mæti við þann skóla
sem næst er heimili þeirra. Þau börn sem b^fa
reiðhjól sín í lagi, fá viðurkenningar e i
Umferðarráðs 1979.
Lögreglan í Reykjavík
Umferðarnefnd Reykjavfkur.