Dagblaðið - 30.04.1980, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
9
ÍSLAND MED ÁTTUNDU
HÆSTU ÞJÓÐARTEKJUR
— hærrí en Bandaríkin en langt á eftir Sviss sem er í fyrsta sæti
ísland hefur áttundu hæstu
þjóðartekjur i heimi, miðað við
skýrslu Efnahags- og framfara-
stofnunarinnar, OECD. Kemur þetta
fram í frétt í norska Dagblaðinu,
sem byggir hana á heimildum frá
París og Los Angeles.
Ekki er þó átt hér við þær tekjur,
sem hver þegn fær i sinn vasa til eigin
ráðstöfunar heldur er þarna um að
ræða heildar þjóðartekjur eða
þjóðarframleiðslu deilt með ibúa-
fjölda. Því má siðan deila niður í
einkaneyzlu, samneyzlu á vegum hins
opinbera og fjárfestingar.
f hinni norsku frétt kemur ekki
fram hvort miðað er við árið 1979
eða 1978. Sviss er talið tekjuhæsta
land heimsins og Bandarikin eru i
næstasætiáeftir Íslandi.
Listinn yfir níu tekjuhæstu
þjóðirnar er annars þannig: Sviss
67.250 n.kr. á hvern einstakling
(jafnvirði 6.061 milljón íslenzkra
króna á núverandi gengi), Danmörk
54.750 n.kr. (4.935 millj. isl. króna),
Svíþjóð 52.750 n.kr. (4.754 millj. ísl.
króna), Vestur-Þýzkaland 52.100
n.kr., Noregur og Belgía með 49.250
n.kr. Luxemburg er síðan i sjöunda
sæti með 49 þús. norskar krónur
Oafnvirði 4.416 millj. ísl. kr.), þá
ísland með 48.850 n.kr. og í níunda
sæti á lista OECD eru Bandaríkin
með 48.300 n.kr., sem er jafnvirði
4.353 milljóna íslenzkra króna.
Vegna þess að ekki kemur fram
hvenær tafla þessi er gerð er vara-
samt að taka hana of bókstaflega, og
þá sérstaklega I sambandi við ísland
þar sem gengisbreytingar eru örar.
Sé taflan um þjóðartekjur á íbúa
tekin rétt áður en gengi á islenzkum
gjaldmiðli hefur verið breytt er
samanburðurinn að öðru jöfnu hag-
stæður fyrii okkur en óhagstæðari ef
hann er gerður rétt eftir fall krónunn-
ar.
Einhverjum má þó vera huggun í
því að háar þjóðartekjur á hvern íbúa
ættu fremur en ekki að „auka veg
landsins” á alþjóðavettvangi.
Einkum þar sem vinnutíma á bak við
umræddar lekjur er að engu getið um
leið.
-ÓC».
„Aðgerðaleysi þingsins í
vegamálum jaðrar við glæp”
— segir í bréfi FÍB til þingmanna, þar sem þeir eru krafðir skýlausra svara um afstöðu þeirra í vegamálum
„Aðgerðaleysi Alþingis og þing-
manna í vegamálum jaðrar við glæp
gagnvart íslenzku þjóðfélagi,” segir
m.a. í kjarnyrtu bréfi Félags íslenzkra
bifreiðaeigenda til allra alþingismanna.
Segir þar einnig að langlundargerð
bifreiðaeigenda sé þrotið og þeir
hljóti nú að krefja þingmenn sína
skýlausra svara um persónulega af-
stöðu þeirra til vegamála og að „hver
einstakur alþingismaður slíti af sér
flokksviðjar ef nauðsyn ber til og vinni
að framgangi vegaframkvæmda sam-
kvæmt sinni persónulegu sannfæringu
og bæti þar með fyrir iðgerðaleysi
undanfarinna ára.”
í bréfinu, sem er undirritað af Haf-
steini Vilhelmssyni, framkvæmdastjóra
FÍB, segir einnig:
„Á undanförnum árum hafa
nokkrar umræður orðið um vegamál
innan stjórnmálaflokkanna. Menn
hafa loks komið auga á hið makalausa
ástand sem vegakerfið er í og því talið
vænlegt til atkvæðaveiða að lofa stór-
um hlutum i vegamálum.Hafaþví flest-
ir stjórnmálaflokkar tekið vegamál
upp á arma sína og gel'ið þeim bás i
stefnuskrám sínum.
Miðað við stefnuskrár flokkanna
ælti að vera mikill meirihluti á Alþingi
fyrir stórkostlegum framkvæmdum í
vegamálum.
Staðreyndin er hins vegar sú, að
ekkert skeður og sjáanlega mun ekkert
skeinæstu framtíð.”
FÍB leggur síðan ellefu ákveðnar
spurningar fyrir þingmenn um afstöðu
þcirra til vegamála og krefur þá um
rökstudd svör fyrir 15. mai næst-
komandi. Fyrsta spurningin varðar af-
stöðu þingmanna til framkominnar
þingsályktunartillögu um niðurskurð
vegaáætlunar, en aðrar fjalla um af-
stöðu þeirra til ýmissa þátta vega-
mála, gildandi reglna og viðtekinna
venja í þeim málum. FÍB hyggst birta
svör þingmanna. -ÓV.
Vigdís efst hjá
starfsfólki toll-
stjóra
Starfsfólk áskrifstofu tollstjór-
ans í Reykjavík og Tollgæzlunni
efndi til sameiginlegrar skoðana-
könnunar eða prófkjörs vegna
forsetakosninganna í sumar.
Úrslit urðu þau að Albert
Guðmundsson hlaut 19 atkvæði,
Guðlaugur Þorvaldsson 26, Pétur
Thorsteinsson 16, Rögnvaldur
Pálsson I og Vigdís Finnboga-
dóttir 31 atkvæði. Auðir seðlar
voru 3.
-A.St.
Vigdís og
Albert efst
Starlslólk Framleiðslueftirlits
sjávarafurða i Nóaiúni 17 i
Reykjavik, efndi til skoðana-
könnunar um fylgi forsetafram-
bjóðenda. Úrslit urðu þessi:
Albert
Guðlaugur
Pétur
Rögnvaldur
Vigdís
atkv.
8 atkvæði
7 atkvæði
1 atkvæði
I atkvæði
8 atkvæði
Ógildur seðill var einn.
Samtals tóku 25 þátt í skoðana-
könnuninni.
-ÓV.
Albert efstur í
Þórscafé
49 al 63 slai Ismounuiu i Þois-
café efndu lil skoðanakönnunar
um fylgi forsetaframbjóðend-
anna. Atkvæði
féllu þamng:
Albert
Guðlaugur
Vigdis
Péltir
Rögnvaldur
i þanmg:
IS alkvæði
i.i alkvæði
II atkvæði
5 alkvæði
' tikvæði
Eitt atkvæði var ógilt. Þeir
fjórtán starfsmenn, sem ekki
tóku þátt í skoðanakönnuninni,
voru ekki við vinnu þegar hún fór
fram.
NU VERÐUR LEIKIÐ ÞAR TIL URSLIT FAST!
UTVEGSBANKI
ÍSLANDS
Reykjavikurvegi 32 — I
Alhliða bankaviðskipti
SPARISJÓÐUR
HAFNARFJARÐAR
Strandgötu 8-10 — Sími 54000
Reykjavikurvegi 66 — Sími 51515
HAUKAR LEIKA í PUMA
Sportvöruverzlun
INGÓLFS ÓSKARSSONAR
Klapparstig 44, sími 11783
REIKNISTOFA
HAFNARFJARÐAR
Sími 54400 Reykjavikurvegi 60 —
i Simi 54344
EFNAGERÐIN
VALUR
Dalshrauni 11. — Sími 53866
LÆKJARKOT
Lækjargötu — Sími 50449
ALMENNAR
TRYGGINGAR
DUNA
Siðumúla 23 - Sími 84200
SAMVINNUBANKINN
Strandgötu 33 — Simi 53933
EINAR TH:
MATHIESEN
Dalshrauni 5 — Simi 51888
BÍLASTÖÐ
HAFNARFJARÐAR
Simi 51666
SENDIBÍLASTÖÐ
HAFNARFJARÐAR
Sími 51111 — Simsvari eftir kl. 7.
VELSMIÐJA
HAFNARFJARÐAR
Sími 50145
VELAVERKSTÆÐI
Jóhanns Ólafssonar hf.
Simi 52811
Urslhaleikurínn
í bikarkeppni HSÍ
á milli Hauka og KR
verður í kvöld ki. 20
í Höllinni hvort sem
þið trúið því eða ekki.
Rútuferðir verða frá Haukahúsinu kl. 19 og tH baka að leik loknum
Haukar, fjöimennið á leikinn og hvetjið lið ykkar ti! sigurs.