Dagblaðið - 08.10.1979, Síða 3
I
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979.
3
Sjöfalt
verðá
KT-5500 útvarp, stereo FM/AM, KA-5700 magnari,
næmleiki FM 1,9 p/V/AM 20 u-V,
merki/suö hlutfáll 72 dB mono
68 dB stereo, aðgreining-
arhæfni 60 dB, stereo
aðgreining 35 dB
frá 50-15,000 Hz.
Verð kr. 149.200
2x40 RMS wött, 8 ohm,
20-20,000 Hz, bjögun minni
en 0,04%, merki/suð hlutfall
76 dB við 2,5 pV.
Verðkr. 184.000
KX-520 kassettutæki, Dolby,
rásaflökt minna en 0,09%
(WRMS), tíðnisvörun
30-16,000 Hz (CrÓ2),
merki/suð hlutfall 61 dB
(Dolby/Cr02).
Verð kr. 212.800
Háþróað Hi-Fi er sérgrein hjá Kenwood. Þess vegna er Kenwood einn færasti
hljómtækjasmiður sem fagtímarit geta um.
Kenwood er fyrir fagfólk sem af eigin dómgreind veit hvað háþróað Hi-Fi er.
Tökum sem dæmi tæki þau sem sýnd eru hér að ofan.
Tæknilýsingin á þeim skýrir verðleika þeirra svo ekki verður um villst.
appelsíni
FBI skrifar:
Mig langaði að sýna lesendum DB
þessa nótu úr veitingahúsi í Reykja-
vik. Ég keypti þar eitt glas af appel-
síni á fimmtudagskvöldið og borgaði
fyrir það 700 krónur, sjöfalt verð!
Svo eru menn að tala um „aldrei
meiri kaupmátt”.
^KENWQOD EIGN SEM YÁRIR ’
FALKIN N
SUÐURLANDSBRAUT 8, SÍMI 84670
SENDUM
BÆKLINGA
Hvað finnst þér um
lokunartíma
bankanna?
Sveinn Jónsson verkamaður: Ég veil
það ekki. Þeir loka nú fullsnemma,
finnst mér, að minnsta kosti á föstu-
dögum.
Inga Þórunn Karlsdóttir nemi: Mér lizt
bara vel á þetta og finnst það ágætt eins
og það er.
Jón Guðjónsson múrari: Ég veit það nú
ekki, ég verzla svo litið við banka.
Rósa Frímannsdóttir kennari: Mjög
illa. Þetta er spor aftur á bak i þjón-
ustu.
Tryggvi Sæmundsson, byggingameist-
ari á Akureyri: Mér finnst þetta mjög
slæm þjónusta við viðskiptamenn
bankanna.
Páll Reynir Héðinsson skrifstofustjóri:
Mér finnst þetta alveg agalegt, að
minnsta kosti á föstudögum. Þá þarf ég
mest á bönkum að halda eftir kl. 5.
Spurning
dagsíns
Hafa bankamir ekki áhuga á
viöskiptum við launþega?
Viðskiptavinur skrifar:
Margur varð undrandi þegar Sam-
vinnunefnd banka og sparisjóða
sendi út tilkynningu um hinn breytta
þjónustutíma sem nefndinni þókn-
aðist að veita borgurunum í framtíð-
inni. Nú eru allar bankastofnanir
lokaðar kl. 4, að undanteknum
fimmtudögum, en þá eru útibúin
opin milli kl. 5 og 6 e.h.
Þetta eru harkalegar aðfarir gagn-
vart almenningi. Margir byrja vinnu-
daginn snemma, fá 30 mínútna
matarhlé og eru við vinnu til klukkan
5 eða lengur. Það hefur því komið sér
vel að geta farið í útibú eftir vinnu
þar sem hefur verið opið frá klukkan
l til 6 e.h. alla daga vikunnar, nema
um helgar.
Fjöldi vinnandi fólks fær laun sin
greidd vikulega, og þá venjulega á
föstudögum. Ef einhver telur sig eiga
afgang og vill gjarnan geyma þá pen-
inga í banka er undir hælinn lagt hve-
nær það getur gerzt. Kannski nota
sumir gamla lagið, að geyma þá
„undir koddanum”.
Það virðist því sem stofnanir
þessar séu að verða eingöngu fyrir þá
„stóru” með milljónirnar en þeir
geta rokið úr stólnum sínum hvenær
sem er til þess að huga að peninga-
málum sinum. Nú er svo komið að
vinnandi fólk sem skipta þarf við
banka verður að biðja um „banka-
frí” til þess að skreppa þangað, en
slíkt þýðir áreiðanlega launafrádrátt
á mörgum stöðum og sífelld hlaup
frá vinnu. Nýlega heyrði ég á tal
tveggja manna i banka á föstudegi.
Öðrum þeirra varð að orði: „Nú
verður maður bara að reyna að stel-
ast úr vinnunni með lúsarafganginn
svo að maður freistist ekki til þess að
eyða honum um helgina.”
Mér er tjáð að þessi óvinsæla ráð-
stöfun sé gerð í sparnaðarskyni. En
ég get ekki séð að mikill sparnaður sé
í þvi fólginn að hafa t.d. útibú
Landsbankans opið frá kl. 9.15 til kl.
4 í stað kl. I—6, sem var til ómetan-
legs hagræðis fyrir almenning.
Nýlega fékk ég reikning frá Raf-
magnsveitunni og með honum fylgdi
gulur kynningarmiði. Þar voru
prentuð m.a. þessi orð: „Sparið yður
sporin — greiðið orkureikninginn í
næsta bankaútibúi eða sparisjóði.”
Nú hafa m.a. margar stofnanir
girókerfið, sem er mjög þægilegt —
það er að segja ef launþegar eiga þess
kost að geta greitt skuld sína að
loknu dagsverki. En nú er svo komið
að það er ógerningur nema fimmtu-
daga klukkan 5—6.
Mér finnst að mennirnir í Sam-
vinnunefnd banka og sparisjóða hafi
misreiknað sig hrapallega þegar þeir
ákváðu breyttan opnunartíma þess-
ara almenningsstofnana. Þessi
ákvörðun þeirra er til afar mikils
Eru bankarnir bara fyrir rikisbubbana sem geta alltaf skotizt frá?, spyr bréfritari.
DB-tnvnd Hörður.
óhagræðis fyrir launþega og stofn-
anir sem senda út gíróreikninga og
margt annað kemur inn í dæmið.
Ég hef orðið þess var að mikill kurr
er meðal vinnufélaga minna vegna
þjónustuleysis bankanna. Þessu þarf
að kippa í lag strax. Annað er ekki
réttlætanlegt.