Dagblaðið - 05.10.1979, Qupperneq 27

Dagblaðið - 05.10.1979, Qupperneq 27
RAUÐ SOKKABÖND—sjónvarp kl. 22.10: Nýr umboðsmaður Dagblaðsins á Stöðvarfirði er í Kastljósi í kvöld munu þau Sigrún, Ingvi Hrafn <>j> Ingólfur rærta um komu Vielnamanna hingaö til lands en þessi mynd var tekin af nokkrum þeirra. -DB-mynd: Árni Páll. KASTUÓS—sjónvatp kl. 21.10: VÍETNAMAR OG ÞÉTTING BYGGDAR Fréttaþátturinn Kastljós hefur göngu sina að nýju i sjónvarpi í kvöld kl. 21.10. Að venju verður tekið fyrir innlent málefni sem er ofarlega i hug- um fólks þessa dagana. Sigrún Stefánsdóttir fréttamaður sagði i samtali við DB að tvö mál yrðu á dagskrá i þættinum i kvöld. Annars vegar þétting byggðar í Reykjavik. Þróunarstofnun Reykjavikur vinnur nú að athugun á svæðum i Reykjavík þar sem áætlað er að byggja um 600 ibúðir. Miklar deilur hafa risið i borg- arstjórn vegna væntanlegrar þéttingar byggða á þessu svæði. Hefur meiri- hlutinn verið með því en Sjálfstæðis- flokkurinn á móti. Hitt málið er koma Vietnamanna hingað til lands. Verður rætt við flóttafólkið og hvernig þvi gengur að aðlagast íslenzku þjóðfélagi. Einnig verður rætt við Ungverja, sem Rauði krossinn tók á móti hingað til lands fyrir nokkrum árum og spurt hvernig þeint hafi gengið að aðlagast íslenzkum aðstæðum. Kastljós að þessu sinni er einungis kvikmyndað og verða þvi engar samræður manna á milli í sjónvarpssal. Sigrúnu til aðstoðar i þættinum verða blaðamennirnir Ingvi Hrafn Jónsson og Ingólfur Margeirsson. Þátturinn er klukkustundar langur. -EI.A. C.ísli Hclgason ræðir i þætti sinum i kvöld um blinda og sjónskcrta i starfi, i framhaldi af rcglujjcrð sem sett var í sumar. DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 5. OKTÓBER 1979. ^ r-------------------- UTVARPkl. 21.15: , BLINDIR 0G SJ0N- SKERTIR í STARH Blindir og sjónskertir nefnist þáttur i umsjá Gísla Helgasonar i útvarpinu í kvöldkl. 21.15. „Þessi þáttur er gerður út frá reglugerð sem heilbrigðis- og trygginga- ráðherra setti i sumar. Hún á að auðvelda fötluðu fólki að gegna venjulegum störfum,” sagði Gísli Helgason i samtali við DB. „Tryggingastofnunin mun greiða fyrsta árið 75% launanna, annað árið 50% launanna og þriðja árið 25%. Einnig er þessi reglugerð sett til að kveða niður fordóma gagnvart fötluðu fólki. Vonandi verður hún ennfremur til að auðvelda fólki að fá vinnu,” sagði Gísli. ,,í þættinum i kvöld ræði ég við ráðherra um þessi mál og nokkra einsaklinga, sem eru mcð sjálfstæð störf. Fyrst ræði ég við blindan mann á Akureyri sem er með burstagerð og bólstrun, síðan ræði ég við ntann á Selfossi sem rekur nuddstofu og einn annan i Vestmannaeyjum, sem býr til fangalinur. Þeir lýsa allir vinnu sinni og viðhorfum til vinnu almennt. Þessir menn hafa allir misst sjónina ungir eða á miðjum aldri og hafa þurft að endur- hæfa sig samkvæmt því. Auk þeirra kentur fram stúlka, sem er mjög sjóndöpur, en hún er á mörkum þess að geta stundað atvinnu sina, vegna sjónarinnar”. Þátturinnn hans Gisla er hálftima langur. -ELA. Skopast aö vestrum Aðra helgina i röð fáum við að sjá bandariska dans- og söngvamynd á skjánum og nefnist sú er sýnd verður í kvöld Rauð sokkabönd (Red Garters). „Þetta er eiginlega eins og auglýst var i ganila daga, bráðskemmtileg dans- og söngvantynd. Þó fer auðvitað eftir smekk manna hve bráðskemmtileg hún er,” sagði Þrándur Thoroddsen þýðandi myndarinnar i samtali við DB. „Þetta er vestri i gamansömum músíkstil,” sagði Þrándur ennfremur. „Hálfgerð skopmynd ciginlega. Myndin er eldgömul eða frá árinu 1954 og eins og venjulega i vestrum þá kemur riddari i hcimsókn til smáþorps og reynir allt til að ná ástum heima- sætunnar.” Kvikmyndahandbók okkar gel'ur myndinni tvær og hálfa stjörnu af fjór- um mögulegum. Með aðalhlutverk l'ara Rosemary Glooney, Guy Mitchell, Jack Carson og Gene Barry. Myndin er cinnar og hálfrar stundar löng. -ELA. H Dans og söngvamyndir nutu gifurlcgra vinsælda hér fyrr á árum og gera jafnvel cnn í dag. Sjónvarpið sýnir okkur i kvöld Rauð sokkabönd sem er ein af hinum vinsælu dansmyndum. Sú var gcrð árið 1954. \____________________ Birgitta Benediktsdóttir Steinholti, sími 97-5837. MMBIABW Hárgreiðslustofan Klapparstíg 29 Slmapantanir 13010 HÁRGREIÐSLUSTOFAN Jheri Redding' KLAPPARSTIG 29 JLts'laiv Henna Hárlitun er ekki bara „rauð” heldur einnig svört, brún og allt þar á milli — einnig litlaus Henna-nœring. * Fjölbreytt SllWII I MÍMI ER og skemmtilegt tungumálanám. 10004

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.