Dagblaðið - 30.04.1980, Síða 18
18
Umboðsmann vantar nú þegar á
Hellissandi
Uppl. í síma 93-6749 og 91-22078.
ESmABW
Tilboð óskast
í undirbúningsvinnu og utanhússmálun á blokk í
Álfheimum 50—54. Tilboðum skal skilað til
Ragnars Lárussonar, Álfheimum 50—54. Einnig
eru uppl. gefnar í síma 86970 alla daga.
Bátar - útgerðarmenn
Rækjuvinnslan hf. Skagaströnd óskar eftir bát-
um í viðskipti vegna djúprækjuveiða í sumar.
Upplýsingar í símum 95-4789 og 95-4652.
FORSETAKJÖR1980
STUÐNINGSFÓLK
ALBERTS
GUÐMUNDSSONAR
SKRIFSTOFA
ykkar er í nýja húsinu við Lækjartorg.
Opið kl. 9—21 alla daga, símar 27850
og 27833.
ÖLL aðstoð er vel þegin.
1X2 1X2 1X2
34. leikvika - leikir 26. apríl 1980
Vinningsröð: X12-X11-11X-111
1. vinningur: 12 réttir — kr. 519.000.-
34662(4/11) 40601(6/11) 41437(6/11) 42188(6/11)
2. vinningur: 11 réttir — kr. 8.600.-
1043 4868 30529 + 32894 33525 40051 41438
1121 5476 30670 32901 33636 + 41459
1357 6459 30673 33008 33665 + 40068 41571
2434 + 7099 30993(2/11) 33975 40070 41664
2516 7349 31006(2/11) 34010 40256 41898 +
2593 + 8286 + . 40423 42001
3291 8545 + 31634 + 33009 34534 40453 42070
3475 8894 31894 + 33010 34663 40965 42083
3940 9784 32097 33239 + 34840 + 41030 + 42122
3942 10734 32166 + 33308 34864 + 41052
3944 + 10824 32180 33389 40011 41339
3948 + 30193 32539 33407 40050 41436(2/11)
Kxrufrestur er til 19. maí kl. 12 á hádegi. Kærur skulu vera skriflegar.
Kærueyðublöð fást hjá umboðsmönnum og á aðalskrifstofunni. Vinnings-
upphæðir geta lækkað, ef kærur verða teknar til greina.
Handhafar nafnlausra seðla ( + ) verða að framvísa stofni eða senda stofn-
inn og fullar upplýsingar um nafn og heimilisfang til Getrauna fvrir lok
kærufrests.
GETRAUNIR - Íþróttamiðstöðinni - REYKJAVÍK
DAGBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
Hver er kynþokkafyllstur í heimi?
JohnnyLogan:
írinn sem vann
söngvakeppnina
Johnny Logan náði sér i verðlaun
fyrir bezta lagið í söngvakeppni sjón-
varpsstöðva Evrópu í ár. Lag hans,
What’s Another Year, sem er hug-
ljúfur ástarsöngur, þótti að visu
heldur væmið en dómarar landanna
sem að keppninni stóðu völdu það
samtlagársins.
Johnny Logan er íri að þjóðerni þó
fæddur sé í Ástralíu. Hann er fæddur
13. maí 1956. Faðir hans var einnig
söngvari, meira að segja nokkuð
frægur á frlandi. Sá hét Patrick
O’Hagan. Hið rétta nafn Johnny
Logans er Sean O’Hagan.
Johnny lærði að leika á gítar þegar
hann var við nám í Tækniskólanum í
Drogheda. Honum fór ört fram í list-
inniog byrjuðu menn í kringum hann
að láta mikið af honum.
Þá fór Johnny að leiká í söngleikj-
um. Jafnframt því stofnaði hann
nokkrar hljómsveitir sem allar leyst-
ust þó upp á skömmum tíma. Það var
ekki fyrr en Johnny samdi við hinn
fræga umboðsmann, Roberto Da
Nova, að hann fór að komast eitt-
hvað áleiðis. Roberto var áður um-
boðsmaður Bobs Dylan. Hann fékk
Johnny til að skipta um nafn og hef-
ur komið honum það áleiðis sem
raun ber vitni.
Johnny semur einnig nokkuð af
lögum. Tvö þeirra hafa hlotið verð-
laun í sörgvakeppnum í Bretlandi.
Milli þess sem Johnny synguræfir
hann karate og hlustar á uppáhalds
fólk sitt, Bette Midler, Frank Sinatra
og hljómsveitina Police fremja tón-
list. Johnny Logan.
Loren og Redford
—fyrir utan eiginkonur og - menn
Hver er mest kynæsandi kona/karl-
maður í heimi? Flestum dettur eflaust i
hug að svarið við þeirri spurningu sé
einhver af kvikmyndastjörnunum
frægu. En lesendur brezka blaðsins
Sun voru á annarri skoðun. I könnun
einni mikilli sem blaðið gekkst fyrir
töldu langflestir að mest kynæsandi
veru jarðar umgengjust þeir sjálfir dag-
lega.
Nærri einn karlmaður af hverjum
sex sagði að konan sín væri mest kyn-
æsandi af öllum og nærri ein kona af
tiu sagði slíkt um manninn sinn.
Greinilegt er að hversdagslegir brezkir
karlmenn eru ekki eins aðlaðandi og
konurnar eftir þessu að dæma.
í öðru sæti hjá körlunum var leik-
konan Soffia Loren og Raquel Welch
var í þriðja sæti. Nýjasta kyntáknið,
Soffia Loren varð i öðru sæti yfir kynþokkafyllstu konur heims.
Robert Redford fannst konum kyn-
þokkafyllstur, að mönnunum sinum und-
anskildum.
Bo Derek, var i fjórða sæti og sló þar
við mörgum konum og frægari.
Konurnar voru hrifnastar af Robert
Redford fyrir utan mennina sína. Clint
Eastwood fylgdi fast á hæla hans og á
eftir komu Paul Newman, Tom Jones
og Karl Bretaprins.
Upphaflega ætlaði Sun að kanna af-
stöðu 500 manna til þess hver kyn-
þokkafyllstur væri en lesendur blaðsins
voru svo spenntir að yfir 700 manns
sendu inn svör sín.