Dagblaðið - 19.03.1980, Qupperneq 8
Afgreiðslustarf
í pylsuvagninum á Lækjartorgi. Upplýs-
ingarísíma 74575. ;
Byggung Kópavogi
Óskum eftir að ráða verkamenn í bygg-
ingavinnu.
Upplýsingar á skrifstofunni, Hamraborg 1,
Kópavogi, 3. hæð.
Byggung, Kópavogi.
Vegna jarðarfarar
Boga Sigurðssonar
sýningarstjóra
verður skrifstofan lokuð eftir hádegi.
KNATTSPYRNUFÉLAGIÐ
HAUKAR
óskar að ráða nú þegar knattspyrnuþjálfara fyrir
2. og 3. aldursflokk félagsins. Upplýsingar gefur
Kristján Hauksson, vs. 50022 og hs. 50275.
Aðalfundur
FÉLAGS ÍSLENZKA PRENTIÐNAÐARINS
verður haldinn í félagsheimili FÍP, Háaleitis-
braut 58—60, föstudaginn 21. marz 1980 kl.
17.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Lagabreytingar.
3. önnur mál.
Stjómin
Samkeppni um
veggspjald
SAMTÖK HERSTÖÐVAANDSTÆÐINGA efna til samkeppni um
hugmynd aö veggspjaldi í tilefni þess að 10. maí nk. eru 40 ár liðin frá því
að brezkur her sté hér á land. Það varð eins og kunnugt er upphaf hersetu
sem íslendingar hafa búið við síðan.
Veggspjaldið túlki þennan atburð og þann slóða sem hann dró á eftir sér á
myndraenan hátt.
Samkeppnin er öllum opin og veitir ritari keppninnar, Þorsteinn Marels-,
son, frekari upplýsingar. Tillögum skal skila til hans í skrifstofu Samtaka
herstöðvaandstæðinga, Tryggvagötu 10, sími 17966, fyrir 5. maí nk.
Skulu þær merktar kjörorði og nafn og heimilisfang fylgja 1 lokuðu um-
slagi merktu eins og tillögurnar.
Úrslit verða birt þann 10. maí 1980 og þá er jafnframt fyrirhugað að
halda sýningu á innsendum tillögum.
Þrenn verðlaun verða veitt: 1. verðlaun kr. 300.000, 2. og 3. verðlaun kr.
100.000.
Ætlunin er að gefa út beztu lausnina til dreifingar og sölu.
Dómnefnd er skipuð: Kjartani Guðjónssyni listmálara, Hjálmtý Heiðdal
teiknara og Árna Bergmann ritstjóra.
Reykjavik, 11. marz 1980,
Samtök herstöðvaandstœðinga.
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980.
Ullariðnaðamienii
vilja breytta
gengisskráningu
—Fara þegarístaðframáaðstoðífjónim liðum
„Augljóst er að ullariðnaðurinn
mun stórlega dragast saman á næstu
mánuðum, ef ekki tekst að tryggja
afkomu hans og skapa möguleika til
að bæta þau töp sem þegar eru orðin.
Greiðslugeta margra fyrirtækja er i
reynd þrotin og fjöldauppsagnir
blasa við ef rekstrargrundvöllur
ullariðnaðarins verði ekki
leiðréttur.” Þannig segir i niðurlagi
ályktunar, sem gerð var á fundi hags-
munaaðila i ullariðnaði á
mánudaginn.
Fundurinn taldi að gera þyrfti
eftirfarandi ráðstafanir.
1. Tryggja verð á ísl. ull til
versmiðjanna á ekki hærra verði en
heimsmarkaðsverð er á hverjum
tima.i
2. Uppsafnaður söluskattur verði
endurgreiddur jafnóðum.
3. „Uppsafnað óhagræði” verði
endurgreitt jafnóðum.
4. Ekki verði gripið til þannig
bráðabirgðaráðstafana í sjávarút-
vegi, að útflutningsiðnaðurinn sitji
uppi með óraunhæfa gengis-
skráningu. Fundurinn telur
skráningu gengis ísl. krónunnar
þurfa að vera þannig, að vel rekið
fyrirtæki i vinnuaflsfrekum út-
flutningsiðnaði geti skilaö nægilegum
hagnaði til endurnýjunar og
arðbærra framkvæmda.
Varðandi 1. liðinn hefur ríkis-
stjórin gert úrbætur til bráðabirgða
með því að hækka niðurgreiðslur á
ull til verksmiðjanna um 200 kr. á
kg. Er ullin þá greidd niður um 689
kr. á kg.
„Uppsafnað óhagræði” er röng
gengisskráning um 3.6% vegna sér-
stakra ráðstafna fyrir sjávarútveginn.
Er þetta talið hafa numið 520
milljónum kr. á sl. ári. -A.SI.
Kostimir sem valið stendur um:
„Lokun og atvinnu-
leysi eða leiðrétt-
ing til saimgirai”
—sagði Davíð Sch. Thorsteinsson, form. Fél. ísl. i
„Kostirnir sem valið stendur um
varðandi iðnað á íslandi eru fáir og
skýrir. 1 fyrsta lagi sílækkandi laun
iðnaðarfólks. í öðru lagi lokun fyrir-
tækja og atvinnuleysi. í þriðja lagi
fólksflutningar úr landi eins og
hófust fyrir áratug. í fjórða lagi
breyting ýmissa ákvæða og reglna til
sanngirnis þannig að iðnaður standi
jafnfætis öðrum framleiðsluat-
vinnugreinum í landinu.”
Þetta sagði Davið Sch. Thor-
steinsson, form. Fél. ísl. iðnrekenda,
á fundi sem félagið boðaði til ásamt
Iðnaðardeild SÍS og Útflutnings-
miðstöð iðnaðarins með fulltrúum
allra ullarvöruframleiðenda á
landinu og ýmsum gestum á
mánudag.
„Hér hefur ríkt neyðarástand allt
frá því „sólstöðusamningarnir”
voru gerðir 1977,” sagði Davíð.
„Síðustu 12 mánuði hefur
framleiðslukostnaðurinn aukizt um
50%, en á sama tíma hefur gengi
dollarans sigið um 24%. Hvert
einasta iðnfyrirtæki á landinu er að
þrotum komið vegna þessa ástands.
FisKiðnaðurinn stendur lika frammi
fýrir gífurlegum óleystum vandamál-
urn.”
Davið kvað það tímanna tákn að
iðnaðarráðuneyti væri nú á snöpum
eftir og í leit að fé til að kosta
menntun iðnverkafólks til starfa
sinna. Öll önnur menntun væri
greidd orðalaust úr sameiginlegum
sjóði landsmanna. Sýndi þetta betur
en annað stöðu iðnaðarins í landinu.
Davíð kvað iðnaðinn búa við
ranga gengisskráningu í samanburði
við sjávarútveginn. Munaði þar
samtals 3,6% á þremur liðum, sem
hann tiltók. „Þessu verður að breyta
og þetta „uppsafnaða óhagræði”,
sem samtals nemur 520 milljónum sl.
ár, skuldar ríkið íslenzkum iðnfyrir-
tækjum,” sagði Davíð. Tóku margir
aðrir fundarmenn undir að ríkiö ætti
aðendurgreiða þetta fé.
-A.St.
EskifjörAur I bliðskaparveðri.
DB-mynd JH.
Sólskin, hiti og góður af li
Bliðskaparveður, sól, logn og 10
stiga hiti, var á Eskifirði í gær.
Sjómenn á netabátum róma mjög
góðan afla, t.d. fékk Sæljónið 45 tonn
af góðum þorski í veiðiferð fyrir
helgina.
Að sögn Guðjóns Gíslasonar er lítil
hákarlaveiði enn sem komið er, en'
Guðjón hefur á undanförnum árum
séð Eskfirðingúm fyrir mjög vel
verkuðum hákarli.
Hólmanesið kom með 150 tonn af
blálöngu fyrir helgina. Fer aflinn í
frystingu og skreiðarverkun.
ASt/Regína, Eskifirði.