Dagblaðið - 28.07.1979, Blaðsíða 24

Dagblaðið - 28.07.1979, Blaðsíða 24
Krístján Ragnarsson, formaður UU: Þorskaflinn fer langt yfir300þús. tonn f ár útvegsmenn ekki bundnir af 290 þúsund tonna hugmynd stjómvalda „Strax á þríðja mánuði ársins var mér ljóst að þorskaflinn í ár færi langt yfir 300 þúsund tonn. Einnig að tillögur stjórnvalda um takmörkun þorskveiða, sem útgerðarmenn sam- þykktu, myndu hvergi nægja til að stjórnvöld næðu markmiði sínu þess efnis að aflinn yrði ekki meiri en 280 til 290 þús. tonn,” sagði Kristján Ragnarsson, formaður Lands- sambands íslenzkra útvegsmanna, í viðtali við DB í gær. Þetta kom fram er hann var, spurður hvernig útgerðarmenn hygðust bregðast við síðustu mánuði ársins ef fast yrði haldið við 290 þús- und tonna hugmyndina. Miðað við þorsk á land kominn nú, þýddi það að mánaðarþorskafli hvers togara yrði að vera innan við 100 tonn. „Þetta hámark var aldrei nefnt í þeim tillögum, sem stjórnvöld sendu okkur og við féllumst á. Við sáum það fyrst i fréttatilkynningu um leið og takmarkanirnar voru birtar 26. marz,” sagði Kristján. í ljósi þess væru útvegsmenn ekki bundnir af tölum, sem ekki hafi verið nefndar við þá. Einnig væri ómögu- legt að boða skyndilega enn frekari takmarkanir síðustu mánuði ársins þar sem útgerðarmenn hefðu skipu- lagt árið fyrirfram með tilliti til boð- aðra takmarkana í ársbyrjun. Ekki taldi hann loku fyrir það skotið að fallizt yrði á 20 daga veiðibann í des- ember, likt og var í fyrra, en frekari takmarkanir væru ekki á dagskrá af útgerðarmanna hálfu, Eins og nú er komið, taldi Kristján líklegt að þorskaflinn færi upp í svipað magn og í fyrra, 320 til 330 þúsund tonn, eða 30 til 40 þúsund tonn umfram hugmyndir stjóm- valda. Er Kristján var spurður hvort ekki væri goðgá að fara svo langt fram úr hugmyndum stjórnvalda, sem byggð- ar væru á tillögum fiskifræðinga, sagði hann svo ekki vera frá sínum bæjardyrum séð. í ljósi góðra afla- bragða allt árið væru menn almennt mjög bjartsýnir á að ástand þorsk- stofnsins væri mun betra en áætlað hafði verið. - GS frjálst, úháð dagblað LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ. 1,4% skatturá verzlunar- og skrifstofuhúsnæði: Verzlunar- ráðvillað skatturinn verði kærður „Við útkomu skattskrár hefur kom- ið í ljós, að skattyfirvöld hafa ekki heimilað, að þessi sérstaki skattur væri frádráttarbær á árinu 1978. Þar sem hér er um töluverðar fjárhæðir að ræða, t.d. allt að 712.000 króna hækk- un tekju- og eignarskatts af 100 milljón króna fasteign og umdeilt vafaatriði, vill Verzlunarráðið .hvetja þá aðila, sem gert er að greiða þennan sérstaka 1,4% skatt að kæra þessa málsmeðferð til skattstjóra og síðan rikisskatta- nefndar.” Þannig segir í fréttatilkynn- ingu Verzlunarráðs fslands er DB hefur borizt. Sá skattur sem hér um ræðir er 1,4% skattur af fasteignamati verzlunar- og skrifstofuhúsnæðis eins og það var í árslok 1978. Fyrir síðustu áramót sam- þykkti Alþingi að þessi skattur skyldi innheimtur. Að mati Verzlunarráðsins telst þessi sérstaki skattur til frádráttar til tekju- og eignarskatts vegna tekna og eigna á árinu 1978, þar sem skattur- inn hefur myndað skuld hjá eigendum þessara fasteigna í árslok 1978. -GAJ * 59,4% skattahækkun íEyjum: Fiskiðjan greiðir 51 Lunning bátsins laskaðist og geymasýra slettist viða, en að öðru leyti stóðst báturinn þessa eldsldrn ótrúlega vel. 16 tonna fiskibátur valt í „ökuferð” í Kópavogi: FÓLK Áni FÓTUM FJÖR AÐ LAUNA DB-mynd Hörður. „Fólk átti fótum fjör að launa, en það var lán í óláni, að báturinn valt fljótlega af vagninum,” sagði Runólfur Guðjónsson, í viðtali við DB, eftir að 16 tonna fiskibátur laskaðist skömmu fyrir sjósetningu Kópavogsmegin við Nauthólsvík síðdegis í gær. Runólfur er eigandi fyrirtækisins Flugfisks, sem hafði nýlokið smíði bátsins úr plasti, fyrir kaupendur á. Reyðarfirði. Báturinn er metinn á um 49 milljónir króna. Er dráttarbíll var að slaka vagninum, með bátnum niður brekkuna fyrir ofan sjósetningaraðstöðuna, slitnaði drátt- arvírinn með fyrrgreindum af- leiðingum. „Báturinn stóðst þessa eldskírn ótrúlega vel, skrokkurinn er heill, en lunning laskaðist og geymasýra skvettist víða,” sagði Runó:f'ir. Tjónið nemur þó líklegast mUljónum. Þetta er stærsta smíði fyrirtækisins til þessa en það smíðaði bátana, sem> sigruðu i Sjóralli DB og Snarfara í fyrra og í ár. -GS. Ragnar Arnalds gaukaði starfiað flokksbróður sínum: Alþýðubandalagsskírteini haldbetra en starfsreynsla „Svona fara þeir að í Alþýðubandalaginu, flokknum sem hvað mest hefur gagnrýnt pólitískar embættisveitingar,” sagði Kefl- víkingur við DB. TUefnið var veiting sttíðu hafnarstjóra í Keflavík, sem Ragnar Amalds samgönguráðherra afgreiddi formlega i gær. Umsækjendur voru fjórir. Hafnarnefnd mælti með tveimur þeirra í starfið, én Ragnar gekk fram hjá báðum og lét 64 ára gamlan flokksbróður sinn, Ágúst Jóhannes- son, fá starfið. Sá hefur aldrei starfað við höfnina, eftir því sem við- mælendur DB sögðu. Annar þeirra sem hafnarnefnd mælti með er Ingólfur Falsson, en hann er 39 ára. Hann hefur starfað við höfnina síðan 1964, er bæjarfull- trúi Sjálfstæðisflokksins í Keflavík og stjórnarformaður í Far’manna- og fiskimannasambandi tslands, svo eitthvað sé nefnt. DB fékk staðfest að margir áh 'famenn í Alþýðubanda- laginu á Suðumesjum töldu eðlUegast að Ingólfur fengi stöðuna vegna reynslu hans. Víst má þvi telja að eitt- hvað muni krauma í flokki sam- gönguráðherrans vegna ákvörðunar hans, ef marka má hljóðið í viðmæl- endum blaðsins í gær. „Ég sé að frá og með næstu mánaðamótum fæ ég nýjan yfir- mann, en mig furðar dálítið að ráðherrann skuli b .. 1; i umsagn- ar hafnarstjómar, en einhverra hluta vegna ekki tekið tillit til hennar,” sagði Ingólfur Falsson. „Mér er kunnugt um að umsóknirnar lágu á skrifborði Ragnars Amalds í a.m.k. hálfan mánuð. Ég vil ekki trúa öðru en ráðherra hafi komizt að þeirri niðurstöðu, að maðurinn sem hann valdi sé sá hæfasti. Þvi verð ég að una.” -ARH. milljón Skattskrá Vestmannaeyja hefur verið lögð fram. Álögð gjöld á 2244 einstaklinga nema 2 milljörðum 24 (milljónum. Álögð gjöld á 134 félög nema 607 milljónum 377 þúsundum. Heildarálagning í Eyjum er samtals 2 milljarðar 631 milljón 478 þúsund í ár. í fyrra var heildarálagningin 1 milljarður 650 milljónir 830 þúsund og er hækkunin 59,4%. Af einstaklingum greiðir Sigurður Þórðarson útgerðarmaður hæst gjöld, 12 milljónir 160 þúsund. Annar í röðinni er Sigmundur Andrésson bakarameistári sem greiðir 12 milljónir 6 þúsund og þriðji er Emil Andersen út- gerðarmaður með 7 milljónir 658 þúsund. Af fyrirtækjum greiðir Fiskiðjan hf. hæst gjöld, 51 milljón, 415 þúsund. Vinnslustöðin hf. greiðir 34 milljónir, 294 þúsund og Fiskimjölsverksmiðjan hf. greiðir 31 milljón, 80 þúsund. -GM.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.