Dagblaðið - 24.05.1980, Side 11

Dagblaðið - 24.05.1980, Side 11
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980. 11 Lektorsmálið „AÐFÖR AÐ SKODANA- 0G MÁLFRELSI í SKÓLANUM” _________ — segir Stefán J. Stefánsson, formaður stúdentaráðs Háskóla íslands „Vinnubrögð rektors og meirihluta háskólaráðs í þessu máli fela í sér hreinar og beinar pólitískar ofsóknir á hendur einum kennara skólans,” sagði Stefán Jóhann Stefánsson, formaður stúdentaráðs Háskóla íslands •• og' fulltrúi stúdenta í háskólaráði er DB innti hann álits á þeirri ákvörðun há- skólaráðs að auglýsa lausa til umsókn- ar stöðu lektors í dönsku, en þeirri stöðu hefur gegnt í nokkur ár Peter Söy Kristensen. Stjórn stúdentaráðs boðaði almennan fund um þetta mál kl. 12 í dag. „Meðferð rektors í þessu máli er einsdæmi um slík mál,” sagði Stefán. „Þegar, eins og í þessu tilviki, deild er búin að samþykkja að framlengja setningu lektors hefur slík samþykkt farið beina leið til ráðherra, að vísu í gegnum skrifstofu rekstors. 1 þessu tilviki ákveður rektor, upp á sitt eindæmi að því er virðist, að setja málið á dagskrá í háskólaráði. Síðan leggur hann til að staðan verði auglýst, þvert ofan i vilja deildarfundar heim- spekideildar og nemenda í dönsku, sem hafa í hvívetna lýst yfir stuðningi sínum við umræddan lektor. Meirihluti há- skólaráðs samþykkti siðan tillögu rektors, naumlega þó. Það sem skiptir miklu í þessu máli eru þau rök sem rektor færði fram fyrir tillögu sinni. Þau voru m.a. að hann teldi að ráðuneyti tæki aðra ákvörðun í þessu máli en deildarfundur heim- spekideildar. Einnig sagði hann, að ,,í hugum margra” væri þetta mál óneitanlega tengt s.k. kærumáli i dönsku fyrr i vetur. Auglýsing á þess- ari stöðu myndi hreinsa skólann af þeim orðrómi að vera að halda hlífi- skildi yfir kennurum, sem segðu skoðanir sínar í tímum. Væri þessi regla látin gitda almennt þegar kennarar tjáðu skoðanir sínar, myndi ríkja algert öryggisleysi í starfi þeirra. . Ég tel aðferð rektors i þessu máli vera aðför að skoðana- og málfrelsi í skólanum og aðför að akademískum starfsháttum. Þetta eru hreinar og klárar pólitískar ofsóknir. Sumir þekkja þetta undir nafninu berufsverbot, eða atvinnubann,” sagði Stefán að lokum. -GAJ Jón Sveinsson nautabóndi: Aldrei hvattir til auk- innar f ramleiðslu — þótt hörgull sé á góðu nautakjöti „Þótt hörgull sé á góðu nautakjöti í landinu höfum við aldrei verið hvattir til aukinnar framleiðslu. Þvert á móti hefur yfirdýralæknir staðið á móti því, svo langt sem ég man, að garfa í að fá hingað hreint holdanautakyn, þangað til að samþykkt var að fá holdanautin til Hríseyjar.” Þetta sagði Jón Sveinsson bóndi á Egilsstöðum, einn stærsti framleiðandi á landinu á kjöti af holdanautum. Hann sagði að einkennilegt væri til þess að vita að ekki skyldi verða uppi fótur og fit, þegar DB hefur skýrt frá stórsmygli á argentinsku nautakjöti. Allir vissu að gin- og klaufaveiki væri landlæg í Suður-Ameríku. Það hefði einmitt verið sýkingarhættu að ekki hefðir mátt hér áður, flytja inn holda- naut. Jón bætti við að það væri líka einkennilegt að flytja mætti inn sæði úr holdanautum, en ekki frjóvgað egg, sem mætti græða i kýr hér. Þá fengist þegar í stað hreint holdanautakyn í stað þess að það tæki kannski 8—10 ár með því að fá sæði. Þar að auki væri það kyn sem i Hrisey væri eitthverj seinþroskaðasta kyn sem hægt væri að flytja inn frá Bretlandi. „Við höfum getað selt alla fram- leiðslu okkar á einu bretti til Loftleiða, en ég hef orðið vitni að því að heilum bílfarmi, af beljukjöti, merktum veitingastað í Reykjavík, hefur verið ekið héðan. Það er ekki allt 1. flokks nautakjöt sem neytendum er boðið upp á þótt þeir þurfi að greiða það fullu verði,” sagði Jón. -EVI. Margþvældir frasar Kvikmynd: Nýliöarnir (The Boys in Company C) Leikstjóri: Sidney J. Furie. Handrit: Rick Natkin og Sldnoy J. Furie. Meðal leikenda: Stan Shaw, James Whitmore jr., Andrew Stevens, Craig Wasson, Michaol Lembeck, Claude Wilson, James Canning. Sýningarstaður: Regnboginn, saiur A. Það hefur hin síðustu ár þótt vænlegt til vinsælda í bandarískri kvikmyndagerð að segja frá baráttu einstaklingsins gagnvart aðstæðum sínum — og sýna hversu vanmáttugur hann er í raun. Þetta er næsta afturhaldslegt þema og hlýtur þvi að henta Bandaríkjamönnum ákaflega vel; einkum í þeim myndum, sem hafa Víet Nam stríðið sem sögusvið. í kvikmyndinni Nýliðarnir sáum við ekki aðeins eina slíka hetju — þær eru fjölmargar, og allar jafn-vanmáttuguar. Það á greinilega ekki að fara fyrir ofan garð og neðan, eins rækilega og það er undirstrikað með velþekktum kvik- myndaklisjum og frösum. í upphafi myndarinnar getur aö líta nokkra nýliða sem hafa látið skrá sig i landgönguliðasveit flotans. Eins og venja er í myndum af þessu tagi er staða hvers og eins þeirra innan hópsins mörkuð, og til að undirstrika frjálslynt yfirbragð myndarinnar er það negrinn Tyrone Washington sem verður fremstur meðal jafningja, en hann er fyrrum dópsali og hyggur gott til glóðarinnar að komast til Víet Nam, þar sem dópið drýpuraf hverju strái. Þeir kumpánar eru látnir taka þátt i þjálfun landgönguliða. Hún hefur reyndar orð á sér fyrir að vera hörð og ströng. Lítið varð þó úr þvi i myndinni — „þjálfunin” fólst fyrst og fremst i bulli þjálfarans er aldrei varð uppiskroppa með fúkyrði sem urðu harla leiðinleg til lengdar. Og eftir tveggja mánaða fúkyrðaflaum eru piltarnir svo sendir til Víet Nam, þar sem þeir komast í kynni við spillta víetnamska embættismenn, V víetnamskar hórur og víetnamska alþýðu sem hefur svo gaman af þvi þegar amerískur hermaður syngur og leikur á gítar. Og í því skyni að gera myndina trúverðuga (hún er kynnt sem The Real Vietnam — alvöru, Víetnamið) en við og við vitnað í dagbók eins nýliðanna. Rúsínan í pylsuendanum er knattspyrnuleik- urinn, þar sem nýliðarnir eiga í höggi við knattspyrnulið suðurvíetnömsku öryggislögreglunnar. Hermönnunum er lofað gulli og grænum skógum, ef þeir tryggja víetnömunum sigur — en þeir geta bara ekki látið um sig spyrjast að tapa knattspyrnuleik. Það væri háðulegt, enda eru Víetnamarnir svo afskaplega lélegir knattspyrnumenn — það fáum við áhorfendur greinilega að sjá. Til að enda öll ósköpin lætur leikstjórinn, Sidney J. Furie knattspyrnuleikinn leysast upp í allsherjarárás Viet Cong skæruliða og dulítill ræðustúfur kemur svo í bláendann þar sem stríðið er fordæmt. Og þá eiga allir að geta farið glaðir og ánægðir heim — eða hvað? Niðurstaða myndarinnar er harla fátækleg og gerir ekki annað en undirstrika þá fordóma, sem fylgt hafa Víet Nam stríðinu og þStttÓku Bandaríkjamanna í því frá upphafi. Hún er reyndar fagmennlega gerð, því er ekki að neita, en tæknin sem slík getur auðvitað ekki bjargað þeirri lágkúrulegu hugmyndafræði sem myndin byggist á. Stefán J. Stefánsson: Hreinar og beinar pólitfskar ofsóknir. Nú getur þú blettað bílinn þinn sjálfur, með betri árangri en áður! Nýjir bílar eru með fosfatlagi undir lakkinu til að tryggja sem besta viðloðun. Þegar rispur koma í lakkið skaddast þessi fosfat- filma og þessvegna er mjög örðugt að fá rispur til þess að hverfa við blettun. ZINKADUS er galvanhúð sem sett er á bletti og rispur með rafgreiningu og skapar filmu sem tryggir árangursríka blettun. ZINKADUS er framleitt í tveimur gerðum, það er ZINKADUS R fyrirmeiri háttarlakkviðgerðirogZINKA- DUS HH sem bílaeigandinn notar sjálfurtil þessaðgera við minniháttar skemmdir, svo sem rispur og stein- kast. í settinu er allt sem til þarf. Rafgreiningin er gerð með orku frá bílgeyminum og er straumnotkunin aðeins 5 vött. Raflausnin í flösk- unni er 100 millilítrar sem nægir til að undirbúa 10 ferdesimetra blett. Leiðbeiningar fylgja með. Ekki er nauðsynlegt að grunna fyrir blettun ein aukayfirferð af lakki nægir. Eftir rafgreiningu er galvanhúðin þvegin með vatni og sparslað í eftir þornun ef þess er þörf. Hægt er að fá aukalega raflausn, trefjaglersbursta - rafgreiningarodd. Kostir ZINKADUS eru: — Fullkomin lakkviðloðun — Auðvelt I meðförum — Ekkert límband nauðsynlegt — Engar eitraðar lofttegundir — Enginn þurrktími Heildverzlun: Pálmason 8 Valsson KLAPPARSTÍG 16 SÍMI 91-27745 I Útsölustaðir: Bílaverkstæði Ólafsfjarðar við Ægisgötu Bensínstöðvar ESSO Bílasmiðjan Laugavegi 176 R. I

x

Dagblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.