Dagblaðið - 05.10.1979, Qupperneq 28
Fréttastjórar hl jóðvarps og sjónvarps um þingf réttimar:
Mótmæla tilburðum
til Htskoðunar
—látið reyna á hvort Alþingi krefst af Hta af þingf réttum
Frétlastjórar útvarps og sjónvarps
hafa bréflega mótmælt einni af hug-
myndum þingfréttanefndar, er
ncfndin lagði fyrir útvarpsráð ný-
verið. Er hún í stuttu máli í þá veru,
að afrit af þingfréttum hljóðvarps og
sjónvarps liggi ávallt fyrir í þingsöl-
um daginn eftir, meðdagblöðunum.
Friðrik Sophusson, einn nefndar-
manna, gerði þetta að tillögu sinni i
útvarpsráði i vor og voru þá frétta-
stofurnar mótfallnar. Er þvi ofan-
greind ri't-ioa. s.-m Eiður Guðnason
mælti núf\ ii iutvarpsráði fyrir hönd
nefndarinnui, .trr' un.
Fréttas joiarnir segja í mótmælum
sínum nú að það muni hafa ófyrir-
sjáanlegar afleiðingar að veita þannig
einum hópi þjóðfélagsins meiri þjón-
ustu en öðrum. Auk þess sé þarna um
að ræða óbeina tilburði til ritskoð-
unar.
Þar eiga þeir vafalítið við að slíkt
muni leiða af sér aukna umræðu utan
dagskrár um fréttaflutninginn, sem
siðan hefði áhrif á þingfréttamenn.
Þórarinn Þórarinsson er formaður
nefndarinnar, sem útvarpsráð kaus í
vor og hefur haldið einn fund. Vil-
boóg Harðardóttir nefndarmaður var
boðu£ til þess fundar með hálfs
sólarlí^ings fyrirvara og gat ekki
mætt. Hún hefur siðar tekið fram að
hún standi hvergi að tillögunum.
Þingfrétlamálið er rótgróið þrætu-
mál þingmanna og þingfréttamanna,
þar sem fréttamat þeirra fer ekki
ávallt saman.
Staða málsins er nú sú að frétta-
stjórunum hefur verið falið að gera
tillögur um tilhögun þessara mála og
verður látið reyna á hvort Alþingi
krefst afrita af þingfréttum, þegar
þing kemur saman 10. október.
-GS.
H
Eiður Guðnason og Friðrik Sóphus-
son mæla fyrir tiliögu sem frétta-
stjórar útvarpsins telja „tilburði til
ritskoðunar" á þingfréttum.
DB-mynd: RagnarTh.
Náttúnrfræðistofnun:
Emi sleppt úr
endurhæf ingu
Undanfarinn hálfan mánuð hefur 4
ára gamall örn verið í vörzlu Náttúru-
fræðistofnunar islands. Örninn var
sendur Náttúrufræðistofnun frá Æðey
en þar fannst hann allur útataður í grúl
og gat hann ekki lyft sér og hefði vafa-
laust ekkert nema dauðinn beðið hans
ef hann hefði ckki komizt undir manna
hendur. ,,Við þvoðum hann nieð
þvottalegi og gáfum honum að éta það
sem til féll, máfa og bringur," sagði
Ævar Petersen náttúrufræðingur i sam-
tali við Dagblaðið. ,,Við slepptum
honum í gær nálægt Stykkishólmi og í
ntorgun frétti ég af honum. Þá var
hann enn á söntu slóðunt og virtist allt í
bezta lagi með hann og vonandi lukkast
þetta. Ég hef ekki ástæðu til að ætla
annað,” sagði Ævar er DB ræddi við
hann í ga'r.
Ástand arnarstofnsirts mun nú
svipað og undanfarin ár. í ár ntunu unt
7 arnarungar hafa kontizt á legg.
_____________________ -GAJ-
Júlfustókbflinnog
lögreglan manninn
Árbæjarlögreglan kont þar að í nótl
er ökumaður var að stússa við bíl sinn
sem lent hafði á umferðarmerki er
maðurinn sveigði af Elliðavogi inn á
Holtaveg. Við höggið kom upp eldur i
bilnum og var maðurinn, sýnilega
ölvaður, að reyna að kæfa eldinn.
Gerðist nú ntargt á skantmri stundu,
slökkviliðið var til kallað og slökkti
það eldinn, Júlíus kranamaður tók bil-
inn brott hálfan á lofti og lögreglan tók
manninn. Allt þetta gerðist um eitt-
levtið i nótt. Stuttu siðar tók Árbæjar-
lögreglan annan ölvaðan við stýri á
Ártúnshöfða. -A.Sl.
kVEIKT Í Á RAUÐARÁRSTÍG
Klukkan 7.40 i morgun varð elds vart i kjallara þriggja hœða steinhúss að Rauðarárstig 11 i Reykjavík. Er að
var komið reyndist eldurinn í rusli undir borði i þvottaherbergi hússins. Var hann fljótt slökktur og tjón varð ekk-
ert.
Sýnilegt er að þarna hafði verið farið inn um glugga með þvi að sparka burt músaneti sem fyrir hann var
strengt, ruslinu safnað saman og kveikt i. - A.St / DB-mynd Sv.Þ.
Lognið á undan storminum:
Ný „krísá” i stjómar-
samstarfinu framundan
Eftir nokkurt logn eru nú miklir
erfiðleikar framundan í stjórnarsam-
starfinu. Forystumenn sumra
stjómarflokkanna spáðu í morgun
nýrri „kreppu” i samstarfinu fljól-
lega eftir að Alþingi kemur saman
hinn 10. október. Aðrir segja að
rikisstjórnin hafi mörg lif og muni
hjara enn um hríð.
„Verði ekki grundvallarbreyting i
stefnunni i efnahagsmálum er vand-
séð að halda ætti stjórnarsamstarfinu
áfram,” sagði einn þingmaður
Alþýðubandalagsins í morgun. Hann
sagði, að Alþýðubandalagið sætti sig
ekki við Ólafslög. Það hefði gert til-
lögur um kerfisbreytingar í atvinnu-
málum, framleiðsluskipuiagi og
starfsemi milliliða. Bandalagið sætti
sig ekki við vaxtastefnuna eins og
hún væri framkvæmd. Það vildi
hverfa frá gengissigs- og gengisfell-
ingarstefnu. Kröfur Alþýðubanda-
lagsins um þetta mundu verða settar
fram af þunga á næstu vikum.
„Mciri háttar „krisa” er fram-
undan i stjórnarsamstarfinu,” sagði
einn forystumanna Framsóknar-
flokksins í morgun. Þingflokkur og
framkvæmdastjórn Framsóknar
kemur saman í næstu viku. Mun þá
sennilega verða sctl fram krafa um
gerbreytta stefnu gagnvart verð-
bólgu. Margir framsóknarmenn vilja
setja þetta fram sem úrslitakosti. „Ef
samstaða næst ekki um að takmarka
verðbólgu við minna en 30% á næsta
ári og lægri tölu þar eftir ætti að slíta
stjórnarsamstarfinu,” sagði þessi
forystumaður Framsóknar. Fram-
sóknarmenn vilja takmarka verð- og
kauphækkanir á hverju þriggja
mánaða timabili og hafa hækkunina
stigminnkandi. -HH
frjálst, nháð dagblað
FÖSTUDAGUR 5. OKT. 1979.
Nýtt
ráðu-
neyti?
„Ég er þeirrar skoðunar að stofnun
umhverfisráðuneytis sé orðin tímabær
með tilliti til nýrra viðhorfa í um-
hverfismálum undanfarin ár og hef
mikinn áhuga á að koma því máli
áfram. Ég býst við að þetta mál komi
til umræðu á rikisstjórnarfundum
innan tíðar, enda er endurskipulagning
þessara mála meðal atriða í málefna-
samningi rikisstjórnarinnar,” sagði
Hjörleifur Guttormsson iðnaðarráð-
herra í viðtali við DB.
Sagði hann að innan síðustu ríkis-
stjórnar hafi verið deildar meiningar
um hvaða þættir stjórnsýslunnar, er
koma eitthvað inn á þennan málaflokk,
ættu að falla undir slíkt ráðuneyti og
væri það reyndar ekki komið alveg á
hreint enn. Menn væru þó sammála um
nauðsyn þess að samhæfa þá aðila og
stofnanir er láta sig þessi mál varða.
Meðal hugmynda ráðherra má nefna
að stofnuð verði ^uðlindadeild þessa
ráðuneytis til að gæta þess að lífríki
verði ekki spillt við auðlindaleit eða
nýtingu. -GS.
Saltað
áfram
— gegn tilslökunum á
útflutningsgjöldum
Síldarsaltendur munu að öllum
líkindum sætta sig við hið nýja sildar-
verð, sem ákveðið var á miðvikudag,
þótt það sé nær alveg sama verðið og
ákveðið var fyrir 10 dögum og þeir
töldu skapa sér 2 þús. kr. tap á tunnu.
Létu þeir í veðri vaka að hætta síldar-
móttöku.
Ádráttur sjávarútvegsráðherra þess
efnis að.beita sér fyrir tilslökunum í út-
flutningsgjöldum, mun hafa vegið
þyngst er saltendur ákváðu að halda
áfram. Þrátt fyrir það þarf verulegt
gengissig á næstunni til að söltunin
verði arðbær, að mati þeirra.
-GS.
HaustmótT.R.:
Hart
barízt
Ásgeir Þ. Árnason skauzt upp að
hlið efstu manna á Flaustmóti T.R. er
biðskákir voru tefldar í gærkvöldi.
Ásgeir lagði að velli þá Þorstein Þor-
steinsson og Jóhann Þóri Jónsson og
hefur nú 3 vinninga og biðskák að
loknum 5 umferðum.
Júlíus Friðjónsson hefur 3 vinninga
og 2 biðskákir og þeir Sævar Bjarnason
og Björn Sigurjónsson hafa báðir 3
vinninga, þannig að útlit er fyrir mjög
harða keppni um efstu sætin.
6. umferð verður tefld i kvöld en alls
verða tefldar 11 umferðir í A-flokki.
-GAJ-