Dagblaðið - 11.04.1980, Side 24
Engin hreyf ing á verkfallsmálum á Vestfjörðum:
Við erum sveigjanlegir
- en útgerðarmenn ekki
—segir Pétur Sigurðsson, forseti Alþýðusambands Vestfjarða
„Það gerist ekki neitt í verkfalls-
málum hjá okkur,” sagði Pétur
Sigurðsson formaður Alþýðusam-
bands Vestfjarða i morgun. „Guð-
mundur Guðmúndsson hefur lýst þyí
yfir af hálfu útgerðarmanna, að þeir
séu ósveigjanlegir og það þýðir að
þeir ætli sér ekki að semja. Við erum
aftur á móti sveigjanlegir og sýndum
þaðá siðasta fundi.”
Nú hefur Verkalýðsfélag Bol-
ungarvíkur farið fram á sérviðræður
við atvinnurekendur. Rýfur það sam-
stöðu verkalýðsfélaganna á Vest-
fjörðum?
„Það þarf nú að ræða við Karvel
um það. Nú annaðhvort er að sýna
samstöðu með félögum sinum eða
semja sér. Við höfum ekki bannað
þeim það. Þeir hljóta að gera það
upp við sig um helgina hvora leiðina
þeir veljá.”
Verkalýðsfélögin á Bíldudal,
Suðureyri, Patreksfirði og Flateyri
hafa fengið heimildir til verkfalla og
er þar lögð áherzla á samstöðu með
öðrum félögum á Vestfjörðum og
Alþýðusambandi Vestfjarða. Félögin
á Súðavík og Tálknafirði hafa enn
ekki tekið afstöðu og félagið á Þing-
eyri hefur enn ekki sagt upp samning-
um sjómanna, en rætt hefur verið um
samúðarvinnustöðvun á Þingeyri 20.
april nk.
-JH.
Ákvörðun ríkisstjórnarinnar:
Vetrarvertíð lýkur ekki
síðar en viku af maí
—og 1. maí á hinu hefðbundna vertíðarsvæði
Vetrarvertíðinni lýkur hinn 1. maí siðar en viku af maí, samkvæmt m.a. á fundi hennar i gær. Hún er að Hefðbundin vertíðarlok hafa
á hinu hefðbundna vertiðarsvæði, heimildum sem DB telur áreiðan- verulegu leyti byggð á fiskverndar- Iöngum verið talin hinn II. maí. Á
samkvæmt ákvörðun stjórnvalda. legar. sjónarmiðum, með sérstöku tilliti til siðustu áratugum hafa lokin þó dreg-
Annars staðar á landinu kann henni Ofangreind ákvörðun er niður- hins óvenju mikla afla sem úr sjó izt og oft hafa þau í raun ekki orðið
að Ijúka eitthvað siðar, en þó hvergi staða mikilla viðræðna í ríkisstjórn, hefur fengizt þaðsem af er þessu ári. fyrr en undir mánaðamót maí/júní. BS
Fjölbreytileg veiði íbugtinni:
Fékk 3-4000 svartfugla í netin
—og á fjórða tonn af þorski
„Við fengum svartfuglinn norður af
hrauninu,” sagði Filip Höskuldsson,
skipstjóri á Gunnvöru frá Drangsnesi,
er DB hitti hann að ijáli i morgun við
Reykjavíkurhöfn.
Filip sagði að heilu breiðurnar af
fugli væru á þessum slóðum (nánar til-
tekið er þetta suð- til suðvestur af
Akranesi). Þarna væri grunnt og mikið
æti. Hann gizkaði á að hann hefði
fengið urrr3—4 þús. fugla i netin. Það
væri ekki óalgengt að fá svartfugl í net,
en ekki svona mikið.
„Þetta er ekki gott. Jú, Eggert Gísla-
son fékk helling i gær,” svaraði hann
spurningu okkar um hvort fleiri hefðu
fengið svartfugl og hvernig honum
fyndist að fásvona „afla”. Hann sagði
að mokveiði væri, en hann hefði rétt
verið að byrja og aðeins fengið 3—4
tonn af þorski i gær.
Filip kvaðst fá óverulegt verð fyrir
svartfuglinn. Og hver keypti svo fugl-
inn? Jú, Jón Barðdal var kaupandinn,
en hann er meðal þeirra sem stunda
svart fuglsskittirí.
- EVI
Þessi mynd var tekin niöur við Reykjavíkurhöfit um 7-leytið i morgun. Það verður varla hörgull á svartfugli I verzlunum á næstunni.
DB-mynd S.
frjúlst, áháð dagbJað
FÖSTUDAGUR 11. APRÍL 1980.
Bensínhækkun
á mánudaginn
Bensínið hækkar í 430 krónur lítrinn
á mánudaginn. Ríkisstjórnin hefur
afgreitt málið eftir talsverðar vanga-
veltur og margra vikna töf. Niður-
staðan varð, að fresta skyldi ákvörðun-
um um að draga úr skattheimtu rikisins
á bensinið og endurskoðun á
álagningarreglum.
Á mánudaginn taka því gildi allar
þær hækkanir sem verðlagsráð hafði
lagt til, að viðbættri hækkun vegna
hækkunar söluskatts, sem samþykkt
var á þingi í gærkvöld. -HH.
Hækkun sölu-
skattsígegn
Efri deild Alþingis samþykkti í gær-
kvöld með atkvæðum stjórnarþing-
manna gegn atkvæðum stjórnarand-
.stæðinga bæði hið nýja orkujöfnunar-
gjald (hækkun söluskatts) og lækkun
olíugjalds til fiskiskipa.
-HH.
Innbrota-
faraldur?
í nótt var brotizt inn i fimm fyrir-
tæki í Borgartúni 29. í morgun var ekki
Ijóst hverju hafði verið stolið.
í fyrrinótt voru innbrotsþjófar
einnig á ferð á bilaverkstæðinu Suður-
landsbraut 10 og skemmdu þar meðal
annars bíl sem þeir óku á verkstæðis-
bifreiðina. Öðrum bíl stálu þeir en
hann fannst síðan í gærkvöldi.
Mikið hefur verið um innbrot í
Reykjavik og nágrenni að undanförnu
og talsverðar annir hjá Rannsóknar-
lögreglu ríkisinsaf þeim sökum. -GAJ.
Sólbrenndirog
sællegiráEskifirði
Hólmanesið landaði á Eskifirði á
miðvikudag 110 tonnum af góðum
þorski. Hólmatindur er nú búinn að
vera á annan mánuð í viðgerð, en hann
er í slipp á Akureyri. Minni skipin fóru
aftur á sjó eftir páskana eftir lögskipað
stopp. Það er mikill tekjumissir fyrir
sjómenn og landverkafólk, sem oft
hefur einmitt haft gífurlegar tekjur í
pás kahrotunni.
Nú gátu sjómenn og fiskverkunar-
fólk farið á skiði um þessa löngu hátíð.
Er það sólbrennt og sællegt, er engu
líkara en að það sé nýkomið frá sólar-
löndum. Nú er bara enginn áhyggju-
svipur á þvi, eins og oft vill bera við
þegar það kemur úr hinum stóra heimi
þar sem sólar hefur verið notið. Slík
ferðalög verða oft mörgum sinnum
dýrari en reiknað er með eftir auglýs-
ingum.
Á Eskifirði er dásamleg tíð, logn og
sólskin. -Regína/abj.
TÖGGUR
UMBOÐIÐ
SÍMI
v 81530