Dagblaðið - 19.03.1980, Side 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 19. MARZ 1980.
Eysteinn Tryggvason jarðeðlisfrædingur:
„BETRA AÐ HALDA
ÁFRAM EN HÆTTA”
—reynaverður
aðauka
gufuöflun
tilKraflu-
virkjinar
Afkastageta gufusvæðisins við
Kröflu hefur ekki dregizt saman og
þvi er frá því sjónarmiði ekki ástæða
til annars en að halda áfram að vinna
aðgufuöflun.
Þetta kom fram i- viðtali við
Eystein Tryggvason jarðeðlisfræðing
í DB í gær. Hann sagði ennfremur t
viðtalinu: „Ég held að rétt séaðbora
eina til tvær holur, þegar á annað
borð 30 milljarðar hafa verið festir i
virkjunarrannsóknum. Þá getur verið
betra að halda áfram en hætta,”
sagði Eysteinn.
„Úr þvi sem komið er þá blasir
við að reyna verður að auka
gufuöflun til Kröfluvirkjunar.
Stjórnmálamenn hafa reynt að kenna
umbrotunum á svæðinu um tafir við
Kröfluvirkjun en það er ekki rétt.
Staðreyndin er sú að ýmsar
staðreyrdir voru plokkaðar úr gögn-
um vísindamanna, sem voru hag-
stæðar þeim sem vildu virkja gufuna
við Kröflu. Síðan var öðrum
staðreyndum, sem voru óhagstæðari,
annaðhvort sleppt eða þá rang-
túlkaðar ef þær mæltu gegn fram-
kvæmdunum.
Ef farið hefði verið eftir ráðum
visindamanna strax á byrjunarstigi
hugmynda um Kröfluvirkjun þá
hefði aldrei verið byrjað á henni,”
sagði Eysteinn.
„Kröfluvirkjun var fáránlegl
uppátæki og ljótur blettur á ferli
þeirra stjórnmálamanna, sem að
henni stóðu,” sagði Eysteinn
Tryggvason, jarðeðlisfræðingur að
lokum.
-ARH/ÓG.
K
Blaðamaður Dagblaðsins við nýja
hraunið sem rann á sunnudag og
aðfaranótt mánudags.
DB-mynd Kagnar Th.
ÞRHMUNGUR ARBÆINGA A
MÓTIHÖFDABAKKABRÚNNI
—1400 liianns skrífuðu unár mótmæli sem afhent voru borgarstjóra ígær
„Það tóku um 1400 nianns þátt í
undirskriftasöfnuninni, hluti af þeini
unglingar,” sagði Þórir Einarsson
prófessor um leið og hann afhenti Agli
Skúla Ingibergssyni borgarstjóra undir-
skriftalista frá um 1/3 af íbúm Ár-
bæjar. Var þar komið á framfæri
eindreginni áskorun um að frestað yrði
byggingu Höfðabakkabrúar og
hraðbrautar og hagkvæmni fram-
kvæmdar endurmetin.
„Spurt hefur verið hvers vegna
viðbrögð okkar koma svona seint,”
sagði Þórir ennfremur og sagði það
vera m.a. vegna þess að leiðin væri
löng að æðri stöðum. Það legði vanda
á herðar venjulegu fólki. Hvorki aðal-
skipulag né dagskrá borgarinnar væri
daglegt lestrarefni.
Þórir, er i forsvari fyrir undir-
skriftasöfnuninni í Árbæ, en í undir-
búningi hennar tóku þátt stjórnir
flestra hverfafélaganna í Árbænum.
Forsvarsmenn þeirra voru mættir
hjá borgarstjóra og sögðu DB að fólk
úr öllum stjórnmálaflokkum hefði
skrifað undir. Aðeins hefði verið farin
ein yfirferð um hverfið og það um
síðustu helgi. Mætti búast við að u.þ.b.
30% af íbúum hefði jafnvel ekki verið
heima.
Egill Skúli tók hópnum mjög
vinsamlega og kvaðst myndi koma
listanum hið fyrsta til borgarráðs.
Væntanlega gæti það þá komið til um-
fjöllunar hjá borgarstjórn á
fimmtudag.
-F.VI.
Þórir Einarsson prófessor afhendir borgarstjóranum, Agli Skúla Ingibergssyni,
undirskriftalista frá Árbæingum til þess aö mótmæla byggingu Höfðabakkabrúar og -
hraðbrautar.
í kvöld kl. 20:30:x \
LENNART ELMEVIK
prófessor við Stokkhólmsháskóla flytur fyrir-
lestur um íslenzkukennslu við sænska háskóla
og Islándska sállskapet.
Allir velkomnir
Forustumenn flestra hverfafélaganna i Árbænum. Þórir Einarsson prófessor, forsvarsmaður hópsins, er 3. frá vinstri.
DB-mynd Hörður.
ROVER3500 ROVER3500
tilRmair
Fyrri Fokkervélin, sem Flugleiðir
hafa selt Finnair, er nú að verða
tilbúin eftir gagngerar breytingar hér-
lendis. Vélin var keypt i Kóreu og
siðan hafa flugvirkjar Flugleiða
unnið að endurbótum á vélinni. M.a.
var skipt um mælaborð í vélinni. Svo
sem sjá má eru Finnair litirnir komnir
á vélina. Siðari vélin til Finnair
verður afhent félaginu fljótlega eftir
aðsú fyrri fer.
DB-mynd Bjarnleifur.
Þessi faiiega Rover 3500 bifreið er tH söiu. Lítið
ekin, veimeð farin.
Sportfe/gur.
Erum fíuttir rótt upp
fyrirhornið, að
Ármúia 7. Sími81588.