Dagblaðið - 01.10.1979, Síða 40
Skólastjóra-
máltöí
Grindavík:
Dönsku kartöf lumar.
BORGUM 40% MEIRA
EN FÆREYINGAR
Á sama tíma og Grænmetisverzlun
landbúnaðarins keypti kartöflur í
Danmörku fyrir 1,20 danskar krónur
kíiógrammið fob. keyptu færeyskir
aðilar þar kartöflur fyrir 0,85 d. kr.
kílóið. Þarna munar 0,35 d. kr. á
hverju kilógrammi eða rúmlega 40%
sem íslendingar greiða hærra verð
heldur en Danir.
í viðtali DB við forstjóra Græn-
metisverzlunar landbúnaðarins fyrir
helgi sagði hann að við þessi
kartöflukaup hefði verið leitað
tilboða eins og venja væri. Að þessu
sinni hefðu kartöflurnar verið keypt-
ar hjá fyrirtæki i Kaupmannahöfn,
I.C. Thorsen.
Vegna þessa verðmunar verða
íslenzkir neytendur að greiða mun.
hærra fyrir kartöflumar komnar
héðan út úr verzlun en ella þyrfti að
vera. ___
í DB á laugardaginn kom fram að
ekki væri annað að sjá en auk hinna
óhagstæðu innkaupa á kartöflum frá
Danmörku legði Grænmetisverzlun
landbúnaðarins mun meira á kartöfl-
urnar hingað komnar til landsins en
innflytjendum sambærilegrar vöru
væri heimilað að gera. Heildsölu-
álagning Grænmetisverzlunar er i
það minnsta 56% i stað 9% sem
heimilað er að leggja á innflutta
ávexti.
Ef miðað er við færeyska verðið
0,85 d. kr. þá er álagning Grænmetis-
verzlunarinnar rúmlega 80%, sem þá
að visu tapast fyrirtækinu að nokkru
i óhagkvæmum innkaupum erlendis
Þessi óhagkvæmu innkaup og mikla
álagning kostar neytendur rúmlega
eitt hundrað krónur á hvert kíló-
gramm út úr verzlun.
Grænmetisverzlun landbúnaðarins
hefur einkaleyfi á kartöfluinnflutn-
ingi og er undanþegin verðlagseftir-
liti.
-ÓG.
1600
farmur
frfálst, úháð daghlað
MÁNUDAGUR 1. OKT. 1979.
Rúður brotnar
í 3 opinberum
byggingum
— atlagagerðað
Stjómarráðinu,
Alþingishásinu og
landsýnahiisinu
Ráðizt var að rúðum í þremur opin-
berum byggingum aðfaranótt laugar-
dagsins. Skemmdarverkin hófust með
þvi að brotin var rúða á 1. hæð
Alþingishússins sem út að Austurvelli
snýr.
Tuttugu og sex mínútum síðar barst
tilkynning um rúðubrot i Stjómarráðs-
byggingunni við Lækjartorg. Þar var
þremur rúðum stútað en aðrir skaðar
að heitið gat ekki.
40 mínútum siðar, eða kl. 01.10, var
tilkynnt um rúðubrot í Landsima-
húsinu.
Málin eru i rannsókn en skaðvaldur-
■nn eða skaðvaldarnir náðust ekki þá
umnóttina. -ASt.
sjónvarpi lauk
íbúum hússins að Blómvangi við
Sæbólsveg í Kópavogi brá illilega í gær-
kvöldi er eldur kom skyndilega upp í
stofu hússins og varð fljótt mikið bál
þar inni. Er slökkviliðið kom á vett-
vang Iagði mikinn reyk upp af húsinu
og húsið var fullt af reyk og eldur i
stofunni. Kona og barn hennar stóðu
úti ómeidd.
Reykkafarar fóru þegar inn í
reykjar- og eldhafið og samtimis var
gat rifið á þakið því eldur hafði komizt
í það. Tókst mjög fljótlega að slökkva
eldinn.
Stofan er mikið brunninn og reyk-
skemmdir um allt hús.
Njörður Snæhólm sagði í morgun að
eldurinn hafi kviknað út frá sjónvarpi,
sem stóð við gluggatjöld. -A.St.
Heiðarleikinn
komþremur
ílögregltihendiHu
Maður, sem var svo drukkinn að
hann átti erfitt með að ná réttstöðunni,
kom til lögreglunnar í Kóptavogi um
helgina. Kvaðst hann vilja vera svo
heiðarlegur að tilkynna um að hann
hefði ekið utan í bíl austur á Hellu fyrr
þennan sama dag, er hann átti þar leið
um.
Kom nú i ljós að þarna var kominn
maður á bíl með Kópavogsnúmeri sem
tilkynntur hafði verið austan frá Hellu.
Hafði Kópavogslögreglan svipazt um
eftir bílnum en ekki fundið.
Þeir höfðu verið þrír félagar á ferð i
bilnum að austan er óhappið varð á
Hellu. Var haldið áfram til Kópavogs.
Við yfirheyrslur kom i Ijós að allir
höfðu þeir ekið einhvern hluta leiðar-
innar að austan en allir verið ölvaðir.
Fyrir utan þessa þrjá ökumenn á sama
bílnum, tók Kópavogslögreglan þrjá
aðra ölvaða við stýrið um helgina.
ALMAR SITUR
AFRAMISTARFI
—Menntamálaráðherra vildi ekki að hann segði af sér ogjtogi tæki við
,,Ég met stöðuna þannig að starfs-
friður yrði ekki tryggður nema ég
færi frá og Bogi Hallgrimsson tæki
við. Því fór ég á fund hans og bauð
honum að taka við skólastjórninni,”
sagði Hjálmar Árnason skólastjóri i
Grindavík við Dagblaðið i gær.
„Eftir nokkra umhugsun féllst
Bogi á þetta. Ég hafði þá samband
við fræðslustjóra umdæmisins, en
hann . vísaði málinu til Ragnars
Arnalds menntamálaráðherra. Ég
kynnti hugmyndina fyrir ráðherran-
um. Afstaða hans var sú að afar
óæskilegt væri að Bogi tæki við
skólastjórninni þrátt fyrir að ég
segði af mér. Ástæðuna kvað
ráðherra vera málaferli sem snertu
Boga.
Þá hafði ég um tvennt að velja.
Annaðhvort að fara frá sem mér
fannst óábyrgt gagnvart hagsmunum
skólans. Eða þá að sitja áfram — að
þvi tilskyldu að ég nytí til þess
stuðnings.
Á laugardag var boðað til
kennarafundar i skólanum. Ég skýrði
stöðuna fyrir kennurunum og gekk
síðan af fundi til að þeir gætu rætt
rriálið án minnar nærveru.
Niðurstaða kennaranna var sú að
þeir Iýstu stuðningi við veru mina á-
fram í vetur, og að ég fengi starfsfrið
við skólastjórnina. Þessa ákvörðun
tóku þeir m.a. með það í huga að
Ijóst var að endurkoma Boga í skóta-
stjórastarfið var nánast út úr
myndinni, vegna afstöðu mennta-
málaráðherrans.
Ég tek fram, að kennarar og
bæjarbúar hafa ekki beint spjótum
sínum að mér persónulega. Það er
málsmeðferð menntamálaráðherrans
sem fólk sættir sig ekki við.
Þessir síðustu dagar hafa verið
geysilega erfiðir. Ég vona að nú lægi
öldumar og skólastarfið hljóti ekki
meiri skaða af málinu en þegar er
orðið. Ég kvíði ekki starfinu fram-
undan og tek fram að full vinátta
rikir milli okkar Boga. Fjöldi fólks
hefur lika hringt i mig til að halda
áfram.
En satt að segja hefði mig aldrei
dreymt um að sækja um þetta starf,
ef mig hefði grunað hver eftírmálinn
yrði,” sagði Hjálmar Ámason.
-ARH
Hjálmar Árnason. Hér er hann á
fullri ferð að taka upp útvarpsþáttinn
vinsæla, Á tíunda tímanum. Hjálmar
sagði við Dagblaðið að þeir
Guðmundur Ámi Stefánsson myndu
liklega ekki haida áfram vinnu sinni í
útvarpinu. -DB-mynd: Ragnar Th.
Stofan íbjörtu
báli er
Loðnuskipið Eldborg HF-13, stærsta
og dýrasla loðnuskip flotans, kom til
Hafnarfjarðar i gær með stærsta
loðnufarm sem hingað til hefur fengizt.
Gaf skipstjórinn, Bjami Gunnarsson,
upp 1630 tonn en vigtun er ólokió. í
augum leikmanna virtist skipið bera
þennan farm vel.
Annars var allgóð veiði um helgina
og bárust 11 til 12 þúsund tonn á land.
Vegna þokkalegs afla fyrr í vikunni er
allt þróarrými nær fullt nema á Suður-
ströndinni, en aðalveiðin nú er á Eld-
eyjarsvæðinu fyrir norðan. í morgun
hafði Loðnunefnd ekki fengið tilkynn-
ingu frá neinum báti eftir nóttina. -GS.
DB-mynd: Magnús Hjörleifssen.
Eldborgin að leggjast að bryggju I Hafnarfirði og margir endar gerðir klárir til að halda skipinu tryggilega við bryggju.