Dagblaðið - 19.04.1980, Síða 10
BIAÐIB
Utgefandi: Dagblaðifl hf.
Framkvœmdastjóri: Sveinn R. EyjóHsson. Ritstjón: Jónas Kristjánsson.
Ritstjómarfulltrvii: Haukur Helgason. Fréttastjóri: ómar Valdjmarsson.
Skrifstofustjóri rítstjómar Jóhannes Reykdal.
íþróttir Hallgi: Símonarson. Menning: Aðalsteinn Ingólfsson. Aflstoflarfróttastjóri: Jónas Haraldsson.
Handrit Ásgrimur Pólsson. Hönnun: Hilmar Karisson.
Blaflamenn: Anna Bjamason, Atíi Rúnar Halldórsson, Atii Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi
Sigurðsson, Dóra Stefánsdóttir, Elín Albertsdóttir, Erna V. Ingólfsdóttir, Gunnlaugur A. Jónssorv
Ólafur Geirsson, Sigurður Sverrisson.
Ljósmyndir Ámi Páll Jóhannsson, BjamleHur BjamleHsson, Hörður Vilhjálmsson, Ragnar Th. Sigurðs
son, Sveinn Þormóðsson. Safn: Jón Sœvar Baldvinsson.
Skrífstofustjóri: Ólafur EyjóHsson. Gjaldkeri: Þráinn ÞorieHsson. Sölustjóri: Ingvar Sveinsson. DreHing-
afstjóri: Már E.M. Halldórsson.
Nærrí hálft ár fyrir báknið
Hið opinbera seilist með hverju
árinu dýpra í vasa almennings. Hætt er
við, að margur íslendingurinn líti á
þetta, sem eitthvert náttúrulögmál, bíti
á jaxlinn og bölvi í hljóði, en telji, að
við þessu sé lítið að gera. Fæstir munu
hafa leitt hugann nægilega að því, hve
mikil aukning hefur orðið á bákninu og kröfum þess
um framlög borgaranna á fáum árum.
Skattar til ríkis og sveitarfélaga voru árið 1950 25 af
hundraði af þjóðartekjum. Þeir voru 35 af hundraði af
tekjum þjóðarinnar árið 1970, og reikna má með, að í
ár verði þeir rúmlega 45 af hundraði af tekjum
þjóðarinnar.
Verzlunarráð bendir á til samanburðar, að segja
má, að íslenzkir launþegar vinni nú í fimm og hálfan
mánuð, til dæmis frá janúar og fram í miðjan júní, til
þess að fjármagna hið opinbera.
Fleiri einföld dæmi má taka.
Launþeginn fær aðeins til ráðstöfunar fjórar og
hálfa milljón króna af hverjum tíu milljónum
króna, sem atvinnurekandi greiðir vegna launþegans.
Þetta kemur út, þegar frá eru dregin launatengd gjöld
atvinnurekandans, beinir og óbeinir skattar, sem laun-
þeginn greiðir hinu opinbera, og greiðslur launþegans
til stéttarfélags og lífeyrissjóðs. I þessum útreikningum
er að sjálfsögðu miðað við meðaltöl.
Vöxtur báknsins kemur einnig í ljós, ef borinn er
saman mannafli í þjónustu þess og mannafli at-
vinnuveganna.
Árið 1967 var einn maður í þjónustu hins opinbera
fyrir hverja sjö í þjónustu atvinnuveganna. Tíu árum
seinna hafði báknið vaxið svo, að einn maður var í
þjónustu þess fyrir hverja fjóra í þjónustu atvinnuveg-
anna.
Litlu hefur skipt, hvaða stjórnmálaflokkar hafa
setið í ríkisstjórnum undanfarin ár. Enn í ár stefnir í
aukningu báknsins og skattheimtunnar.
Útvarpsumræður um skattamálin verða væntan-
lega eftir helgina.
Geirsmenn og alþýðuflokksmenn hafa borið fram
tillögur um lækkun skatta.
Klassísk aðferð stjórnarandstöðu hér á landi er sú
að gera í einu tillögur um lækkun skatta og aukningu
útgjalda. Þetta hefur þó ekki gerzt nú. Bæði Geirs-
menn og alþýðuflokksmenn hafa samhliða tillögum
um lækkun skatta borið fram tillögur um niðurskurð
útgjalda, sem kemur að minnsta kosti á móti veru-
legum hluta af skattalækkuninni.
Geirsmenn gera tillögur um lækkun tekjuskatts,
sem þýða 7,2 milljarða skerðingu á tekjum ríkisins.
Þeir hafa lýst yfir, að þeir séu reiðubúnir að gera
tillögur og taka ábyrgð á niðurskurði útgjalda ríkisins,
sem svari til þessarar skerðingar á tekjum ríkisins.
Hluti af því hefur séð dagsins ljós. Geirsmenn
segjast tilbúnir til að minnka niðurgreiðslur á land-
búnaðarvörum um 4—5 milljarða. Þeir benda einnig á,
að tekjuskattur eigi að skila ríkinu meira en reiknað
var með, vegna þess, að tekjur skattgreiðenda á síðasta
ári hafí reynzt meiri en búizt var við. Ef þá vanti
eitthvað á, segjast Geirsmenn tilbúnir til að gera
frekari tillögur um niðurskurð ríkisútgjalda.
Samkvæmt tillögum alþýðuflokksmanna yrði
tekjuskatturinn 7,5 milljörðum lægr^en fjárlög gera
ráð fyrir. Alþýðuflokksmenn hafa lagt fram tillögur
um samsvarandi niðurskurð á ríkisútgjöldum, og vakti
í þeim mest uppnám tillaga um skerðingu framlaga til
lánasjóðs námsmanna.
Geirsmenn og alþýðuflokksmenn hafa ekki verið
barnanna beztir við útfærslu báknsins, þegar þeir hafa
mátt ráða. Þó bera tillögur þeirra nú vott um á-
byrgðartilfínningu. Því ber að fagna og vinna að því að
knýja menn annarra flokka inn á braut niðurskurðar.
DAGBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. APRÍL 1980.
.........
Smyglbiskupinn
á ný i sviósljósi
V
r
Grisk-kaþólski erkibiskupinn
Hilarion Capucci birlisl skyndilega i
Teheran á dögunum i fvlgd með
þremur bandariskum prestum, sem
komnir voru til að syngja messu fyrir
gíslana í sendiráðinu.
Hilarion Capucci?
Margir minnast hans vegna
annarra atburða annars staðar. Í
júlilok 1974 kom hann akandi i
Benzinum sinum inn i Ísrael frá
l.ibanon. Hluti af söfnuði hans var
innan landamæra Líbanons. Þess
vegna létu israelsk yfirvöld af-
skiptalaus ferðalög hans yfir landa-
mærin'. Þetta var áður en skálmöld
byrjaði i l.ibanon af alvöru.
l.ögreglan hafði fengið vitneskju
um að biskup væri ekki allur þar sem
hann var séður. Hann var grunaður
um að luma á vopnum fyrir
skæruliða Al Fatah.
En biskupinn fór i gegn óáreittur
og ók beint heim til sín í Jerúsalem.
Bílinn skildi hann eftir á stæði fyrir
utan húsið og lögreglan gaf honum
stöðugt gætur. í I4daga kom biskup
ekki nálægt bíl sínum. 8. ágúst settist
karl undir stýri og ók í áttina að her-
numdu svæðunum á vestur-
hakkanum. Þá réðst lögreglan til
Hilarion Capucci erkibiskup sal i
fjögur ár i fangelsi í ísrael fyrir
vopnasmygl til skæruliða. Honum
skaul skyndilega upp í Teheran og
hitti gislana að máli.
Ferðamannagengi
fyrir ullariðnað
Ullariðnaðurinn á nú i vaxandi
erfiðleikumþ.trsem gengið hefur ekki
lækkað eða sigið nógu hratt til að
mæta þeim hækkunum, sem orðið
hafa hér innanlands á öllum frani-
leiðslukostnaði. Þetta er ekki ný
saga. Gengið er látið ráðast af stöðu
fiskiðnaðarins. Ef hann gengur
sæmilega, fá aðrar útflutningsgreinar
ekki bættar þær hækkanir, sem
næstum daglega verða á öllunt úl-
gjaldaliðum.
Það hafa kontið frant ýmsar
tillögur til úrbóta. Ein er sú, að skatt-
leggja sjávarútveginn í einhverri
mynd svo sem með sölu veiðileyfa.
Bætt staða fiskveiða hér á landi
vegna útfærslu landhelginnar mundi
þá ekki þrengja svo mjög að öðrum
útflutningi, t.d. ullariðnaðinum nú.
Sama má segja um skinnaiðnað, t.d.
útflutning á mokkakápum.
Ef erlendir togarar væru ennþá
hér i landhelgi við veiðar i stórum
stíl eins og áður, hefði orðið að
lækka gengið hraðar til að halda
fiskveiðunum gangandi. Þá væri
meira jafnvægi milli útflutnings-
greina, fiskveiða og annarra svo sem
á iðnaðarvörum.
Ferðamannagengi
Það verður vist nokkur bið á því,
að okkur takist að setja þær reglur,
sem halda eðlilegu jafnvægi á milli
útflutningsgreina. Meðan svo er
ekki, má benda á einhverja bráða-
birgðaúrlausn, eins og t d. þáað setja
útflutning á ullarvörum á ferða-
mannagengi. Þetta mundi í
framkvæmd vera 10% uppbót til
ullariðnaðarins og er líklega i raun
hæfilegur stuðningur til að halda
þessari nýju og raunar mjög athyglis-
verðu útflutningsgrein gangandi, auk
þess sem hún mundi vaxa eðlilega.
Að öðrum kosti stendur hún frammi
fyrir vaxandi vandræðum, ef bætt
staða fiskveiða heldur áfram að
skekkja skráningu á gengi.
Frjáls ferða-
mannagjaldeyrir
Fyrir stuttu voru settar nýjar
reglur um sölu á erlendum gjaldeyri.
Allt er þetta í átt til frjálsræðis en nú
er bönkunum sjálfum i vaxandi mæli
falin dagleg afgreiðsla, þannig að
opinberri skömmtun er nú að meslu
hætt.
Samt er gjaldeyrir til ferðalaga
ennþá háður takmörkunum. Þessu
ætti að hætta. Sölu á ferðamanna-
gjaldeyri ætti að gefa frjálsa og væri
það raunar stórt skref i átt til
raunhæfrar frjálshyggju, sem væri
þá á borði, en ekki bara i orði, eins
og oft vill nú verða.
Frjáls sala á ferðamannagjald-
eyri mun eitthvað auka sölu á
honum, sérstaklega í fyrstu. Þessu
ætti að mæta með auknum út-
flutningi. Þarna getur ullarvöruúl-
flutningurinn og raunar fleira komið
til. Ef útflutningur t.d. á ullarvörum
ogmokkakápum væri settur á ferða-
mannagengi, eins og lagt var til hér
að framan, mundi þessi útflutningur
vaxa hraðar, en ekki dragast saman,
eins og nú horfir.
Frelsi eða kreppa
Það er ekki hægt að tala um
kreppu hér á landi. Allir hafa at-
vinnu. Samt er um svokallað dulbúið
A „Að öðrum kosti stendur hún frammi
^ fyrir vaxandi vandræðum, ef bætt staða
fiskveiða heldur áfram að skekkja skráningu á
gengi.”