Dagblaðið - 30.04.1980, Síða 28
Hæstiréttur:
V2 árs fangelsi fyrir
að bana manni sínum
— og gert að greiða 700 þúsund krónur í málskostnað
í gær var kveðinn upp dómur í
Hæstarétti í máli ákæruvaldsins gegn
Jennýju K. Grettisdóttur. Dómsorð
kveður á um að Jenný skuli hljóta
fimm og hálfs árs fangelsi fyrir að
verða manni sinum, Arelíusi Viggós-
syni, 23 ára gömlum, að bana í ibúð
þeirra að Skólavöröustig 21A í
Reykjavík, 19. febrúar 1978.
Auk fangelsisdómsins var Jennýju
gert að greiða allan kostnað af áfrýj-
un sakarinnar, þar með talin sak-
sóknarlaun í rikissjóð, 350 þús. kr.,
og málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns fyrir Hæstarétti, Árna Grétars
'Finnssonar hrl., 350 þúsund krónur.
Gæzluvarðhaldsvist kemur til frá-
'dráttar fangelsisdóminum.
Fjórir dómendur Hæstaréttar
kváðu upp dóminn. Magnús Þ.
Torfason, fimmti dómarinn, skilaði
ts jratkvæði á þá leið að hann fallist á
atkvæði meiri hluta dómenda að
tíðru leyti en því, að hann taldi að
ákveða bæri refsingu ákærðu 6 ára
fangelsi.
Málsatvik voru þau að kl. 1.30 að-
faranótt 19. febrúar 1978 var hringt
frá Skólavörðustígnum og beðið um
sjúkrabil. Er komið var á staðinn
kom í ljós að þar var ungur maður
með hnífstungu í brjósti. Var hann
þegar fluttur í gjörgæzludeild
Borgarspítalans, þar sem hann lézt
..tveimur stundum síðar.
Eiginkona hans var flutt til yfir-
heyrslu þar sem hún játaði að hafa
veitt hinum látna hnífstunguna.
Skýrði hún svo frá að þau hefðu hitzt
á dansleik þá um kvöldið og farið
síðan heim þar sem þau bjuggu áður
•saman, til að ræða sín mál. Kom til
-deilu á milli þeirra og lyktaði henni
þannig að konan greip hníf og lagði
til mannsins. Hringdi hún síðan í
sjúkrabil er henni varð ljóst hversu
alvarleg stungan var.
Konan var þá um nóttina úr-
skurðuð til að sæta gæzluvarðhaldi í
allt að 60 daga og jafnframt gert að
gangast undir geðrannsókn. - ASt.
Flensborgarar dimmittera í dag — sletta cerlega úr klaufunum heima hjá einum á Álftanesinu í morgun, kiæddir að hœtti forfeðra
áður en alvara próflestursins tekur við. Þeir voru samankomnir okkar, víkinganna. DB-mynd: Bjarnleifur.
Slitnar upp úr
meirihlutasamstarfi
íEyjum?
„Það mætti
athuga það”
„Það mætti alveg athuga það,”
sagði Þorbjörn Pálsson, formaður
Alþýðuflokksfélags Vestmannaeyja,
er DB spurði hann i morgun hvort
Alþýðuflokkurinn mundi ganga út úr
meirihiutasamstarfi vinstri flokkanna
í bæjarstjórn Vestmannaeyja ef bæj-
arstjórnin féllist ekki á niðurstöður
tómstundaráðs varðandi ráöningu i
embætti æskulýðsfulltrúa Vest-
mannaeyja.
Alþýðuflokksfélagið í Vestmanna-
eyjum hélt í gærkvöldi fund þar sem
rætt var meðal annars um meirihluta-
samstarfið í bæjarstjóm.
Þorbjörn sagði að það væri hefð
að farið væri eftir vUja tómstunda-
ráðs í þessum efnum og mundu
Alþýðufiokksmenn leggja allt kapp á
aðsvoyrðienn. -GAJ
Samtök grásleppuhrognaf ramleiöenda:
Spöruðu þriðjung
af tunnuverðinu
— með beinum innflutningi ístað kaupa af Sfldarútvegs-
nefnd, stærsta tunnuinnflytjandanum
Samtökum grásleppuhrognafram-
leiðenda tókst að fá innfluttar
trétunnur á þriðjungi lægra verði en
þeim buðust hjá Sildarútvegsnefnd
nú í vor. Er þá tekið tillit til kostn-
aðar við flutning tunnanna á
notkunarstað.
Að sögn Guðmundar Lýðssonar,
framkvæmdastjóra Samtakanna,
keyptu þau 6800 tunnur frá Noregi
og reyndist verð þeirra vera 8.900
krónur fyrir stykkið og var þeim
skipað upp á átta stöðum á landinu.
Á sama tíma buðust grásleppu-
hrognaframleiðendum tunnur frá
Síldarútvegsnefnd fyrir 9.900 krónur
af lager. Átti þá eftir að greiða
flutningskostnað á framleiðslustað.
Hann var 3300 krónur frá Reykjavik
til Húsavikur en á Norðausturlandi
eru mestu grásleppuveiðar hér á
landi.
Síldarútvegsnefnd er stærsti inn-
flytjandi trétunna fyrir sild og grá-
sleppuhrogn. Árlega hefur verið
saltað í um það bil fimmtán þús.
tunnur af grásleppuhrognum hér á
landi.
Guðmundur Lýðsson fram-
kvæmdastjóri sagði í viðtali við DB
að í sjálfu sér teldi hann ekki æskilegt
að margir önnuðust innflutning á
tunnum. Þar sem Síldarútvegsnefnd
hefði hinsvegar ekki treyst sér til að
bjóða grásleppumönnum þær á
lægra verði vegna geymslukostnaðar
ýmiss konar, gengisjöfnunar og
vaxta, sem ekki hefði fengizt sundur-
liðað, hefði verið gripið til þess að
flytja tunnurnar beint inn.
-ÓG.
MIÐVIKUDAGUR 30. APRÍL 1980.
Hellissandur:
Drengur
varð und-
ir sand-
barði
og lézt
— félaga hans bjargað
Tveir drengir, 10 og II ára gamlir,
urðu undir sandbarði á Hellissandi í
gærkvöldi og beið annar drengurinn
bana. Drengirnir höfðu verið að leika
sér við vegamótin við gömlu höfnina í
Krossavík við Hellissand, sem nú er
hætt aðnota.
Þegar drengirnir komu ekki heim
fór faðir annars drengsins að svipast
um eftir drengjunum og fór strax út í
Krossavlk. Hann fann þar son sinn í
sandbarðinu og náði að grafa hann út.
Hinn drengurinn var látinn, en hann
var 11 áragamall.
Drengirnir höfðu grafið holu í sand-
barðið og var hún um 1,5 metri að dýpt
og voru inni í holunni er barðið féll
niður og lokaði útgönguleiðinni. Barð-
ið er úr finum skeljasandi. í fyrstu gátu
drengirnir talað saman, en síðan dró af
eldri drengnum og var hann látinn er að
var komið. Ekki er hægt að greina frá
nafni hans að svo stöddu.
JH / HJ, Hellissandi.
Skákmótið í New York:
Dzindchiashvili -
Jón L. 0,5-0,5
Jón L. Árnason gerði jafntefli við
hinn kunna ísraelska stórmeistara
Dzindchiashvili i 3. umferð skákmóts-
ins í New York.
,,Hann tefldi uppskiptaafbrigði á
móti slavneskri vörn, sem yfirleitt leiðir
til jafnteflis. Þetta varð því frekar stutt
skák og Dzindchiashvili virtist ekki
nenna þessu,” sagði Jón L. Árnason er
DB ræddi við hann í New York í
gærkvöldi.
Bandaríski stórmeistarinn Alburt er
nú efstur á mótinu með 2,5 vinninga.
Hann sigraði stórmeistarann Lein i
gær. Jón L. hefur hlotið 1 vinning.
-GAJ.
Smáauglýsinga
móttaka DB
Smáauglýsingar Dagblaðsins: Opið í
dag, miðvikudag 30, apríl, til klukkan
22 fyrir auglýsingar í næsta blað, sem
kemur á föstudaginn. Lokað á morg-
un, 1. mai.
LUKKUDAGAR:
30. APRÍL: 10641
Hljómplötur frá Fálkanum aó eig-
in vali fyrir kr. 10 þúsund.
Vinningshafar hringi
í síma 33622.