Dagblaðið - 24.05.1980, Blaðsíða 8
8
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ1980.
Suður-Kórea:
Óeirdiríl6
borgum
að minnsta kosti sextíu fallnir
Stjórnvöld í Suöur-Kóreu reyna
nú hvað þau geta til að kveða niður
óeirðir, sem virðast vera að breytast í
hreina uppreisn í suöurhluta
landsins. Að minnsta kosti sextíu
manns hafa fallið í óeirðunum, sem
hingað til hafa aðallega verið í
borginni Kwangju, sem er um það bil
átta hundruð þúsund manna borg.
Samkvæmt fregnum frá Suður-
Kóreu i morgun hafa óeirðirnar nú
breiðzt út og ná nú til sextán bæja í
suðurhluta landsins.
Svo virðist sem uppreisnarmenn
ráði nú Kwangju og nágrenni.
Heimsókn Parks hins nýskipaða for-
sætisráðherra til borgarinnar í gær
virðist ekki hafa borið neinn árangur.
Útifundur var í Kwangju í gær og
tóku hundrað þúsund manns þátt í
honum. Þar var Seoulstjórnin for-
dæmd og þess krafizt, að herlög yrðu
numin úrgildi í landinu.
Upphaf óeirðanna var einmitt það
að herlögum var mótmælt en þau
hafa verið hert I Suður-Kóreu fyrir
nokkrum dögum. Sendiherra Banda-
ríkjanna i Tókíó sagði í gær að
stjórnin í Washington mundi styðja
Seoulstjórn eins lengi og þörf væri á.
Danmörk:
Meiri drykkja,
færri bílslys
Mun fleiri ökumenn eru nú teknir
ölvaðir við akstur í Danmörku en áður.
Hefur verið stöðug aukning á tölu
slíkra ökumanna, sem komizt hafa
undir hendur lögreglu hin siðari ár.
Slysum þar sem orsökin hefur verið
talin sú að ökumenn væru undir áhrif-
um áfengis hefur einnig fjölgað mjög.
Sem dæmi má nefna að árið 1971
voru bifreiðaslys þar sem meiðsli urðu
á mönnum og ökumaður bifreiða var
talinn drukkinn, eitt hunrað og
fimmtíu talsins. Árið 1978 urðu slík
slys þrjú hundruð sextíu og átta i
Danmörku.
í heild hefur slysum í umferð hins
vegar fækkað hin síðari ár. Að mati
danskra lögregluyfirvalda hefur aukið
eftirlit með ökuhraða á hraðbrautum
haft mikið að segja í þessu sambandi.
Er það sagt áberandi að ef eftirlit er
minnkað á brautunum þá aukist slysa-
tíðni og bifreiðastjórar auki mjög hrað-
ann viðaksturinn.
Danir segjast þó síður en svo hafa
fundið heildarlausn á hvernig fækka
eigi umferðarslysum.
TO YOTA-SALURINSpn
Nýbýlavegi 8 (í portínu). \aU9ar^a^B
AUGLÝS/R: kl. í"5'
Toyota Corona Mark II árg. '77, ekinn 35 þús. km.
Verð 4,6 millj.
Toyota Corolla station árg. '77, ekinn 30 þús. km.
Verð 3,8 millj.
Toyota Carina árg. '74, ekinn 85 þús. km. Verð 2,6
millj.
Toyota Corona Mark II hardtop sjálfsk. '73, ekinn
96 þús. km. Verð 1,9 millj.
Toyota High Ace sendibíll árg. '75, ekinn 78 þús. km.
Verð 2,5 millj.
TO YOTA-SALUR/NN
NÝBÝLA VEGI8, KÓP. SÍNII44144.
LAUSAR STÖÐUR
Stöður hjúkrunarfræðinga:
Aðstoðardeildarstjóri við heimahjúkrun, hjúkrunarfræð-
ingar við heilsugæzlu í skólum, berklapróf og barnadeild.
Heilsuverndarnám æskilegt.
Staða f élagsráðgjafa
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri í síma 22400.
Heilbrigðisráð Reykjavíkur,
22. mai 1980.
Byggingarfélag verkamanna
Reykjavík
TIL SÖLU
tveggja herbergja íbúð í 13. byggingarflokki við Bólstaðar-
hlíð. Félagsmenn skili umsóknum sínum ásamt greiðslu-
fyrirkomulagi til skrifstofu félagsins að Stórholti 16 fyrir kl.
12 á hádegi þriðjudaginn 3. júní nk.
Félagsstjórnin.
Peter Sellers þykir bæði góður leikari og afspyrnuduglegur til vinnu. Hann hefur um nokkurra ára skeið verið haldinn
hjartasjúkdómi og hafa læknar skipað leikaranum, sem er $4 ára, að taka lifinu með meiri ró en áður. Peter Sellers hefur
verið tregur til að hlýða þcssum fyrirskipunum og afleiðingamar hafa verið þær að hann hefur oft á tíðum verið lagður inn á
sjúkrahús. Fyrir tveim dögum varð hann að hætta við fyrirhugaðan sjónvarpsþátt og i stað þess að liggja I rúmi sinu á hóteli i
London. Á myndinni er Peter Sellers ásamt konu sinni Lynn Frederick.
Olympíuleikamir í Moskvu:
SEXTIU 0G TVÆR
ÞJÓÐIR HÆTTAR
—sendimenn Bandaríkjanna á sprettinum um allan heim
þar sem lokaf restur rennur út á morgun
Á morgun eru síðustu forvöð fyrir
þjóðir heims að ákveða hvort þær
ætla að mæta með íþróttamenn sína
til ólympíuleikanna í Moskvu á sumri
komanda. Fréttist núaf bandarískum
sendimönnum um allan heim í óða-
önn í að sannfæra ráðamenn ríkja og
íþróttamála um að rétt sé að hunza
leikana vegna innrásar Sovéthersins i
Afganistan.
Að sögn bandaríska utanríkisráðu-
neytisins hafa sextíu og tvær þjóðir
þegar ákveðið að mæta ekki í
Moskvu.
Flest eru ríkin frá Afriku ef litið er á
hverja heimsálfu fyrir sig. Eru það
sautján Afrikuriki sem mæta ekki.
Fimmtán Suður- og Mið-Ameríku-
ríki ætla ekki að mæta i Moskvu.
Talið er að í raun skipti verulegu
máli hvaða þjóðir það eru sem mæta
ekki. Ef sterkar íþróttaþjóðir eins og
Bandarikin og Vestur-Þjóðverjar
mæta ekki til leiks verða leikarnir
ekki nema svipur hjá sjón.
Ef litið er til síðustu leika i
Montreal í Kanada fyrir fjórum árum
þá voru Sovétmenn með flest gull-
verðlaun á leikunum eða fjörutíu og
sjö. Austur-Þjóðverjar fengu fjöru-
tiu gull. Báðar þessar þjóðir mæta að
sjálfsögðu með sína íþróttamenn á
Moskvuleikana í sumar.
Bandaríkin voru i þriðja sæti hvað
varðar gullverðlaun á síðustu leikum
— með þrjátíu og fjögur. Vestur-
Þjóðverjar og Japanir voru i fjórða
sæti með tiu gull. Bandaríkjamenn
og Vestur-Þjóðverjar ætla ekki að
mæta en Japanir eru enn að velta
málinu fyrir sér.
Argentína og ísrael tóku þá
ákvörðun í gær að íþróttamenn
þeirra færu ekki á leikana. Spánn og
Tyrkland munu ákveða sig i dag.
Japanir eru sú þjóð sem hefur haft
sterkustum íþróttamönnum á að
skipa en hefur ekki enn ákveðið hvort
þeir mæta í Moskvu eða ekki.
THERM0R
HITAVATNSKUTAR
STÆRÐIR:
15, 30, 50,
75, 100, 150,
200, 300
og 450 litra.
Avallt
FYRIR
LIGGJANOI
þægilegustu hitagjafarnir
Olíufylltir
TERMEL
rafmagnsofnar,
JUT' ||l| | |D QC VESTURGÖTU 10 SÍMI21490
■ Vli KEFLAVÍK SÍMI 92 2121
X