Dagblaðið - 30.04.1980, Qupperneq 8
8
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
1. MAÍ-KAFFI
Við höfum 1. maí-kaffi að Hótel Heklu
v/Rauðarárstíg (salur í kjallara) kl. 16—18 þann
1. maí.
Þar gefst gott tækifæri til að rabba saman um
baráttu dagsins, kröfur og kjör, og hvaða pólitik
þarf að standa að baki þeirri baráttu.
Þar verður söngur, ávörp og kaffi.
Sjáumst að Hótel Heklu Eik (m-l) og KFÍ/ML
Varahlutir
Útvegum með stuttum fyrirvara varahluti í allar
tegundir bandarískra bifreiða og vinnuvéla.
Revnið viðskiptin. Sími 85583.
Klukkufeii sf«
Pósihólf 4393 - 124 Reykjovik
Húsnæði til sölu
1.—11. hæð Skúlatúni 6. Til greina kemur
að selja húseignina í einingum.
Uppl. í síma 30303 allan daginn.
Auglýsing
um aðalskoðun bifreiða í lögsagnar-
umdæmi Reykjavíkur í maímánuði
1980.
Föstudagur 2. mal R-25001 til R-25500
Mánudagur 5. mai R-25501 til R-26000
Þriðjudagur 6. mai R-26001 til R-26500
Miðvikudagur 7. maí R-26501 til R-27000
Fimmtudagur 8. mai R-27001 til R-27500
Föstudagur 9. mai R-27501 til R-28000
Mánudagur 12. mal R-28001 til R-28500
Þriðjudagur 13. mai R-28501 til R-29000
Miövikudagur 14. mai R-29001 til R-29500
Föstudagur 16. mai R-29501 til R-30000
Mánudagur 19. mai R-30001 til R-30500
Þriðjudagur 20. mai R-30501 til R-31000
Miðvikudagur 21. mai R-31001 til R-31500
Fimmtudagur 22. mai R-31501 til R-32000
Föstudagur 23. mai R-32001 til R-32500
Þriðjudagur 27. mai R-32501 til R-33000
Miðvikudagur 28. mai R-33001 til R-33500
Fimmtudagur 29. mai R-33501 til R-34000
Föstudagur 30. mai R-34001 til R-34500
Bifreiðaeigendum ber að koma með bifreiðar
sínar til bifreiðaeftirlits ríkisins, Bíldshöfða 8, og
verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga
kl. 08:00 til 16:00.
Festivagnar, tengivagnar og farþegabyrgi skulu
fylgja bifreiðum til skoðunar.
Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja
fram fullgild ökuskírteini. Sýna ber skilríki fyrir
því að bifreiðaskattur sé greiddur og vátrygging
fyrir hverja bifreið sé í gildi.
Athygli skal vakin á því að skráningarnúmer
skulu vera vel læsileg.
Samkvæmt gildandi reglum skal vera gjaldmælir
í leigubifreiðum sem sýnir rétt ökugjald á hverj-
um tíma. Á leigubifreiðum til mannflutninga, allt
að 8 farþegum, skal vera sérstakt merki með bók-
stafnum L.
Vanræki einhver að koma bifreið sinni til
skoðunar á auglýstum tíma verður hann látinn
sæta sektum samkvæmt umferðarlögum og bif-
reiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst.
Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum.
Lögreglustjórinn í Reykjavfk.
28. april 1980
Sigurjón Sigurðsson.
Útlenda sælgætið ógnar íslenzkri f ramleiðslu:
„GEFUMST EKKI
UPP FYRR EN í
FULLA HNEFANA”
—segir Hallgrímur Bjömsson hjá Nda og Síríus hf.
„Við munum ekki gefast upp fyrr
en í fulla hnefana og munum reyna
að halda því starfsfólki sem við
höfum,” sagði Hallgrímur
Björnsson, frkvstj. Nóa og Síríus.
Við komum þar við í gær og ræddum
við starfsfólk.
Eins og DB sagði frá í gær, er þeg-
ar farið að segja upp starfsfólki í kex-
og sælgætisverksmiðjum vegna þes
að innflutningur á kexi og sælgæti
var gefinn frjáls 1. apríl. Einnig voru
tollar afnumdir. Nú streyma inn í
Bragi Guðmundsson vann I Freyju I 20 ár og núna 1 ár hjá Nóa og Sirlusi. Hann
var bjartsýnn eins og flest það fólk sem við ræddum við hjá fyrirtxkinu. Vonaði
það bezta, að ekkert yrði úr uppsögnum. -DB-myndir Bjarnleifur.
Hallgrímur Björnsson sagði að inn-
flutta sælgætið yrði selt á sérstöku
kynningarverði og ógnar það að sjálf-
fiögðu islenzku framleiðslunni.
landið fleiri hundruð tonn af útlendu
sælgæti.
Hallgrímur sagði að vissulega yrði
hörð samkeppni hjá íslenzkum
framleiðendum við innflutningsaðila.
Þótt íslenzkir framleiðendur hefðu
haft 10 ára aðlögunartíma að EFTA
þá gæfi það augaleið að enginn
vandi væri fyrir sælgætis-
framleiðendur úti i heimi að metta
jafnlítinn markað og hér væri. Þar
væri mikið meiri vélvæðing en hér.
Þar að auki væru þeir með virðis-
aukaskatt, en við hér á íslandi með
söluskatt, sem legðist á marga þætti
sem snerta sælgætisframleiðslu. T.d.
legðist hann á þjónustu, orku og
umbúðir. Þar að auki væru sum hrá-
efnin tolluð, eins og t.d. rúsinur.
Ofan á allt kæmi svo verðbólgan.
Einnig kæmi svo inn í spilið að
innflytjendur seldu á sérstöku
kynningarverði og þá aðeins til að
byrja með.
Nýlega var haldinn fundur í
Félagi íslenzkra iðnrekenda. Mun
félagið reyna að fá bætta aðstöðu
sælgætis- og kexverksmiðja.
Það starfsfólk i verksmiðjunni
sem DB ræddi við var yfirleitt
nokkuð bjartsýnt áTramtíðina. Vildi
meina að þegar nýjabrumið færi af
útlenda sælgætinu yrði aftur keypt
hið islenzka. „Það er lika miklu
betra,” sagði einn starfsmaður í
samtali við DB. -EVI.
„HEFUR ALVARLEG AHRIF
A AFKOMU VERKAFÓLKS”
—segir Bjami Jakobsson f ormaður Iðju
„Þessi verulegi samdráttur hjá
sælgætis- og kexverksmiðjunum hér
vegna frjáls innflutnings hefur að
sjálfsögðu alvarleg áhrif á afkomu
hjá verkafólki. Kexverksmiðjan Frón
hefur þegar dregið smátt og smátt
úr framleiðslunni og kexverksmiðjan
Holt hefur dregið saman seglin um
helming,” sagði Bjarni Jakobsson,
formaður Iðju, félags verk-
smiðjufólks.
Hann bætti því við, að hann hefði
haft tal af nokkrum framleiðendum
kex og sælgætis. Margir ætluðu að
flýta sumarleyfum og sjá svo til um
framvindu mála. Þeir hefðu einnig
sagt sér að kaupmenn gætu ekki
greitt fyrir íslenzka sælgætið. Þar að
auki væru allar hillur fullar af út-
lendu sælgæti og hið íslenzka kæmist
ekkifyrir. -EVI.
Einar Garibaldason verkstjóri og
Alexandur Chelbat (arabiskur að
uppruna) ræddu um islenzka sælgætið.
Þeir voru sammála um að nýjabrumið
fxri af útlenda sxlgætinu og menn
færu þá aftur að kaupa það fslenzka.
Það væri líka miklu bragðbetra.
Þorskveiðibann norðan og austan
— fráogmeð6. maí
Sjávarútvegsráðuneytið hefur
ákveðið að banna þorskveiðar í net frá
og með hádegi 6. mai næstkomandi.
Bannið gildir til og með 21. maí næst-
komandi. Bannið gildir fyrir Vest-
fjöröum, Norðurlandi og Austurlandi.
Áður höfðu veiðar í þorskanet verið
bannaðar sunnanlands og vestan frá og
með 30. apríl til 21. maí
næstkomandi.
Ennfremur hefur skipum, sem
stunduðu loðnuveiðar á síðastliðinni
loðnuvertíð verið bannð að stunda
veiðar í þorskanet frá og með hádegi 6.
maí. Það bann gildir til 16. ágúst næst-
komandi.
-ÓG.