Dagblaðið - 06.06.1979, Page 10

Dagblaðið - 06.06.1979, Page 10
10 BIAÐIÐ Útgefandi: Dagblaðið hf. Framkvœmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjórí: Jónas Kristjánason. Ritstjómarfulitrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí rítstjómar Jóhannes Reykdal. Fróttastjórí: ómar Valdimarsson. íþróttir Hallur Simonarson. Menning: Aðalsteinn IngóHsson. Aöstoðarfróttastjórí: Jóqas Haraldsson. Handrít: Ásgrímur Pólsson. Blaðamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómassog, Atli Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefénsdótt- ir, Gissur Sigurðsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Holgi Pétursson, Ólafur Geirsson, Siguröur Sverrisson. Hönnun: Guðjón H. Pálsson. Ljósmyndir Ámi Páll Jóhanns*on, Bjamleifur BjamleHsson, Höröur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son, Svoinn Pormóðsson. Skrífstofustjórí: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkorí: Práinn ÞorieHsson. Sölustjóri: Ingvar Svoinsson. Dreifing arstjóri: Már E.M. Halldórsson.___________________________ Ekki von, að vel fari Yfirlýsing framkvæmdastjórnar /g Framsóknarflokksins um aðgerðir gegn verðbólgu, vinnudeilum og harðindum er heiðarleg tilraun til að benda á, hvernig fresta megi vandamálunum fram til næstu áramóta. _ Við ríkjandi aðstæður eru bráða- ' ~ ~ birgðalausnir að sjálfsögðu betri en engar lausnir. Þær veita að minnsta kosti svigrúm, sem hugsanlega mætti nota til varanlegri lausna. En því miður skortir póli- tískan vilja til slíkra lausna. Framsóknarflokkurinn vill vísitöluþak á laun, lík- lega við 400 þúsund króna mánaðarlaun, og hleypa 3% grunnkaupshækkun á línuna. Það er auðvitað því skil- yrði háð, að grunnkaup haldist að öðru leyti óbreytt til áramóta. Flokkurinn vill fresta kjaradeilum til áramóta, bæði þeim, sem nú standa, og hinum, sem á eftir munu fylgja. Síðan verði stefnt að tveggja ára kjarasamning- um um næstu áramót. Þessar tillögur eru þungamiðja yfirlýsingarinnar. Þá vill flokkurinn takmarka verðhækkanir, einfalda kjarasamninga og setja skyldusparnað á hæstu laun. Þetta eru minni háttar atriði eins og 3%-in og vísitölu- þakið. Frysting vinnudeilna til áramóta er kjarni málsins. Alþýðubandalagið er sammála 3%-unum og vísi- töluþakinu og vill setja um það sérstök bráðabirgða- lög. Hin atriðin séu ekki vettvangur laga, heldur væntanlega samkomulagsatriði við þrýstihópa í þjóð- félaginu. Draga verður í efa, að unnt sé með góðu að ná slíku samkomulagi við einstaka hópa. Farmenn og mjólkur- fræðingar eru ekki á þeim buxunum að fórna kjarabót- um umfram 3%-in. Og fái þeir eitthvað umfram, munu aðrir hópar fylgja á eftir. Að vísu hafa farmenn lýst því yfir fyrirfram, að þeir muni ekki láta frysta kjör sín með bráðabirgðalögum. Þeir muni einfaldlega líta á slíkt sem ólög og ekki virða þau. Þetta veikir hugmyndina um bráðabirgðalög í stað samkomulags. Ríkisstjórnin getur auðvitað reynt að sýna farmönn- um og mjólkurfræðingum fram á tilgangsleysi svo- kallaðra kjarabóta. Allir aðrir hópar muni fylgja á eftir og fá að minnsta kosti hið sama. Þar með séu kjarabæturnar orðnar einskis virði. Reynslan sýnir bara, að í vinnudeilum eru menn ekki næmir fyrir röksemdum af þessu tagi, þótt réttar séu. Menn ímynda sér jafnan í vinnudeilum, að þeir séu að ná einhverju sérstöku umfram aðra. Segjum svo, að farmenn og mjólkurfræðingar nái 20% kjarabótum. Aðrar stéttir munu síðan ná þessum kjarabótum líka. Þá verður verðbólgan um eða yfir 60% í stað 43%. Allir sitja þá eftir í sömu sporum og áður. Verðbólgan ein græðir. Reynslan sýnir meira að segja, að þeir fá oft minnst, sem fyrstir brjóta ísinn. Eftir samninga fyrstu hópanna verður það keppikefli hinna síðari að fá heldur meira. Þetta skilja í rauninni allir, nema þeir, sem eiga í vinnudeilu hverju sinni. Ástandið er afleitt, jafnvel þótt ríkisstjórninni tækist að knýja fram kjarafrystingu til áramóta með góðu eða illu. Verðbólgan verður samt um 43%, meiri en efna- hagslífið þolir. Þar við bætast svo harðindin, sem vafalítið munu leggja þungar byrðar á opinbera sjóði og skattgreið- endur. Og í olíuverðhækkunum erum við alls ekki búin aðbíta úr nálinni. Við höfum ríkisstjórn, sem virðist ekki geta náð neinu raunhæfu samkomulagi um að stjórna. Við höfum stjórnarandstöðu, sem virðist ætla að freistast til að spiUa fyrir í vinnudeilum. Og við höfum þrýsti- hópa, sem eru einkar skammsýnir. Við slíkar aðstæður er ekki von, að vel fari. DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1979. Kjallarinn AÐ EI6NAST EÐÁ SAFNJV Stöð cftir Ragnar Kjartansson — eitt af listaverkum i eigu Reykjavikurborgar. Það vita vist flestir að Listasafn íslands á stærsta safn myndlistar á landinu. En hvað skyldu margir vita að næststasrsta safnið er í eigu Reykjavíkurborgar? Síðast þegar ég vissi, átti borgin hátt á þriðja hundrað myndverk eftir allan þorra íslenskra myndlistarmanna, Kjarvals- safn þar að auki og svo nokkra tugi myndverka á almannafæri, þ.e. myndastyttur. En það merkilega er að borgin hefur aldrei átt og á ekki enn stefnuskrá um kaup, notkun og umhirðu þessara verka, nema hvað safn Kjarvals á sér reglugerð og fastan samastað. Eiginlega er ekki hægt að segja að um skipulega söfn- un hafi verið að ræða fráborgarinnar hendi gegnum árin og flest verk hefur hún eignast með happa- og glappaað- ferðinni. Ýmsa embættismenn hefur vantað eitthvað fallegt á vegg hjá sér, borginni voru gefin verk, styrkja þurfti einhvem pólitískan vildarvin í listamannastétt eða þá að listaverk voru tekin upp i opinber gjöld, — þannig hefur nú gangurinn verið. Þrýstihópar staösetja Ekki var ástandið ýkja ólíkt hvað myndastyttur snerti. Voldugir ein- staklingar og þrýstihópar höfðu oft meira að segja hvaö kaup og stað- setningu opinberra listaverka snerti heldur en borgarstarfsmenn — hvað þá heldur listmenntaðir einstakling- ar. Og ekki var heldur farið eftir vilja listamannanna sjálfra, sbr. Sigurjón Ólafsson og merina góðu. En þótt engin meginstefna væri nokkum tíma mótuð varðandi kaup og notkun listaverka hjá borginni, lentu þessi mál með tíð og tima í höndum valin- kunnra manna, þeirra Páls Líndal og Hafliða Jónssonar. Páll gerði tillögur að kaupum á listaverkum fyrir borg- ina, en leitað var á náðir Hafliða þegar staðsetja þurfti myndastyttur. Nú er slíkt einræði meingallað, en sem betur fer vom þarna smekkmenn að verki sem tóku tillit til skoðana annarra, bæði listamanna og list- áhugafólks, og margt var velgert í tíð þeirra. Stjórnleysi En þar sem engar reglur lágu fyrir um þessi mál, var áhrifamönnum í lófa lagið að sniðganga þessa tvo heiðursmenn ef mikið lá við. Ein- kennilegustu verk voru keypt bak við tjöldin til að bjarga pólitískum sam- herjum fyrir hom og misjafnlega inn- blásin útiverk fóm aö birtast á ólík- Aðalsteinn Ingólfsson En siðan Páll hætti störfum hjá borginni hefur algjört stjómleysi rikt hvað listaverkakaup snertir og sér- viska í staðsetningu myndverka fer vaxandi, sbr. verk Gerðar Helga- dóttur í Austurstræti. Hinir ýmsu borgarfulltrúar taka það nú upp hjá sjálfum sér að kaupa þau verk sem þeim líst vel á, fyrir þakkláta borgar- búa — og með fullri virðingu fyrir þessum fulltrúum þá em þeir margir þekktir fyrir annað en góðan smekk. Setja þarf reglur Nú síðast varð embættismaður hjá borginni svo hugfanginn af málverki eftir nemanda í MHÍ að hann var ekki í rónni fyrr en það var keypt. Það er sannarlega mál að þessu handahófi linni. Borgin verður að gera sér grein fyrir því að hún á mikið safn af listaverkum og þá ábyrgð Hún gæti byrjað á því að merkja styttur bæjarins, sem margar hverjar valda innlendum sem erlendum miklum heilabrotum. Vel á minnst, hvar em flest listaverk borgarinnar geymd? Jú, þeim er dreift um borgar- skrifstofur og þar geta menn séð þau þegar þeir borga ýmis gjöld eða kvarta undan skólplögninni. Á mörgum þessara staða er skipt um verk meö nokkuð reglulegu millibili. Nú hefur verið minnst á það að borgin þyrfti að stofna sérstakt safn, kannski i tengslum við Kjarvalsstaði, utan um þessa listaverkaeign. Á þessu hafa margir borgarfulltrúar sjálfsagt brennandi áhuga, ef að líkum lætur. Sjálfum finnst mér ekki tímabært að hugsa svo stórt, fyrr en eignin nálg- ast fyrsta þúsundið og á meðan eru verkin ágætlega geymd á opinberum' skrifstofum þar sem fjöldi fólks ber þau augum daglega. En með þeim þarf að fylgjast og það verk gæti ofangreind nefnd einnig tekið að sér. Borgarbúar eiga heimtingu á því að á þessum málum sé tekið með festu og þeirfáieitthvaðgott fyrir þá peninga sína sem þegar er eytt til listaverka- kaupa. Annars vakna þeir við vond- an draum eftir nokkur ár og upp- götva að borgin þeirra hefur komið sér upp landsins besta safni af meðal- skussum. ^ „Annars vakna þeir viö vondan draum eftir nokkur ár og uppgötva að borgin þeirra hefur komið sér upp landsins bezta safni af meöalskussum.” Safn ekki tímabært legustu stöðum. Sjálfur man ég gjörla dag einn er ráðamenn við eina borgarstofnunina vissu ekki fyrr en menn birtust til að mæla út svæði fyrir framan húsið. Aðspurðir sögðust þeir ætla að fara að koma fyrir styttu sem vel tengdur lista- maður vildi láta setja þar upp eftir sjálfan sig. verður hún að axla með þeim hætti sem tíökast í siðuðu samfélagi. Það væri góð byrjun að setja reglugerð um listaverkaeign borgarinnar og síðan ætti að veita ákveðinni upphæð til kaupa listaverka á ári hverju í stað þess að snapa úr öðrum sjóðum og ætti sú upphæð að fylgja verðbólg- unni. Næsta skrefið yrði væntanlega að stofna listanefnd sem gæti saman- staðið af borgarfulltrúum, listmennt- uöu fólki í þjónustu borgarinnar og öðrum einstaklingum. Sú nefnd ætti að fjalla um öll listaverkakaup borgarinnar og sömuleiðis mætti leita til hennar þegar ákveðið væri að kaupa styttur og koma þeim fyrir á almannafæri og einnig yrði henni falið að hafa umsjón með öllum þeim listaverkum sem borgin þegar á.

x

Dagblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.