Dagblaðið - 08.10.1979, Síða 10

Dagblaðið - 08.10.1979, Síða 10
10 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979. uiymmiui. uuyuuiuiu m. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. EyjóMssort. Ritstjóri: Jónas Krístjánsson. RitstjómarfuUtrúi: Haukur Helgason. Skrífstofustjórí ritstjórnar: Jóhannes Reykdal. Fréttastjóri: Ómar Valdimarsson. íþróttir HaHur Símonarson. Menning: Aóalsteinn Ingólfsson. Aóstoðarfróttastjóri: Jónas Haraldsson. Handrít Asgrímur Palsson. Blaóamenn: Anna Bjamason, Ásgeir Tómasson, Atli Rúnar Halldórsson, Atii Steinarsson, Bragi Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Gissur Sigurflsson, Gunnlaugur A. Jónsson, Ólafur Goirsson, Sigurflur Sverrisson. Hönnun: Hilmar Karísson. Ljósmyndir: Ámi Páll Jóhannsson, Bjarnleifur Bjarnleifsson, Hörflur Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurfls- son, Sveinn Pormóflsson. Skrifstofustjórí: ólafur Eyjólfsson. Gjaldkeri: Práinn Þorlerfsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. Dreif- ingarstjóri: Már E. M. Halldórsson. Ritstjórn Síðumúla 12. Afgreiflsla, áskriftadeild, auglýsingar og skrífstofur Pverholti 11. Aflabkni blaflsins er 27022 (10) linur). Setning og umbrot: Dagblaðifl hf., Síóumúla 12. Mynda- og plötugerfl: Hilmir hf., Síflumúla 12. Prentun: Árvakur hf., Skeifunni 10. Askríftarverð á mánufli kr. 4000. Verfl í lausesölu kr. 200 eintav ífl. Skrípastjómin fallin Þingflokkur Alþýðuflokksins hefur loksins eftir dúk og disk dregið rökrétta ályktun af sérkennilegu stjórnarsam- starfi eins árs. Hann hefur ákveðið að taka ekki frekari ábyrgð á langverstu ríkisstjórn, sem þjóðin hefur mátt þola. Raunar er verðugt umhugsunarefni, hvernig slík stjórn hefur getað lafað í rúmt ár í ríki, sem flokkað er með lýðræðisríkjum. Segja má, að ekk- ert hafi sameinað ríkisstjórnina nema sundrungin ein. Aldrei hefur verið samkomulag í ríkisstjórninni um neitt sem máli skiptir. í vaxandi mæli hefur hún af- greitt málin með atkvæðagreiðslum og meirihlutavaldi, vitandi þess, að ekki væri þingmeirihluti fyrir gerðum hennar. Sjálf Ólafslögin nutu ekki stuðnings allra stjórnar- flokkanna. Ekkert samkomulag var um vaxtastefnuna, né um þær skattahækkanir, sem fyrirhugaðar voru i vetur. Og í annað sinn ætlaði fjármálaráðherra að leggja fram einkafjárlög. Svona endaleysa getur hvergi ríkt nema hér á landi. Og sennilega gat hún því aðeins ríkt, að forsætisráð- herra var Ólafur Jóhannesson, maður, sem að undan- förnu hefur haft sérstaka unun af að spila fífl og vé- frétt til skiptis. Af viðbrögðum má ráða, að Alþýðuflokkurinn hefur komið samstarfsflokkum sínum í opna skjöldu. Þeir voru orðnir svo vanir að sparka í hann og heyra kveinstafina, að þeir töldu hann alveg lausan við manndóm. Sérstaklega eru ráðamenn Alþýðubandalagsins hvít- glóandi af bræði. Þeirvorusjálfir búnir að hugsa sér að leika þennan leik síðar. En nú hefur glæpnum verið stolið. Það er Alþýðuflokkurinn, sem getur barið sér á brjóst í kosningunum. Flokksstjórn Alþýðuflokksins á þann einan kost að fallast á ákvörðun þingflokksins. Hún getur ekki fært ráðherrum og þingmönnum flokksins þann kaleik að reyna að þvinga þá til frekara stjórnarsamstarfs. Slík nauðgun væri skrípaleikur, sem fæli í sér endan- legt sjálfsmorð Alþýðuflokksins. Það er því alger markleysa, er menn velta fyrir sér þeim fræðilega möguleika, að flokksstjórnin fallist ekki á niðurstöðu þingflokksins. Þingrof og nýjar kosningar eru því óhjákvæmilegar. Ályktun þingflokks Alþýðuflokksins felur í sér kröfu um slíkt. Og Sjálfstæðisflokkurinn hefur á ótvíræðan hátt hafnað stjórnarþátttöku án kosninga. Enginn vafi er á, að um helgina hefur Ólafur Jóhannesson gamnað sér við hugmyndir um, hvernig megi komast hjá þingrofi og nýjum kosningum. Hann gæti vel látið sér detta í hug að spyrna við fótum. En það tekst honum bara ekki. Því miður verða desemberkosningar ekki til að efla lýðræðið í landinu. Svo skammur tími er til stefnu, að stjórnmálaflokkarnir geta réttlætt brottfall prófkosn- inga. Gömlu jálkarnir munu því halda áfram að stjórna. Nýjar kosningar munu framlengja til fjögurra ára stjórnmálaferil duglausra manna, sem þjóðin ber ekki traust til. Raunar skiptir engu máli, hverjir sigra í kosningunum. Útkoman verður jafn vitlaus stjórn og nú situr. Sjálfstæðisflokkurinn er vís til að vinna kosninga- sigur og verða forustuflokkur nýrrar ríkisstjórnar. Hann er hins vegar engan veginn undir það búinn að axla þessa ábyrgð. Það er nefnilega ekki búið að skipta um blóð í flokknum. Þannig hefur Alþýðuflokkurinn bakað þjóðinni nokkurn vanda með rökréttri ályktun sinni. Afríka: Gengu Frakkar of langt er þeir steyptu Bokassa? V /■ Verið getur að Frakkar lendi í fyrsta skipti í verulegum vandræðum i Afríku í kjölfar þáttar síns í að steypa Bokassa, einræðisherra í Mið- Afríkulýðveldinu, af stóli. Mörgum mun finnast það heldur kátlegt að þessi aðgerð Frakka geti orðið þeim að falli i samskiptum sínum við hinar fyrrum frönsku nýlendur í Afríku. Þeir hafa komizt upp með að beita hernaðarihlutun í þessum heimshluta nú um árabil án verulegra mótmæla. f þetta skipti gegndi öðru máli. Frakkar hafa nefnilega ávallt stutt við bakið á ríkjandi stjórnvöldum. Bokassa steyptu þeir aftur á móti af stóli. Á tveim siðustu áratugum hafa franskar hersveitir tekið þátt í hern- aðaraðgerðum i mörgum fyrri ný- lendna sinna. Slíkt hefur átt sér stað i Kamerún, Senegal, Gabon, Chad, tvisvar í Zaire, sem reyndar var áður belgisk nýlenda, og Máritaniu. Á ýmsu hefur gengið en Frakkar hafa oftast komizt hjá verulegri gagnrýni vegna þessa aðgerða sinna. I öllum tilvikum hafa þeir verið að aðstoða ríkjandi stjórnir. Ástæðan fyrir að samtök eins og Einingarsamtök Afrikurikja hafa lítt látið til sín heyra til að mótmæla er sú að forsetar og forsætisráðherrar hinna fyrrum frönsku nýlendna hafa hingað til verið ósköp fegnir að vita af frönskum fallhlífaliðum, reiðu- búnum til að bregða sér til Afriku ef einhver valdamannanna lenti i veru- legum vandræðum heima fyrir. Þeim bregður aftur á móti í brún þegar sömu hersveitirnar og aðstoðuðu Mobuto í Zaire i fyrra koma til Mið- Afríkulýðveldisins i september siðast- liðnum og aðstoða við að steypa Bokassa af stóli. Segja má að vandræði Bokassa hafi hafizt fyrir alvöru er hann lét krýna sig til keisara i desember \91n. Sú athöfn kostaði stórfé og var reyndar öll i stil við krýningu Napo- leons mikla sem er helzti dýrlingur Bokassa sem áður fyrr var í franska nýlenduhernum. Þessi eyðslusemi og óhóf vakti heimsathygli, reiði og fyrirlitningu. Mið-Afrikuríkið er eitt fátækasta land jarðarinnar og iburðurinn við krýninguna þótti í engu samræmi við efnahag landsins. Bokassa lét sér reiði umheimsins í léttu rúmi liggja. Hann átti aftur á móti verra með að þola fyrirlitning- una og aðhláturinn sem hegðan hans vakti. Bokassa varð reiður og tók aftur upp fyrri hætti við að pina og misþyrma þeim þegnum sínum sem ekki voru honum að skapi. Frakkar höfðu annars getað fengið hann til að hætta því nokkrum árum áður. Siðan kom til stúdentaóeirða en þá brást Mobuto i Zaire vel við og sendi herlið sem aðstoðaði við að bæla óróann niður. En loks kom að því að BoTassa gekk of langt og vinir hans Frakkar og aðrir treyslu sér ekki lengur til að láta skepnuskap hans óátalinn. I Ijós kom að Bokassa haði sjálfur í eigin persónu tekið þátt i morðum á um T0NUST EDA TALNAKELDA Hver ætli hann sé þessi blessaði Hagvangur sem hvað eftir annað slæmir tjörukústi sínum eftir hverj- um votti menningar 1 tónabúningi sem kemur fyrir á betri stundum út- varpsins okkar. Burt með klassiska tónlist. Burt með þessar sinfóniur og fúgur, það er einsog við höfum heyrt þetta áður; þessi vígorð hafa glumið áratugum saman blönduð tanna- gjósti. Þessar sinfóníur eru að hafa af þjóðinni vitið, segir hinn litriki mera- kóngur á Löngumýri Björn bóndi; sem hefur nú þokað fyrir öðrum til- þrifasnauðari þingtrúðum, án þess að ég eigi við arftaka i hans eigin flokki sem virðist skynsamur maður. Reyndar er kannski ekki límabært lengur að tala um þingtrúða því nú ber þar mesl á upphlaupum ralli- sveina. En má ég spyrja aTtur hver hann er þessi Hagvangur og hverjum þjónar hann, sem þykist geta sannað að þjóðin vilji alls ekki hlusta á vandaða tónlist heldur beri nú að eyða þessum fáu tónvinjum sem eftir eru og trampa niður allan gróður, og hafa glamursins örtröð frá fyrsta hanagali fram á hundavakt. Helzt virðist Hag- vangur þessi beina stjórnmálamönn- unum i útvarpsráðinu að því bragði að leika ekki uppbyggilega tónlist nema á nóttunni eða undir nóttina, og þá helzt í svonefndum blönduðum þáttum þar sem allir eiga að fá sitt samkvæmt formúlunni cn enginn það sem hann sækist sérstaklega eftir. Reyndar veit ég ekki hvort ég á að þora að nota orðið uppbyggilegur af ótta við að fólk tengi það við nauðungarveitingar á lýsi í skólum og ályktanir Ungtemplara. Ég á við tón- list sem geti i senn veitt mönnum ánægju og þroska, skilið citthvað eftir. Tillögunni um tónblöndun á staðnum í framhaldi af menningar- sókn Hagvangs eða gagnsókn fylgir krafan um að leika ekki tónverkin án kynningar, en reynslan vekur ugg um að þá verði haft til fyrirmyndar eyði- legt og svæfandi mærðarraus sem oft vill fylgja þáttum á þessu sviði fremur en hinir snjöllu tónfræðslu- þættir Atla Heimis um árið sem komu mörgum á sporið til að hlusta á klassiska tónlist og hefðu svo sannar- lega átt að vísa veginn i uppeldisað- ferðum við að leiða á þroskabrautina i tónlist. Þar er ein leiðin að hafa þátl þar sem tónverk eru krufin, sýnt mcð tóndæmum hvernig þau eru byggð upp. Einn bezti þáttur útvarpsins á árunum var nefndur Hljómplötu- safnið i höndum smekkmanns sem unni tónlíst Gunnars heitins Guðmundssonar. Hvers vegna hefur ekkert komið i staðinn fyrir þann þátt? Þegar ég var i Frakklandi á æskuárum var veturlangt í franska útvarpinu þáttur um Mozart og hans tíð, á hverjum morgni undir stjórn frábærs manns Jean Witold, sem leiddi mann inn i þetta glæsilega timabil tónlistarinnar. Þar var farið itarlega gegnum feril Mozarts, og gerður samanburður á verkum hans og samtímamanna, sýnd þróun hans, og lika það sem óx allt i kringum hann. Annan velur var fjallað um Beethoven með sama hætti. Slik

x

Dagblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.