Dagblaðið - 30.04.1980, Blaðsíða 7
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
I
7
Portisch-Spassky:
2 skákir í
viðbót
Stórmeistararnir Portisch og Spassky
verða að tefla tvær einvígisskákir i við-
bót i Mexíkó til að fá úr skorið hvor
skuli halda áfram í keppninni um
heimsmeistaratignina í skák. Portisch
bauð jafntefli í 18. leik í síðustu skák-
inni þar sem hann sá sér ekki vinnings-
leik á borði þegar Spassky beitti fyrir
sig indverskri vörn. Ef leikar standa
jafnir eftir næstu tvær skákir mun
Portisch samt vera útnefndur sigur-
vegari í einvíginu þar sem hann vann
fyrstu skákina og hafði þá svart.
1. maíkaffi
Sva/anna
Hið árlega Svölukaffi verður lagað í Súlnasal Hótel Sögu
fimmtudaginn 1. maí ogdrukkið frá kl. 14.00. Krásum hlaðið
borð — glœsilegt skyndihappdrœtti og tízkusýning sem Svöl-
urnar annast sjálfar kl. 14.30 og 15.30.
Við vinnum að velferð þeirra sem minna mega sín í þjóðfélag-
inu. Komið og drekkið Svölukaffi og styrkið okkur með því til
að styrkja aðra. Svölukaffi svíkur engan.
Svö/urnar, fé/ag fyrrverandi og
... núverandi f/ugfreyja
Flugherinn ílran sér skrattann íhverju horni:
Öskrandi herþotur
æddu yfir Teheran
— þóttust hafa séð óþekkt f lygildi á lofti og fylltu borgarbúa skelf ingu
Teheranbúar fylltust skelfingu
þegar að minnsta kosti fjórar f-4
Phantom herþotur úr flugher írans
æddu lágt yfir borgina í gær með til-
heyrandi hávaða og látum. Fólk þusti
út úr húsum sínum og hélt að þot-
urnar tilheyrðu erlendum óvinaher
sem ráizt hefði inn i íran. Talsmenn
flughersins gáfu út yftrlýsingu og
sögðu að ekkert væri að óttast. Flug-
vélarnar hafi aðeins verið í eftirlits-
flugi og ekki orðið varar við neitt
óvenjulegt. Sagt var að þotumar hafi
verið sendar á loft eftir að íranir
þóttust verða varir við „óþekkt
flygildi” yfir Amajor-herstöðinni í
Norðvestur-Teheran. Vaxandi tauga-
veiklunar gætir í iranska flughernum
eftir innrás Bandarikjanna í lok síð-
ustu viku þegar misheppnuð tilraun
var gerð til að frelsa gíslana i sendi-
ráðinu í Teheran. Flugvélar banda-
riska flughersins komust langt inn í
íran án þess að flugherinn yröi þeirra
var.
Þá hittust íranskar og bandarísk-
ar orrustuþotur í lofti utan við
strendur Oman í gær. íranir sögðu að
skotið hafi verið á írönsku þoturnar
en þær hrakið bandarisku þoturnar á
braut. Þessu var hafnað sem rugli í
Washington.
Frá Kúrdahéruðunum í íran berast
fréttir um að vopnahlé hafi tekið
gildi. Þar hafa bardagai geisað í
mörgum bæjum og borgum i tvær
vikur og á annað þúsund manns
fallið samkvæmt fréttum fráKúrdist-
an.
Carter um líksýninguna
íTeheran:
„Viöbjóður”
Carter forseti Bandaríkjanna sagði á
fréttamannafundi í Hvíta húsinu i nótt
að hann hygðist ekki biðja þjóð sína
afsökunar á að hafa efnt til misheppn-
aðs herleiðangurs inn í íran. Hann
fordæmdi írani fyrir að sýna lík banda-
risku hermannanna sem féllu í innrás-
inni á föstudaginn opinberlega á götu í
Teheran og sagði það „viðbjóð sem
hryðjuverkamenn og nokkrir opinberir
fulltrúar írans bera ábyrgð á.” Hann
sagði írani hafa orðið sér til skammar
með líksýningunni.
Vorið er komið i Osló. Miðbænnn lifnar eins og vera ber. Veitingamenn tögnuðu
fyrsta raunverulega vordeginum með þvi að setja borð og stóla út á gangstétt á
Karli Jóhann, aðalgötunni i borginni. Og þar sátu broshýrir Norsarar og teyguðu
öl til að veita dálitilli sólarbirtu inn I sálarhróið Ifka. Þeir settu það ekki fyrir sig
þó að ölið hafi hækkað á dögunum. Nú þurfa þeir ölþyrstu að borga 17 krónur
(1.530 isl. kr.) fyrir hálfs Ifters krús af öli.
ERUM FLUTT/R!
Bjóðum áfram í miklu úrvali gardínubrautir fyrir einfaldar og tvö-
faldar gardínur. Kappar i 8 mismunandi litum og viðartegundum.
Einnig útskornir trékappar i barokk-stíl. Ömmu-stengur. Sjáum um
mælingar og uppsetningar að ósk yðar. Góð aðkeyrsla. Næg bila-
stæði.
f? Gardínubrautirhf
Skemmuvegi 10. S. 77900
Kópavogi
Kínverjar
finna nýjar
olíulindir
6 nýjar og gjöfular olíulindir hafa
fundizt við stærsta olíuvinnslusvæði
Kína i Daqing i norðausturhluta
landsins. Við það eykst þekkt fram-
leiðslugeta olíusvæðisins um rúmlega
13% að sögn fréttastofunnar Nýja
Kína i morgun. Nýju lindirnar eru
taldar munu gefa af sér þrjár mUlj-
ónir tonna af oliu árlega. Byrjað var
að vinna við .olíuframleiðslu á
Daqing-svæðinu árið 1959 og frá þvi
árið 1976 eru árlega framleidd þar 50
milljón tonn af olíu. Það er um helm-
ingur aUrar olíuframleiðslu í Kína.
Þá berast fréttir um að frönsku
fyrirtækin ELF og TOTAL muni
vera nálægt því að semja við Kínverja
um réttindi til að kanna og bora eftir
olíu á landgrunni Kina. Ef af samn-
ingi verður er það sá fyrsti sinnar
tegundar við Kína. Japanska olíu-
félagið JNOC er sömuleiðis á biðils-
buxum í Peking og sækist eftir rétt-
indum fil olíuborana í sjó á kinverska
landgrunninu. Sagt er að fyrirtækið
hafi þegar kannað væntanlegt
borunarsvæði. Sasaki iðnaðar- og
viðskiptaráðherra Japans sagði i Pek-
ing i gær að Japan hefði ennfremur
gert samning um samvinnu ríkjanna
við olíuvinnslu á landi Kína. Búizt er
við að Kína auglýsi eftir tUboðum i
olíuvinnslu á sjó við strendur lands-
ins nú í vor.
ATLI RUNAR
HALLDORSSON
Holland:
Beatrix
verður
drottning
Beatrix krónprinsessa i Hollandi sezt
í dag í drottningarsætið. Júlíana
Hollandsdrottning móðir hennar
afsalar sér völdum eftir 31 árs stjórn.
Prinsessan, sem er 42 ára gömul,
mun verða krýnd í dag við hátíölega
athöfn. Miklar öryggisráðstafanir
verða gerðar í tengslum við athöfnina
af ótta við að hermdarverkamenn geri
einhvern óskunda af sér.
Erlendar
fréttir
REUTER