Dagblaðið - 08.10.1979, Qupperneq 25
DAGBLAÐIÐ. MÁNUDAGUR 8. OKTÓBER 1979.
lPlnlMlrfQ0
! PLASTPOKAR
O 82655
Er stíflað? Fjarlægi stíflur
úr vöskum, WC rörum, baðkerum og niður-
föllum Hreinsa og skola út niðurföll i bila-
plönum og aðrar lagnir. Nota til þess tankbil
með háþrýstitækjum, loftþrýstitæki, raf-
magr.ssnigla o.fl. Vanir menn.
Valur Helgason, sími 77028.
MOTOROLA
Alternatorar i bila og báta, 6/12/24/32 volta.
Platinulausar transistorkveikjur I flesta bila.
Haukur &■ Ólafur hf.
Ármúla 32. Slmi 37700.
Ljósastillingar og önnur bílaviðgerðarþjónusta
Bifreiðaverkstæði
N. K. SVANE
Skeifan 5 - Sími 34362
Fyrsti tíminn i snyrtingu: Fremstur á myndinni er Arnar. I.engst til hægri er llaraldur, síðan Björn Arnór, l.ilja, Stína, F.lín, ein sem við vitum ekki nal'n á, Lára,
Vigdís og loks önnur sem vift vitum ekki nafn á. Kennarinn heitir Þórdís og er aft segja þeini til um handsnyrtingu.
Allar myndirnar tók Hörftur í Hvassaleitisskóla föstudagskvöldift var.
Námskeið Æskulýðsráðs fyrir skólaunglinga:
Búa £r/ svifflugur og útvörp
Kristinn t.v. og Magnús l.h. meft þriþekjurnar sínar. Þessi módel eru óvenjulitil og þarf mikla lingralimi og vandvirkni lil aft
líma þau saman og mála.
—mota leir, spila borðtennis og mála sig
Eitt af þeim fágætu augnablikum,
þegar ég get alls ekki neitað þvi að
mannkynið tekur vissum framförum,
rann upp núna alveg nýlega. Þrettán
ára stelpa, sem ég þekki, kom heim úr
skólanum, fleygði gulum pésa á borðið
og sagði:
,,Égætla að fara í leiklist!”
Móðirin rak upp stór augu og enn
stærri þegar hún las pésann þar sem
kökkunum í gaggó var boðið að velja
um 35 námskeið þar sem þeir gátu
fengið tilsögn i jafnmörgum tóm-
stundagreinum, allt frá kertasteypu til
rafeindatækni.
Þetta var gjörsamlega óþekkt i
minni gagnfræðaskólatíð og einhvern
veginn hafði ég haldið að enn væri allt
eins og þá, kennarar álitu það æðsta
takmark lifsins að kvelja nemendur og
hremma þá ólesna eins og kettir mýs.
Ekki við spila-
boxin á meðan
Það er reyndar Æskulýðsráð sem
gengst fyrir námskeiðunum i öllum
gagnfræðaskólum Reykjavíkui og
hefur gert það í allmörg ár en hingað
til hafa þau aðeins verið auglýst með
veggblöðum á skólagöngunum. Nú er í
fyrsta sinn prentaður kynningarbækl-
ingur sem krakkarnir geta tekið með
sér heim og rætt við foreldrana. Fjögur
þúsund krakkar eru á þessu skólastigi
og hafa allir fengið einn slíkan bækling
með þeim árangri að fimmtán hundruð
til tvö þúsund hafa innritað sig i eitt-
hvað.
Það er Gunnar Örn Jónsson sem
stendur fyrir kynningunni en hann tók
við starfi hjá Æskulýðsráði fyrir mán-
uði sem umsjónarmaður tómstunda-
iðju í gagnfræðaskólum höfuðborgar-
innar. Hann hefur undanfarin tiu ár
kennt handmenntir i Fellaskóla, Voga-
skóla og víðar.
„Hikstalaust,” segir hann, ,,þá
finnst mér mjög mikilvægt að krakk-
arnir læri að nota bæði huga og
hendur. Og námskeiðin eru hugsuð til
að ýta þeim af stað við tómstundaiðju
sem þeir geta haldið áfram að fást við
seinna í lífinu, kannski allt til æviloka;
hjálpa þeim til að eignast þroskandi
áhugamál. Þeir standa að minnsta
kosti ekki við spilaboxin á meðan.”
Krakkarnir greiða fimmtán hundruð
krónur í þátttökugjald.oftast líka smá-
vægilegan efniskostnað. Námskeiðin
eru eitt kvöld í viku fram að jólum og
síðan verða ný námskeið seinni hluta
vetrar.
Hvað er vinsælast?
Það fer nokkuð eftir skólum. í Fella-
skóla ætla flestir í borðtennis, leiklist
og að læra að setja saman einföld út-
varpstæki, i Kvennaskólanum er mest
aðsókn í leirmótun og snyrtingu, i
Breiðholtsskóla ætlar stór hópur Lsvif-
flugusmíði. En leðurvinna,' Ijós-
myndun, kvikmyndagerð, tré- og
málmsmíði, smelti og hnýtingar eru
viða vinsælar valgreinar.
„Þegar krakkarnir föndra sjálfir við
að búa til hluti þá læra þeir lika að bera
virðingu fyrir verkmenningu,” segir
.Gunnar Örn. ,,Nú er geysimikið flutt
Þorsteinn er aft velja koparvír ttlan um kol I kristal-útvarpstæki seni sögft eru inn í landið af alls konar rusli, t.d.
þrælsniftti". plasteftirlikingum af smíðajárni og tré-
munum. Hann lítur á mig hikandi.
„Finnst þér það kannski fallegt?” spyr
hann.
„Nei,” segi ég.
„Skólarnir geta hjálpað krökkununt
til að læra að meta fallegt handverk,
vandvirknislega smíðaðan hlut,” segir
hann.
Svo segist hann vera nteð hugmyndir
um fjölskyldukvöld. Það væri gaman
ef foreldrar gætu komið með krökkun-
um i skóla þar sem vefstofur, smiða-
stofur og leirkeraverkstæði væru opin
og allir hjálpuðust að við sköpun.
„En vilja krakkar á þessunt aldri
ekki heldur deyja en sjást í fylgd nteð
foreldrum sínum í skólanum?"
„Þeir gætu kannski lært að umbera
^þá,” segir hann brosandi og er hinn
bjartsýnasti.
Námskeiðin eru sem sagt núna að
fara í gang og enn er ckki of seint að
byrja. í hverjunt skóla er einhver
umsjónarmaður, oft yfirkennarinn,
sem foreldrar geta snúið sér til ef þeir
óska nánari upplýsinga. Eins ntá
hringja bcint í Æskulýðsráð, sinta
15937.
Viðbrogð hafa yfirleitt verið ntjög
jákvæð. Þó hringdi cin móðir út af
námskeiðunum i snyrtingu sem njóta
geysivinsælda hjá stelpunum.
„Þær læra nógu sncmma að niála
sig."
F.n Gunnar Örn segir að námskeiðin
séu einnig opin strákum og reyndar
finnst honum sjálfsagl að stelpurnar
fái að vera fallegar ef þær langar til.
Bætir við: „Þar læra þau einnig kurt-
eislega framkomu, eins og að standa
ttpp fyrir gömlu fólki í strætó.”
- IHH
TUDOR
rafgeymar
—já þessir rneð
9 líf
SKORRI HF.
Skipholti 35 - S. 37033
Pípulagnir - hreinsanir
Bílaþjónusta