Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 8

Dagblaðið - 08.10.1979, Blaðsíða 8
8 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979 Fclipc Gon/ales leiðtogi sósíalista á Spáni vann öruggan sigur á þingi flokksins á dögunum. Hann cr talin hclzta von vinstri manna og þykir vænlegur forsætis- ráðhcrra tækist þcim að komast til valda. Gonzalcs, scm sagði af sér forustu Sósíalistaflokksins fyrr á árinu, var kjörinn formaður hans mcð miklurn atkvæða- mun þrátt fvrir að hann sagði aldrei orð á þingi flokksins. Japanf Óvissa um úr slit kosninga Frjálsly ndi flokkurinn í Japan •• irlist cnn cinu sinni vera að vinna meirihlula á þingi landsins i kosningum, sem fram fóru þar um helgina. Meirihluti hans nú virðist þó verða litill og tæplega nægilegur til að tryggja rikisstjórn Masayoshi Ohira forsætisráðherra öruggan starfsfrið. Frjáislyndi flokkurinn hefur verið við völd í Japan í þrjá áratugi. Ohira sem er orðin 69 ára að aldri sagði við frcttamenn i gær að þrátt fyrir að treysta mætti á stuðning hinna ihaldssömu sjálfstæðismanna á þinginu væri ekki öruggt að flokkurinn hcfði stuðning 271 þing- manns sem Ohira sagði að væri lág- mark til að stjórna mætti landinu. Þingsæti á japanska þinginu eru 511 og voru sagðar litlar horfur á, að Frjálslyndi flokkurinn fengi meira en 250sæti. Ohira boðaði til þessara kosninga þar sem svo virtist sem flokkur hans nyti mikilla vinsælda meðal fólks. Er talið að úrslitin geti veikt stöðu hans nijög i flokknum. Verðbréf í kauphöllinni i Tokíó féllu i verði við opnun i morgun vegna ótt'a við vandræði ef Frjáls- lyndi flokkurinn mundi ekki haldast við völd. Vestur-Þýzkaland: Umhverfis■ sinnar fá þingsæti Umhverfisverndarmenn sem buðu fram í hinum svonefnda Græna flokki i sambandsríkinu Bremen í Vestur- Þýzkalandi unnu sína fyrstu þingmenn þar i kosningum í gær. Eru þetta aðrar kosningarnar í röð í Vestur-Þýzkalandi þar sem umhverfismenn vinna á, þó hvergi séu þcir stór flokkur. í Bremen sem er minnsta ríkið meðal vestur- þýzku sambandsríkjanna fengu þeir fjögur sæti en jafnaðarmenn héldu meirihlutanum með því að 49,43% kjósenda greiddu þeim atkvæði og hlutu þeir-52 þingsæti. Kristilegir demókratar töpuðu tveim þingsætum. Er það talið vera vegna þeirrar óvissu sem sumum stuðnings- mönnurn flokksins finnst stefnt í með því að velja Frans Josef Strauss sem kanslaraefni flokksins. Umhverfissinnar hlutu nú rétt rúmlega 5% atkvæða í Bremen sem er lágmark til að fá fulltrúa á þing i Vestur-Þýzkalandi. Þeir reyndu árangurslaust að fá því ákvæði hnekkt fyrir dómstóli fyrr á þessu ári. Smurbrquðstofan BJORNINN Njálsgötu 49 — Simi 15105 £(MN| m \ Síxj-x: . ■ FlugslysíAþenu: Sautján fórust og þrjátíu særóust Talið er að í það minnsta sautján manns hafi farizt og þrjátíu slasazt er DC—8 þotu svissneska flugfélagsins Svissair hlekktist á við lendingu á flugvellinum við Aþenu i Grikklandi í morgun. Sjónarvottum ber ekki saman um orsök slyssins. Sumir segja að kviknað hali vcrið í einunt hreyfli þotunnar áður en hún snerti jörðu. Aðrir segja aftur á móti að þotan hafi farið út af brautinni og elds- neytistankar hennar þá sprungið. Mikill ótti greip um sig meðal far- þeganna og varð mikill troðningur þegar þeir reyndu að komast út úr þotunni. Hundrað fjörutíu og tveir farþegar voru um borð auk tólf manna áhafnar. Áhöfnin slapp ómeidd en þrjátíu farþegar slösuðust og sautján fórust, er þeir urðu eldinum að bráð. Dánartölur gætu hækkað þar sem slökkviliði og björgunarmönnum hafði ekki tekizt að komast til allra sem lokaðir voru inni í braki/ þotunnar. Var hún í áætlunarflugi á milli Peking og Bern í Sviss. Illa gekk að opna suma neyðarút- ganga þotunnar og þess vegna hópuðust farþegar að öðrum dyrum í mun stærri hópum en öryggisreglur gerðu ráð fyrir. Mikil örvænting greip síðan um sig meðal farþega þeg- ar sumir þeirra gerðu sér grein fyrir að sú leið var ófær og reyndu þá að snúa við að öðrum útgönguleiðum. Byggingavinna þykir crfló vinna á köflum og ckki cr hún lcttari i Austurlöndum þar scm tæknin hcfur cnn ckki haflð innrciö sína. Myndin hcr að ofan er frá Indlandi og sýnir hvernig allar byrðar cru bornar í körfum, sem síðan cr tyllt ofan á höluð verkamannanna. Skákmótið í Rio de Janeiro: Portisch orð- inn efstur -\sigraði Balashov í elleftu umf erð Ungverski stórmeistarinn Lajos Portisch er kominn í efsta sæti á millisvæðamótinu i Rio de Janeiro eftir að hafa sigrað enn einn sovézkan stórmeistara á glæsilegan hátt. Áður hafði hann lagt Vaganian að velli í sjöttu umferð en nú var það Yuri Balashov, sem mátti sætta sig við að falla i elleftu umferð. Balashov er talinn ellefti í styrkleika- röð skákmeistara heimsins. í skák þeirra Portisch og Balashov i elleftu umferð tókst Portisch mjög vel upp og náði meira að segja annarri drottningu og braut með því niður allar varnir Balashovs. Portisch er þá með 7,5 vinninga og efstur þar sem helzti andstæðingur hans Hubner náði aðeins jafntefli gegn Ungverjanum Sax. Er Hubner þá með sjö vinninga. Sax og Vaganian eru með sex vinninga ásamt Petrosian. Spútnikinn Jaime Sunye kemur siðan en hann á biðskák við Luis Bronstein. Úrslit í elleftu umferð urðu annars eftirfarandi: Herbert og Petrosjan jafntefli, Portisch vann Balashov, Velmirovic, vann Khosrow Harindi, biðskák hjá Bronstein og Sunye, einnig hjá Kagan og Garcia en þeir Shamkivich og Timman gerðu jafntefli, einnig þeir Torre og Vagainan, og Hubner og Sax og Ivkov og Smejkal.

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.