Dagblaðið - 05.10.1979, Side 19
More Amerícan Graffíti sýnd hér von bráöar
Senn fer ad líða að því að
íslendingar fái að berja Önnu
Björns augum á hvíta tjaldinu.
Laugarásbíó hefur fest kaup á
myndinni More American
Graffiti og hyggst taka hana til
sýninga I byrjun næsta árs.
„ Við erum að hugsa um að
vera með œvintýramyndina
Wiz sem jólamynd og taka svo
More American Grajfiti til
sýninga strax á eftir henni,”
sagði Grétar Hjaltason for-
stjóri Laugarásbiós I samtali
við DB. Hann kvaðst hafa séð
myndina ytra, er hann samdi
um kaup á henni, og hafa haft
gaman af að sjá og heyra
Önnu Björns í hlutverki sínu.
„Anna talar þarna einungis
íslenzku og dönsku," sagði
Grétar. „ Við vorum að velta
þvífyrir okkur hvort við þyrft-
um ekki að þýða það sem hún
segir yfir á ensku til að vega á
móti hinum textanum. ”
Anna Björnsdóttir i hlutverki sinu i
More American Graffiti, ásamt
ökuþórnum MHner sem fór með
stórt hlutverk i fyrstu myndinni.
DB-mynd Hallgrímur Björgólfsson.
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1979.
„Hið dæmi-
EDDA A NDRÉSDÓ TTIR - Búin að
vera í þættinum i um það bi! ár.
GUDJÚN FRIDRIKSSON - Heldur
áfram að öllu óbreyttu.
Guðbergur Bergsson. Kóngar,
drottningar og ævintýri.
DB-mynd Ragnar Th.
Guðbergur Bergsson rithöfundur,
cinn þremcnninganna sem Listahátið
í Reykjavík pantaði verk hjá fyrir
hátiðina næsta sumar, er langt kom-
,inn með sinn hluta.
„Ég fékk það hlutverk að semja
barnaleikrit,” sagði Guðbergur á
blaðamannafundi Listahátíðarnefnd-
ar í vikunni. „Þetta er hið dæmi-
gerða barnaleikrit með ævintýrum,
'hættum, kóngum, drottningum og
þess háttar. Leikritið fjallar um fólk
á annarri reikistjörnu sem vill komast
til jarðarinnar og þær vonir sem það
bindurvið þá heimsókn.
í leikritinu segir jafnframt frá ferð
þessa fólks til jarðarinnar og endar
nteð komu þcss þangað. Ég hugsa
mér að leikhúsið sé jörðin.”
Að sögn Guðbergs verður barna-
leikrit hans væntanlega tekið til sýn-
inga i Þjóöleikhúsinu ,,ef það reynist
sýningarhæft,” eins og hann komst
aðorðiá blaðamannafundinum.
Aðrir listamenn sem Listahátið í
Reykjavík pantaði verk hjá eru Ragn-
heiður Jónsdóttir myndlistarmaður
og Gunnar Reynir Sveinsson tón-
skáld.
Þrír af fjórum stjómendum út-
varpsþáttarins í vikulokin hafa til-
kynnt að þeir hyggist hætta störfum
við hann innan skamms. Þetta eru
þau Edda Andrésdóttir, Kristján E.
Guðmundsson og Ólafur Hauksson.
Fjórði stjómandinn, Guðjón Frið-
riksson blaðamaður, sagði í samtali
við Dagblaðið að hann væri von-
góður um að halda áfram.
„Það fer eftir ákvörðun útarpsráðs
og nýju stjómendunum hvort ég held
áfram,” sagði Guðjón. „Ég get ekk-
ert sagt um það nú hverjir koma inn í
staðinn fyrir þau þrjú sem hætta.
Það hafa ýmis nöfn skotið upp koll-
inum en útvarpsráð hefur enn ekki
fjallað um framtíð þáttarins.”
Ástæðan fyrir því að Kristján
hættir er sú að hann mun endurvekja
unglingaþátt sinn sem hann var með í
fyrravetur. Ólafur Hauksson hættir
vegna anna við blaðaútgáfu.
,,Ég er búin að vera í Vikulokun-
um svo lengi að mér finnst orðið
tímabært að hætta núna,” sagði
Edda Andrésdóttir. „Ég er búin að
vera í þættinum i um það bil eitt ár
núna svo að það er orðið timabært að
gerðabama-
leikrit”
KRISTJÁN E. GUDMUNDSSON —
Tekur að nýju upp þráðinn með
unglingaþátt sinn.
ÓLAFUR HAUKSSON - Snýr sór
óskiptur að útgáfu tímarita sinna.
Páll Jóhannesson sigurvegari í hæfileikakeppni Dagblaðsins og Hljómsveitar Birgis Gunnlaugssonar:
„ÁHUGINN FYMR SÍGILDRITÓNUST
ER SÍFELLT AÐ AUKAST’
Þrír stjómendur þáttarins
I vikulokin eru að hætta
fá einhvern nýjan í staðinn fyrir
mig.”
Edda kvaðst ekki hafa sótt um nýj-
an þátt og kvað allt óráðið um fram-
tíð sína hjá útvarpinu.
Ólafur Hauksson er í fríi frá Viku-
lokunum um þessar mundir. Stað-
gengill hans er Gunnar Salvarsson
kennari og umsjónarmaður poppsíðu
Vísis.
GuðbergurBergsson
vbmur fyrir Ustahátíð:
„Það var fyrir tilviljun að ég tók
þátt í hæfileikakeppninni. Ég hafði
ekkert leitt að því hugann að vera
með en dreif mig í hana,” segir Páll
Jóhannesson verzlunarmaður og
söngnemi. Páll sigraði með glæsibrag
í úrslitakeppninni og hlaut að launum
utanlandsferð að verðmæti um 350
þúsund krónur.
„Þessi vinningur kom sér vel fyrir
mig og er mér mikill styrkur til að
geta haldið áfram námi,” segir Páll.
„Ég reikna með því að nýta hann i
námsgjöld frekar en að fara utan.”
Páll stundar einsöngvaranám i
Söngskólanum í Reykjavík. Kennari
hans er Magnús Jónsson. „Ég er bú-
inn að vera i skólanum í þrjú ár og á
tvö eftir,” segir hann. „Það er allt
óráðið um-hvað tekur við að náminu
loknu. Það kemur svona smátt og
smátt í Ijós með tímanum. Ég hef þó
fullan hug á að halda áfram og
þroska hæfileika mína á þessari
braut.”
Páll Jóhannesson ftil vinstri á myndinni) tekur við sigurlaunum sinum úr
hendi Wilhelms Vessman aðstoðarhótelstjóra á Hótel Sögu.
DB-mynd Ragnar Th. Sigurðsson.
Að sögn Páls Jóhannessonar tekur
það fimm til sex ár að Ijúka einsöngv-
araprófi. Er hann hóf nám i Söng-
skólanum í Reykjavík hafði hann
verið fjögur ár í læri hjá Sigurði
Demets Franzsyni á Akureyri. — Páll
var að þvi spurður hvort einsöngvar-
ar gætu lifað af listinni.
„Það getur reynzt erfitt en stendur
vonandi til bóta,” svaraði hann og
brosti við. „Mér virðist áhuginn
sífellt vera að aukast fyrir þeirri tón-
list sem ég fæst við — nú og íslenzka
óperan er spor í rétta átt. ”
Með söngnáminu vinnur Páll í
verzlun. Hann kvaðst reyna eftir
megni að sameina starfið náminu, en
þaö gengi ekki alltaf sem bezt. Þá
sagði hann að hann hefði jafnframt
von um að fá aukavinnu við sönginn í
vetur.
„Mér skilst að vanti alltaf
skemmtikrafta á alls kyns skemmt-
anir. Ég hef lítið sungið opinberlega
hingað til og satt að segja ekkert gert
i þvi að koma mér á framfæri. Það er
kannski kominn tími til að spreyta sig
núna.” — Páll bætti því við að þeir
sem hefðu áhuga á að ráða hann á
skemmtanir i vetur gtetu haft sam-
band við hann í síma 14661.
- ÁT
Fólk
C
D
Pípulagnir - hreinsanir
Er stíflað? Fjarlægi stíflur
úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niður-
föllum. Hreinsa og skola út niðurföll i bíl-
plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tankbíl
með háþrýstitækjum, loftþrýstitæki, raf-
magnssnigla o.fl. Vanir menn. .
Valur Helgason, sími 77028.
c
Bílaþjónusta
j
MOTOROLA
Alternatorar I bila og báta, 6/12/24/32 volta.
Platinulausar transistorkveikjur I flesta bila.
Haukur & Ólafur hf.
Ármúla 32. Simi 37700.
Ljósastillingar og önnur bílaviðgerðarþjónusta
Bifreiðaverkstæði
N. K. SVANE
Skeifan 5 - Sími 34362