Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 11

Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 11
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. eitt hundrað skólabörnum sem hand- tekin höfðu verið eftir mótmæla- fundi gegn skólabúningum sem allir nemendur í landinu voru skyldaðir að ganga í. Búningana átti að kaupa dýrum dómum í verzlunum í eigu Bokassa sjálfs. Svo gerðist það í ágúst síðastliðnum að Bokassa reyndi að slá til franska sendiherrans með veldistákni sinu. Hann kórónaði svo allt með því að láta myrða um það bil fjörutíu manns sem borið höfðu vitni við rannsókn á morðunum á skólabörnunum hundrað. Sú rann- sókn fór fram á vegum Einingarsam- taka Afríkurikja. Geðveiki Bokassa var nú orðin svo greinileg að Ijóst var að honum yrði steypt úr stóli fyrr en síðar. Sam- komulag varð í ágúst með þeim Giscard d’Estaing Frakklandsfor- seta, Senghor forseta Senegal, Houphouet-Boigny forseta Filabeins- strandarinnar, Mobuto forseta Zaire og Bongo frá Gabon um að rétt væri að grípa skjótt inn í gang mála. Þjóðhöfðingjarnir voru sammála um að heppilegra væri að hafa hönd i bagga með því hver tæki við stjórnar- taumunum í Mið-Afríkurikinu. Allir óttuðust þeir að vinstrisinnuð samtök mundu velta Bokassa og síðan setja sína menn í valdastólinn. Fyrir valinu varð David Dako sem var forseti landsins árin I%0 til 1966 þegar Bokassa steypti honum af stóli. Síðusui þrjú árin hcfur hann verið cinn nánasti ráðgjafi Bokassa um stjórn landsins l skoðúmun um stjórn rikisins er hann íhaldssamur og lítil eða engin hætta talin á að hann muni valda Frökkum neinum vand- ræðum með þvi til dæmis að raska áætlunum þeirra um vinnslu úrans í landinu. Valdaránið var ákveðið þegar Bokassa var hjá vini sínum Gaddaffi i Libýu. Sá síðastnefndi hafði tvisvar snúið Bokassa til múhameðstrúar og auk þess veitt honum hernaðarað- stoð. Franskir hermenn handtóku hóp lýbískra hermanna i Mið-Afríku- ríkinu. Bokassa stóð nú uppi vegalaus eftir að í Ijós kom að Frakkar mundu ekki leyfa honum að setjast að þar í landi á grundvelli fransks ríkisborgararétt- ar. Fyrrum vinur hans, Gaddaffi, var reiður honum vegna þess að hann var enn einu sinni genginn af trúnni og orðinn kristinn. Að lokum komst hann til Fílabeinsstrandarinnar. Þar er talið að hann verði um kyrrt þrátt fyrir opinbera kröfu hinna nýju vald- hafa i Mið-Afríkurikinu um að hann verði framseldur.i hendur þeirra og megi þola dóm fyrir glæpaverk sin. Ekki þykir þó liklegt að hart verði gengið fram i rannsókn á ferli fyrri stjórnar. Dako, núverandi forseti, var eins og áður sagði einn helzti ráð- gjafi Bokassa síðustu þrjú árin. Sá valdi sér líka sem varaforseta Henri Maimou en hann var áður forsætis- ráðherra Bokassa. Öllum er Ijóst að þessir menn hafa ekki mikinn áhuga á að farið sé ofan i saumana i hegðun fyrri stjórnar. Vinsældir þeirra eru heldur ekki sagðar miklar meðal fólks i landinu og verði getur að franskar hersveitir muni brátt þurfa að hafa afskipti af málum í Mið-Afríkuríkinu og að- stoða Dako við að hanga við völd. Helzta sveit andstæðinga Dako, hin vinstrisinnaða þjóðfrelsishreyfing undir forustu Abel Goumba, hefur fordæmt það sem kallað er ,,hin nýja nýlendustefna”. Verið getur að þessi fordæming fái meiri hljómgrunn meðal annarra Afríkuríkja en fyrri afskipti Frakka i þessum heimshluta. Kannski hafa þeir að lokum gengið of langt i afskiptum sinum. verkefni mætti fela þeim hæfustu mönnurn sem við eigum kost á, ég veit að við eigum menn sem hafa yndi af þvi að leiða fólk að þeim unaðs- lindum sem þeir njóta sjálfir á þessu sviði. Hvilum þreyttu embættismenn- ina í leit að aukatekjum. Ég þarf ekki að taka fram að slíkar kynningar eiga ekki að einskorðast við löngu liðin tónskáld heldur á vitanlega að fjalla hnitmiðað um list þeirra manna sem reyna í tónum að túlka okkar eigin tið, okkar sál. Á þvi sviði er reyndar ýmislegt vel unnið í einstökum þátt- um. Það hljóta að vera margvislegar leiðir færar til kynningar á sigildri tónlist ef ekki dugir lengur að láta hana bara tala sjálfa. En við kynningar- og útbreiðslu- starf verður að beita hugkvæmni el' ekki er lengur hægt að bjóða þessari þjóð athugasemdalaust verk sem hafa lifað á eigin verðleikum, sum öldum saman vegna þess að þau hafa eitthvað að segja fólki svo brýnt að breyttir timar og heimsmynd hafa ekki fellt það úr gildi. Þar þarf líka að koma til þekking og ást á verk- efninu, og einlægur áhugi á hlust- endum. Verstur er malandinn, þessi húsplága fjölmiðla hér. Blöðin eru full af poppfrekju og glumrandakröfum, og ekki bætti úr skák Hagvangsaðförin að menningu. Hvers vegna er ekki gerð grein fyrir því fyrst hvernig Hagvangur þessi starfar, hvaða aðferðum hann beitir? Nefndur Hagvangur virðist snið- ganga þá sem leita þroska jafnframt yndi i tónlist og með tónlist. Rikisút- varpið á ekki að reka einsog þegar alfonsar bjóða fram skækjur. Rikis- útvarpið á að gegna menningarhlut- verki, svo maður orði það eins einfaldlega og sjálfgefið virðist. Kjallarinn ThorVilhjálmsson Rikisútvarpið á ekki að vera óska- lagasjálfsali og tímamorðingi. Ríkis- útvarpið á ekki að leggja sitt til þess að líf manna geti orðið uppblæstri að bráð og eyðimörk. Herstjórnin í Keflavik á ekki að stjórna Ríkisúl- varpinu okkar með þeim hætti að dagskrárgerðarmenn þess og um- renningar menntaðir i fr.taverzlunum og diskótekum reyni að spegla erindisleysu hermannaútvarpsins i Keflavik, afþreyingareymd þess, sálarlausar dægurkitlur. Vinsældafíknin og hugleysi stjórn- mála- og embættismanna gagnvart lágkúu setur æ meiri svip á fjöl- miðla, og er þjóðplága. Og talsmenn úr svefnskála tónlistardeildar biðja ER OKUKENNSL- ANABDALA? Á tímum vélvæðingar er nauðsyn- legt að gera sér góða grein fyrir þvi, hvernig hægt sé að taka á móti auk- inni umferð án þess að auka tiðni umferðarslysa. Því hlýtur þróunin að vera sú. að meiri og meiri kröfur verði gerðar til þeirra sem sjá um ökukennslu. löggæslu og prófdóm- ara. Auktn fræðsla og góð ökukennsla hlýtur að skapa betri og öruggari um- ferð og þá sérstaklega þar sem þétt- býlt er, en þar virðast umferðarslysin vera einna mest. Vegna fjölgunar á ökukennurum er nú svo komið að þeir sem nýir eru i ökukennslunni og að öllu leyti óvanir ökukennslu neyta allra bragða með alls konar auglýsingum og gylliboðum til þess að fá nemendur, ég vil vara alvarlega við svona auglýsingum. Kostnaður við ökukennslu hefur verið sá sami allt frá árinu 1955 er ég byrjaði að kenna á bifreið, en það eru um það bil hálfsmánaðarlaun á hinum almenna vinnumarkaði, einstaka nemendur geta tekið færri tima og aðrir fleiri. Sviar segja einn tími á hvert aldursár, þetta er nærri sanni. Ég vi) leiðrétta þann ntisskilning sem sumir halda að það sé einhver lágmarkstími til í ökukennslu. Öku- ke(nnari fer með nemandann strax í prófið, þegar hann er talinn hæfur til þess. Hitt er annað mál að 6 til 8 tima æfing á bifreiðina er engin öku- kennsla, sem gæti komið nemendum i koll síðar meir. Þótt sumum finnist ökukennslan dýr, er enn dýrara og um leið hörmulegra að geta ekki haft það vald á bifreiðinni sem umferðin krefst af hverjum og einum, þess vegna er rétt að hafa í huga að sparn- aður um 3 til 4 tima hjá ökukennara getur orðið dýr. Ég vil benda á það, að þótt bifreið- um hafi fjölgað i tugi þúsunda frá því 1955 hefur timum i ökukennslu ekki fjölgað, sem maður skyldi nú ætla, en það er vegna ökuskólanna. Öku- skólarnir hafa tekið að sér alla fræðslu i umferðarlögum og reglu- gerðum, ökukennarinn æfir nemand- ann á bifreiðina og sýnir honum - Kjallarinn GuðmundurG. Pétursson hvernig hann á að notfæra sér í akstri þá umferðarfræðslu sem hann naut i ökuskólunum. Markmið ökukennar- ans er að kenna að aka bifreið og á nemandi að próft loknu að geta ekið bifreið slysalaust og um leið haft nokkuð gott vald á bifreiðinni. Vangaveltur koma fram í huga manns þegar ökukennarar eru farnir að kenna nemendum á bifreið inni i stofu án nokkurra tækja. Hvað þýðir það, að kunna að aka bifreið? Kann nemandi sem gefur skriflega lýsingu á akstri að aka bifreið? Kann nemandi að aka bifreið, ef hann getur sagt frá ökuferð? Kann nemandi að aka bifreið, ef hann getur sýnt akstur? Kann nentandi að aka bifreið, ef hann hefur gott vald á bifreiðinni? Þessar og fleiri spurn- ingar koma í huga manns þegar einstakir ökukennarar geta farið nreð nemendur i ökupróf eftir 6 til 8 tima 'ikukennslu. Ökukennsla, æfing og ujálfun er það eina sem gildir til þess ■ ð verða góður bifreiðastjóri. Það er sorgleg staðreynd, að marg- ir nemendur reyna að komast i gcgnum ökuprófið á sem einfald- astan og ódýrastan hátt og eingöngu er hugsað um að fá ökuskirteinið. Þcssir ökumenn vcrða yfirleit' ielegir bifreiðastjórar. Þeir liafa ckki lært tillitssemi eða umgeng" .vcnjur bifreiðastjórans. Hæt er \ ið að þcssir ökumenn vilji göslast áfrant í umfcrðinni sem blindir væru. Slikir ökumenn verða ávallt hættulegir í hinni almennu umferð, sökum kunn- áttu- og reynsluleysis. Það er von allra sem vinna að umferðarmálum, að umferðin geti gengið slysalaust. Ef slíkt á að takast, þá þarf að koma til meiri og betri fræðsla fyrir þá, sem ætla að aka bifreið. Það hlýtur að vera eitt af aðalsmerkjum góðs öku- manns að læra umferðarlög og reglugerðir, kunna að nota þau í um- ferð, aka vel og taka tillit til annarra i umferðinni, að vera ábyrgur gjörða sinna. Lærður, vanur og góður öku- maður hefur mestan möguleika á að aka heilunt vagni heim. (íuðm. G. Pétursson ökukennari „Þaö er sorgleg staðreynd aö margir ^ nemendur reyna aö komast í gegnum ökuprófið á sem einfaldastan og ódýrastan hátt og eingöngu er hugsaó um aö fá ökuskír- teinió.” \ velvirðingar á því að þeir spili perlur tónmennta. Einn þeirra skýrði i kjöl- far Hagvangstalnaáhlaupsins hvers vegna flutt væru hin dýru verk höfuðsmiða frá liðnum öldum þau sem flokka má með vissum rétti sem kirkjutónlist, og er þar væntanlega átt við h-moll messuna eftir Bach, Missa solemnis eflir Beethoven, og Requiem Mozarts svo það alfrægasta sé nefnt. Og skýringin á þvi hvers vegna þeir leyfðu sér þá ögrun var sú hve fjölmennt lið syngi í kirkjum landsins. Við þeirri röksemd verður litið um varnir hjá Hagvangi, cnda verður það ekki hrakið tölum að fólkið er margt, og raunar upplýst að væri fimm þúsund í þessum ágætu kirkjukórum að syngja: Þótt kóngar fylgdust allir að með auð og veldi háu, þcir megnuðu 'ei hið minnsta blað að mynda á blómi smáu. Nú er sízt ætlunin að gera litið úr þeim sem syngja i kirkjukórum með þessum orðum; en skyldi ekki geta fundizt önnur réttlæting þess að bjóða íslendingum einsog öðrum að hlusta á margfrægum öldum Ijósvak- ans á það sem er dýrast í arft manns- andans á þessu sviði. Eru ekki allir tónlistarskplar á landinu fullir? Fjölgar ekki skólun- um lika? Um allar jarðir í bæjum þorpum og i sveitum kemur fólk saman til að iðka tónlist. Viða fer fólk um langan veg í misjöfnum veðrum til að leita sér yndis við söng og hljóðfæræslátt, og takast iðulega á við kröfuhörð verkefni undir forystu ræktunarmanna. Það gildir vitanlega um kirkjukóra sem aðra aðleggjasig fram við að flytja okkur sigild verk sem og samtímans einsog þegar kirkjukór Langholts flutti undir stjórn Jóns Stefánssonar með ágætum Missa Criolla frá Argentínu. Af hverju spyr Hagvangur ekki þetta fólk hvort ekki megi leyfast vönduð tónlist i útvarpi? Af hverju spyr Hag- vangur aldrei það fólk sem sækir sin- fóniuhljómleika? F.ða fólk sem sækir hljómleika tónlistarfélaga eða ein- staklinga um allt land? Krakkarnir hennar Þorgerðar úr Hamrahliðar- kórnum, lendir Hagvangur aldrei i strætisvagni með svoleiðis fólki? Hvert ler Hagvangur margnefndur eiginlega til þess að heyja sér for- sendur þess sem hann býr i hendur skrumara sem vinna sér til stundar- gengis að grafa undan menningu þjóðarinnar? Til að forðast allan misskilning i landi útúrsnúninga skal þess getið að ég geri sömu kröfur í sambandi við jazz að þar sé vandað valið, einsog á annarri tónlist. Sem betur fer hefur verið kostur á ágætu efni á þvi sviði í einstökum þáttum svo sem áratugum saman hjá Jóni Múla, og i seinni tið hjá Gérard Chinotti. En popp, — jú, jú, ókei. En það þarf að vanda það. Og fara þá ekki alfarið einsog stjórn- málamenn segja þegar þeir taka á honum stóra sinum í málvöndun eftir vinsældalistunum frá Bretlandi eða Ameríku úr viðskiptaheiminum, Hagvangsklikusmekk. Allir vita hve miklu fúsari nöldur- seggir og gasprarar eru að gefa sig fram við fjölmiðla með álit og kröf- ur, og löngufn nafnlaust, heldur cn hinir sem vilja vanda val. Fjölmiðla- terróristar æpa listasnobb listasnobb, og miða að þvi að innræta þjóðinni að öll þroskaleit sé af hinu illa og uppskafningsháttur. Og það sem skilji eilthvað eftir hljóti að vera leiðinlegt. Hvar væri þessi þjóð : tödd ef þetta viðhorf hefði almennt ráðið? Hvernig væri að lýsa upp þennan fjölnefnda Hagvang, að hann kæmi fram í dagsbirtuna og legði spil sín á borðið. Má kannski spyrja einsog gert var um frægðarpersónuna The Scarlet Pimpernel sem á íslemku nefnist Rauða Akurliljan: Is he in heaven is he in hell that darned elusive pirrtpernel? Fhor Vilhjálmsson Jb „ ... Ríkisútvarpiö á ekki aö vera óska- ^ iagasjálfsali og tímamoröingi. Ríkisút- varpiö á ekki að leggja sitt til þess að líf manna geti oröiö uppblæstri aö bráö og eyöimörk.”

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.