Dagblaðið - 30.04.1980, Side 2
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
2
/" 11 —............. ....
Krísuvíkurskótinn enn ónotaður:
Fangelsisvandann
mætti leysa þar
þar sem þeir eiga afplánun dómsins
alltaf yfir höfði sér. Hér er því um
augljóst réttlætismál að ræða.
Tilefni þessara vangaveltna minna
eru sjónvarpsfréttir af skólahúsnæði-
i Krísuvík. í það er búið að verja 5—
600 milljónum og það liggur undir
skemmdum meðan beðið er á-
kvörðunar um hvað gera skuli við
það.
Áhugamaður um fangelsismál
hringdi:
Öllum er Ijóst að fangelsi vantar á
íslandi. Það er alltaf yfirfullt í öllum
fangelsum landsins og oft langir
biðlistar þar fyrir utan.
Allir hljóta líka að sjá hvílikt
óréttlæti það leiðir af sér að ekki sé
til nægt fangelsispláss á landinu. Það
leiðir oft til þess, að menn verða að
bíða, jafnvel mánuðum saman, eftir
að geta afplánað dóm sinn. Á þeim
tíma getur margt breytzt hjá
mönnum. Þeir geta hafa eignazt
fjölskyldu og vilja byrja nýtt og
betra lif. Þá er þeim gert það ókleift
Krisuvíkurskóli.
Þar sem alveg hefur verið horfið
frá skólahaldi á þessum stað teldi ég
alveg tilvalið að breyta þessu
húsnæði í fangelsi og ekki þyrfti
miklu að breyta til að það gæti gegnt
þvi hlutverki.
Þetta hús gæti þannig komið í veg
fyrir að nota þyrfti þá teikningu að
fangelsi sem búin er að liggja á
teikniborði í 10—20 ár.
Meðþessumóti yrði tvennt gerl i
einu; að bjarga miklum verðmætum
frá skemmdum og að leysa stórt og
mikið þjóðfélagsvandamái.
Cripið simann
geridgóð
kaup
Smyrlll.
Koma eitur-
lyfjasmyglarar
hingaðmeð
Smyrli?
4337—5512 á Egilsslöðum skrifar:
,,Táp og fjör og frískir menn
finnasl hér á landi enn.” Það
sannaðist enn einu sinni hér á
dögunum þegar nokkrir lögreglu-
þjónar i höfuðborginni eltu lítinn og
áreiðanlega alsaklausan hund um
borgina þvera og endilanga.
Að vísu náðu þeir hundinum nteð
hjálp barna en hvað um það.
Hundurinn var sendur inn í eilífðina.
Finnst ykkur þetta ekki frækilegt af-
rek?
Ætli lögreglu og öðrum sem þjóna
málum hennar væri ekki nær að líta
betur eftir tvifætta skaðvaldinum,
sem flæðir yfir landið í þúsundatali
(t.d. á hverjum laugardegi
undanfarin ár með Smyrli).
Ég er anzi hrædd um að það sé
ekki skoðað vel niður í hornin á
öllum pokadruslunum, sem þeir eru
með og margir eru hissa á hve fljótt
öll þessi farartreki og fólk fer i
gegnum þennan svokallaða toll og þá
er tekið til við að „tæta” bæði yfir
vegi og vegleysur, jafnt gróið land og
ógróið (og þar erum við líka sek).
í þessum hópi er áreiðanlega
margur einstaklingur sem 99.99%
likur eru á að dreifi eiturlyfjum og
hlýtur því að gera þjóðinni meiri
skaða en lilill hundur sem 0.01%
likur eru á að sé' meðhundaæði.
Hví ekki að snúa sér að þessum
málum eitthvert árið sem ekki er búið
að ráðstafa? Það mætti nefna ár
lands og þjóðar eða eilthvað i þá
áttina.
Kreditkortin
í gang 1. júní
Gunnar B. Bæringsson fram-
kvæmdastjóri skrifar:
Svar Kreditkorts hf. til 1798-6857:
Vegna fyrirspurnar yðar um
hvenær einstaklingar geti byrjað að
nota kreditkort hérlendis skal það
upplýst að fyrstu kortin verða gefin
út í lok næsta mánaðar og er áætlað
að fyrsti úttektardagur verði 1. júni
næstkomandi.
Við getum tekið undir það að
mikið af þeim neikvæðu skrifum sem
átt hafa sér stað um kreditkort slafa
af þekkingarleysi. Þar hefur m.a.
verið rætt um hættu á því að
kreditkorti sé stolið og það misnotað,
að almenningur muni steypa sér í
miklar skuldir með notkun
kreditkorta og svo framvegis.
Samkvæmt reynslu EUROCARD er
þetta alrangt. Sannleikurinn er sá að
kreditkort hafa gefið mjög góða
raun, bæði fyrir einslaklinga og fyrir-
tæki, enda eru þau mjög þægilegt og
öruggt greiðslukerfi. Korthafi sem
verður fyrir þvi að korti hans séstolið
ber ekki ábyrgð á misnotkun sem á
sér stað með kortinu. Ábyrgðin hvílir
öll á kreditkortafélaginu, eða þvi
tryggingafélagi sem það hefur endur-
tryggt sig hjá. Hins vegar er slik
misnotkun mjög sjaldgæf þar sem
rithandarsýnishorn korthafa er
skrifað á kortið sjálft, og til viðbótar
er öllum aðildarfyrirtækjum án tafar
gert viðvart ef korti hefur verið stolið
oghætta er á misnotkun.
Það að almenningur geti steypt sér
Gagnrýni Eyjótfs Melsted:
Smáauglýsingar
BIAÐSINS
Þverholti11 sími 2 70 22
Opið til kl.1Ó í kvöld
Hver er „tantan”?
Þráinn Bertelsson hringdi og
kvaðst vilja gera fyrirspurn til Eyjólfs
Melsted tónlistargagnrýnanda vegna
gagnrýni hans í DB síðastliðinn
mánudag.
Gagnrýnin var um tónleika
Guðnýjar Guðmundsdóttur og
Philips Jenkins þar sem Beethoven-
sónata nr. 2 var á efnisskránni.
,,I þessari gagnrýni segir Eyjólfur
Melsted ákaflega merkilegan og for-
vitnilegan hlut: „Litleysið gerði það
að verkum, að mér fannst leikurinn
einna likast afslappaðri sunnudags-
síðdegisspilamennsku heima hjá
töntu gömlu.”
Maður er orðinn vanur alls konar
fullyrðingum i gagnrýni en nú langar
mig til að vita hver þessi gamla tanta
Eyjólfs er og hvers konar tónleikar
hafi verið þar þvi fólk er á einu máli
um að þessir tónleikar Guðnýjar og
Philips Jenkins hafi verið með
merkilegri tónleikum, er hafa verið á
boðstólum í vetur," sagði Þráinn.