Dagblaðið - 19.03.1980, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980.
Foricosningamar f lllinois:
CARTER BAKAÐIKENNEDY
OG REAGAN ER SPÁÐ SIGRI
—Carter með mdrihluta meðal kaþólskra, verkamanna ogminnihlutahópa—Kennedy tapaðiáaðfá
stuðníng Jane Byme borgarstjóra Chicago
Ljóst er að Jimmy Carter Banda-
ríkjaforseti hefur gjör.sigrað Edward
Kennedy öldungadeildarþingmann í
forkosningum Demókrataflokksins í
Illinois. í morgun hafði Carter haft
forustu alveg frá upphafi atkvæða-
talningarinnar. Þegar talin höfðu
verið 15% atkvaeða var Carter með
66% þeirra en Kennedy aðeins 30%.
Jerry Brown ríkisstjóri i Kaliforniu
hafði fengið 3% atkvæða.
Ulinois var eitt þeirra ríkja, sem
»
Jimmy Carter forseti virðist sigla beint
i framboð aftur fyrír demókrata.
talið var að Edward Kennedy mundi
vinna auðveldlega, þegar hann
tilkynnti þátttöku sina í for-
kosningum Demókrataflokksins fyrir
áramótin. Athugun á meðal kjósenda
sýndi að Carter forseti hefur hlotið
meirihluta fylgis meðal kaþólskra í
Illinois. Einnig meðal verkamanna og
annarra minnihlutahópa, sem
Kennedy einbeitti sér að í kosninga-
baráttunni. Kennedy er kaþólskur og
hafði einnig gert sér vonir um að
frjálslynd stefna hans mundi ná til
ýmissa minni hópa í Illinois ríki.
Svo virðist einnig að samvinna
Edward Kennedy á mikla erftðleika
framundan i baráttunni fyrir ót-
nefningunni.
Kennedys við Jane Byrne borgarstj.
í Chicago hafi einnig orðið honum til
trafala. Hún er umdeUdur leiðtogi
þeirra íbúa Chicago borgar sem eru
af irskum uppruna. Byrne er fyrsta
konan, sem kjörinhefurverið borgar-
stjóri í stórborg vestra. Hafði hún í
fyrstu heitið Carter stuðningi sinum,
en síðan snúið við honum bakinu og
studdi Kennedy.
Ronald Reagan var spáð sigrj i
forkosningum Repúblikanaflokkins í
Illinois. Var það þrátt fyrir að John
Andersen þingmaður hefði forustu
eftir að 11% atkvæða höfðu verið
talin, hafði hann þá fengið 44% en
Reagan 41%. George Bush, fyrrum
forstjóri CIA var þriðji en langt á
eftir með 11% atkvæðanna sem talin
höfðu verið. John Anderson er þing-
maður fyrir Illinois i fuUtrúadeildinni
í Washington.
Fari svo að Kennedy bíði mikinn
ósigur í Illinois er Ijóst að miklir
erfiðleikar bíða hans í komandi for-
kosningum.
Kanada:
Norðmenn hafa
lokið kópaveiði
Norskir selveiðimenn hafa nú lokið
veiðum á þeim tuttugu þúsund sel-
kópum, sem þeir hafa leyfi til að veiða
á ísnum við Labradorskagann á austur-
strönd Kanada. Hafa norsku veiði-
mennirnir nú flutt sig norðar og hyggj-
ast veiða fuUorðinn sel á þeim slóðum.
Kanadiskir veiðimenn halda hins
vegar enn áfram að veiða selkópa en
þeirra hlutur er rúmlega fimmtíu og sex
þúsund kópar í ár.
Ekki hafa nema einu sinni komið
fram í verki mótmæli gegn selveiðum
við Kanada að þessu sinni. Var það er
Boston deild Greenpeace samtakanna
tilkynnti að félagar í samtökunum
hefðu farið leynilega inn á selaslóðirnar
og málað 150 kópa græna til að gera
skinn þeirra verðlaus. Mikil andstaða
gegn selveiðunum hefur verið undan-
farin ár. Segjast andstæðingar þeirra
nú ætla að einbeita sér að þvi að eyði-
leggja markaði fyrir selskinn. Hefur sú
viðleitni þeirra borið góðan árangur
undanfarin ár og selskinn lækkað í
verði.
—-í^jSmurbrauðstofan
■EriMalUUJJLlL
.Njálsgötu 49 — Simi 15105
1X2 1X2 1X2
29. leikvika — leikir 15. marz 1980
Vinningsröð: 22X-X21-1X1-XXX
1. vinningur: 11 réttir — kr. 529.000 j
1825 10437 10594 11004 J
2. vinningur: 10 réttir — kr. 25.900.
1869 3230 7421 10570+ 30481 33502 40728+
2347 5118 + 7542 10571+ 31322 1 33563 + 41955
2598 5168 9212 10572(2/10)+. 33877 55420
2874 5648 9951+ 10604+ j 32045 34880 55577
3114 + 5752 10421+ 10610 , 33166 Uo510 57594
Kærufrestur er til 8. apríl kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærucyðublöð fást hjá umboðsmönnum og aðalskrifstofunni. Vinnings-
upphæðir geta lækkað ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra scðla verða að framvisa stofni eða senda stofninn og
fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fyrír greiðsludag
vinninga. i
GETRAUNIR - íþróttamiðstöðin - REYKJAVÍK
, ;•••>••• ■-■■■??>
L
Hermenn Atlantshafsbandalagsins æfðu landgöngu i Norður-Noregi um sfðustu helgi. Myndin sýnir bandaríska hermenn á
brynvögnum með felulitum fara upp á ströndina við Malangsfirði f Norður-Noregi.
Bandaríkin:
Vextírí 19% hjá
Chase Manhattan
—tilkynnt hjá átta stærstu bönkunum vestra og táknar enn
hærri vexti fyrir f lesta viðskiptavini bankanna
Átta bandarískir risabankar með
Chase Manhattan, þriðja stærsta
bankann vestra, tilkynntu hækkun á
vöxtum sinum upp í 19% í gær. Hafa
vextir aldrei áður farið svo hátt í
Bandaríkjunum. Hér er um að ræða
vexti, sem beztu og traustustu
viðskiptavinir bankanna verða að
greiða, þannig að aðrir viðskiptavinir
verða aðgreiða enn hærri vexti. Voru
þetta fyrstu viðbrögð bankanna við
tilkynningu Jimmy Carters Banda-
ríkjaforseta um aðgerðir rikisstjórn-
arinnar gegn verðbólgunni sem er
komin upp í 18% hraða á ári.
Búizt er við því að allir helztu
bankar í New York,, sem ekki hafa
þegar tilkynnt vaxtahækkun hjá sér,
muni gera það á morgun. Þessi
tíðindi munu hafa þau áhrif að allur
atvinnurekstur mun þurfa að greiða
hærri vexti af lánum sínum því kjör
þeirra fylgja forvöxtum stóru
bankanna.
Paul Volcker formaður stjórnar
Seðlabanka Bandaríkjanna tilkynnti
á fundi með þingnefnd í Washington
i gær að vextir mundu ekki lækka í
Bandaríkjunum fyrr en batamerki
,sæjust á efnahagslífinu og tækist að
ná einhverju valdi á hinni vaxandi
verðbólgu. Vextir vestra hafa
hækkað stöðugt að undanförnu og
Chase Manhattan bankinn hækkaði
vexti hjá sér upp í 18,25% í fyrri
viku. Aðrir bankar hækkuðu þá
margir vextir upp í 18,5%.
Óvissa um aðgerðir gegn
verðbólgunni í Bandaríkjunum olli
því að verðfall varð í kauphöllum
víða um heim.