Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 08.10.1979, Qupperneq 14

Dagblaðið - 08.10.1979, Qupperneq 14
14 DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÖBER 1979. Lerf ur Dungal læknir kominn heim frá Zimbabwe Rhódesíu: Hvort maður hefur orðið að gagni er önnur saga —„f ór ekki af sérstökum mannúðarástæðum heldur réð forvitni og ævintýraþrá” „Þetta er baktería, sem ég hef gengið með lengi og ég býst við að allir læknastúdentar gangi með frá þvi að þeir byrja í læknadeildinni, að sjá lækningar í þriðja heiminum,” sagði Leifur Dungal læknir. Leifur kom fyrir skömmu heim frá Zimbabwe Rhódesíu, þar sem hann dvaldist í þrjá mánuði við lækningar á vegum Mþjóða Rauða krossins. ,,í Zmbabwe Rhódesíu hefur Rauði krossinn haldið uppi hjálpar- starfi í nokkur ár og er þar um að ræða mesta samfellda hjálparstar.f Rauða krossins frá lokum seinni heimsstyrjaldarinnar, ef frá er talið hjálparstarfið i Líbanon er borgara- styrjöldin stóð sem hæst þar. Þarna starfa að hjálparstarfi um 30 Evrópubúar og unt 100 innfæddir. Starfið er alveg tvískipt og er í fyrsta lagi almennt hjálparstarf, þ.e. dreif- ing matvæla og teppa og fl., fanga- hjálp og skráning og leit að týndu l'ólki. i öðru lagi er um að ræða læknis- fræðilega hjálp undir stjórn Alþjóða Rauða krossins. Starfið er unnið í samstarfi og með framlögum norrænu Rauða krossfélagana. Rauði krossinn sér um að útvega lækna og hjúkrunarfólk og borgar ferðir og laun.” Ekki af neinum mannúðar- ástæðum ,,Það var ekki af neinum sérstökum mannúðarástæðum sem ég fór út í þetta,” sagði Leil'ur. ,,Hér var aðeins um að ræða forvitni og ævintýralöng- un. Þessi þriggja mánaða timi hentaði mér vel, þar sem erfitt getur verið að koma því við að dvelja lengur. Ég fékk manneskju til þess að leysa mig af hér heima og því var þetta gerlegt. Við bjuggum í Salisbury en læknis- þjónustan nær yfir stórt svæði I dreil'- býlinu. Á hverjum morgni var flogið i einn til einn og hálfan tíma á ákvörðunarstað. Þar var unnið í 5-6 tima og flogið til baka og þá hafinn undirbúningur fyrir starf næsta dags. Mjög strangar öryggisráðstafanir voru gerðar vegna þessa flugs enda hefur komið fyrir að skotið hafi verið á vél- arnar. Gengið var frá því fyrir hvert einasta flug að flugbrautin væri hrein, þvi gjarnan er komið fyrir jarðsprengj- um á flugbrautunum. Flugvélar eru þó notaðar af öryggis- ástæðum, því óráðlegt þykir að ferðast þarna um í jeppum. Þó voru þeir jeppar sem þarna eru búnir vörnum gegn jarðsprengjum." Leifur Dungal læknir. Skorið í strikiotu „Tvenns konar hópar lækna og hjúkrunarfólks fóru ætíð saman. I fyrsta lagi skurðlæknir með tveimur hjúkrunarfræðingum. Farið var á ýmsa spítala þar sem læknar hafa flæmzt burtu en nunnur starfa á. Þar er hægt að framkvæma skurðaðgerðir. Sjúklingum er safnað saman og skorið er í striklotu, e.t.v. 10 tíma I senn.og síðan flogið heim að kvöldi. í öðru lagi er um að ræða almenna læknisþjónustu eins og ég var í. Þar fer einnig læknir með tveimur hjúkrunar- fræðingum. Við fórum á trúboðs- spítala þar sem ekki er aðstaða til þess að sinna skurðaðgerðum. Þar var unnið að minni háttar aðgerðum og móttöku fólks úr nágrannaþorpunum. Við fórum einnig i víggirt þorp sem stjórnin í Zimbabwe Rhódesíu hefur komið upp til þess að höggva á sam- skipti almennings og skæruliða. Alls hefur stjórnin komið upp 70—80 slík- um þorpum þar sem hernaðurinn er hvað mestur. í þessum þorpum er bágt ástand vegna næringarskorts.” Horfur á hungursneyð ,,Þó má segja að á þeim tima, sem ég dvaldist þarna hafi næringarástand- ið ekki verið svo voðalegt. Uppskeran var nýkomin, en hún var mjög léleg svo horfur voru á hungursneyð í septem- ber-október vegna þurrka. Ég dvaldist í landinu á kaldasta tíma ársins og þá er sýking ekki meiri háttar vandamál, þar sem malaría er í lágmarki. Þrengslin í víggirlu þorpunum skapa að vísu vandamál og fara berklar og kynsjúk- dómar sem eldur i sinu. í þessum þorpum er hreinlætisað- staða þó sæmileg og sæmilegt vatn á boðstólum. En þessi þorp umturna öllum þjóðfélagsaðstæðum. Fólkið bjó áður i litlum þorpum en nú hefur alda- gamalli þjóðfélagsskipan verið raskað. Það skapar alls kyns vandræði, sem betur eiga eftir að koma í ljós siðar. Nefna má að í einu slíku víggirtu þorpi sáum við fólk frá 27 smáþórpum, sem ekki hafði i önnur hús að venda.” Verkin eins og dropi í hafið ,,Það er erfiðast að sætta sig við tvi- skiptinguna milli Salisbury og afgangs- ins af landinu. í sveitunum geisar stríðið og þar er fólk illa farið, svangt og kalt og sýnilegt öryggisleysi. í Salis- bury veit fólk aftur á móti vart af strið- SJONVARPSBUÐIN l'lugið var kvölds or morgna til þess að sinna læknisþjónustu i stríðshrjáðum sveitum Zimbabwe Rhódesiu.

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.