Dagblaðið - 05.10.1979, Qupperneq 10

Dagblaðið - 05.10.1979, Qupperneq 10
10 DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1979. Útgefandi: Dagblaöiö hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. f.yjólfsson. Ritstjóri: Jónas Kristjánsson. Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason. Skrifstofustjóri ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. Fróttastjóri: Ómar Valdimarsson. íþróttir: Hallur Símonarson. Menning: Aöalsteinn Ingótfsson. Aöstoöarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrit: Ásgrímur Pálsson. Blaöamenn: Anna Bjarnason, Ásgeir Tómasson, Atti Rúnar Halldórsson, Atli Steinarsson, Bragi Sigurösson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gissur Sigurösson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur Goirsson, Sigurður Sverrisson. Hönnun: Hilmar Karlsson. Ljósmyndir: Árni Páll Jóhannsson, Bjarnleifur Bjamlerfsson, Höröur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs- son, Sveinn Þormóösson. Skrifstofustjóri: Ólafur Eyjótfsson. Gjaldken: Þráinn Þorletfsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dretf- ingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstjórn Síöumúla 12. AfgreiÖsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrifstofur Þverholti 11. Aöalsími blaösins er 27022 (10) línur). Gagnslrtil olíusambönd J— JOMAS "": í’' i V KRIS3 'JANSSON Ji stjórar íslenzku olíufélaganna geti út- vegað olíu frá fyrrverandi móðurfélög-1 um sínum, Exxon, Shell og British Petroleum. Sú stutta staðreynd segir langa sögu um ástand íslenzkra olíu- kaupa. Hin vestrænu sambönd hafa samt ekki rofnað á aldarfjórðungi sovétviðskipta. Smurolía hefur verið keypt af móðurfélögunum og raunar ýmsar aðrar olíu- vörur umfram samningana við Sovétríkin. íslenzku olíufélögin eru í stöðugu sambandi við móðurfélögin. Þau senda yfirmenn og aðra starfsmenn á námskeið til þeirra. Því ættu að vera til viðskipta- sambönd, sem gerðu okkur kleift að losna úr vítahring Rotterdamverðs Sovétríkjanna. íslenzku olíufélögunum ætti líka að vera sérstakt áhugaefni að losna úr sovétviðskiptunum og hefja á ný þau viðskipti, sem voru á sínum tíma forsenda þess, að hér á landi tæki því að hafa þrjú olíufélög. Forusta ríkisins um olíukaup frá Sovétríkjunum hefur gert samkeppni í olíuverzlun að hálfgerðum skrípaleik. Ríkisforsjáin hefur smám saman gefið byr undir báða vængi þeirri skoðun, að þjóðnýting olíu- verzlunar komi til greina. Ráðamenn olíufélaganna hafa fallið í þessa gryfju. Á 25 árum hafa þeir samlagazt hóglífi embættis- mennskunnar, fegnir að vera lausir við streitu sam- keppninnar. Þeir geta ekki lengur útvegað olíu eftir leiðum frjálsrar verzlunar. Nú hefur olíuviðskiptanefnd ríkisins verið falið það verkefni, sem fela hefði átt olíufélögunum, ef einhver dugur væri í þeim. Hún á með aðeins nokkurra vikna fyrirvara að fínna olíu, sem geti komið í stað sovézkr- ar. Olíuviðskiptanefnd stóð sig vel, þegar hún komst að raun um, að sovézk olía á Rotterdamverði til íslands er 70% dýrari en olía á Vesturlöndum og að hún er dýrari en nokkur önnur útflutningsolía frá Sovétríkjunum. Hin er þrautin þyngri að finna ný og varanleg við- skiptasambönd á örfáum vikum, þegar olíufélögin hafa ekki getað það á föstum samböndum. Nefndin hefði þurft nokkra mánuði til stefnu, ekki vikur. Ekki er auðvelt að fá olíu undir Rotterdamverði. Olíuskorturinn í heiminum veldur því, að gömul við- skiptasambönd ganga fyrir nýjum og að olía á meðal- verði er skömmtuð. Lausakaup þar fyrir utan mælast á Rotterdamverði. Gera má því ráð fyrir, að samningamenn íslands verði að fara Canossa-för til Moskvu að nokkrum vik- um liðnum til að semja um framhald olíukaupa á afar- kjörum Sovétríkjanna. Olía þeirra er einfaldlega sú eina, sem við getum nú náð í. Hugsanlegt er að taka þá áhættu að semja að þessu sinni til skamms tíma við Sovétríkin, til dæmis til hálfs árs. Það yrði þá gert í trausti þess, að olíuviðskipta- nefnd næði árangri á nokkrum mánuðum. Ef til vill er þetta of mikil svartsýni. Auðvitað vonum við, að nefndin vinni afreksverk á skömmum tíma. Hún hefur líka töluvert svigrúm í verði, því að við getum hagnazt verulega, þótt hún finni ekki olíu á meðalverði. Milli meðalverðs og okurverðs er breitt bil. Hvert skref í átt frá okurverði er hagkvæmt, þótt meðalverð náist ekki í einum áfanga. Mikilvægast er að komast að traustum viðskiptum, svo að ekki-verði hætta á olíu- skorti. Hlálegast í þessum sorgarleik er, að hér skuli vera þrjú olíufélög, sem eru orðin svo miklar ríkisstofnanir, að þau geta ekki útvegað landinu olíu af eigin ramm- leik. Eftir 25 ára hlé hafa þau tækifæri til að sanna til- verurétt sinn, en geta það þá ekki. 1 Suður-Afríka: Framleiða helm- ing olíuþarfar sinnar úr kolum —ótti við gagnrýni$$artra Afríkuríkja kemur í vegfyrír nánari þátttöku Vesturlanda íframkvæmdunum og kynni af f ramleiðsluaðf erðum Margir aðilar á Vesturlöndum, sem uggandi eru vegna viðvarandi olíu- skorts og síhækkandi olíuverðs, beina nú augum sinum að hugsan- legri lausn mála. Þar er um að ræða olíuframleiðslu úr kolum. Suður- Afrika er komin lengst í þeim efnum. Möguleikar á samvinnu við þetta eina ríki hvíta mannsins í svörtu álfunni mundu þó hafa verulega ókosti i för með sér. Olíusérfræðingar Suður-Afríku hafa unnið olíu úr kolum síðan árið 1955. Fyrirtækið heitir The South Africa Coal, Oil & Gas Corporation, skammstafað Sasol. Olíuframleiðslu- stöðin er nærri Jóhannesarborg. Er þetta gífurlega mikið fyrirtæki, þar sem tankar tróna í hundraðatali og leiðslumar spinnast í kílómetratali vítt og breitt. Þarna koma kolin á járnbrautarvögnum og út kemur olía og bensín. Auk þess eru unnar rúm- lega sjötíu aukaafurðir, allt frá naglalakkseyði til prentsvertu. Tvær olíuframleiðslustöðvar munu hefja starfrækslu hjá Sasol innan skamms. Mun olíuframleiðsla úr kolum þá verða um það bil 120 þúsund föt, sem svara mun til nærri helmings af olíunotkun í Suður- Afríku. Ekki er þó hægt að upplýsa það nákvæmlega því suður-afrísk lög heimila ekki að gefa upp olíubirgðir í landinu og olíunotkun. Suður-Afríka er eina landið í heim- inum sem framleiðir olíu úr kolum í einhverjum mæli. Á þann hátt reyna þeir að vinna gegn ógnun af við- skiptabanni og aðgerðum Sameinuðu þjóðanna vegna kynþáttastefnu suður-afrisku stjórnarinnar. Vegna þessarar stefnu hvítra ráðamanna þar syðra hafa stjórnendur vestrænna ríkja einnig verið að reyna að rjúfa tengsl sin við Suður-Afríku. Einkum er það talið vegna vaxandi gagnrýni svartra Afríkjurikja á þau samskipti. En þrátt fyrir þá pólitísku erfið- leika sem tengsl við Suður-Afríku FÓLK LÆTUR BLEKKJAST í FRIHÖFNINNI Verðlag á ýmsum hlutum éeðlilega hátt Inngangur Mikill hluti þeirra íslendinga sem fara um Fríhafnarverslunina á Kefla- víkurflugvelli kaupir þar ýmsan varn- ing í góðri trú á, að þar sé allt svo ódýrt. Miðað við verðlag i öðrum verslunum laridsins er verðlag þar lágt en hátt samanborið við verð í ná- grannalöndum okkar, jafnvel Norðurlöndum, a.m.k. á ýmsum vör- um. Vegna hins síhækkandi verðlags í landinu er verðskyn íslendinga lé- legt og m.a. af þeim ástæðum lætur fólk blekkjast. Verðlag á tveimur vöruflokkum er þó mjög lágt og með því lægsta i Evrópu, en þessir vöru- flokkar eru áfengi og vindlingar. Ljósmyndavörur dýrar í Dagbiaðinu þann 11. nóvember 1977 ritaði undirritaður kjallaragrein um filmuverð. í greininni var bent á, að filmur væru um 50% dýrari í Frí- hafnarversluninni heldur en í ná- grannalöndum okkar. Verðlag á film- um hérlendis samanborið við verðlag í öðrum löndum hefur síðan haldist svipað og er því ekki ástæða til að^ fjalla um það í grein þessari. Hins vegar skal vikið að verði á öðrum ljósmyndavörum. í júlí sl. spurðist undirritaður fyrir í Fríhafnarversluninni um verð á' ákveðinni tegund leifturlampa (flash) á myndavél. La'fturiampinn kostaði 179,75 bandariska dali. Sami leiftur- lampi með tösku, rafhlöðum og dreifigleri kostaði þá út úr verslun í Texas í Bandaríkjunum 107,63 dali Kjallarinn GísliJónsson að meðtöldum 5% söluskatti. An að-. flutningsgjalda og án söluskatts var leifturlampinn því 67,0% dýrari í Fri- hafnarversluninni en i smásöluvcrsl- un í Texas. I báðum tilfellum er um innflutta vöru að ræða þvi leittui- lampinn er framleiddur i .lapan. Hvernig má slíkt vera? Þess skal getið, að miðað við auglýsingar í bandarisku Ijósmyndatimariti má líta á fyrrnefnt verðj Texas sem meðal- verð í Bandaríkjunum. í Fríhafnarversluninni er talsvert framboð af myndavélum, sem eru dálitið keyptar af islenskum ferða- mönnum. Verð á þeim er almennt hærra heldur en í Englandi og i Bandaríkjunum en undirritaður hefur ekki samanburð á reiðum höndum frá öðrum löndum. Verð- munurinn er þó miklu minni heldur en á áðurnefndum leifturlampa. íslendingar óbeint tældir til tollsvika Fríhafnarverslunin er rikisfyrir- tæki og þar vinna því starfsmenn ríkisins. Fróðlegt er að hugleiða, hvernig dýr og vönduð myndavél verður eign islensks ferðamanns i Frí- hafnarversluninni og kemst tollfrjálst inn i landið. Þvgar undirritaður kynnti sér sl. vor \crð á ákveðinni tegund mynda- vélar, kom i Ijós, að hún kostaði rúma 370 dali. Þegar afgreiðslu- maðurinn var spurður að því, hvort ekki yrði að greiða toll af myndavél- inni, þegar heim væri komið, var svarið: „Þvi er ekki að neita, að einn og einn er óheppinn og missir mynda- vél sína i toll.” Þetta þótti undirrit- uðum athyglisvert svar, þar sem það verður vart túlkað á annan hátt en þann, að talið sé sjálfsagt að reyna að fara i gegnum græna hliðið og treysta á gæfuna. Komi islenskur ferðamaður til landsins með myndavél, sem keypt hefur verið i Frihafnarversluninni eða erlendis og sem kostar um 370 dali (i apríl sl. ca 122 þús. kr.), ber honum að fara í rauða hliðið og til- kynna hana. Fyrrnefndri spurningu bar starfsmanni Fríhafnarverslunar-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.