Dagblaðið - 06.06.1979, Page 23
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 6. JÚNÍ 1979.
i
Utvarp
' 23
Sjónvarp
9
i-----------------------------------------\
VALDADRAUMAR - sjónvarp kl. 21.05:
Richard Jordan i hlutverki sinu sem
Jósef Armagh.
Hvað skeður með
Elísabetu og Jósef?
Valdadraumar, myndaflokkurinn
sem sagður er betri en Gæfa eða
gjörvileiki, er á dagskrá sjónvarpsins i
kvöld kl. 21.05. Það er fimmti þáttur af
átta sem sýndur verður.
í fjórða þætti gerðist það helzt að
Jósef Armagh kvænist dóttur Katrínar
Hennessey, Bernadettu, og er þar með
að efna loforð sem hann gaf Katrínu á
dánarbeði hennar.
Sean, bróðir Jósefs, er orðinn kunn-
ur verkalýðsleiðtogi og er hann á-
kærður fyrir skemmdarverk. Jósef
bjargar bróður sínum en aðeins til að
halda mannorði fjölskyldunnar ó-
flekkuðu.
Elísabet Healey er orðin ekkja og
Jósef fellir til hennar ástarhug.
Til að spilla ekki spenningi
kvöldsins fyrir áhorfendum verður
ekki sagt frá myndinni í kvöld. Þess
má geta að myndin er um uppruna
Kennedyfjölskyldunnar i Bandaríkjun-
um, þóeinhverju séþó breytt.
Sagan er eftir Taylor Caldwell og
var hún framhaldssaga Vikunnar árið
1973 og nefndist þá írskt blóð.
Þýðandi þáttanna er Kristmann Eiðs-
son.
-ELA.
(
Sjónvarp
í
Miðvikudagur
6. jum
20.00 Fréttir og veður.
20.25 Auglýsingar og dagskrá.
20.30 Barbapapa. Endursýndur þáttur úr Stund-
inni okkar frá siðastliðnum sunnudegi.
20.35 LiísglaAir apakettir. Á hólma nokkrum
við strönd Puerto Rico búa einir 500 rhesus-
apar fjarri skarkala heimsins. Þessu iitla og
skemmtilega samfélagi svipar um margt til
samfélags mannanna, en það var stofnað fyrir
réttum fjörutíu árum, til þess að vlsindamenn
gætu athugað hegðun apanna. Þýðandi og
þulur Óskar Ingimarsson.
21.05 Valdadraumar. Fimmti þáttur. Efni fjórða
þáttar Jósef Armagh efnir loforðið, sem hann
gaf Katrlnu Hennesscy, og kvænist dót'tur
hennar, Bernadettu. Sean Armagn, orooir
Jósefs, er orðinn kunnur verkalýðslciötogi.
Hann er ákærður fyrir skemmdarverk, sem
hann er saklaus af, og dæmdur til dauöa. Jósef
bjargar honum til þcss að mannorð fjölskyld-
unnar haldist óflekkaö. Jósef hittir Elisabetu
Healey, sem nú er ekkja Toms Hennesseys, og»
hann fellir hug til hennar. Þýðandi Kristmann
Eiðsson.
21.55 Svlar tala við Alexander Haig. VarsjAr-
. bandalagsrikin hafa á að skipa meiri mannafla
og herbúnaft en NATO, og þeirri spurningu
hefur vcrið varpaö fram, hvort þau gætu her
numið Vestur-Evrópu á fáeinum vikum, ef
þau kæröu sig um. Yfirmaöur herafla NATO
svarar þessari spumingu og öðrum í þætti frá
sænska sjónvarpinu. Þýðandi Jón O. Edwald.
(Nordvision — Sænska sjónvarpiö).
22.25 Dagskrárlok.
bíleigendur
Almennur félagsfundur FÍB verður
í kvöld kl. 20.30 að Hótel Borg.
Fundarefni: Áframhaldandi aðgerðir.
Frummælendur: Hörður Einarsson,
ritstjóri Vísis
Sveinn Torfi Sveinsson, verkfræðingur.
Fundarstjóri: Arinbjörn Kolbeinsson.
Nýir félagsmenn velkomnir.
t---------------------N
MIÐDEGISSAGAN - útvarp kl. 14.30:
Víðf ræg saga um
Amundsen og Scott
I gær byrjaði Sigurður Gunnarsson
lestur á nýrri miðdegissögu í útvarpi.
Nefnist hún Kapphlaupið og er eftir
Kaare Holt, kunnan norskan rit-
höfund. Sigurður, sem jafnframt er
þýðandi sögunnar, sagði að sagan
hefði komið út árið 1974 og þá strax
vakið mikla athygli og einnig deilur í
heimalandinu þar sem mörgum þótti og
þykir enn að höfundurinn sé nokkuð
nærgöngull í frásögn sinni.
Bókin fjallar um hina örlagariku för
þeirra Amundsens og Scotts til suður-
skautsins. Hún barst fljótt til annarra
þjóða og hefur hún nú verið þýdd á
mörg tungumál og hefur hvarvetna
hlotið verðskuldaða athygli.
Höfundurinn Kaare Holt er nú
rúmlega sextugur og er við beztu heilsu.
Hann er mikilsvirtur og talinn í fremstu
röð núlifandi skáldsagnahöfunda í
heimaiandi sínu. Eitt kunnasta ritverk
hans er um Sverri konung Sigurðsson,
þrjú stór bindi.
Á síðasta ári völdu norskir
gagnrýnendur bók eftir Kaare Holt til
keppni um bókmenntaverðlaun
Norðurlanda, Það var bókin Sonn af
jord og himmel — bók um Hans
Egede, „postula Grænlands”.
Sagan Kapphlaupið er þriðja sagan
eftir Kaare Holt sem lesin er i út-
Sigurður Gunnarsson þýðandi og lesari
miðdegissögunnar.
varpinu. Hinar eru: Á hættuslóðum i
ísrael og Sigur í ósigri, báðar viðkunn-
ar og eftirminnilegar bækur. Þýðand-
inn Sigurður Gunnarsson gerir sér
ákveðnar vonir um að sagan Kapp-
hlaupið veki hér óskipta athygli eins og
annars staðar.
-ELA.
DB-mynd ÁP.
BARNAEFNIÐ
FLYTUR
Barnatími sjónvarpsins sem verið
hefur í vetur kl. 18 á miðvikudögum
færist á sunnudaga í sumar og hefst
sjónvarp þvi ekki fyrr en kl. 20 í kvöld.
Þó er börnunum ekki alveg gleymt í
dagskránni. Eftir fréttir í kvöld verður
endursýndur þátturinn um Barbapapa
fráþvíásunnudag.
í sumar er ætlunin að hafa
Barbapapa eftir fréttir á
miðvikudögum og síðan fræöslu-
myndir sem sérstaklega eru ætlaðar
fyrir börn.
Stundin okkar er nú hætt í bili en í
staðinn færast þeir dagskrárliðir sem
hafa verið á miðvikudögum yfir á
sunnudagana milli kl. 18 og 19, eins og
áður sagði. -ELA.
V ^
Útvarp
Miðvikudagur
6. júní
13.20 A vinnustaðnum. Umsjónarmenn: Haukur
Már Haraldsson og Hermann Sveinbjörnsson.
Kynnir: Asa Jóhannesdóttir.
14.30 Mlðdegissagan: „Kapphlaupið” eftir
Kaare Holt. SigurÖur Gunnarsson les þýðingu
sína (2).
15.00 Miðdegistónleikar Sinfóniuhljómsv. út-
varpsins ( Moskvu leikur Fantasíu op. 7
„Klettinn~ eftir Sergej Rakhmaninoff;
Gennadi Rozhdestvenský stj. / Fílharmonlu-
svcitin i Vin leikur Sinfóniu nr. 2 í D-dúr op.
43 eftir Jean Sibclius; Lorin Maazcl slj.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veöurfregnir).
16.20 Popphorn: Halldór Gunnarsson kynnir.
17.20 Litll barnatírainn. Stjórnandi: Unnur
Stefánsdóttir. Litið inn i lcikskólann Álfuborg
og hlusuð á söng. sögulestur og frásagnir
barna, auk þess sem þau eru tekin uli.
17.40 Tónleikar.
18.00 Vlðsjá (endurtekin frá morgninum).
18.15 Tónlcikar. Tilkynningar.
i 8.45 Veöurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkynningar.
19.35 Finsöngur I úharpssaL* Svala Nielsen
s.vngur lög eftir Ingólf Sveinsson. Guðrún
Kristinsdóttir leikur á píanó.
20.00 Kamroertónleikar. a. Dagmar Simonkova
leikur tvö píanólög op. 65 eftir Václav Jan
Tomásek. b. Félagar i Kammersveitinni í
Qucbec leika Kvintett í G-dúr fyrir blásara og
strengjasveit eftir Johann Christian Bach
Adagio og rondó (K617) fyrir selestu og blás-
ara eftir Wolfgang Amadeus Mozart.
20.20 (Jtvarpssagan: „Fórnarlambið” eftir Her-
mann Hesse. Hlynur Ámason lýkur lestri
þýðingarsinnar(14).
21.00 PlanósónaU nr. 8 í B-dór op. 84 eftir
Sergej Prokofjeff. Lazar Berman leikur.
21.30 Ljóö eftir Kristin Bjarnason frá Ási i
Vatnsdal. Hrafnhildur Kristinsdóttir les.
21.45 Iþróttir. Hermann Gunnarsson segir frá.
22.05 Að austan. Birgir Stefánsson kennari á Fá-
skrúösfirði scgir frá.
22.30 Vcðurfregnir. Fréttir. Dagskrá morgun-
dagsins.
22 50 Svört tónlist Umsjón: Gerard Chinotti.
Kynnir: Jórunn Tómasdóttir.
23.35 Fréttir. Dagskrárlok.
Grundarfjörður
Nýr umboðsmaður Dagblaðsins í Grundar-
firði er Kristín Kristjánsdóttir, Sæbóli 12,
sími 93-8727.
mBLAÐIB
Bílasalan
Skeifan
Skeifunni 11.
Símar: 84848
35035
Meðal annars
á söluskrá!
Peugeot 504 statlon, sjilfskiptur. Ford Gransds irg. 1975. Þessl er frá-
Góður bill. Verð 6.3 mU|j. bær. Verð 4 mUljónlr.
Range Rover irg. 1976, hvitur, 8
cyl, beinsldptur, aflstýri. Fallegur
bíll. Verð 8 mUIJónlr.
Chevrolet Nova Custom árg. 1973,
litur orange, 2 dyra, 8 cyl, 307 cub.
Sjólfskiptur aflstýri og -bremsur,
breifl dekk, útvarp, segulband. Verð
3.4 millj.
Scout II árg. 1974, sjálfskiptur afl-
stýri og -bremsur, krómfelgur, breið
dekk, fimm dekk á felgum fylgja.
Mjög athygllsverður bUI. Verð 4,1
milljr