Dagblaðið - 05.01.1980, Blaðsíða 4

Dagblaðið - 05.01.1980, Blaðsíða 4
4 DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 5. JANÚAR 1980. Þrettándirai er á morgun: ^ GANGIÐ VEL FRA „ Látið aldrei neitt geymsludót í ógagnsæja plastpoka — Það er vísasti vegurinn til þess að „týna” hlutunum JÓLUNUIVT’ Þreltándinn er á morgun og har með er þessum jólum formlega lokið. Það er au/i hentugt þegari þrettándinn er á sunnudegi, í það minnsta fyrir útivinnandi húsmæður, ;sem geta þá notað frídaginn til þess að taka niður og ganga frá jóla- skrautinu. Fált er ömurlegra en jóla- skraut sem hangir uppi langt fram á vetur, — grenigreinamar orðnar 'nálarlausar og skrautið rykugt og visið. Hins vegar finnst mér ekkertj að því að hafa greinar sem enn eru stálnar og frisklegar áfram í vösum með vatni, ef aðeins allt skraut, eins og jólasveinar, slaufur og kúlur er fjarlægt. Hver hlutur á sínum stað Mikilsvert er að ganga vel og skipulega frá jólaskraulinu. Með þvi móti er hægt að nota sama skrautið ár eftir ár. — Langhentugast er að geyma skrautið í kössum, en vefja þvi inn í eldhúsbréf eða annan mjúkan pappír áður. Taka á perurnar úr jóla- trésljósasamstæðunni og geyma þær sér i kassa. Þegar búið er að taka samstæðuna af trénu er gott að prófa hvorl allar perurnar sem til eru séu heilar og fjarlægja þær sem ekki kviknar á. Það er ekki sérlega vitur- legt að standa uppi næsta aðfanga- dag, þegar búið er að loka öllum verzlunum og vanta peru í samstæðuna. — Pakkið perunum varlega inn, helzt í kassa með hólfum, þannig að hver pera hafi sitt hólf. Kúlum af jólatrénu er bezt að pakka saman i skókassa og vefja þá hverri kúlu í mjúkan pappír. Hægt er að nota sania pappírinn ár eltir ár. Hreinlegast er að taka mosa og laukjurtir úr skálum og þvo þær, þannig að skálarnar séu geymdar hreinar og allt smáskraut látið saman i poka eða kassa. i rauninni er hentugast að geyma þessar skálar og körfur ekki með jólaskrautinu sjálfu. Það getur verið gaman að grípa til skálanna sjálfra á öðrum líma en í sambandi við jólin, eins og l.d. I'yrir páskana. Merkiðkassana greinilega Þegar búið er aðganga vel frá öllu er langhentugast að láta alla kassana og pokana saman í slóran kassa og merkja vel utan á umbúðirnar hvað í þeim er. Einu sinni kom fyrir heima hjá mér að við fundum ekki jólatrés-, Ijósasamstæðuna hvernig sem leitað, var. Allt annaðskraut fannst, en það var geymt í mörgum kössum, hér og þar í geymslunni. Ljósasamstæðan fannst ekki fyrr en löngu eftir jól, þegar einhver ætlaði á skíði. Hún hafði verið látin í svartan plastpoka og stungið inn í skápinn þar sem skíðaskórnir voru geymdir! Það er þvi alveg greinilegt að óhentugt er að nota öðruvísi plastpoka en gagnsæja, og gildir það i rauninni unt alll geymsludól. Jólakortin geymd sér á parti í þessu sambandi má einnig benda á það að það borgar sig að ganga vel frá jólakortunum er heimilismcnn fengu. Það er nauðsynlegt að geyma Þetta jólalré er að vísu alls ekki farið að láta á sjá. Þetta er kanadiskur þinur, sem hefur verið vandlega vökvaður i jólalrésfólinn. DB-mynd RagnarTh. kortin á visum stað, — þó ekki með jólaskrautinu, þar til næsta ár. Það er alllaf leiðinlegt ef maður gleyntir að senda einhverjum jólakveðju. — Langbezt er að skrifa lista með nöfnum og heimilisföngum þeirra sem senda manni kort — og einnig lista yfir þá sem maður sendir kort sjálfur. Gömlu kortin má nota næsta ár ef börnin á heimilinu búa sjálf til jólakortin. Hægt er að klippa falleg- ar myndir af gömlu kortunum og líma á heimagerð kort. Hvað sem öðru liður þá er alltaf ágætt að hafa góð fyrirheil á prjónunum. Eins og sagt er, þá launar það sig í seinna verkinu sem gert er í hinu fyrra, í sambandi viðað ganga vel frá „jólunum”. -A.Bj. Upplýsingaseðill til samanbiirðar á heimiliskostnaði Nafn áskrifanda Heimili Sími Hvaö kostar heimilishaldið? Vinsamlega sendið okkur þennan svarseðil. Þannig eruð þér orðinn virkur þátttakandi i upplýsingamiðlun meðal almennings um hvert sé meðaltal heimiliskostnaðar fjölskvldu af sömu stærð og yðar. Þar að auki eigið þér von i að fá fría mánaðarúttekt fyrir fjölskyldu yðar. Kostnaður í desembermánuði 1979. Matur og hreinlætisvörur kr. Annaö Alls kr m» /k i v Fjöldi heimilisfólks Kryddsoðinn bauti I kg nautakjöt úr framparti eða læri er skorið í sneiðar og barið vel en síðan kryddað með salti og pipar. Velt upp úr hveiti og brúnað á vel heitri pönnu. Kjötið er síðan sett yfir til suðu í kjötsoði eða vatni. Meðal- stór laukur er saxaður í smátt og brúnaður á heitri pönnu. Honum er bælt út í soðið ásamt lárviðarlaufi og heilum pipar. Þegar kjötíð er soðið vel meyrt er það fært upp úr og soðið jafnað með smjörbollu eða hveiti- jafningi. Sósan er soðin góða stund og sigtuð yfir kjötið. Bragðbætt og kryddað ef með þarf. Framreilt með soðnum kartöfium eða kartöflumús. Hráefni I kg nautakjöl úr framparti eða læri. 500 g kartöflureða kartöflumós. 1 laukur lárviðarlauf, heill pipar, salt og hveiti eftir þörfum. Verð í kringum 2000 kr. ELDHUSKROKURINN Hlutun og hagnýt- ing á svínakjöti Svínshöfuð eru notuð i sultugerð eða reykt. Háls er niðursneiddur, steiktur heill, soðinn nýr, saltaður eða reyktur. Einnig hlutaður í smá- steikur. Bógur er hagnýttur á sama hátt nema ekki i sneiðar. Framhryggur er sneiddur í kótelettur, steiktur heill eða saltaður og reyktur í hamborgarhrygg. Afturhryggur er heilsteiktur, notaður í hamborgarhrygg og í ýms- ar pönnusteikur. Siðan er ýmist söltuð eingöngu eða söltuð og reykt. Slögin eru notuð í rúllupylsu eða aðra kjötvinnslu. I.æri er steikt i heilu lagi, eða saltað og reykt. Innan- lærisvöðvinn er nolaður i sneiðar. Skankar eru saltaðir en fælur saltaðir cða reyklir. I.undir eru ým- isi heilsleiktar eða notaðar i pönnusleikur. Næst víkur sögunni að innyflum. 1. kombur, 2. hryggur, 8. bógur, 9. bóglaggut 4. huppur. S. lundir, 6. ti8o, 7. bringa Grófbrytjaður svínsskrokkur. Þarna má sjá hvaðan af skrokknum hver biti er. DB á ne ytendamarkaði

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.