Dagblaðið - 08.08.1979, Blaðsíða 12
Hirsthmann
Úrslit frá Englandi
Nokkrir leikir voru háflir í ensk/skozku bikar-
kcppninni i gærkvöld og urðu úrslit þeirra sem hér segir:
Blackburn Rovers — Preston N.E. 1—1
Blackpool — Burnley 3—2
Bolton Wanderers — Sunderland 2—0
Bury — Oldham Athletic 1—2
Notts County — Sheffield United 0—1
Dunfermline — Partick Thistle 0—1
Morton — Berwick Rangers 4—1
Leikur Morton og Berwich var síðari leikur lið-
anna en þann fyrri vann Morton 4-0 og vinnur þvi 8-
1 samanlagt.
Vináttuleikir
ávíðogdreif
Flest liðin í Evrópu eru nú að undirbúa sig af
kappi fyrir keppnistimabilin i sinum heimalöndum
og nú þessa dagana er mikið um vináttuleiki á milli
liða — ýmist frá öðrum löndum eða jafnvel úr
öðrum heimsálfum.
I gærkvöldi léku Ferencvaros frá Ungverjalandi
og FC Brugge frá Belgiu vináttuleik og vann Ferenc-
varos 3-0. Pogany skoraði 2 mörk og Nagy eitl.
Þá léku einnig Rapid Vij og Dynamo Zagreb frá
Júgóslavíu i gærkvöld i Austurriki og varð jafntefli
1-1.
Derby County vann Sturm Graz fr-' Austurriki
1-0 í Baseball Ground i gærkvöld mcð inarki
Gordon Hill, en laðalleikur kvöldsins var i Vínar-
borg þar sem Rapid vann afar óvæntan stórsigur á
Ajax frá Amsterdam í vináttuleik. Rapid sigraði 5-1
og voru öll mörk leiksins gerð i fyrri hálfleiknum.
Strax á 7. mínútu skoraði Marceo fyrir Rapid og
Robert Sara bætti öðru marki viö á 27. mínútu.
Þrjú mörk á 15 minúlum gerðu síðan út um leikinn.
Þeir Gassclich (34. mín) Pfeiler (38.) og Schachner
(39). komu Rapid í 5—0 áður en Sören Lerby,
Danskurinn i lifli Ajax, minnkaði muninn í 5-1 á 41.
mínútu. Áhorfendur voru 22.000 og höfðu hina
beztu skemmtun af enda ekki á hverjum degi sem
Ajax taparsvo stórt.
Evrópumet
Petra Schneider bætti Evrópumet sitt í 200 metra
fjórsundi i Brandenburg um helgina er hún synti á
2:14,51 sek., sem er 1.24 sek. betri tími en fyrra met
henna, en það var 2:15,75. Heimsmet Tracy Caul-
kins er 2:14,07 mín. þannig að Schneider er ekki
langt frá því. Þá náði hún einnig bezta tímanum í
400 metra fjórsundi kvenna i ár er hún synti á
4:43,92 mín.
West Ham keypti
Stuart Person
f rá United
Stuart Pearson, fyrrum landsliðsmiðherji enska
landsliðsins, skrifaði i gærkvöld undir samning við
Lundúnaliðið West Ham og má þá búast við að
ýmsir aðdáendur West Ham kætist, þar sem Pearson
er ætlað afl drifa liflið áfram. Pearson hefur átt við
mjög þrálát meiðsli að striða um langan tima og lék
t.d. aðeins tvo eða þrjá leiki með Manchester United
i fyrravetur. Pearsson var einhver allra skæðasti
miðherjinn i ensku knattspyrnunni þegar hann átti
ekki við meiðsl að striða og hann átti hvern stórleik-
inn á fætur öðrum fyrír enska iandsliðið. Hann
hefur verífl mjög markheppinn á ferli sinum en
meiðsli æ ofan i æ hafa gert honum lifið leitt. United
keypti hann á sinum tima frá Hull City.
West Ham hefur að undanförnu verið á höttunum
eftir Kees Kist, sóknarmanninum Hollenzka frá AZ
'67, en búizt er vifl afl West Ham láti hann sigla sinn
sjó eftir að hafa krækt i Pearson.
ISLANDSMET
Myndina hér að ofan tók Ragnar Sigurjónsson, Ijósmyndari DB í Eyjum, af
tslandsmeti Sigurðar T. Sigurðssonar i Herjólfsdal fyrir helgina. Sigurður
stökk lcttilega yfir 4,55 metra og munaði minnstu að hann færi yfir 4,65
metra. Má búast við mikilli framför Sigurðar ef hann leggur rækt við
iþróttina, en fram til þessa hefur hann Iagt aðaláherzlu á fimleika.
Rúmlega 57.000 manns voru staddir
á Hampden Park, þegar leikurinn fór
fram og var ekki laust við að sumir
íslenzku piltanna kiknuðu í hnjáliðun-
um fyrirfram allan skarann, sem skipt-
ist í tvo hópa. Aðdáendur Rangers
fylgdu íslenzku strákunum en Celtic-
aðdáendumir fylgdu að sjálfsögðu
sínum piltum. Markverðirnir, sem
stóðu í markinu á víxl voru engir aular,
en þar voru á ferðinni varamarkverðir
Celtic og Rangers og annar kappanna
Þarna skall hurð nærri hælum við mark Framara.
DB-mynd Hörður.
DAGBLADIÐ.M1DVIKUDAGUR8.AGÚST1979. ___■_______________________________________________________ 13
WBQm i¥iií fiiiiSfeai i
~SLÆR 0DDUR ENN í GEGN?
—Reykjavíkurleikamir í frjálsum íþróttum heff jast í kvöld—Þrír spretthörðustu hlauparar
Skoruðu grimmt hjá
landsliðsmarkverðinum
\
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 1979.
Fram og Þróttur skildu
jöf n og munu leika aftur
—2-2 eftir f ramlengingu í Laugardalnum í af ar slökum leik í gærkvöld þar sem
hvomgt liðið verðskuldaði sigur
Reykjavíkurleikarnir i frjálsum
íþróttum hefjast i kvöld en þetta mót
hefur undanfarin ár verið helzti frjáls-
íþróttaviðburðurinn hérlendis með
þátttöku erlendra stórstjarna. Nú
bregður hins vegar svo við að litið er
um fræg nöfn á mótinu og t.d.
afboðaði kúluvarparinn Geoff Capes
komu sína hingað f gærkvöldi þannig
að ekkert verður af einvigi hans og
Hreins eins og fyrirhugað var. Hreinn
Jóhanna efst
eftirfyrsta
daginn á lands-
mótinuígolfi
íslandsmótifl í golfi hófst á
Ákureyri i gærdag og reyndar verður
einnig leikifl á Ölafsfirði og á Húsavík.
í gær hófst keppni i meistaraflokki
kvenna, 1. flokki kvenna og 3. flokki
karla en i dag fara allir hinir flokkarnir
í gang og munum við skýra frá
stöðunni i blaðinu eins og hún er eftir
hvem dag.
Jóhanna Ingólfsdóttir hafði forystu
eftir fyrsta daginn hjá konunum með
90 högg (46—44). Önnur var Kristín
Þorvaldsdóttir NK með 91 högg (48—
43). Sólveig Þorsteinsdóttir GR var í
þriðja sætinu með 94 högg (48—46) en
óþekktur kylfingur, Inga Magnúsdóttir
GA, var einnig á 94 höggum (47—47). í
1. fl. kvenna var Jónína Pálsdóttir GA
efst á 108 höggum, Lóa Sigurbjörns-
dóttir GK var á 113 og Patrica Jóns-
dóttir og Margrét Guðjónsdóttir voru á
119höggum.
í 3. flokki karla leiddi Tryggvi
Sæmundsson GA á 93 höggum (48—
45). Jón Gunnarsson GA var annar á
96 höggum (56—46). í þriðja sæti kom
Jakob Gunnarsson GR á 98 höge ’m
(50—48) og reyndar varRagnar Lár
einnig á 98 höggum (48—50).
-GS.
IR, Selfossi og Þrótti duttu í lukkupottiim
var Stuart Kennedy, sem fyrir nokkrum
árum var fastamaður i skozka lands-
liðinu og lék t.d. flesta leiki Rangers á
sl. keppnistímabili. Þrátt fyrir mikla
taugaspennu tókst islenzku strákunum
að sigra — skoruðu úr 13 spyrnum af
20 en skozku félagar þeirra aðeins úr 12
spyrnum.
Ef vikið er aftur að úrslitaleik keppn-
innar þá hafði Rangers algera yftrburði
allan tímann og var aldrei neini
spurning um sigurvegara og þrátt fyrir
góða leiki Celtic fyrr í keppninni gegn
Clydebank, sem Celtic vann 4-0 og
gegn Ðundee United, sem Celtic vann
einnig — 3-2 eftir að hafa verið 1-2,
náði liðiö sér aldrei á strik gegn
Rangers.
Jóhannes átti stórgóðan leik gegn
Dundee United en var lítt áberandi
gegn Clydebank enda virtist svo sem
samherjarnir forðuðust að gefa knött-
inn á hann enda hefur Jóhannes verið
að setja fram fjárkröfur að undan-
förnu og er í staðinn beittur ákveðinni
pressu.
Eftir leikinn sögðu skozku blöðin aö
þótt knattspymutímabilið væri rétt að
hefjast mætti eiginlega segja að því
væri lokið, a.m.k. yrði ekki skorað
fallegra mark en Sandy Jardine skoraði
í úrslitaleiknum. Að sögns Ólafs
Brynjólfssonar sem sá leikinn úti, fékk
Jardine knöttinn í eigin vítateig og tók
þegar á rás upp völlinn. Þrátt fyrir
stöðugar tilraunir leikmanna Celtic,
sem voru oft 3 og 4 áeftir honum, til að
stöðva hann tókst það ekki og hann
hætti ekki fyrr en komið var í vitateig
Celtic. Þar lét hann þrumuskot ríða af
og knötturinn söng í netinu. Stórkost-
legt mark. Piltarnir úr áðurnefndum
liðum, þ.e. Fylki, ÍR. Sclfossi og Þrótli
eru væntanlegir heini á morgtin en auk
þessara liða voru Víkingur, Valur og ÍK
öll með sína 3. flokka i Skotlandi.
sumar. Var ekki að sjá á leikmönnum
að þeir væru að berjast fyrir því að
komast í bikarúrslit. Með slíkri spila-
mennsku hefur hvorugt liðanna
nokkurt erindi í úrslitaleikinn gegn Val
eða Akranesi, sem fram fer stðar i
mánuðinum.
Framlengingin hófst með látum en
þau vörðu aðeins í örstutta stund.
Strax á 2 mínútu hennar eða á 92.
mínútu virtist Pétri Ormslev augljós-
lega hrint í vítateignum en Róbert
dæmdi ekkert og var það a.m.k. í
annað skipti sem hann sleppti að því er
virtist augljósri vitaspyrnu í leiknum. í
fyrra skiptið sló Marteinn Geirsson
knöttinn innan vítateigs — greinilega
óviljandi þó — og þar var ekkert nema
um vítaspyrnu að ræða.
Annars er ekki úr vegi að fjalla dá-
litið um þá hliö leiksins sem snýr að
dómaranum, án þess að um neins
konar hneyksli hafi verið að ræða.
Guðmundur Steinsson úr Fram varð
oft illilega fyrir barðinu á varnar-
mönnum Þróttar og a.m.k. tvívegis
fékk hann slæmt spark án þess að
dæmt væri. Guðmundur hefur hins
vegar sjálfur komið sér í þessa klípu
því sífelldur leikaraskapur hans út af
engu hefur gert það að verkum að
dómarar eru hættir að dæma á brot,
jafnvel augljós brot, þegar hann á í
hlut. Ógerningur er fyrir dómara að sjá
hvort um alvarlegt brot er aö ræða eður
ei þegar leikaraskapurinn ræður rikj-
um. Þá var óþarfi hjá dómara leiksins
að bóka Ásgeir Elíasson fyrir saklaust
brot en sleppa síðan Daða Harðarsyni
algerlega við tiltal hvað þá annað, er
hann braut mjög illa á Pétri Ormslev
seint í leiknum.
-SSv.
Handbolti
fyrir bömin
Dagana 13.—26. þessa mánaðar
hyggst Handknattleiksdeild Hauka
gangast fyrir handknattleiksnámsskeifli
fyrir börn á aldrinum 6—10 ára og
verður þetta framlag deildarinnar til
barnaársins. Námskeiflifl mun fara
fram á útivellinum við Haukahúsið efla
í íþróttasal hússins eftir því hvernig
viðrar og er öllum börnum í Hafnar-
firði, félagsbundnum jafnt sem
ófélagsbundnum heimil þátttaka. Úti-
völlurinn við Haukahúsið verður sér-
staklega útbúinn í þessu augnamiði og
m.a. verður leikið á litlum völlum og
notuð mörk af hæfilegri stærð. Þá hafa
einnig verið keyptir litlir knettir fyrir
börnin, en venjulegir keppnisknettir
hafa reynst börnunum erfiðir í með-
förum af skiljanlegum ástæðum.
Undir lok námskeiðsins verður síðan
haldið mót á meðal barnanna og mun
það þá verða fyrsta handknattleiksmót
sinnar tegundar hér á landi. Lokadag
námskeiðsins 26. ágúst, verður efnt til
sérstaks Haukadags og eru þá foreldrar
eindregið hvattir til að koma með
börnum sínum og sjá þau í æfingum og
leik. Þá verður Haukahúsið opið og
foreldrum og öllum veluonurum
félagsins boðið að koma og íylgjast
með. Veitingar munu verða á boðstól-
Þátttökugjaldinu hefur verið mjög i
hóf stillt. Aðeins kr. 1000. Þátt-
tökutilkynningum skal komið á fram-
færi í Haukahúsinu, sem verður opið
alla vikuna og skal þátttökugjaldið
greiðast við innritun. Allar nánari
upplýsingar gefa ísleifur Bergsteinsson
í síma 52451, Þorgeir Haraldsson í síma
51050 og Sigurður Sverrisson í síma
53419.
Foreldrar leyfið börnum ykkar að
vera með — krakkar mætið öli!
Handknattleiksdeild Hauka.
—5 piltar úr Fylki,
Nú, sem stendur eru fjölmörg íslenzk
knattspymulið i keppnis- og æfinga-
ferðum erlendis eins og DB skýrði frá
fyrir nokkru. M.a. fóru 3. flokkar fjöl-
margra liða til Skotlands og er okkur
kunnugt um að a.m.k. 7 lið, sem sendu
lið til Skotlands til æfinga og keppni.
Fjögur þessara liða komustheldur bctur
í feitt á laugardaginn eða öllu heldur 5
útvaldir piltar. Þá var háður úrslita-
leikur Dryborough Cup bikarkeppn-
innar á milli Celtic og Rangers.
Rangers vann þann leik örugglega 3-1
en Jóhannes Eðvaldsson var ekki i liði
Celtic en hafði leikifl alla leiki liðsins í
keppninni fram að úrslitaleiknum.
Hvað um þafl víkjum aftur að strák-
unum. Fimm piltar, þeir Hörður
Guðjónsson og F.ggert Helgason úr
Fylki, Hallur Eiríksson úr IR, Emil
Ásgeirsson frá Selfossi og Kristján
Jónsson úr Þrótti voru valdir i sam-
eiginlegt islenzkt lið til þess að keppa
við 5 pilta úr unglingaliði Celtic i vita-
spyrnukeppni, sem fram fór fyrir leik
Rangers og Celtic og i leikhléi.
Fram og Þróttur skildu jöfn, 2—2,
eftir framlengdan leik i undanúrslitum
bikarkeppni KSÍ á Laugardalsvellinum
i gærkvöldi i einum alleiðinlegasta leik
sumarsins. Keyrðu leiðindin þó fyrst
um þverbak i framlengingu leiksins en
þá gerflist nákvæmlega eitt minnisvert
atvik. Áhorfendur, sem voru upphaf-
lega nokkuð margir, voru farnir að
tinast af vellinum og þeir sem eftir voru
•hefðu líkast til sofnað ef ekki heffli
komið til kvöldnepjan, sem hélt
mönnum vifl efnið. Satt að segja hélt
maður að þessi lið gætu ekki sýnt jafn-
slakan leik og raun bar vitni. Frá
upphafi til enda var ínntakið i leiknum
sendingar mótherja á milli og niður-
staðan varð þar af leiðandi eitt
allsherjar hnoð. Til að bæta gráu ofan
á svart átti Róbert Jónsson dómari
slakan dag, en hann á þó í raun hrós
landsins hlaupa ífyrsta skipti saman
hefur verið að ná sér á strik afl undan-
förnu og fyrír skemmstu kastaði hann
20,69 metra á móti á Húsavik. íslands-
met Hreins er 21,09 metrar, sett fyrir
rúmum tveimur árum i Sviþjóð. Þótt
Capes komi ekki til að glima við Hrein i
kúlunni er ekki rétt að segja að lítið
verði um erlenda keppendur, en veru-
lega fræg nöfn eru ekki á dagskrá. T.d.
mun allt italska kastlandsliðið eins og
það leggur sig koma hingafl til keppni,
en ítalir eiga prýðilega kastlandsliði á
aö skipa. M.a. er i þeirra hópi spjót-
kastarí, sem hefur kastaö vel yfir 80
metra og mjög góður sleggjukastari
auk tveggja 20-metra manna i kúlunni.
Keppnin í kvöld hefst með sleggju-
kastinu en því miður eigum við enga
frambærilega menn í þeirri grein,
þannig að búast verður fastlega við því
að ítalirnir hirði öll verðlaun þar án
fyrirhafnar. Síðan mun kúluvarp
karla hefjast og þá langstökkið.
Kúluvarpið verður að vanda ein af
stórgreinunum og verður fróðlegt að
sjá Hrein í keppni við þá ítölsku. Á
sama tíma hefst langstökkið en ekki
vitum við nákvæmlega hvort þar verða
einhverjir útlendingar. Rússar ætluðu
að senda 3—4 keppendur á mótið en
gáfu ekki upp í hvaða greinum þeir
myndu keppa. Þó er vitað að stúlkan í
hópnum, Elena Kowaleva, hefur
kastað kringlu rúmlega 50 metra bezt.
Kl. 19.40 er síðan gert ráð fyrir að
100 metra hlaupið hefjist og þar
mætast í fyrsta skipti þeir Oddur
Sigurðsson, Sigurður Sigurðsson og
Vilmundur Vilhjálmsson. Þeir hafa
keppt tveir og tveir saman en aldrei allir
þrír í sama hlaupinu og verður gaman
að fylgjast með árangri þessara þriggja
spretthörðustu hlaupara íslands.
Síðan er á dagskránni 800 metra
hlaup karla og verðum við að treysta á
Jón Diðriksson í þeim efnum. Jón
hefur verið mjög sprækur að undan-
förnu og t.d. setti hann glæsilegt met í
1000 metra hlaupi í Þýzkalandi í síð-
ustu viku er hann bætti 21 árs gamalt
Islandsmet Svavars Markússonar um
9/10 úr sekúndu. Jón hljóp á 2:21,4 en
gamla metið var 2:22,3 mín.
Þá verður 1500 metra hlaup kvenna á
dagskrá og síðan 400 metrar kvenna en
kvöldinu lýkur með kringlukasti karla
,og 400 metra hlaupi karla. Það ættu að
geta orðið mjög skemmtilegar greinar
báðar tvær. Óskar Jakobsson bíður nú
aðeins eftir „stóra” kastinu og verði
heppilegir vindar í kvöld má búast við
Dregiðhjá
Haukum
Dregið hefur verið i happdrætti
knattspyrnufélagsins HAUKA.
vinningsnúmer eru innsigluð hjá bæjar-
fógetanum í Hafnarfirði og verða birt
þegar skil hafa verifl gerð.
Vinsamlegast gerið skil hið allra
fyrsta, svo hægt sé að birta vinnings-
númerín sem fyrst.
Radíóvirkiim
Týsgötu 1 - Simi 10450
því að hann sverfi allverulega að hinu 5
ára gamla meti Erlendar Valdimars-
sonar, sem er 64,32 metrar.
í 400 metra hlaupinu munu þeir allir
hlaupa saman á ný, Sigurður, Oddur
og Vilmundur. Vilmundur á bezta tím-
ann þessara þriggja en Oddur, sem ekki
hefur nema nokkrum sinnum hlaupið
400 metra hlaup, náði 47,4 fyrir stuttu
og ætti að veita Vilmundi mjög harða
keppni og e.t.v. sigra hann.
Þessir kraftakarlar, frá vinstri; Óskar Jakobsson, Hreinn Halldórsson og Guðni Halldórsson, verða allir i sviðsljósinu á
Reykjavikurleikunum I kvöld.
Útvarps-og
sjónvarpsloftnet fyrir
litsjónvarpstæki,'
magnarakerfi og
tilheyrandi'
loftnetsefni.
Odýr loftnet
og gód.
Heiidsala
Smásala.
Sendum i
póstkröfu.
Þjálfarar!
Körfuknattleiksráð Akraness óskar að
ráða þjálfara á komandi hausti.
Upplýsingar í síma 93—2384.
skilið fyrir að þrauka allan þennan
tíma. Þessi úrslit i gærkvöld gera það
að verkum afl liöin verða að mætast á
nýjan leik og er ekki vitað hvenær sá
leikur verður.
Fyrri hálfleikurinn var afar slakur
og það voru aöeins mörkin, sem voru
minnisverð. Á 11. mín. tók Pétur
Ormslev aukaspyrnu úti á hægri
vængnum og gaf vel fyrir þar sem
Gunnar Orrason skallaði óáreittur í
markið af markteig, 1—0. Á 30.
mínútu jöfnuðu Þróttarar eftir að
bókstaflegahafasvæftvörnFram. Páll
fékk sendingu inn i eyðu og skoraði á
gönguhraða framhjá Guðmundi
Baldurssyni í markinu.
Fyrsta kortérið í síðari hálfleik bar
af hvað skemmtanagildi snerti og á 66.
mínútu skoraði Marteinn laglega með
skalla eftir undirbúning Péturs og
Hafþórs,, en sú dýrð stóö ekki lengi.
Þróttarar jöfnuðu á 79. mínútu eftir
mikinn darraðardans í vítateig Framara
og var það Úlfar Hróarsson sem rak
endahnútinn á sóknina og jafnaöi.
Hvorugt liðið komst í raun nálægt
því að skora í leiknum utan þessa og
framlengingin var eitthvað það allra
slakasta sem boðið hefur verið upp á í
Ljótt tap
gegn Svíum
íslenzka drengjalandsliðifl i
knattspyrnu beið í gær stóran
ósigur fyrir jafnöldrum sinum
frá Sviþjóð á Norðurlanda-
mótinu, sem fram fer i Udde-
valla þessa dagana. Svíamir
sigruðu, 6—2, eftir að hafa
komizt í 3—0 í upphafi. Bæði
mörk íslands skoraði Ólafur
Þór Magnússon úr Keflavik en
það dugði skammt þar sem
Sviarnir bættu við þremur
mörkum og unnu mjög
sannfærandi.
í dag mætir ísland Dönum.