Dagblaðið - 30.04.1980, Qupperneq 17
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
— Helmingur allra f ramleiddra mynda í Japan er klámmyndir
Síðari hluta aprílmánaðar verður
frumsýnd hér í Tokyo myndin Kage-
musha eða Skuggahermaðurinn, sem
Akura Kurosawa leikstýrir. Margir
bíða með óþreyju eftir frumsýningar-
deginum því flestir telja að Kurosawa
sé með kvikmyndalegt listaverk í
höndunum, eins og svo oft áður.
Þetta er dýrasta myndin sem fram-
leidd hefur verið í Japan og búist er
við að hún verði einnig sú fyrsta sem
muni skila umtalsverðum tekjum
utan Japan. En það er ekki hægt að
segja að kvikmyndaiðnaðurinn hér sé
eins gróskumikill og Kagemusha
bendir til.
Á undanförnum árum hefur veldi
japanskra kvikmyndaframleiðenda
hnignað ört og allt bendir til að sú
þróun muni halda áfram. Árið 1979
voru framleiddar 326 japanskar
myndir og sl. ár voru þaer álíka
margar, eða 331. Þar af framleiddu
stóru kvikmyndafyrirtaekin SHO-
CHIKU, TOHO og TOHEI einn
þriðja hluta myndanna. Þess má geta
að árið 1958 náði framleiðslan há-
punkti en þá voru framleiddar 516.
myndir.
Stór vandamál
Kvikmyndaiðnaðurinn í Japan á
við tvö stór vandamál að glima. í
fyrsta lagi fjármögnun. Peninga-
stofnanir og einkaaðilar eru orðnir
ófáanlegir til að leggja fram fé nema
tryggt sé að þeir fái það vel ávaxtað
til baka. Þetta hefur orsakað flóð
klámmynda, sem hefur verið talin
arðbær og örugg fjárfesting. Síðast-
liðið ár var ástandið svo svart að
helmingur allra framleiddra jap-
anskra kvikmynda var klámmyndir.
Japönsk yfirvöld veita styrki til kvik-
myndagerðarmanna en þeir eru
smánarlega lágir og háðir mörgum
annmörkum. Til dæmis fær enginn
styrk fyrr en myndin er fullgerð og
framleiðendur mega ekki sýna neinn
pólitískan lit eða nota í myndum
sínum hluti sem gætu talist auglýsing
fyrir utanaðkomandi aðila. Kvik-
myndagerðarmenn kvarta undan
stjórnmálaleiðtogum sem þeir segja
að hafi ekki séð kvikmyndir um ára-
raðir. Þeir líti á kvikmyndaiðnaðinn
eingöngu út frá peningalegu sjónar-
miði en gleymi eða loki augunum
fyrir þjóðfélags- og menningarlegu
þáttunum.
30 milljón
sjónvarpstæki
Annað mesta vandamálið er sjón-
Auglýsingaspjald fyrir teiknimyndina
Galaxy Express 999.
Hér sést Kurosawa útskýra eitt atriðið i nýjustu mynd sinni, Kagemusha.
varpið. Hér eru skráð um 30 milljón
sjónvarpstæki og vegna þess hvernig
tækin eru skráð er þetta væglega
áætluð tala. Kvikmyndir eru vinsælt
sjónvarpsefni og birtast oft á skján-
um aðeins 6 mánuðum eftir að hafa
verið settar í almenna dreifingu í
kvikmyndahúsin. Eins hafa stóru
kvikmyndafyrirtækin farið i æ rikari
mæli út í framleiðslu sjónvarpskvik-
mynda, sem eru miklu öruggari við-
skipti. Síðastliðið ár hefur þessi
framleiðsla aukist gífurlega á kostn-
að kvikmyndagerðar fyrir almenna
dreifingu.
Æ færri Japanir fara á bíó ár
hvert. í fyrra féll aðsóknin um eina
milljón og munar nú um minna.
Þetta hefur svo orsakað hærra miða-
verð og kostar nú um 2200 ísl. kr. á
nýjar myndir. Hætt er við að hér sé
kominn vítahringur sem erfitt reynist
að rjúfa. Eins fer kvikmyndahúsum
fækkandi þótt þau séu enn talin um
2400.
Teiknimynd
um ísland
Eins og áður sagði er helmingur
allra framleiddra mynda hér í Japan
klámmyndir. En hvað eru þá hin 50
prósentin. Teiknimyndir eru gífur-
lega vinsælar og eftir teiknimyndina
Space Ship Yamamoto, sem náði
mikilli útbreiðslu fyrir nokkrum ár-
um (var m.a. sýnd á íslandi), jókst
fjöldi þeirra gífurlega. Ein þeirra,
Eldfuglinn, 'er meira að segja látin
gerast að hluta til á íslandi þótt aug-
sýnilegt sé að höfundurinn hefur lítið
vitað meira um landið en nafnið eitt.
Fram hafa komið teiknimyndasyrpur
með sömu sö^uhetjunni, sem hafa
náð miklum vinsældum meðal yngri
kynslóðarinnar. Og; að síðustu eru
það ýmsar gerðir kvikmynda eins og
gamanmyndir, Samurai myndir og
væmnar ástarmyndir.
Hvað er til bóta?
En hvað á kvikmyndaiðnaðurinn
að gera til að halda sér á floti? Æ
fleiri fyrirtæki reyna að gera kvik-
myndir sem selja mætti utan Japans
eða framleiða myndir í samvinnu við
erlenda aðila. Til dæmis keypti
Twenty Century Fox sýningarréttinn
á Kagemusha utan Japans, þó aðal-
lega vegna tilmæla þeirra Francis
Ford Coppola og George Lucas sem
eru einlægir aðdáendur Kurosawa.
Núna eru í undirbúningi 2 stórmyndir
fyrir alþjóðlegan markað. Sú fyrri
fjallar um striðið milli Japana og
Rússa 1904 sem Toshio Matsuda leik-
stýrir. Hot úlx fjallar aftur á móti
um Jim Thomson, eða silkikónginn
eins og hann var kallaður. Thomson
týndist í frumskógum Malaysíu fyrir
13 árum.
En þurfa Japanir að örvænta? Þeir
eiga marga unga og efnilega kvik-
myndagerðarmenn en ef tilraunir
þeirra til að gera þjóðlegar og list-
rænar myndir eru kæfðar í fæðingu
þá er hætta á að þeir missi áhugann.
Kazuhiko Hasegawa, sem er talinn
BaMurHjaltason
skrífarfráTokyo
ejnn efnilegasti leikstjórinn af yngri
kyrislóðinni, er ómyrkur i máli. „Þeir
eru of hræddir til að fjárfesta í nýjum
hugmyndum.” Hasegawa hefur á
prjónunum gerð myndar um Rauðu
herdeildina en Finnur allar dyr lok-
aðar. ,,Ég stefni að því að eignast
keðju kvikmyndahúsa. Eina von mín
er sú að áhorfendum muni líka
myndir mínar og ég geti útvegað fjár-
magn frá einkaaðilum.” Þetta eru
stór orð og ef fleiri en Hasegawa
neita að gefast upp og hugsa stórt, þá
er enn von til að kvikmyndaiðnaður-
inn rétti við á næstu árum.
NÝTT HAPPDRÆTTI/ÁR
UNGIR /EfTl ALDNIR
ERU mEÐ
íslensk skemmtisnekkja meö öllum búnaöi til úthafssiglinga, aö
verömæti um 18,2 milljónir. Dregin út í ágúst.
100 bílavinningar á 2 og 3 milljónir hver, þar af tveir valdir bílar:
Ford Mustang í maí. Peugeot 305 í október.
Auk þess glæsilegur sumarbústaöur, 10 íbúöavinningar á 10 milljónir
og 35 milljónir, 300 utanferöir á 500 þúsund og ótal húsbúnaöarvinn-
ingar.
Sala á lausum miöum og endurnýjun ársmiöa og flokksmiöa
stendur yfir~
Dregiö í 1. flokki 6. maí.
Þetta atriði er úr nýrri klámmynd sem verður frumsýnd fljótlega en í raun gæti
það verið úr hvaða klámmynd sem er.
ÍTIIÐI ER mÖGULEIKI
Dúum ÖLDRUÐUm
ÁHYGGJULAU/T ÆVIKVÖLD
e
Kvikmyndaiönaður Jap-
ans stendur höfíum fæti
Kvik
myndir