Dagblaðið - 05.10.1979, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1979.
Erlendar
fréttir
Hluti fótbolta-
liðsinsneyddi
stúlkunatilásta
Ameriskt fótbollalið var miðpunktur
kynlifshneykslis vestra og voru þrír
leikmenn liðsins Rams handteknir
vegna málsins, en liðið er háskólalið
Rhode Island háskólans.
Þeir voru kærðir fyrir að hafa neytt
17 ára gamla stúlku til ásta á salerni i
síðustu viku. Hinir ákærðu eru Geza
Hcnni 19 ára miðvallarleikmaður, en
hann er sonur framkvæmdastjóra fót
boltaliðsins, John Brubacher tvítugur
varnarleikmaður, frændi fv. háskóla-
rektors skólans og Kenneth Brekka sent
einnig er tvítugur.
Pillarnir voru handteknir sl. föstu-
dag en fréttunr af atburðununt var
haldið leyndum franr i (ressa viku.
Bandaríkjaförpáfa:
VILL EKKIKONURI
PRESTASTÉTTINA
Neikvæð afstaða Jóhannesar Páls
páfa II. til presta af kvenkyni hefur
valdið bandarískum jafnréttiskonum
vobrigðum. Þessi skoðun páfa kom
fram i ræðu sem hann flutti í Chicago
í gær. Nokkrar úr hópi forustu-
kvenna samtaka slíkra baráttukvenna
vestra ætla að ræða þessi mál við
páfa i einkaviðræðum í dag. Páfi
mun haida ræðu i dag á fundi sinum
með þrjú hundruð kaþólskum
biskupum í Bandarikjunum.
Þegar Jóhannes Páll kom til Chi-
cago i gær voru hundruð þúsunda til
að taka á móti honum. í viðtali við
italska sjónvarpið i gær sagði páfi að
hann væri mjög glaður yfir hinum
góðu ntóttökum sem hann fengi alls
staðar sem hann kæmi. Hann hefði
átt von á vinsamlegum móttökum á
írlandi, þar sem meginþorri ibúanna
væri kaþólskur. Páfi sagði að sá
fjöldi sem hefði fagnað honum í
Bandarikjunum hefði aftur á móti
komið honum mjög á óvart og lýsti
hann gleði sinni yfir því.
í gærkvöldi er páfi hafði hvílzt í
Chicago mætti hann á fund með hópi
nunna og kaþólskra presta. Að því
loknu gekk hann fram fyrir almenn-
ing sem stóð fyrir utan dvalarstað
hans og söng sálma og hrópaði
„lengi lifi páfinn”. Páfi, sem virtist
þreyttur, hlustaði þolinmóður á
fólkið en hrópaði siðan til þess „Þið
eruð stórkostleg.”
Engar konur í predikunarstólana
takk!
Skákmótið í Rio de Janeiro:
Óvænt franvni-
staöa Sunye
—Robert Hubner efstur eftir níundu
umferð
Robert Húbner, vestur-þýzki stór-
meistarinn, hefur nú tekið forustuna á
millisvæðamótinu i Rio de Janeiro í
Brasilíu. Mcsta athygli vekur þó
frammistaða brasiliska skákmannsins
Brésnef hvetur
tilfriðarog
spennuslökunar
Brésnef, forseti Sovétrikjanna,
hvatti leiðtoga rikja heims til að hætta
öllum vangaveltum um hvort hefja ætti
afvopnun og friðsamlega sambúð.
Sagði hann þetta í ræðu sem hann hélt í
Austur-Þýzkalandi en þar er forsetinn
vegna þrjátíu ára afmælis alþýðu-
lýðveldisins. Brésnef nefndi ekkert sér-
stakt riki i ntáli sinu en Ijóst er hann
átti einkum við Bandaríkin þar sem
veruleg andstaða er gegn fullgildingu
Salt II samkomulagsins.
Jaime Sunye sem er í öðru sæti. Sunye
sem hefur engan alþjóðlegan titil hefur
skotið upp á stjörnuhimin skákheims-
ins i einu vetfangi öllum sérfræðingum
og spámönnunt til mikillar undrunar.
Staðan eftir níu umferðir á mótinu í'
Rio de Janeiro er þannig: Robert
Húbner 6,5, Petrosjan, Vaganian og
Portisch allir nieð 5,5, siðan kemur
Sunye frá Brasilíu aðeins hálfum vinn-'
ingi lægri. Balasov og Sax eru með 4,5
vinninga, Ivkov og Smejkal mcð fjóra
vinninga og biðskák, Torre með 3,5,
Shamkovich frá Bandaríkjunum rneð
þrjá vinninga og tvær biðskákir,
TÍmrnan, Luis Bronstein, Verlimiro-
vic, Herbert, Harandi frá lran og
Garcia frá Kúbu eru með tvo vinninga.
Timman og Verlimirovic eru með tvær
biðskákir en Herbert og Garcia með
eina hvor. Simeon Kagan rekur lestina
á skákmótinu eftir níu umferðir með
1,5 vinninga. Biðskákirnar sem ólokið
er eru á milli Shamkovich — Ivkov,
Timman — Verlimirovic, Smejkal —
Shamkovich, Verlimirovic — Garcia og
l.uis Bronstein — Timman.
Walter Mondale brá sér til Pananta á dögunum og afhenti rikisstjórninni þar meginhluta þess landsvæðis sem Bandarlkja-
menn hafa ráðið undanfarna áratugi. Er svæðið meðfram Panamaskipaskurðinum en honum hafa Bandaríkjamenn ráðið frá
upphafi. Panamastjórn á að fá yfirráð yfir skurðinum árið 2000.
SONY ER TOPPURINN
Betamax myndsegul-
band.
Frábœrt verö: 999.000.
•
Myndaleiga á staönum.
Setjum upp fyrir
jjölbýlishús.
JAPÍS HF.
Lækjargötu 2 - Simi 27192.
Suður-Afríka:
Connie Mulder
aftur í frambod
—stof nar nýjan stjómmálaf lokk gegn
fyrrifélögum
Connie Mulder fyrrum upplýsinga-
málaráðherra í rikisstjórn John Vorster
í Suður-Afríku hefur nú stofnað nýjan
flokk og hyggst bjóða fram gegn fyrri
félögum í næstu kosningum þar í landi.
Mulder, sem áður var áhrifamikill ráð-
herra Þjóðernisflokksins, var dæmdur
fyrir fjársvik eftir að upp komst um
viðamikil fjármálaumsvif og milli-
færslur úr rikissjóði Suður-Afriku til
blaða sem styðja kynþáttastefnu Þjóð-
ernissinnaflokksins. Mulder var einnig
talinn hafa krækt sér i dágóða fúlgu
sjálfur. Mál þetta var talið mikið áfall
fyrir flokkinn og varð John Vorster,
sem orðinn var forseti landsins, að
segja af sér vegna þess.
Connie Mulder var einn þeirra sem
talinn var koma til greina sem arftaki
hans í sæti forsætisráðherra er Pieter
Botha varð fyrir valinu. Mulder og
hinn nýi flokkur hans mun ætla að
berjast gegn öllum hugmyndum Botha
um að létta að einhverju leyti á kyn-
þáttaaðgreiningu svartra og hvitra í
Suður-Afriku. Er talið vist að þar verði
töluvert laust fylgi þar sem ihaldssamir
þjóðernissinnar hafa verið að yfirgefa
hinn gamla Þjóðernissinnaflokk.