Dagblaðið - 06.06.1979, Page 24
' ' "
Benedikt Davíðsson formaður Sambands byggingarmanna:
„FRESTUN FARMANNAVERK-
FALLS MED LÖGUM KEMUR
ENNÞA TIL GREINA
ff — mögulegt að hindra
„allsherjaruppgjör”
„Ég tel jafnvel ennþá koma til
greina aö lögfesta með bráðabirgða-
lögum frestun farmannaverkfallsins
eða sáttatillögu i því um stuttan
tíma,” sagði Benedikt Davíðsson,
formaður Sambands byggingar-
manna og forystumaður í Alþýðu-
bandalaginu, í viðtali við DB í gær.
Benedikt Davíðsson sagði þó að
tómt mál væri að tala um þetta
meðan hlutur almennra verkamanna
væri ekki leiðréttur með því að láta
þá fá 3Vo grunnkaupshækkun. Sú
aðgerð, að stöðva farmannaverk-
fallið, væri nú miklu erfiðari en hún
hefði verið ef ríkisstjómin hefði strax
farið rétt að. Þrjú prósentin hefðu
strax átt að ganga yfir alla linuna og
setja hefði átt vísitöluþak. Jafnframt
því hefði átt að fara þess á leit við al-
mennu verkalýðsfélögin að þau féll-
ust á frestun grunnkaupshækkana til
1. desember. Hann teldi að þau hefðu
orðið við þeirri málaleitan við þær
aðstæður, nánast öll, en einstakir
hópar kynnu að hafa tekið sig út úr.
Hefði þá mátt beita lögum til að
stöðva slika hópa.
Almennir verkamenn hefðu átt að
fá þrjú prósentin með lögum frá
Alþingi meðan þingið sat. Ekki hefði
verið æskilegt að ganga til samninga
við atvinnurekendur upp á það eitt að
fá þrjú prósentin. Það mundi bægja
frá miklum vanda ef enn reyndist
unnt að veita almennum verkalýðs-
félögum kjarabætur sem hindruðu
„allsherjar uppgjör” á vinnu-
markaðinum. Benedikt min'nti á
kauphækkun flugmanna og þá
hækkun sem nú hefði orðið hjá
verzlunarmönnum, til samræmis við
yfirborganir, að því er sagt væri.
Fengju verkamenn nú 3% kaup-
hækkun og yröi sett vísitöluþak teldi
hann enn mögulegt að þeir féllust á
framlengingu samninga til 1.
desember. -HH
Bólar
ekkiá
fisk-
veröinu
Ákvörðun nýs fiskverðs dregst enn á
langinn þrátt fyrir að það hafi verið
stefna stjómvalda að nýtt verð lægi
fyrir 15. maí i ljósi olíuhækkana í vor
og síðan í síðasta lagi 1. j úní.
Síðasti fundur í yfirnefnd verðlags-
ráðs var haldinn á föstudaginn, eftir að
nýjustu olíuhækkanafréttir bárust, og
hefur ekki verið boðað til fundar síðan.
Er það álit nefndarmanna að endur-
skoða þurfi allan grundvöjl fisk-
verðsins upp á nýtt vegna olíuverðsins
og vandinn sé svo stór að stjómvöld
verði þar að gripa inn í.
Þrátt fyrir óvissuna íhuga sjómenn
ekki enn neinar aðgerðir, enda telja
þeir sig eiga rétt á uppbótum allt aftur
til 15. maí, þegar nýja verðið kemur.
-GS.
Kjötið ogmjólkin:
Síðasti dagur-
inn á wlágaw
verðinu?
„Þetta verður væntanlega síðasti
dagurinn sem landbúnaðarvömr verða
seldar á ,,lága” verðinu,” sagði Sveinn
Tryggvason, framkvæmdastjóri Fram-
leiðsluráðs landbúnaðarins, í viðtali við
DB.
,,Ég tel okkur hafa fengið loforð
fyrir því að ríkisstjómin fjalli um
verðlagsmál landbúnaðarvara í dag og
nýja verðið gangi i gildi frá og með
morgundeginum.”
Sveinn varðist allra frétta um nýja
verðið sem hann dró þó ekki dul á að
„lægi á borðinu”. Hann kvað ekki
unnt að tala um einhverja ákveðna
prósentuhækkun varanna. Hækkunin
væri mjög misjöfn, sem m.a. stafaði af
því að sama krónutöluhækkun kemur á
hverja verðeiningu, hvort sem hún er
niðurgreidd eða ekki., ,Af því leiðir að
þær vömr sem niðurgreiddar em fyrir
hækka tiltölulega miklu meira en hinar
sem óniðurgreiddar em,” sagði Sveinn.
Það em því síðustu forvöð í dag að
kaupa landbúnaðarvörurnar á „gamla
verðinu”.
-ASt.
Það var ekki að sjá að honum Geng Biao varaforsætisráðherra Kina brygði við fisklyktina sem streymdi á móti honum
þegar hann gekk inn i hraðfrystihús ísbjarnarins f morgun. í hinu nýja fiskiðjuveri á Grandagarði tóku á móti honum
forráðamenn fyrirtækisins, þeir Ingvar Vilhjálmsson og Jón Ingvarsson, leiddu hann um húsið og skýrðu framleiðsluna.
BH/DB-mynd Hörður.
UBS. iarsL- 5/ '^rrsi
i M |.
Vinnuveitendur boða verkbann f rá 18. júní:
Vinnumálasambandið
verður ekki með
—þar eru 20% af almennum vinnumarkaði
„Við erum ekki með ráðagerðir
um svona aðgerðir,” sagði Júlíus Kr.
Valdimarsson hjá Vinnumálasam-
bandi samvinnufélaganna í viðtali við
DB í morgun. í gær samþykkti sam-
bandsstjórn Vinnuveitendasambands
tslands að boða til almenns samúðar-
verkbanns frá og með 18. júní nk„ er
nái til allrar starfsemi innan VSt.
Aðilar að Vinnumálasambandi
samvinnufélaganna eru SÍS, dóttur-
fyrirtæki þess og samstarfsfyrirtæki,
þ.á m. oUufélag og mörg frystihús.
Júlíus Kr. Valdimarsson kvað ekki
fjarri lagi að innan Vinnumálasam-
bandsins væri 1/5 af hinum almenna
vinnumarkaði.
Verkbann VSt nær ekki til
heilbrigðisþjónustu, neyðarþjónustu,
farþegaflutninga, smásöluverzlana
með matvörur, útgáfu dagblaða og
dreifíngu áburðar og fóðurbætis.
VSÍ kveðst jafnframt munu veita
undanþágur eftir nánari ákvörðun á
hverjum tíma.
í fréttatilkynningu frá VSÍ segir
að yfirstandandi vinnustöðvanir hafí
nú kreppt mjög að atvinnustarfsemi
í Iandinu. Stöðvun blasi víða við,
markaðsstöðu tslendinga erlendis
hafi verið teflt í tvisýnu og með vax-
andi notkun útiendra leiguskipa
aukist hættan á því að vöruflutningar
á sjó færist í hendur erlendra út-
gerðarfélaga.
Með hliðsjón af þessum
aðstæðum megi ljóst vera að
Vinnuveitendasambandið geti ekki
lengur látið hjá líða að beita virkum
aðgerðum til þess að knýja á um
skjóta lausn kjaradeilunnar í sam-
ræmi við þá kjaramálastefnu, að
ekki komi til grunnkaupshækkana á
þessu ári, segir ennfremur í fréttatil-
kynningu frá Vinnuveitendasam-
bandi íslands.
-GM.
frjálst, úháð dagblað
MIÐVIKUDAGUR 6. JUNÍ1979.
Eftir að Kristinn hætti:
SAFNAÐ
FYRIR
TÍMANN
„Fjársöfnun til styrktar Tímanum”
er fyrirsögn í Tímanum í morgun. Segir
þar frá að oft hafi reksturinn á blaðinu
gengjð erfiðlega en síðasta ár hafí stein-
inn tekið úr, svo nú sé nauðsynlegt að
losa blaðið úr þeirri skuldasúpu sem
það er í. Þá fyrst verði möguleiki á að
breyta blaðinu og bæta eins og hugur
aðstandenda blaðsins hefur staðið til.
Til að koma fjársöfnuninni af stað
hefur starfað undirbúningsnefnd sem í
eiga sæti m.a. hinn nýi framkvæmda-
stjóri Tímans Jóhann H. Jónsson,
Guðmundur G. Þórarinsson o.fl.
Svo sem kunnugt er lét Kristinn
Finnbogason nýlega af starfi við
Tímann eftir margra ára starf og kemur
þessi fjársöfnun skömmu eftir að hann
læturaf störfum.
Síðast þegar efnt var til fjársöfnun-
ar til stuðnings íslenzku dagblaði var
þaðsöfnun Alþýðuflokksins A-77 árið
1977 til að bjarga Alþýðublaðinu úr
skuldasúpu þeirri sem það þá var
komiðí.
-BH.
Úrslitakeppnin íLuzem:
Skin og
skúrir hjá
íslendingunum
í 2. umferð úrslitakeppni svæða-
mótsins í Bazel í Sviss, sem tefld var í
gær, sigraði Guðmundur Sigurjónsson
Svíann Karlsson en Helgi Ólafsson
tapaði fyrir ísraelsmanninum Kagan.
Griinfeld og HObner gerðu-jafntefli og
einnig Wadberg og Helmers. Staðan
eftir 2 umferðir er því sú að Kagan,
ísrael, er efstur með 2 v„ næstir koma
Guðmundur, Húbner og Wadberg með
1,5 v. Helgi, Helmers og Grtlnfeld eru
með 0,5 v. og Karlsson hefur engan
vinning hlotið. Þrír efstu menn vinna
sér rétt til þátttöku á millisvæðamóti. í
dag teflir Helgi við Húbner og
Guðmundur við Wadberg.
_________________-GAJ-
Farmenn:
Skriðurað
komastá
Undirnefndir farmanna unnu fram á
kvöld í gær þar sem lögð var síðasta
hönd á texta þann er lagður var fram
fyrir samninganefnd kl. lOimorgun.
Páll Hermannsson blaðafulltrúi
FFSÍ sagði í morgun að ef málið yrði
afgreitt yrði næsta skrefið sáttanefnd.
Farmenn bæru fyllsta traust til Torfa
Hjartarsonar sáttasemjara ríkisins þótt
farið hefði verið fram á lausn sátta-
nefndar.
Með þessum fundum sagðist Páll
vonast til þess að skriður kæmist á
málin. -JH.,