Dagblaðið - 30.04.1980, Page 6
6
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
Hitchcock
genginn
Hrollvekjumeistarinn Alfred Hitch-
cock er látinn í Los Angeles áttræður
að aldri. Hitchcock var einn af meistur-
um kvikmyndagerðarinnar og frægur
fyrir kvikmyndir sem urðu til þess að
láta vatniö renna milli skinns og
hörunds áhorfenda. Hann leikstýrði
nær 60 kvikmyndum og þótti snillingur
að skapa spennu í myndum sínum.
Elísabet Englandsdrottning aðlaði
Hitchcock í fyrra. Hann starfaði
framan af ferli sínum i Bretlandi.
ATLI RUNAR
HALLDÓRSSOIV
Erlendar
fréttir
Nýr umboðsmaður okkar á Hólmavík
er:
Dagný Júlíusdóttir
Hafnarbraut 7. Sími95-3178.
Nýr umboðsmaður okkar í Hveragerði
er:
Pamela Morrison,
Kambahrauni 40. Sími99-4568.
Nýr umboðsmaður okkar á Hvolsvelli
er:
Arngrímur Svavarsson
Litiagerði 3. Sími99-5249.
BIAÐIÐ
Utanríkisráðuneytið óskar að ráða ritara til
starfa í utanríkisþjónustunni.
Krafist er góðrar kunnáttu í ensku og a.m.k. einu
öðru tungumáli auk góðrar vélritunarkunnáttu.
Eftir þjálfun í utanríkisráðuneytinu má gera ráð
fyrir að ritarinn verði sendur til starfa í sendiráð-
um íslands erlendis.
Eiginhandarumsóknir með upplýsingum um
aldur, menntun og fyrri störf, sendist utanríkis-
ráðuneytinu, Hverfisgötu ll5, Reykjavík, fyrir
10. maí 1980.
Utanríkisráðuneytið.
Muskie leysti
Vanceafhólmi
Carter Bandaríkjaforseti kynnti í
gær nýjan utanríkisráðherra stjórnar
sinnar: Edmund Muskie öldungar-
deildarþingmann frá Maine. Muskie
tekur við embætti af Cyrus Vance
sem sagði af sér vegna djúpstæðs
ágreinings hans annars vegar og
Carters og Brzezinskis öryggismála-
ráðgjafa forsetans hins vegar.
Útnefning Muskies kom mjög á óvart
í Bandaríkjunum. Hann hefur
starfað að utanríkismálum og efna-
hagsmálum á þingi og sóttist eftir út-
nefningu demókrata sem forseta-
frambjóðandi árið 1972. Hann dró
sig síðar til baka úr kosningabarátt-
unni. Muskie sagðist í gær ætla að
leggja sitt af mörkum til að leysa
gísladeiluna við írani á friðsamlegan
hátt. Hann neitaði að svara þvi hver
afstaöa hans væri til misheppnaðs
herleiðangurs til írans á föstudaginn.
Bandarískir þingmenn búast við að
samskipti Carters og þingsins muni
ganga greiðar fyrir sig í kjölfar þess
að virtur og reyndur þingmaður á
borð við Edward Muskie er setztur í
stól utanríkisráðherra. Muskie er
sagður fylgja sveigjanlegri utanríkis-
stefnú líkt og Vance — andstæðri
harðlínustefnu Brzezinskis öryggis-
málaráðgjafa.
Edmund Muskie 66 ára öldunga-
deildarþingmaður frá Maine. Segist
vilja leysa gíslamálið á friðsamlegan
hátt.
Norðmenn íhuga að banna tóbaksreykingar á vinnustað,
í veitingahúsum og einkabflum:
Stefna tekin á
reyklaust land
■
;
Norskir reykingamenn hafa ástæðu
til að hafa áhyggjur af fleiru en heilsu-
fari sinu. Heilbrigðisyfirvöld- þar í
landi hafa nefnilega gefið fyllilega í
skyn að það sé aöeins tímaspursmál
hvenær reykingar verði bannaðar á
mörgum stöðum þar sem þær eru nú
leyfðar og þykja jafnvel sjálfsagður
hlutur. Reykingabann á vinnustað,
veitingahúsum, opinberum skrif-
stofum', biðstofum, skólum, sjúkrahús-
um, neðanjarðarjárnbrautarstöðvum, í
almenningsvögnum, lestum og viðar.
Sums staðar verður gert ráð fyrir að
byggðir séu sérstakir klefar eða salir
fyrir reykingafólk. Annars staðar tekur
algert reykingabann gildi. Þá er í
athugun að banna reykingar í einkabíl-
um. Það mun einnig vera í athugun að
banna reykingar í bilum í Finnlandi,
Kenya og Vestur-Þýzkalandi, auk
nokkurra ríkja Bandaríkjanna. Aðal-
röksemdin er sú að reykingar dragi
athygli ökumanns frá umferöinni.
-* Arne Hauknes, starfsmaður nefndar
á vegum norska ríkisins, sem kannar
skaðsemi tóbaksreykinga, segir við
norska Dagblaöið: „Ég er fullviss um
að almenn afstaða okkar til reykinga
mun breytast mjög mikið á allra næstu
árum. Eftir því sem þeim fjölgar sem
ekki reykja eykst fylgi við þá skoðun
að reykingar séu óþolandi. ”
TO YOTASALURÍNN
Nýbýlavegi8 (íportínu). \ Opið
,aug*'daga
AUGLYSIR:
Toyota Corona Mark II '77, ekinn 46 þús., verð 4,4
millj.
Toyota Cressida '78, 4ra dyra, sjálfskiptur, ekinn
70 þús., verð 5,1 millj.
Austin Mini '78, ekinn 20 þús., verð 2,9 millj.
Ford Cortina 1600 XL '74, ekinn 52 þús., verð 2,5
millj.
Mercury Comet '73, 4ra dyra, sjélfskiptur, ekinn
110 þús., verð 2,8 millj.
TOYOTASALURiNN
NÝBÝLA VEGI8. KÓP. SÍMI44144.
Rosalynn á ferö
Carter Bandaríkjaforseti lýsti yfir
fyrir löngu að hann myndi ekki taka
beinan þátt í kosningabaráttunni
vegna forkosninga demókrata fyrr en
gíslamálið í íran væri leyst. Hann
hefur því ekki látið sjá sig meðal hátt-
virtra kjósenda í þeim rikjum sem
forkosningar hafa verið, eða verða á
næstunni. Carter lætur nægja að
senda Mondale varaforseta og Rosa-
lynn húsfrú sína til að boða kjós-
endum demókrata fagnaðarerindi
sitt. Þetta fyrirkomulag dregur heil-
mikið úr kostnaði við lífvarðarhald
forsetaembættisins. En lífverðirnir
eru ekki hrifnir af uppátæki Carters.
Kaupið hjá þeim lækkaði þar sem
yfirvinna dróst saman. Carter heldur
sig jú að mestu í Hvita húsinu. Til að
bæta lífvörðunum upp tekjutapið
ákvað leyniþjónustan að senda þá í
framboösferðir með Rosalynn.
NEWSWEEK greinir lika frá þvi
að starfslið í Hvía húsinu, sem fór i
framboðssnatt fyrir Carter, hafi fyrst
þurft að borga sjálft fæði og
húsnæði í ferðunum. Þótti fólkinu
kaupið ekki svo hátt að það þyldi
slíkar álögur. Kosningastjóm Carters
og Mondales féllst á sjónarmið
fólksinsog borgarnúbrúsann.