Dagblaðið

Ulloq

Dagblaðið - 29.05.1980, Qupperneq 9

Dagblaðið - 29.05.1980, Qupperneq 9
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980. 9 Pétur bjartsýnn —Pétursmem telja óákveðna landsmem bíða sjónvarpsþátta meðöUumframfajóðendum „Það má segja að timinn fram að kosningum sé stuttur, þar sem aðrir frambjóðendur en Pétur eru þekktari t.d. úr sjónvarpi, en við teljum að snú- ið hafi verið við blaði um miðjan apríl, er vinnustaðafundir hófust og eftir ferðir Péturs um Vestfirði og Austfirði voru farnar,” sagði Óskar Friðriksson kosningastjóri Péturs J. Thorsteinsson- ar á blaðamannafundi i gær. Á fundin- um var Pétur einnig og helztu aðstoðar- menn hans auk Óskars, þeir Jón Ás- geirsson og Arnór Hannibalsson. Framundan eru ferðalög um landið og ótal vinnustaðafundir. Pétur kvaðst bjartsýnn á úrslitin og fram kom, að Pétursmenn bíða sjónvarpsþátta með frambjóðendum, þar sem landsmenn fá að kynnast þeim öllum samhliða. Bent var á, að skv. skoðanakönnun DB eru enn mjög margir óákveðnir. Töldu menn Péturs, að almenningur biði þess að sjá frambjóðendurna í sjónvarpi og tæki síðan ákvörðun. Pétur sagði að baráttan hefði verið drengileg, bæði milli frambjóðenda og eins í fjölmiðlum. Aðspurður um kost- að kosningabaráttunnar sagði Pétur að hann lenti ekki á sér persónulega, en fjölmargir stuðningsmenn legðu fram fé. Óskar sagði það Ijóst að baráttan kostaði milljónir, bæði auglýsingar og blaðaútgáfa og eins mætti nefna að kjörskrá kostaði um hálfa milljón og þjóðskrá 195 þúsund krónur. Erfitt væri hins vegar að sjá heildarkostnað fyrr en i lok baráttunnar, en mikið starf væri unnið af sjálfboðaliðum. Pétur lagði áherzlu á að forsetaemb- ættið væri stór þáttur í stjórn landsins og það færi eftir mati hvernig og hvort forseti beitti valdi sinu. Þá taldi hann að allir fyrri forsetar hefðu talið for- setaembættið starf tveggja manna og þvi væri hlutverk maka forsetans mjög mikilvægt. Pétur Thorsteinsson sagðist aldrei hafa starfað í ákveðnum stjórnmála- flokki og hann taldi að fylgi hans værí ekki úr einum flokki öðrum fremur. -JH. Óskar Friðriksson, Arnór Hannibals- son, Jón Ásgeirsson og Pétur Thor- steinsson. DB-mynd: Þorri. GUÐLAUGUR VÍSITERAR Á AUSTFJÖRÐUM Guðlaugur Þorvaldsson forsetafram- bjóðandi og kona hans Kristín H. Kristinsdóttir ferðast þessa dagana um Guðlaugur og frú Kristín í heimsókn í Útgerðarfélagi Akureyrar. Austfirði. Í hádeginu í dag hélt Guð- laugur vinnustaðafundi á Djúpavogi og í kvöld heldur hann stærri fund á Stöðvarfirði. i gærkvöld var fundur á Höfn í Hornafirði. Á morgun verða þrír fundir — á Fá- skrúðsfirði, Reyðarfirði og á Neskaup- stað annað kvöld. Um siðustu helgi var Guðlaugur með föruneyti sínu á Norðurlandi. Á laug- ardaginn var haldinn fjölmennur fund- ur með íbúum á Húsavík og á sunnu- dag var annar fjölmennur fundur í Sjálfstæðishúsinu á Akureyri. i höfuð- stað Norðurlands heimsóttu hjónin Guðlaugur og Kristín m.a. Slippstöð- ina og Útgerðarfélag Akureyrar. Stuðningsmenn Guðlaugs í Garðabæ og Bessastaðahreppi hafa opnað kosningaskrifstofu i skátaheimilinu við Hraunhóla i Garðabæ. Simi á skrif- stofunni er 54255. Trúnaðarmannaráð þar er fuliskipað og eru i því m.a.: Steingrímur Hermannsson ráðherra, Erlendur Sveinsson lögregluvarðstjóri, Einar Geir Þorsteinsson framkvæmda- stjóri, Hannes Pétursson skáld, Jó- hannes Snorrason yfirflugstjóri og Þórunn Jónasdóttir húsmóðir. -ÓV. NÝKOMIl> SKÓVERZLUN ÞÓRDAR PÉTURSSONAR % K/RKJUSTRÆT/ 8 SÍMi 14181 LA UGA VEG/ 95. - S/M/ 13570 Teg. 73257 Utír: Svart eða QóJubUtt rúskinn Stmrðir 36-41 Varókr. 16.760.- Teg. 73272 Utír: Svartaða Nta rúskinn Stsarðk 36-41 Varðkr. 16.760.- Teg. 8018 Utír: Biitt eða rauttleður Stærðir 36-41 Varðkr. 17.760.- Teg. 8016 Utír: BUtteðahvitt leður Stærðk 36-41 Verðkr. 17.760,- Teg.8055 Utír: Rautt leður eðe betge nubuck Stmrðk 36-41 Verðkr. 16.760.- Teg. 8050 Utur: Hvítt ieður Stærðk 36-41 Verðkr. 16.760.- Teg. 1817 Utk: Beige eða Ijósbrúnt leður Stærðk 36-41 Verðkr. 14.925,- Teg. 73267 Utk: DökkbUtt eðe pktk rúskktn Stærðk 36-41 Verðkr. 16.760,- Teg. 8020 Utur: BUtt leður Stærðk 36-41 Verðkr. 17.760.- Teg. 1816 Utur: Ljósbrúnt leður Stærðir 36-41 Verðkr. 14.925,- Teg. 1815 Uitír: Hvitt eða Ijósbrúnt nubuck Stærðir 36-41 Verðkr. 14.925.- Teg. 1716 Utur: Rautt leður Stærðir 36-41 Verðkr. 12.540.- Teg. 160. Stærðír: 36-41. Verð aðeins kr. 3.990,-

x

Dagblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið
https://timarit.is/publication/260

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.