Dagblaðið - 01.10.1979, Qupperneq 5
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1979.
Það er óneitanlega dálítið subbulegt að sauma fyrir en þá er maður farinn að sjá
hilla undir unaðslega máltíð!
Keppirnir okkar eru bústnir og búsældarlegir. Það er vinnuhagræðing i þvi að
hafa þá stóra og skipta þeim með millisaum. Einn varð meira að segja svo stór að
hann þurfti tvo millisauma. <
DB-myndir Hörður.
Það er bráðnauðsynlegt að hafa meðferðis íiát fyrir blóðið. Allt annað er afhent i
plastpokum og einungis nauðsvnlegt að hafa kassa eða bala undir öll herlegheitin
til að auðvcldara sé að bera.
DB-mynd Árni Páll.
Lifrarpylsan
Liframar okkar reyndust allar
mjög litlar. Vanalega eru þær i kring-
um 500g á þyngd en voru nú allar ná-
lægt 450 g. Æðarnar eru teknar úr
lifrunum sem eru hakkaðar i hakka-
vél. Mjólk er blandað út i og er mjög
mismunandi hve mikla mjólk fólk
notar. Við notuðum 1,7 1 út i jiessar
fimm lifrar. Við látum einnig kjöl-
kraft í lifrarpylsuna. Út i þctta magn
létum við þrjár kúfaðar matskeiðar
af Maggidufti. Þá er að láta rúgmjöl-
ið út i. Sami háttur er hafður á með
þetta deig og blóðmörinn. Hrærið
mjöli saman við þangað til trésleif
rétt stendur upprétt i miðju deigsins.
Við notuðum 900 g af rúgmjöli i
lifrarpylsuna.
Mörgum kann að þykja það heldur
lítið en þegar upp var staðið fengum
við um 7 kg af lifrarpylsu. Hún var
reyndar dálítið laus í sér en alveg sér-
staklega bragðgóð.
Við fengum alls 10 kg af
blóðmörnum. Hann var kannski í
það stinnasta en einnig alveg sérlega
bragðgóður.
21/2—3tíma
suða
í gamia daga var slátur jafnan
soðið i marga klukkutima. í gamalli
bók eftir Helgu Sigurðardóttur segir
að sjóða eigi blóðmörinn í 4—5
klukkustundir. Þetta er mesti óþarfi.
Alveg er nóg að sjóða slátur 2 l/2—3
klst. Þá er suðutiminn reiknaður frái
því að suðan er vel komin upp i
pottinum. — Slátrið er látið út i
sjóðandi vatn. Biðið þar til suðan er
aftur komin upp á vatninu með að
setja næsta kepp út i. Þá hleypur
blóðið strax i stað þess að siast út um
saumgötin. Nauðsynlegt er að stinga i
keppina fljótlega eftir að þeir eru
komnir í pottinn til þess að hleypa úr
þeim lofti. Þáspringa þeir ekki.
Að sjálfsögðu á að salta í pottinn
og verður það að fara eftir smekk
hvers og eins hve mikið salt hann
notar. Til þess að skera úr um hvort
komið sé nóg salt í pottinn er hægt að
smakka á soðinu.
Svolítill „Bjartur"
í okkur öllum
Það leynist sennilega svolítill
„Bjartur í Sumarhúsum” í okkur
öllum. í það minnsta fannst mér
þreytan hverfa eins og dögg fyrir
sólu þegar ég gekk frá um það bil 17
kg af beinlausum mat auk fimm
sviðahausa, fimm hjartna, tiu nýra.
13 stk. saumuðum vambakeppum og
2,2 kg af mör í frystikistunni. Allt
þetta mikla matarmagn hafði kostað
tæpar 12 þúsund kr. Á heimilinu eru
sjö manns og ef við deilum með þeirri
Uppskrift
dagsins
f 11 *
Hér kemur svo hin
hefðbundna upp-
skrift að blóðmör og
lifrarpylsu:
Blóflmör:
1 litri blóð
2 dl vatn
1/2 msk. salt
300 g haframjöl
400—500 g rúgmjöl
500 g mör
vambir.
Við vorum dálitið klaufaleg i byrjun því við gle.vmdum iláti undir blóðið og þvi
varð að láta það i plastpoka. Til allrar hamingju komst það í fötu hcima fyrir án
þess að pokarnir gæfu sig.
DB-mynd Árni Páll.
Lifrarpylsa:
450 g lifur (ein lifur)
100 g nýru (tvö nýru)
3 dl mjólk eða kjötsoð
1/2 msk. salt
100 g hafragrjón
lOOghveiti
200—300 g rúgmjöl
300—400 g mör
vambir.
-
tölu í alla upphæðina kemur út um
1700 kr. á mann. Það verður að
teljast mjög vel sloppið því þetta er í
fjölmargar máltíðir og mun endast
langtframá veturinn.
í rauninni er langbezt að æ'la sér í
það minnsta einn og hálfan dag til
sláturgerðarinnar. Daginn svm- áð er
í slátrið er bczt að hreinsa sambirnar,
sníða og sauma keppina og geyma þá
síðan í saltvatni á köldurn stað til
næsta dags. Þá er gott að taka
daginn snemma og búa til blóð-
mörinn og lifrarpylsuna. Þannig er
hægt að hafa þetta i kvöldmatinn
seinni daginn og cngin spenna er þá i
sambandi við sláturgcrðina.
Margir vinna úti fullan vinnudag
og verða því að eyða helginni i þclta
verk. Þá er hcntugast að verða sér úti
um slátrið á föstudag, þegar haldið cr
heini úr vinnu, og eyða laugar-
deginum i sláturgerðinni. Ekki er
nokkur vafi á að það borgar sig fjár-
hagslega.
A.Bj.
✓
enn bætum
vid
þjómistuna
Meó nýrri áætlunarleió milli Noregs, Svíþjóóar og 5 staóa
á íslandi stuólar Eimskip markvisst aó betri tengingu vió
Noróurlöndin um leió og vióskiptavinirnir njótaenn fullkomnari
flutningaþjónustu.
Siglingaleióin
REYKJAVÍK
ÍSAFJÖRÐUR
SIGLUFJÖRÐUR
AKUREYRI
HÚSAVÍK
BERGEN
GAUTABORG
MOSS
KRISTIANSAND
Aflió ykkur nánari upplýsinga hjá okkur í síma 27100 eóa hjá
umboósmönnum okkar úti á landi.