Dagblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 5

Dagblaðið - 11.04.1980, Blaðsíða 5
\ C DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 11. APRlL 1980. 5 HVAÐ GERIR VERKA- LÝÐSHREYFINGIN? —aðgerðaleysi íkjaramálum veldur óróleika Þótt samningar nœr allra verkalýðsfélaga á landinu hafi verið lausir frá áramótum hefur ekkert gerzt í kjaramálum. Óróleika erfarið að gœta í verkalýðshreyfingunni og hefur t.a.m. eitt verka- lýðsfétag vítt Verkamannasamband íslands fyrir aðgerðaleysi. DB leitaði í gær til þriggja verka- lýðsforingja og spurði þá álits á framvindu mála. Magnús L. Sveinsson. „Taka verður tillit til breytts ástands” -segirMagnúsL Sveinsson, formaður Verzlunarmannafélags Reykjavíkur „Verkalýðshreyfingin verð- urað láta til sín taka” - segir Björn Bjamason starfsmaður Iðju „Það er ótvírætt kominn tími til þess, að verkalýðshreyfingin fari alvarlega að gera upp við sig hvað hún ætlar að gera. Ekkert hefur gerzt í samningunum. Verkalýðshreyfingin verður að láta heyra í sér í fullri alvöru,” sagði Björn Bjarnason, starfsmaður Iðju i Reykjavik, í viðtali við DB í gær. „Þessi deyfð dregur kjark úr fólki, þannig að það getur orðið ófært um Björn Bjarnason. að grípa til varnar þegar það þarf að gera,” sagði Björn. „Eg tel ekki koma til greina að grunnkaup engra hækki. Það eru „Það verða menn að hafa í huga fyrst og siðast, að iðnverkafólk og annað það fólk sem lægst laun hefur er í algjörum forgangi um launa- hækkun,” sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verka- mannasambands íslands, i viðtali við DB í gær. Hann bætti við: „Það er algjörlega ósæmilegt, að krefjast ýmsir hópar, sem eitthvað þarf að gera fyrir. Hins vegar er mis- skilningur að grunnkaupshækkun þyrfti að ganga i gegn til þeirra efstu,” sagði Björn. Hann sagði að meðalkaup Iðjufölks fyrir dagvinnu væri nú 255—260 þúsund á mánuði. Ekki mætti minna vera en að hækka það í 300 þúsund. Fæst Iðjufólk hefði yfirvinnu og þyrfti að lifa á dagvinnu. ófrávikjanlega hækkana upp allan launastigann, þótt þetta fólk fái leiðréttingu.” Guðmundur sagði að það væri deginum Ijósara að óhjákvæmilegt væri að endurskoða lægstu laun. Þeir sem þau hefðu gætu með engu móti unað við sinn hlut i núgildandi kjara- samningum. Að þessari staðreynd „ Verkalýðshreyfingin verður að fara að taka sér stöðu með tilliti til breytts ástand,” sagði Magnús L. Sveinsson, formaður Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, í yiðtali við DB í gær. „Ástandið er nú orðið miklu alvarlegra, eftir gífurlegar skatta- hækkanir. Verkalýðshreyfingin hefur sýnt langlundargerð. Hún hefur haft lausa samninga allt frá áramótum og gert mjög hóflegar kaupkröfur, aðeins krafizt 5% grunn- hlytu augu manna að beinast fyrst og fremst í allri umræðu um leiðréttingu i kjaramálum. -BS. Guömundur J. Guðmundsson. -HH. ENDURSKODUN LÆGSTU LAUNA HEFUR FORGANG — og ósæmilegt er að kref jast þess að hækkun þeirra gangi upp allan launastigann, segir Guðmundur J., formaður Verkamannasambandsins kaupshækkana,” sagði Magnús. „Kaupmátturinn er nú kominn niður fyrir það sem hann var á fyrsta árs- fjórðungi 1978, og ekki batnar staðan, þegar tillit er tekið til mikilla skattahækkana. Auk þess er augljóst, að ráðstafanir ríkis- stjórnarinnar munu enn auka hraða verðbólgunnar, sem kemur versl niður á hinum lægst launuðu.” „Nánar ekkert hefur gerzt i kjara- samningunum,” sagði Magnús L. Sveinsson. -HH. Guðmundur Arnlaugsson útskrifar stúdenta frá MH: „Fyrst langar mig i fri.” DB-mynd: R.Th. Guðmundur Amlaugsson hættir við Hamrahlíðarskóla: „Búinn að vera nógu lengi” „Mér finnst ég vera búinn að vera nógu lengi í þessu og það sé gott fyrir stofnunina að skipta um,” sagði Guðmundur Arnlaugsson, rektor Menntaskólans við Hamrahlið. Guð- mundur hefur sagt starfi sinu lausu og hyggst hætta því með haustinu. Ekki sagðist hann vita til þess að neitt hefði verið rætt um hver tæki við, enda staðan ekki verið auglýst ennþá. „Ég hef ekki hugmynd um það hvað ég fer að gera, það er svo margt sem mig langar til. Fyrst langar mig til að fá mér fri og síðan verður þetta að ráðast. Ég er búinn að kenna i 44 ár og þykir það orðið nógu langt,” sagði Guðmundur. Nemendur hans eru honum örugg- lega ekki sammála. Guðmundur er frábær skólamaður og hefur verið komið á merkum nýjungum i skóla- kerfinu undir hans stjórn. Má nefna hann sem frumkvöðul að áfangakerfi þvi sem flestir mennta- og fjölbrauta- skólar nota nú og að öldungadeildum menntaskóla sem nú eru víða um land. Aðstoðarrektor Menntaskólans við Hamrahlið er nú Heimir Pálsson. - DS „Ríkisstjómin minnkar kaupmátt um 8,5% íár” —segir Sighvatur Björgvinsson —„aukin skattbyrði en ekki skattalækkun” „Þessir skattstigar ríkisstjórnarinnar þýða enga skattalækkun miðað við það sem verið hefði ef gamla kerfið hefði gilt. Þeir þýða, samkvæmt útreikning- um dr. Þorkels Helgasonar hjá Reikni- stofnun Háskólans, 4,2 milljarða skattahækkun,” sagði Sighvatur Björgvinsson alþingismaður (A) i við- tali við DB í gær. Sighvatur sagði ennfremur að Þjóð- hagsstofnun hefði reiknað að skatt- byrðin ykist úr 13,4% af tekjum á ár- inu 1979 í 14% af tekjum á árinu 1980. Tekjuskattamir mundu rýra kaupmátt um rúmlega 1,5% áárinu 1980. Sú afsökun fyrir skatlstigabreyting- unni, að villa hefði komið á daginn, svo að stefndi í lægri tekjur ríkisins af lekjuskatti en ætlað var, stæðist .ekki. Þvert á móti hefði verið gert ráð fyrir að tekjur skattgreiðenda hefðu hæk kað um 45% milli áranna 1978 og 1979 en hækkunin reyndist vera 47—48%. Það yki tekjur ríkisins af tekjusköttum um 3—4 milljarða, svo að enga „villu” hefði þurft að leiðrétta. Sighvatur sagði að alls þýddu álögur ríkisstjórnarinnar, sem hafa verið ákveðnar síðustu vikur, rýrnun kaup- máttar launþega um 8,5 prósem á þessu ári. - HH Tannlækningar vangef inna: r URLEGU ASTANDI — söfnunin Rauða fjöðrín 76 skilaði búnaði ífjórar tannlæknastofur Nú er verið að leggja síðustu hönd á tannlækningastofu ætlaða vangefnum i Vogaskólanum i Reykjavik. Er þetta fjórða slik stofa sem opnuð er og er hún eins og hinar kostuð af Lions- mönnum i féiagi við Tannlæknafélag íslands og Styrktarfélag vangefinna. Gunnar Þormar mun afl öllum líkind- um annast tannlækningar á hinni nýju stofu í Vogaskóla. Hér sést hann sinna einum sjúklinga sinna i Skálatúni. Tannlækningar vangefinna eru oft á tiðum örðugri en þeirra sem heilbrigðir mega kallast vegna þess að greindar- skotur hindrar oft eðlilega umhirðu lannanna. Þá leggjast sumir tannholds- sjúkdómar oftar á vangefna en aðra og hafa því tannlækningar fyrir van- gefna þróazt í þá átt að verða viður- kennd sérgrein innan tannlækninga. Áður en hinar fjórar stofur komu upp var ástandið i þessum málum vægast sagt ömurlegt hér á landi. Að því komst Gunnar Þormar tannlæknir er hann gerði könnun á ástandi tanna á 7 vist- heimilum fyrir þroskahefta fyrir fimm árum. Árið 1976 var ráðizt i fjársöfnunina Rauða fjöðrin til úrbóta og fyrir það fé sem safnaðist keypt tannlækningatæki. Nú eru þau loksins komin upp i Skála- túni, Sólborg, Öskjuhlíðarskóla og Vogaskóla og ætti áslandið því að lag- ast. - I)S

x

Dagblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.