Dagblaðið - 24.05.1980, Qupperneq 16
20
DAGBLAÐIÐ. FÖSTUDAGUR 23. MAÍ 1980.
Nemendahópur útskrifyður úr Lögregluskólanum:
Þeir setja líka upp hvíta
kolla á útskriftardaginn
Skóladúxinn var Höröur Jóhannesson úr Reykjavik. Hann var verðlaun-
aður með bikar fyrir beztu kunnáttu í íslenzku i skólanum.
Demantar þykja
pottþétt fíájfesting
> ,,Við seljum ekki demanta í
stórum stil, en tilfellið er að það
seljast annað slagið demantar sem
kosta 500 þús. til 3 millj. króna,”
Sigurður G. Steinþórsson gullsmiður skoðar demant sem hann hefur tíl
sölu. Demanturinn sá er greyptur i hring og lœtur ekki mikið yfir sór i
fljótu bragði. Bn kostar þó á fimmtu milljón króna.
DB-mynd: Ragnar Th.
sagði Sigurður G. Steinþórsson
gullsmiður.
Ef áhugi og peningar eru fyrir
hendi eiga menn kost á að fjárfesta i
demöntum i verslun Sigurðar á
Laugaveginum, Gulli og silfri. Þar
eru alltaf fyrirliggjandi ekla
demantar. Ef væntanlegir kaupendur
gera sig ekki ánægða með það sem á
boðstólum er hverju sinni er hægt að
láta Gull og silfur panta þessa dýru
eðalsteina. Þeir eru meira að segja
fluttir inn tollfrjálst.
„Þessa stundina eigum við t.d.
fyrirliggjandi demantshring sem
kostar 4.1 millj. kr. og sett af hring
og hálsmeni sem kostar um 6
milljónir. Arinars getur 200
milligramma demantur (1 karat),
kostað allt frá 700 þús. kr. upp í 28
milljónir — allt eftir litum, slípun
og hreinleika.”
Um þessar mundir stendur yfir
sérstæð sýning í glugga Gulls og
silfurs. Þar eru sýndar eftirlíkingar
ýmissa verðmætustu og frægustu
demanta heims. Steinarnir eru
slípaðir úr ekta bergkristal og
kostuðu á niunda hundrað þúsund
þegar Sigurður gullsmiður keypti þá í
fyrra.
Meðal steinanna i sýningar-
glugganum er CULLIAN-
demanturinn. Hann var í upphafi
stærsti demantur heims, en klofinn
i smærri hluta og tveir þeir stærstu
eru greyptir í brezka heimsveldis-
sprotann og heimsveldiskórónuna og
eru til sýnis í Tower of London.
KOH-I-NOOR er líka frægur steinn
og núverandi eigandi hans er brezka
hirðin. Eftirlikingar eru líka af
TIFFANY, ORLOFF, FLOREN-
TINE, JUBILEE og fleiri þekktum
demöntum.
Demantar þykja po"þétt fjár-
festing og hækka stöðugt i verði. Þeir
eru því ekki aðeins keyptir til skrauts.
Meira að segja herma fréttir að
einhverjir hafi komið auga á þann
möguleika að flytja stórar fjárhæðir
úr landi í formi demants. Sem
kunnugt er banna lög að menn selji
hér eigur sinar og flyti andvirðið úr
landi. Þá er ekkert auðveldara en að
selja einbýlishúsið og bilinn og kaupa
demant fyrir aurinn. Það er ekkert
mál að labba um borð í flugvél og
halda brott af landinu með stein í
vasanum, sem má nota til að koma
undir sig fótunum á erlendri grund. .
-ARH.
Útskrifunarvertíð menntaskólanna
fer nú í hönd. Þá eru nemendur
brautskráðir með hefðbundnum til-
færingum og fá hvíta kolla á
höfuðið. Nemendur i Lögregluskól-
anum fá líka hvíta kolla þegar þeir
útskrifast. En hvítu kollarnir þeirra
eru ekki settir upp eingöngu til
hátíðabrigða á útskriftardaginn.
Hvítu kollarnir eru jú hluti af ein-
kennisbúningi lögreglumannanna
sem þeir bera við dagleg störf.
Lögregluskólanum var slitið fyrir
skömmu og brautskráðist hópur
nýliða í lögreglunni sem dreifist síðan
til starfa víðs vegar um landið.
Nemendur og kennarar við skólaslitín. Sitjandi eru kennarar og skólastjóri. Frá vinstri: Guðbrandur Þorkelsson,
Guðmundur Hermannsson, Sturla Þórðarson, Árni Sigurjónsson, Sigurjón Sigurðsson skólastjóri, William
Möller, Signý Sen, Bjarki Eliasson, Óskar Ólason. Björg Jóhannesdóttír, sem er standandi lengst til vinstri á
myndinni, er Hka kennari og sömuleiðis Baldur Ottósson sem stendur lengst til hægri.
Sigurður Snorrason hafði orð fyrir
nemendum og afhentí lögreglu-
stjóranum m.a. spjald með
myndum af öllum nemendum og
kennurum skólans. Sitjandi á
myndinni erÁrni Sigurjónsson full-
trúi i Útíendingaeftírlitínu.
„Lögrcgluskólinn starfar i tveimur
deildum,” sagði Bjarki Elíasson yfir-
lögregluþjónn við Dagblaðið. „Byrj-
endadeild er starfrækt fyrri hluta
vetrar og framhaldsdeildin eftir ára-
mót. Eftir nám i byrjendadeildinni
fara nemendur síðan í starfsþjálfun i
hinum ýmsu deildum lögreglunnar í
I — I 1/2 ár. Að því búnu setjast þeir
á ný á skólabekk og Ijúka framhalds-
deildinni.”
Starfandi lögreglumenn annast
kennslu í Lögregluskólanum að lang-
mestu leyti. Þó er leitað út fyrir raðir
lögreglunnar til að finna kennara í
nokkrum námsgreinum, t.d. sál-
fræði, íslenzku og ensku.
Á hverju sumri koma auk þess til
starfa margir nýliðar í lögreglunni
sem ekki hafa stundað nám í Lög-
regluskólanum. Eru það mest há-
skólastúdentar.
„Það er ákaflega góð reynsla af
þessu fólki hjá okkur," sagði Bjarki
Elíasson. „Sumir koma sumar eftir
sumar til starfa hjá okkur. Þetta eru
stúdentar úr lögfræði, læknisfræði,
guðfræði og fleiri háskóladeildum.
Guðfræðinemarnir fá viðurkenndan
starfstima í lögreglunni sem hluta af
starfsþjálfun.”
- ARH
Guðbrandur Þorkelsson varðstjóri
fékk fagurlega skreytt vikings-
horn að gjöf frá nemendunum sem
brautskráðust úr skólanum. Guð-
brandi.r hefur lengi stjórnað likam-
legri þjátfun lögreglumannsefna
og kenntþeim handtökur, leysitök
og sitthvað fleira nýtílegt.
Nemendurnir vi/du heiðra
Guðbrand sérstaklega, m.a. vegna
þess að hann er liklega að hætta
þjátfun við lögregluskólann.
Guðbrandur er á sjötugsaldri og er
með afbrigðum góður iþróttamað-
ur og hraustur. Flestir yngri menn
mættu þakka fyrir að hafa likam-
legt þrek hans.
DB-myndir: Sveinn.