Dagblaðið - 11.04.1980, Page 1
)trjálst,
Júháð
fdatfblað
Hardur ágreiningur ístjómariiðinu:
FRAMSÓKN STÖÐVAR
LÁNSFJÁRÁÆTLUNINA
Þinglið Framsóknar hefur stöðvað
framgang lánsfjáráætlunar ríkis-
stjórnarinnar. Um hana standa
harðar deilur. Ákafar umræður hafa
verið um málið i þingflokki
Framsóknar.
Drög liggja fyrir um lánsfjáráætl-
un þar sem gert er ráð fyrir að er-
lendar Iántökur verði í ár 94,5 millj-
arðar króna. Við myndun ríkis-
stjórnarinnar töldu framsóknarmenn
að erlendar lántökur mættu ekki fara
fram úr 70—80 milljörðum.
Hluti af lánsfjáráætlun hefur verið
lagður fram á Alþingi. Þar er mælt
fyrir um 36,5 milljarða lántökur, þar
af 21,4 milljarða i erlendum lánum.
Þingflokkur Framsóknar samþykkti
þetta, og töldu þingmenn að þeir
gætu siðan skorið í „siðari hluta”
lánsfjáráætlunar og haldið lántökun-
um í um 80 milljarða. Svo kom á dag-
inn, þegar drög komu að síðari hlut-
anum, að þar var mestallt talið
„fast” og óbreytanlegt. Þar er meðal
annars um stór lán að ræða vegna
framkvæmda, sem þegar hafa verið
ákveðnar. Meðal annars eiga yfir 30
milljarðar að fara til Hrauneyjafoss-
virkjunar, 9 milljarðar í járnblendið,
rúmir 7 milljarðar til flugvélakaupa,
3 milljarðar til landbúnaðarins, 9
milljarðar til hita- og fjarvarma-
veitna og svo framvegis. Ýmsir þing-
menn Framsóknar urðu reiðir við og
töldu sig hafa verið ginnta til að sam-
þykkja „fyrri hluta” lánsfjáráætlun-
ar, sem þeir hefðu getað breytt,
hefðu þeir vitað, hve fastur „seinni
hlutinn” yrði. Framsóknarmenn
hafa því enn neitað að fallast á
drögin um lánsfjáráætlun.
-HH.
Allarnýjustu kóngafréttirnar
Dönsku blöðin eru komin — og I þeim eru að sjálfsögðu allar nýjustu fréttirnar af danska kóngafólkinu, þeim Margréti og
Henrik, Friðrik og Jóakim og vra öllum hinum prinsunum og greifunum. Að ógleymdum prjónauppskriftum, matarupp-
skriftum og fleiru.
DB-mynd: Hörður.
Þrír f lokkar keppnisbáta
íSjóralli '80
— og undirtúningur í fullum gangi — sjá bls. 8
Á að kaupa 1-2IKARUS-
vagna í tilraunaskyni?
sjábls.9
Verkamennflýja Norðursjóinn
— sjá erl. fréttir á bls. 6 og 7
„Ég er bara
Pétur Péturs-
sonaf
Skaganum"
— opnuviðtal við Pétur
íblaðinuídag
ábls. 12ogl7
Stórsigurá
Norðmönnum
íPolarCup
— sjábls. 18
Vaxandi óróleiki í verkalýðshreyfingunni:
Ósæmilegt að krefjast hækkunar upp allan launastigann
— segir Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambandsins — sjá nánar á bls. 5
6. ÁRG. - FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980 - 83. TBL.
RITSTJÓRN SÍÐUMÚLA 12. AUGLÝSINGAR OG AFGREIÐSLA ÞVERHOLTI 11.—AÐALSÍMI 27022.