Dagblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 6
6
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980.
Dagblaðið skoðar Fíf uhvammslandið í Kópavogi og ræðir við einn landeigandann:
- EN NAUÐSYNLEGUR
— Landeigendur vilja selja fýrir 1 milljarð króna en Kópavogsbær býður600 milljónir
„Síðasta tilboð bæjarstjórnar er
kjánaskapur gagnvart bæjarfélaginu
og dónaskapur gagnvart okkur sem
eigum landið. Við höfum ekki rætt
saman eftir að tilboðið barst en munum
örugglega svara því,” sagði Ingjaldur
ísaksson í Kópavogi við Dagblaðið í
gær.
“ Ingjaldur og systkini hans,
Bergþóra, Rebekka og Anton, eru eig-
endur Fífuhvammslandsins, sem
umtalað er í fréttum. Þau hafa boðið
Kópavogsbæ landið til kaups nokkrum
sinnum undanfarin ár, nú síðast fyrr í
þessum mánuði. Síðasta tilboð þeirra
hljóðaði upp á 1 milljarð króna. Skyldi
útborgunin vera 400 milljónir og eftir-
stöðvar greiðast á allt að 20 árum.
Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi
á þriðjudagskvöldið að gera gagntilboð
í landið upp á 600 milljónir. Skyldi
greiða 200 milljónir út við undirskrift
samnings og eftirstöðvar á 10 árum.
Ekkert bendir til þess að því tilboði
verði tekið.
„Mörgum sem ekkert þekkja til
máls þykir tilboð okkar fáránlega hátt,
jafnvel ósvifið,” sagði Ingjaldur. „En
ég sæi fólk sem á einbýlishús sem metið
er á 40 milljónir taka kauptilboði I það
upp á rúmlega 20 milljónir!
Fífuhvammslandið var metið á 885
milljónir á síöasta ári. Um næstu ára-
mót er ekki fjarri lagi að áætla að fast-
eignamatið verði komið upp í 1.2
milljarða. Allir sanngjarnir menn
hljóta að sjá hve tilboð bæjarins eru
langt frá réttu lagi. Þeir telja fasteigna-
matsverðið marktækt þegar þeir leggja
á okkur fasteignaskatt og eignarskatt
vegna Fifuhvammslands. En fasteigna-
matsverðið er hins vegar markleysa í
þeirra augum, þegar að þvi kemur að
kaupa landið. Ekki höfum við búið til
þetta fasteignamatsverðeða hvað?”
Fffuhvammur
kostaði 14.000
kr. árifl 1914
Ingjaldur og systkini hans þrjú,
muna svo sannarlega tímana tvenna í
Kópavogi. Þegar þau settust að í Kópa-
vogi árið I9I9 voru ibúar þar I3
talsins! Þau hafa síðan fylgzt með
Kópavogi vaxa og dafna og verða að
næststærsta bæjarfélagi landsins. Þau
búa ennþá öli I Kópavogi og eru þeir
íbúar sem lengst hafa búið þar og enn
eru á lífi. Faðir systkinanna keypti
jörðina Fífuhvamm árið 1914 fyrir
I4.000 krónur. Það þóttu miklir
peningar í þá daga. Landsvæðið sem
tilheyri jörðinni var talsvert á fjórða
hundrað hektára, (einn hektari er
10.000 fermetrar). Arið 1974 fékk
Reykjavikurborg 33,7 hektara sneið af
Fifuh'’ammslandi, svonefndan
Selhrygg. Þar á hefur risið hluti Selja-
hverFis í Breiðholti. Fyrir landið
greiddi borgin 57,6 milljónir króna
samkvæmt mati árið 1974. Sama ár var
fasteignamatsverðs afgangsins af
Fifuhvamm'lnnHinu alls um 300
hektara, 4 " ■ ilIjónkróna. „Þessi
samanburðui Ira arinu 1974 sýnir hve
„fáránlegt” okkar tilboð er í dag,”
segir Ingjaldur.
Þolinmœðin á þrotum
„Okkar meining er sú og hefur
alltaf verið að Kópavogsbær eignaðist
Fífuhvammsland. Ef ætlun okkar
hefði verið sú að hagnast á landinu
skjótt og vel, þá væri það allt selt eða
leigt í hlutum í dag. Ásókn í sumar-
„enda þótt uggur sé í ýmsum bæjar-
fulltrúum séu þeir samstíga um það að
bærinn eignist landið, ef þess sé
nokkur kostur. Það er meginstefna
innan bæjarstjórnar að Fífuhvamm-
ur verði áfram Kópavogsland.”
Ennfremur: „Sú spurning hefur nú
„Ég sæi fólk sem á einbýlishús sem metið er á 40 milljónir taka kauptilboði i það upp
á rúmlega 20 milljónir!”
Ingjaldur Ísaksson var einn af stofnendum Hreyfils og var formaður stjórnar fyrir-
tækisins i fjórðung aldar. Hann hætti leiguakstri fyrir tveimur árum vegna sjúkleika.
DB-myndir: Ragnar Th.
„Þetta er kjörið bygginga- og útivistarsvæði,” sagði Ingjaldur við DB-menn þegar við
skoðuðum landareignina með honum I gær. t baksýn er Kópavogskaupstaður. Mikill
áhugi er hjá byggingaaðilum I Hafnarfirði og Reykjavik fyrir landinu án þess að
Ingjaidur vildi staðfesta að fyrir lægju ákveðin tilboð.
vaknað þegar landið er boðið á
alnennum markaði og verið getur að
Kópavogsbær standi frammi fyrir því
aö verða að neyta forkaupsréttar og
ganga inn i miklu dýrari kaup eða
missa landið ella, hvort bæjarsfjórn
hafi haldið vöku sinni, þegar
verðtryggingarkjörin voru leyfð og þar
eftir.” „Fifuhvammslandið er
kjömasti vettvangur hér um slóðir sem
nú er til í þeim tilgangi að bylta á-
standinu í byggðaþróun og húsnæðis-
málum hér í Kópavogi og um leið á öllu
höfuðborgarsvæðinu.” -ARH'.
bústaðaland þarna var gifurleg. Ef við
hefðum ekki tekið þá ákvötðun að selja
landið ekki undir sumarbústaði fyrir
49 árum, er ég viss um að þarna væru
nú 200—300 sumarbústaðir. Og þá er
ég anzi hræddur um að staöa Kópa-
vogsbæjar og vaxtarmöguleikar væru á
allan hátt erfiðari um þessar mundir.”
Ingjaldur og systkin hans hafa
nokkrum sinnum áður boðið Kópa-
vogsbæ að kaupa landið sitt, eins og
segir hér áður. Fyrsta tilboöið mun
hafa borizt til bæjaryfirvalda árið
1978. Þá gat bærinn eignazt
Fifuhvamm fyrir 500 milljónir króna,
að hluta til útborgun og verðtryggðar
eftirstöðvar með afborgunum. Þvi
boði var hafnað. Síðan hefur hvorki
gengið eða rekið í samningum bæjar-
yFirvalda og systkinanna allt til þessa
dags. Auðheyrt var á Ingjaldi að
mælirinn var orðinn fullur og vel það.
„Auðvitað er þolinmæðin á
þrotum. Við stöndum ekki endalaust í
þessu stappi.” Hann vildi þó ekki tjá
sig um það hvort fyrir lægju tilboð
annars staðar frá í landið eða hluta
þess, ef algerlega slitnaði upp úr
samningum við Kópavogsbæ.
„Lykillinn að framtfðinni"
Richard Björgvinsson bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokksins sat hjá við af-
greiðslu tilboðsins í Fífuhvamm á
bæjarráðsfundi sl, þriðjudagskvöld. Er
talið að hann vilji greiða hærra verð
fyrir landið en tilboðið hljóðaði upp á.
Richard færðist eindregið undan því að
ræða ástæðuna fyrir hjásetunni, þegar
DB hafði samband við hann i gær.
Blaðið Kópavogstíðindi fjallar um
málið í forsíðugrein fyrir skömmu og
segir að í Fífuhvammslandinu felist
nánast „lykillinn að framtíð Kópavogs-
kaupstaðar.” Segist blaðið hafa það
eftir áreiðanlegum heimildum, að
Fffuhvammslandið, alls um 300 hektarar, er afmarkað með strikum á kortinu sem birtist i Kópavogstiðindum fyrir skömmu.
Af þessu má sjá hversu gifurlegt landflæmi um er að ræða. 1) Fifuhvammsland, 2) Vatnsendahæð, 3) Sá hluti Seljahverfis sem
byggður er á sneið af Fífuhvammslandinu sem Reykjavíkurborg fékk árið 1974. Seljahverfi nær alveg að landamerkjum
Fifuhvamms. Áframhaldandi landakaup Reykjavikurborgar sýnast nærtækur möguleiki. 4) Kópavogur,, 5) Vlfilsstaðir.
Kvartmíl
kei
eppm
hvítasunnuhelgina
24. eða 25. maí í Kapelluhrauni.
Margir nýir bílar.