Dagblaðið - 22.09.1979, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 22. SEPTEMBER 1979.-
Harmsaga úr landbúnaði:
Heyfengur með minnsta móti
og dilkar langt undir meðallagi
Nýjasla búvöruverðshækkunin,
sem mælzl hefur mjög illa fyrir, átti
að koma til framkvæmda 1. sept. sl.
Ákvað ríkisstjórnin að fresta henni
til 17. sept. Áætlað hafði verið að
þessi frestur kostaði mjólkurfram-
leiðendur um 200 milljónir kr.
Reyndist sú tala hins vegar hærri eða
286 milljónir. Agnar Guðnason
blaðaf ulltrúi bændasamtakanna
sagði að sú tala væri raunar óeðlilega
há vegna þess hve mikið hefði verið
selt af smjöri.
Slæmar horfur
Búskaparhorfur i flestum sýshim
norðauland'- or á ð-.isturlandi mt
mjög dökkar. AKarlegast er ástand-
ið hjá Ikuiúuíi. i l,!.‘dOj.its>>lu.
Þar hafa ekki náðst inn meira en 40°7o
af því grasi sem sprottið hefur á
túnum i sumar en spretta var þar að
auki léleg. Verst er ástandið á Langa-
nesi og í Þistilfirði en skást í Keldu-
hverfi. Ekki hafa komið nema fjórir
samfelldir þurrkdagar í héraðinu
síðan sláttur hófst. Hey biða enn flöt
á túnum. Hefur verið keypt hey úr
Hornafirði. Gert er ráð fyrir tölu-
verðri fækkun á bústofni. Dilkar eru
mjög slakir enda mikil vcikin.li i
lömbum i vor. Uthagi vai þó stenti-
lega spiottinii.
25—30% minna
hey á Ströndum
í Standasýslu er heyfengur 25—
M.A.IM. RÚTA
árg. '67,51 farþega.
Vél: Scania 110, aflstýri, aflbremsur.
Bíllinn allur nýyfirfarinn.
Verð kr. 15 millj. Ath., skipti á ódýrari bíl.
BÍLAMARKAÐURINN
Grettisgötu 12-18 — Sími 25252
VERKSTJÓRI!
Fiskiðjusamlag Húsavíkur vantar verkstjóra með mats-
réttindi til starfa í rækjuverksmiðju.
Uppl. gefnar í síma96—41388, Húsavík.
Tilsöíu
BMW 528 automatic árg. '77
BMW 520 árg. '77
BMW 30 (De luxe) automatic árg. '75
Renault 20 TL árg. '77
Renault 16 TL árg. '76
Renault 12 TL árg. '77
Renault 12 TL árg. '73
Renault 6 TL árg. '73
Renault 5 TL árg. '75
Renault 4 Van árg. '74 og '76
Reunault 4 Van F6 árg. '77,78 og '79.
Opið laugardaga kl. 1—6.
Kristinn Guðnason hf.
ifroiða- og varahlutaverzlun,
Suðurlandsbraut 20, sími 86633.
30% minni en undanfarin ár. Mikill
mismunur er þó á milli jarða og áber-
andi hve heyfengur er minni inn til
dala en á sjávarjörðum. Rúmlega
80% af heyfeng Strandamanna í ár
eru verkuð í vothey. Enn eru bændur
til í sýslunni sem eiga hey úti. Dilkar
eru með lélegasta móti og mikið um
mjög litla dilka.
Heyskapur i Austur-Húnavatns-
sýslu er áætlaður um 20—25% minni
en undanfarin ár. Enn er þar hev úti
op nokkrir bændtu eiptt iit.it v elli.
að slá. Meðalvigt dilka i sýslunni er
tiilm ltl 12"u niiiini en i I>11a. I itl-
hvað skárra ástand er i vestursýsl-
unni.
Lítið eða ekkert sumar var í Skaga-
firði. Heyfengur er þó sæmilegur i
miðhéraðinu en lélegur bæði inn til
dala og úti í Fljótum. Gert er ráð
fyrir að meðalvigt dilka verði 2—3 kg
lægri en í fyrra.
í Eyjafirði hafa bændur náð inn
um 70—80% af meðalheyfeng. Þó
eru enn til nokkrir bændur sem eiga
hey úti. Nokkrir bændur hafa náð
sæmilegum heyfeng. Eru það þeir.
sem eru með mikla votheysverkun og
góða súgþurrkun. Hefur m.a. s. verið
selt nokkkurt hey úrhéraðinu!
Grænfóður hefur sprottið lítið og
léleg beit verið á túnum. Dilkar eru
með rýrasta móti og er ekki reiknað
með meiri kartöfluuppskeru en dugi
fyrir útsæði næsta vor.
Ekki þurrkur
síðan 20. ágúst
Ekki hefur komið almennilegur
þurrkur síðan um 20. ágúst í S-Þing-
eyjarsýslu. Er þvi enn töluvert af
óhirtu heyi á túnum. Gert er ráð fyrir
að heyskapur verði um 20% minni en
undanfarið ái l ítil pi.t nfóðtir-
spretta hefur verið þar og lilil bcit á
túnunt en úhagi sæntilegur. Hluti af
lömbunt var vigtaður nýlega og
reyndist 20% léttari en á sama tíma í
fyrra. Þýðir það 3ja kg rýrnun á
hvern dilk sem rýrir tekjur bónda,
sem leggur inn 200 dilka í haust, um
eina milljón kr. Gert er ráð fyrir
fækkun bústofns i sýslunni.
Minnst spretta
í Borgarfirði
Á Austurlandi er ástandið \ersl á
Bakkafirði.Borgarfirði og Uthéraði.
Þar liggui enn úti mikið af heyjunt og
hrekst. Minnst spretta var í Borgar-
firði. Sæmileg spretta var á Héraði
og suður á fjörðum. í ágústlok höfðu
bændur á Austurlandi hirt um 2/3
hluta af meðalheyfeng síðustu ára.
Hefur sáralítið bætzt við það vegna
stöðugrar ótiðar.
Fallþungi dilka á Austurlandi er
með minnsta móti og er talið sérstak-
lega áberandi hve dilkar eru misjafn-
ir.
A.Bj.
GESTAMATUR ÞARF HELZT
AÐ VERA HANDHÆGUR
Ef ekki et til nægilega stóit eldfast fat á heimilinu má notast við ofnskúffuna en skemmtilegra er þá að fóðra hana fyrst að
innan með álpappir.
Ef von er á mörgunt gestum getur
verið gott að eiga handhæga
uppskrift í pokahorninu. Hérna er
uppskrift að fínum gestamat, sem
hægt er að búa til fyrirfram og hita
upp rétt áður en á að bera matinn
fram. Þetta er stór uppskrift sem á
að duga handa ntinnsta kosti tíu
manns. Enginn vandi er að auka
hana ef gestirnir eru fleiri.
I 1/4—1 1/2 kg meyrt nautakjöt
3—4 msk. hveiti
3— 4 tsk. salt
1 Isk. pipar
smjör og olía til að brúna i,
minnst einn lítri af góðu, sterku og
nýlöguðu kaffi (hægt er að nota kjöt-
kraft eða hvitvín í staðinn en kaffið
gefur mjög gott bragð)
2 tsk. engifer
1—2 dl sérrí
1—2 rauðar paprikur
1—2 grænar paprikur
4— 6stk. meðalstórir laukar
1/2 kg svcppir
1/2 kg grænar baunir (eða 4 pk.
þurrkaðar)
Skerið kjötið í aflanga strimla.
(Veltið þeim upp úr hveitinu með
saltinu og piparnum. Brúnið kjöti á
heitri pönnu. Látið kjötið siðan i
pott, hellið kaffinu á pönnuna, áður
en því er hellt yfir kjötið i pottinum
og látið sérrí og engifer út í pottinn.
Lálið kjötið sjóða við vægan hita
þar til það er orðið meyrt, reikna má
með einni klukkustund. Á meðan er
hægt að hreinsa og skera pipará-
vextina, laukinn og sveppina. Brúnið
þetta lauslega í smjöri eða olíu i 6-8
min. og látið síðan út í kjötpottinn.
Círænu baunirnar eru látnar út í með
öllu hinu, Tilvalið er að nota
þurrkaðar baunir (t.d. Erin) og má
láta þær beinl út í pottinn. Sjóðið
réttinn nú i 5—10 minútur.
Bragðbætið með meiri salti og pipar
og e.t.v. vantar nteira engifer og
sérri.
Nokkru áður en bera. á fram
þennan rétl er hann látinn i eldfast
mót, álpappír lagður ofan á og alll
hitað í ofni. Ef ekki er nægilega stórt
eldfast fat er hægt að nota ofn-
skúffuna en þá er skemmtilegra að
'fóðra hana að innan með álpappir.
Réttnrinn er borinn fram með
heitu, lörigu brauði og hrásalati.
Hráefniskostnaðurinn er mjög
nálægt 14 þúsund kr. eða nálægt
1400 kr. á mann. Við reiknuðum með
að nota gúllaskjöt en kg af þvi kostar
núna 5.650 kr. Hins vegar yrði rétt-
urinn enn ljúffengari ef notaðar væru
lundir eða buffkjöt. En þá yrði'
kostnaðurinn nærri stjarnfræðilegur,
eða 20.342 kr. Þá er kjöt-
kostnaðurinn 11.867 kr,- Eitt kg. af
nautalundum kostar nú i smásölu
7.911 kr.
í verðútreikningnum gerðum við
ekki ráð fyrir kostnaði við brauðið
eða salatið.
-A.Bj.