Dagblaðið - 01.10.1979, Síða 25

Dagblaðið - 01.10.1979, Síða 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 1. OKTÓBER 1979. 25 I heimsókn hjá þrem kvenkyns vemdurum: „Islendingar fadæma elskujegjr” Cynthia Ann Dukett: Bjóst við isbjörnum og mörgæsum. DB-myndir: Árni Páll. Venst því að ýmislegt vanti Fyrsta hittum við að máli Kathy Magnusson. Eins og ættarnafn hennar ber með sér er hún norrænnar ættar, nánar til tekið norskrar. En um það vill hún sem fæst segja. Kathy hefur verið í flotanum í 5 og hálft ár. Hún vinnur við tölvustjóm suður á Keflavíkurvelli og hefur verið þar siðasta hálfa annað árið. Áður en hún kom hingað vann hún í 4 ár í flotanum vestur í Banda- ríkjunum. Kathy verður hér á landi fram i nóvemberiok. Þá heldur hún heim á fund unnusta síns, þau hyggjast gifta sig i marz á næsta ári. Unnustinn er í flugher Bandarikjanna og kynntust elskendurnir hér á iandi. Ferðin hefur þá ekki orðið til einskis? ,,Nei, hún hefur orðið mér til mjög góðs og það á fleiri en þennan hátt,” segir Kathy. ,,Ég á bíl sem ég hef ekið mikið um landið og ég er svo hrifin að ég er ákveðin í að koma hingað einhvern tíma aftur og þá sem ferða- maður. ísland er að mörgu leyti líkt Kólóradófylki sem ég er frá. Þeir íslendingar sem ég hef talað við eru allir fádæma elskulegir og vilja allt fyrir mig gera. Ég hef ekki orðið vör við neinn fjandskap í minn garð þegar ég segist vera hermaður, ef til vill er það af því að ég er kona. Margir halda fremur að ég sé brezk en bandarisk, líklega útlitsins vegna. Menn virðast bera mikla virðingu fyrir Bretum, mun meiri en fyrir Bandarikjamönnum.” Kathy segir að það takmarkaða frjálsræði sem hermennskan hér býður upp á snerti sig litið. ,,Ég færi hvort eð er ekkert út á kvöldin. Ég fer ekki einu sinni á skemmtanir innan vallarins. Ég eyði heldur tómstundum mínum við að starfa fyrir kirkjuna. Einnig syndi ég mikið og leik tennis. Ég hef farið mjög viða um Iandið og séð mjög margt. Auðvitað er margt sem sjálfsagt þykir og eðlilegt heima sem vantar hér.' Mér fannst þetta hræðilegt fyrst en með tímanum venst maður á að komast af án jíessara hluta og finnur þá jafn- framt aðra í staðinn,” sagði Kathy Magnusson. Hafði ekki séð snjó í 12 ár Næsta hittum við Cynthiu Ann Dukett, sem er eins og Kathy af nor- F.lenor Ann Kirkpatrick: ísland er eins og sambland af Hawai og Miami. Kathy Magnusson: Ákveöin i að koma aftur. er ekki svo furðuleg þegar tekið er tillit til að hún er fædd og uppalinn í Hono- lúlú á Hawai. Elenor Ann Kirkpatrick er orðinn yfirmaður í hernum þó staða hennar hér sé sú fyrsta sem hún gegnir. Hún fór einfaldlega í skóla og náði sér í foringjatitil. Hér á landi hefur hún verið í 16 mánuði og starfar á skrif- stofu herstjórnarinnar bandarísku. Hingað kom hún úr skóla í Miami í Bandarikjunum. „ísland er eins og sambland af Hawai og Miami. Hér er hraun eins og heima en allt miklu berara og kaldara. Ég heyrði sagt áður en ég kom hingað að hér væri grænasta grasið í heiminum og ég held að það sé rétt. Ég bjóst við miklu meiri kulda en er hérna. Að öðru leyti er allt hérna svipað og ég bjóst við.” Elenor var spurð að því hvort erfiðara væri fyrir konur en karla að ná foringjastöðu í bandaríska hernum. „Nei, það held ég ekki. Með þvi að fara í skóla geta konur komizt fullt eins hátt og karlar. En fáar konur eru í- hernum og af einhverjum ástæðum kjósa þær ekki að mennta sig,” sagði hún. -DS. ,,Ég fór á bókasafn áður en ég kom hingað og fann uppsláttarbók um ísland. Þar stóð að hér væru ísbirnir og mörgæsir um allt. Og snjór. Og þegar ég kom sá ég einmitt snjó í fyrsta sinn í 12 ár og hélt þá að hitt stæðist líka. Ég varð því alveg hissa þegar ég sá hvað allt er nútímalegt hér á landi,” segir Cynthia. Hún gegnir störfum fangavarðar á Keflavíkurflugvelli og segir það vera hugsjón sína i framtíðinni. „Mig lang- ar áð starfa að fangelsismálum ungs fólks og reyna að hjálpa því eitthvað.” Cynthia segist lesa mikið í tómstundum sinum hérna á íslandi, auk þess sem hún hefur rifjað upp skíðakunnáttu sína frá þvi að hún var barn. Hún hefur farið ögn um landið en þó ekki eins mikið og Kathy. Hún var einnig litið fyrir að fara út á kvöldin og takmarkað frelsi vallarins virtist snerta hana lítið. Hvers hún saknaði mest; „Bjórsins og góðs veðurs,” sagði Cyntia Ann Dukett. Veggsamstæður í úrvali Veljum íslenzkt íslenzk hönnun DROPA skápa- og hillusamstæðan komin aftur á óbreyttu verði. LIPRA skrifborðið og SPIRA svefnbekkurinn eru glæsileg húsgögn í unglingaherbergi. OPIÐ FÖSTUDAGA TILKL.7 LAUGARDAGA KL. 10-12 Á.GUÐMUNDSSOIM HF Húsgagnaverksmiðja Skemmuvegi 4, Kópavogi. Sími 73100. „Það eina sem mér finnst að landinu er að mér hefur ekki orðið al- mennilega hlýtt síðan ég kom. Ég sakna þess talsvert að geta ekki lengur hlaupið út á stuttbuxum og bol.” Það er Elenor Ann Kirkpatrick sem talar. Elenor er ein af þeim 900 manns sem vinnur við að gæta íslands, hvort sem menn vilja hafa gæzluna í gæsalöppum eða ekki. En ólíkt flestum gæzlu- mönnum okkar á Miðnesheiðinni er Elenor kona. Við tókum hana tali á- samt tveim stöllum hennar í bandariska flotanum. rænum ættum, sem sé sænskum. Hún er nýbyrjuð í hermennskunni, búin að vera í hálft ár og á eftir að minnsta kosti annað hálft. Cynthia kom beint úr herskóla í Flórída hingað. Hér er grænasta gras í heimi Athugasemd þriðju stúlkunnar sem við hittum og fór í upphaf þessa spjalls

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.