Dagblaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 10

Dagblaðið - 01.10.1979, Blaðsíða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. OKTÓBHR 1979. Skákmótið íRíó: Hiibnernáði fyrstasæti Staðan á skákmótinu i Rio ’ ■ Janeiro er nú þannig að þrirþjkktir stórmeistarar hafa nú tekið loiiistu en Húbner frá Vestur-Þýzkalandi er þó með eina biðskák sem líkleg þykir honum til sigurs. Húbner er með fjóra vinning ásamt þeim Petro jan frá Sovétrikjunum og Portisch frá Ungverjalandi. Mesta alhygii hclui frámmistaða Brasiliumannsins Jaime Sunye vakið á mótinu i Rio. Hann cr nú með þrjá og hálfan vinning og aðeins háll'um vinningi lægri en þcir sem i forystu eru. Sunye er alls óþekktur skák- maður og hefur engan alþjóðlcgan skáktitil. Eina ástæðan fyrir að hann fékk tækifæri til að keppa á mótinu i Rio er að Brasilia heldur millisvæða- mótið að þessu sinri Sunye hefur þegar gert jafntefli \ ið Petroxjan og Timman frá Hollandi, báðir þekktir stórmeistarar. Torre frá Filippseyjum og Smejkal frá Tékkóslóvakíu eru með þrjá vinninga eftir sex umferðir. MONDALE AFHEND- IR PANAMA LAND Walter Mondale varaforseti Banda- rikjanna mun i dag afhcnda Panama- sljórn formlega land það sem Banda- ríkjastjórn hefur ráðið frá opnun Panamaskurðarins. Er það fyrsta skrefið i átt til þess að Panama ráði að fullu og öllu yfir skurðinum og ná- grcnni hans. Á það að vcrða árið 2000. Mikill viðbúnaður er í Panama og haft strangt auga með andstæðingum stjórnarinnar, sem telja hana hafa verið of eftirgefanlega við Bandaríkja- ntenn í samningum um skurðinn. Mondale varaforseti mun nota tækifærið og ræða við Ijölmarga sljórnmálalciðtoga frá Mið- og Suður- Amerikuríkjunum, sem komnir eru til Panama vegna afhendingar landsins við skurðinn. Hann sagði i gær að hann mundi biðja leiðtoga rikja i þessum heims- hluta að bíða með að fella dóm sinn á deilurnar um Sovéthermennina á Kúbu þar til Cárter Bandaríkjaforseti hcfði flutt ávarp sitt í sjónvarpi i kvöld. Þessi kona berst fyrir jafnrétti kynjanna eins og fleiri en það sem gerir baráttu hennar sérstæða er að hún er félagi i sjómannasamtökunum dönsku en þar hafa konur ekki verið fjölmennar hingað til. Hún telur sig og kynsystur sfnar ekki njóta sama réttar til atvinnu og karlar. Leggið af hat- ur og blóðs- úthellingar sagði Jóhannes Páll II í velheppnaðri heimsókn sinni til írlands Jóhannes Páll páfi II. lýkur í dag heimsókn sinni á írlandi og heldur þaðan til Boston i Bandaríkjunum þar sem búizt er við að allt að ein milljón manna muni taka á móti hon- um Boston er ein af höfuðstöðvum kaþólskra þar vestra. Á ferð sinni um írland hefur páfi hvað eftir annað hvatt landsmenn og þá sérstaklega kaþólska að láta af blóðsúthellingum, hryðjuverkum og hatri. Hefur hann minnt á að kristnir menn eigi ekki að vinna að málum sínum með ofbeldi. Sérstaklega hefur páfi vakið athygli kaþólskra biskupa á írlandi á að þeim beri að hvelja fólk sitt tii að beita friðsamlegum aðferðum. í gær lofaði páfi írum að hann mundi skora á þjóðir heimsins að berjast fyrir friði, er hann flytur ræðu sína fyrir allsherjarþingi Sam- einuðu þjóðanna á þriðjudaginn kemur. Milljón manns mun hafa tekið á móti páfa þegar hann kom til írlands og hundruð þúsunda hafa fylgt hon- um eftir. Nærri fjögur hundruð blaða- og fréttamenn fylgja páfa eftir og til dæmis um þá áherzlu sem fréttamiðlar leggja á að fylgjast mcð honum má nefna að The New York Timexmun láta fjörutíu blaðamenn fylgja honum. Miklar varúðarráðstafanir eru gerðar i Bandarikjunum fyrir komu páfa og vitað cr að búið er að hand- taka nokkra sem sent hafa hótunar- bréf þar sem þeir hafa sagzt munu vinna honum miska. Otyggisráðgjafinn og Frankenstein Hin opinbera fréttastofa Kúbu, Presna Latina, hefur líkt Zbigniew Brzezinski, öryggisráðgjafa Carters Bandaríkjaforseta, við skáldsagna- persónuna Frankenstein. Fréttastofan fjallaði i gær um deil- una milli Bandaríkjamanna og Kúbana um sovézkt herlið á eyjunni. Þar sagði meðal annars að Brzezinski væri ekki nægilega vel upplýstur til að geta gefið forsetanum ráð. „Ráðgjafi Carters virðist hafa gleymt sögunni um dr. Frankcnstein, sem skapaði ófreskju úr líkömum dauðra manna og ætlaði að láta hana vinna fyrir sig,” sagði í tilkynningu Presna Latina. „Raunin varð hins vegar sú að ófrcskjan snerist gegn Frankenstein sjálfum." Bandarísk stjórnvöld hafa ásakað Sovétmcnn um að hafa á Kúbu 2-3000 manna árásarlið, sem þar hal'i verið síðustu fjögur ár. Castro forseti Kúbu neitar þessum ásökunum staðfastlega og segir Brzezinski rugla Bandaríkja- forseta í eigin hugarburði. Fréttastofa Kúbu komst þannig að orði um þessa deilu, að Brzezinski hafi nú flækt Carter i net óútskýranlegs og fjarstæðukennds hugarburðar. Andstaðan gegn nýtingu kjarnorkunnar dvínar ekki og nýlega héldu andstæðingar hennar mikinn útifund I New York. Talið er að um það bil tvö hundruð þúsund manns hafi komið á fundinn. Schmidt og Gis- card ræða orku- og efnáhagsmál Valery Giscard d’Estaing forseti Frakklands heldur til Bonn þar sem hann hyggst ræða við Helmut Schmidt kanslara Vestur-Þýzka- lands. Helzta umræðuefnið verður alþjóðamál og orkumálin. Sam- eiginleg mynt og gjaldeyriskerfi Efnahagsbandalagslandanna og hvernig bæta á stöðu dollarans verður ofarlcga á baugi í viðræðum þjóðarleiðtoganna. Aðstoðarmenn Frakklandsforseta sögðu i gær að rætt yrði um hug- myndir um fundi leiðtoga ríkja Efna- hagsbandalagsins og oliulandanna við Miðausturlönd. Efnahagsbanda- lágslöndin eru mjög háð olíu frá arabarikjunum. Alþjóðaorkumála- stofnunin hefur varað við miklum orkuskorti, ef ekki verði gripið i taumana til að koma á varanlegum orkusparnaði i vestrænum iðnrikj- um. Orðrómur er um að OPEC rikin — það eru þau ríki sem flytja út olíu — vilji hækka olíuverð. Helmut Schmidt kanslari ræddi við Miller fjármálaráðherra Bandaríkjanna i síðustu viku. Niðurstaða fundar þeirra var sú að slík hækkun mundi fara mjög illa tncð efnhagslíf Vestur- landaefúr yrði.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.