Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 18

Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 18
18 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. Iþróttir Iþróttir Iþróttir Iþróttir Danmörku. AtliÞór hættir í Danmörku og væntanlegur heim Atli Þór Héðinsson, landsliðsmaður- inn kunni í KR hcr á árum áður, mun ef að likum lætur leika hér heima á íslandi næsta leiktímabil. Hann hefur lokið námi sínu sem kjötiðnaðarmaður i Danmörku. Jafnframt náminu lék hann fyrst hjá Holbæk en gerðist siðan atvinnumaður hjá Herfölge, sem þá var í þriðju deild i Danmörku. Herfölgc vann sig upp í 2. deild haustið 1978 og er nú um miðja deild í annarri deild- inni. Það var eflir leik Holbæk og Her- fölge fyrir nokkrum dögum, sem Atli Þór bað forráðamenn Herfölge að leysa sig frá samningi við félagið í haust. Frá þessu var skýrt í danska Dagblaðinu og þess jafnframt getið, að hin venjulegu félagaskipti hefðu ekki legið að baki. Atli hafi lokið námi sínu við „slagteriskolen” I Ringsted og vilji nú halda heim til Islands þrátt fyrir að hann skrifaði undir nýjan samning við Herfölge. Hann hefur verið fasta- maður í liðinu siðustu tvö leiktímabilin og cinn af markhæstu leikmönnum þess bæði árin. 30 slösuðust íRotherham Þrjátíu áhorfcndur á leik Rotherham og Sheffield United á laugardag slösuðust og voru fluttir á sjúkrahús, þegar veggur féll niður á leikvellinum. Margir fótbrotnuðu og einn maður slasaðist illa á brjósti. Mikill fjöldi áhorfenda fylgdist með viðureign þess- ara Yorkshire-liða í 3. deild — en Rotherham er borg skammt frá Shef- field. Sheff. Utd. hefur forustu í 3. deild — Rotherham í öðru sæli. íþróttir Engin ákvörðun með gervigras — en Ellert B. Schram falið að athuga málið hjá ðEFA og FIFA Á fundi Iþróttaráðs Reykjavikur á föstudag var rætt um gervigras á Laug- ardalsvöll og fleira. Engin ákvörðun var tekin í málinu en Ellert B. Schram, formanni Knattspymusambands íslands, var falið að kynna sér hvort einhverjir möguleikar væru á þvi að UEFA og FIFA myndu viðurkenna stærri leiki á gervigrasi. Þess má geta, að þegar hafa verið gcrðar teikningar að stúku við cfsta völlinn í Laugardalnum — stúku að sunnanveröu við völlinn beint fyrir neðan Laugardalshöllina. Áætlaður kostnaður við stúkugerðina er 200 miiljónir króna — og virðist það ágæt lausn mála í Laugardalnum. Víkingur Reykjavíkurméi eftir hörkuleik við Valsn —Víkingur sigraði Val 21-19 í bráðskemmtilegum leik í Laugardalshöllinni „Auðvitað er ég himinlifandi með sigurinn en þetta var erfiður leikur eins og allir úrslitaleikir,” sagði þjálfari Víkings, Bogdan Kowalczyk, eftir að menn hans höfðu lagt Val að velli 21— 19 í æsispennandi leik í Laugardalshöll- inni i úrslitaleik Reykjavíkurmótsins i handknattleik í gærkvöldi „Við erum í mjög góðu líkamlegu ástandi eins og er en það komu fram veilur í teknisku hliðinni á leik okkar. Við höfum mánuð til að fínpússa leikkerfin og þá erum við tilbúnir í slaginn." „Við töpuðum þessum leik fyrst og fremst á því að nýta ekki tækifærin, sem við fengum í leiknum. A.m.k. ein fimm dauðafæri fóru forgörðum í þessum leik — það gerði útslagið”, sagði Hilmar Björnsson, þjálfari Vals, og bætti siðan við: „Þetta var leikur, sem við þurftum alls ekki að tapa”. Vafalitið má finna margt að i leik þesvira liða, Vikings og Vals, en það verður ekki aftur tekið að leikurinn i gær bauð upp á mikla spennu. Harkan í honum var þó á köflum allt of mikil og leyfðu dómararnir leikmönnum að komast upp með brot, sem undir venju- legum kringumstæðum hefðu verð- skuldað brottvikningu af leikvelli. Hvorugur aðilinn vildi gefa tommu eftir og því hlaut útkoman að verða harður leikur, sem og raunin varð á. Fjölmargir áhorfendur lögðu leið sina í Höllina i gær og greinilegt er nú að mun fleiri sækja haustleikina en á und- anförnum árum og er það visir að betri tíð hjá handknattleiknum. En vindum okkur að leiknum sjálfum. Liðin voru geysilega jöfn framan af i leiknum og eftir 10 mín. leik var staðan 4—4. Víkingar tóku þá mikinn kipp og skoruðu næstu 4 mörk og breyttu stöð- unni í 8—4 þegar fyrri hálfleikurinn var hálfnaður. Á þessum tíma virtist svo sem Víkingar myndu kafsigla Vals- menn og því til stuðnings má benda á að markvarzla Brynjars Kvaran var í molum framan af. Hann tók á sig rögg og fór að verja og um leið tóku Vals- menn að saxa á forskot Vikinganna. Þeim tókst að skora næstu þrjú mörkin og í hálfleik var jafnt 9—9. í þessum hálfleik misnotaði Gunnar Lúðvíksson tvö upplögð færi á kritísk- um augnablikum en Valsmenn fengu byr undir báða vængi þegar Þorbergi Aðalsteinssyni var vikið af leikvelli i 2. mín. örfáum sekúndum fyrir leikhlé. Valsmenn hófu því síðari hálfleikinn manni fleiri og komust i fyrsta skipti yfir í leiknum, 10—9, er Þorbjörn Jens- son skoraði. KomaÞorbjarnar í vörnina um miðjan fyrri hálfleikinn gcrbreytti henni til hins betra. Sterkur varnar- maður með afbrigðum. Valur leiddi aftur 11 — lOen síðan jöfnuðu Víkingar og tókst að síga framúr. Aldrei skildu þó meira en tvö mörk liðin að. Bæði liðin sýndu stórskemmtileg tilþrif á köflum og voru sum markanna hrein- asta gull. Efst í huganum er mark Bjarna Guðmundssonar undir lok leiksins.Valsmenn voru þá manni færri og höfðu misst tvo menn út af i röð. Þegar tæpar þrjár minútur lifðu af leiknum tóku Vikingarnir það til bragðs að taka Stefán Gunnarsson úr umferð. Það var sterkur leikur þvi| Tveimur vikið af leik- velli og Grambke tapaði — Dankersen sigraði Göppingen á heimavelli „Þctta var þokkalegur leikur og sigur Dankersen nokkuð öruggur þó aðeins tveggja marka munur væri i lokin," sagði Axel Axelsson, þegar DB ræddi við hann i morgun. Á laugardag lék Dankersen við Göppingen á heima- velli sínum í Minden i vestur-þýzku Bundeslígunni i handknattleiknum Dankersen vann 18—16. Axel skoraði þrjú af mörkum Dankersen, eitt víti, en markhæstur var Seehase, leikmaður, sem Dankersen tékk frá Berlín, með níu mörk. Nokkuð góður vinstri handar leik- maður. Jón Pétur Jónsson lék ekki með Dankersen en hins vegar í varalið- inu gegn Spenge og var sá leikur einnig i Minden — í 2. deild Spenge sigraði með 21 — 16 ,,og Ágúst Svavarsson lék þar aðalhlutverkið. Var allt í öllu hjá Spenge og skoraði ein 10 eða 11 mörk,” sagði Axel. Jón Pétur skoraði fimm mörk fyrir Dankersen. - Þeir Björgvin Björgvinsson og Gunnar Einarsson lentu í hörkuleik með Grambke, Bremen, í Húttenberg. Grambke hafði yfir framan af en síðan. jafnaðist leikurinn. Húttenberg jafnaði i 15—15 og Grambke skoraði siðan mark, sem dæmt var af. Við það reidd- ist markaskorarjnn og var umsvifalaust rekinn af velli — og rétt á eftir var annar leikmaður Grambke rekinn af velli. Fjórir útispilarar Grambke og þeim tókst ekki að standa i leikmönn- um Húttenberg. Úrslit 18—16 fyrir heintaliðið. Þeir Gunnar og Björgvin skoruðu þrjú mörk hvor í leiknum — en Gunnar meiddist á læri og gat lítið leikið með i síðari hálfleiknum. Grosswallstadt sigraði Nettelstedt i umferðinni um helgina með 25—P og er í efsta sæti í Bundeslígunni. Hefur hlotið 12 stig úr sex leikjum. Unnið alla' leiki sína. Milbertshofen er i öðru sæti| með átta stig úr fimm leikjum. Gummersbach hefur sex stig úr fimm leikjum. Dankersen er einnig með sex stig en hefur leikið sex leiki. Grambke er með fjögur stig úr fimm leikjunt. Úlfar Þórðarson, formaður ÍBR, afhendir Páli Björgvinssyni, fyrirliða Vikings, verðlaunabikarinn. Stefán hafði öðrum fremur haldið spili Valsmanna gangandi. Valsmenn settu þá Steindór á Pál Björgvinsson í stað- inn en það kom ekki eins að sök. Víkingsliðið er skipað liprari leikmönn- um og þeir náðu að rífa sig lausa og teygja á vörninni. Þegar rúm hálf min- úta var til leiksloka braut Páll Björgvinsson illa á Birni Björnssyni og var vikið af leikvelli í 2 mín. Stefán Halldórsson, sem annars var lítt áber- andi i leiknum, skoraði af öryggi úr vítakastinu og munurinn aðeins eitt mark, 20—19. Valsmenn léku maður á mann undir lokin með takmörkuðum árangri og þegar örfáar sekúndur voru til leiksloka náði Sigurður Gunnarsson að rífa sig lausan og skora fallega úr horninu. Sigur Víkings endanlega í höfn og fjölmargir stuðningsmenn liðs- ins fögnuðu ákaft. Þrátt fyrir þennan sigur Vikings voru liðin ákaflega jöfn allan tímann. 1 rauninni stóð enginn einn leikmaður upp úr í leiknum. Erlendur Hermanns- son, Sigurður Gunnarsson og Páll Björgvinsson ásamt Þorbergi Aðal- steinssyni áttu allir góðan leik — Þor- bergur þó sérstaklega í vörninni. Árni Indriðason stóð sig með miklum ágæt- um en mætti að ósekju slaka aðeins á hörkunni, sem stundum var of mikil. Jens varði ágætlega í markinu en kollegi hans í marki Vals stóð sig þvi betur ef á heildina er litið. Þessi sigur Vikings i gærkvöld færði Jens sinn fyrsta titil um ævina. Hann lék lengi með ÍR og hlaut aldrei nein verðlaun en nú strax i fyrsta mótinu með Víkingi fær hann sigurverðlaun. Valsmenn léku mikið upp á það að „klippa síðasta hlekkinn i sóknarflétt- um Vikings af” og tókst það bærilega oft á tiðum. Það voru hins vegar ein- vígin „maður gegn manni” i leiknum sem Vikingarnir flutu á. Leikmennirnir virkuðu i heild sterkari þegar út i slíka aðstöðu var komið. Þrátt fyrir sigurinn virkaði sóknarleikur Vikings dálitið einhæfur á köflum en það á vafalítið eftir að lagast þegar leikmennirnir ná betri tökum á leikkerfunum. Sóknarleikur Vals var ekki alltaf sannfærandi i leiknum og menn eins og t.d. Stefán Halldórsson sást ekki nema i vítaköstunum. Gunnar lét verja allt of oft frá sér í horninu og það var helst Þorbjörn Guðmundsson, sem eitthvað verulega kvað að. Steindór var fastur fyrir í vörninni en líkt og Árni. mætti DB-mynd Bjarnleifur.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.