Dagblaðið - 29.05.1980, Side 10
10
Framfcvamdastjóri: Svoinn R. Eyjórisson. Ritstjóri: Jónas Krístjónsson.
'Ritstjómarfutttrúi: Haukur Halgasoa Fréttastjóri: Ómar Valdimarsson.
Skrifstofustjóri rítstjómar Jóhanóos Reykdal.
Iþróttir Hallur Simonarson. Monning: Aóalstoinn Ingóifsson. Aðstoöarfréttastjóri: Jónas Haraldsson. j
Handrit Ásgrimur Pélssop. Hönnun: Hllmar Karisson.
Blaflamonn: Anna Bjamason, Atii Rúnar HalldórssonL Adi Steinarsson, Ásgeir Tómasson, Bragi
Sigurflsson^ Dóra Stefánsdóttir, Elin AJbertsdóttir, Ema V. IngóHsdóttir, Gunnlaugur A. jónsson*
Ólafur Geirsson, Sigurflur Svorrisson. __ '
Ljósmyndir Ámi Péll Jóhannsson, BjamleHfur Bjamleifsson, Hörflur Vilhjélmsson, Ragnar Th. Sigurfls-
son, Sveinn Þormóflsson. Safn: Jón Saavar Baldvinsson.
Dugðií fyrra, en ekki íár
Við getum ekki endalaust látið of-
veiði fiskistofna mæta nýjum vanda-
málum í utanríkisviðskiptum okkar.
Við gerðum það í fyrra og erum nú
komnir vel á veg með að endurtaka það
í ár.
Með þessu erum við að éta útsæðið.
Við höldum jafnvægi á líðandi stund með því að búa
okkur til gífurleg vandræði í náinni framtíð. Slíkt getur
aldrei gengið til lengdar.
Olía hækkaði mjög í verði á síðasta ári, fór úr 12%
innflutningsins í 19%. Þessi breyting rýrði viðskipta-
kjör okkar gagnvart útlöndum um 10% og dró úr
þjóðartekjum semsvarar4%.
Við vitum, að olían mun halda áfram að hækka í
verði. Við vonum, að það verði ekki á þessu ári, að
minnsta kosti ekki í verulegum mæli. En satt að segja
vitum við ekkert um næstu skriðu.
Hitt áfall síðasta árs var hrunið í tekjum okkar af
flugi yfír Norður-Atlantshafið. Það eitt olli rúmlega
helmingi af 16 milljarða króna tapi á þjónustu-
jöfnuðinum gagnvart útlöndum.
Við vitum, að samkeppnin í fluginu mun áfram
verða grimm. Við vonum, að við getum dregið úr
tilkostnaði okkar. En við vitum, að hinum miklu flug-
tekjum náum við ekki aftur.
Áföllum flugs og olíu mættumvið i fyrra með því
að auka sjávarvöruframleiðsluna um 12—15% og út-
flutninginn í kjölfarið um tæp 10%. Þetta nægði
nokkurn veginn til að halda jafnvægi.
Viðskiptajöfnuðurinn i fyrra varð aðeins óhag-
stæður um rúma sjö milljarða króna, sem jafngildir
tæpu einu prósenti þjóðarframleiðslunnar. Út af fyrir
sig lítur þetta vel út.
Á yfirborðinu virðist skuldabyrðin gagnvart út-
löndum einnig vera í lagi. Afborganir og vextir eru
14% af árlegum tekjum af útflutningi, svo sem verið
hefur í nokkur ár.
Þar eru hins vegar blikur á lofti, þvi að upp eru
greidd gömul lán með lágum vöxtum, en í staðinn
tekin ný með háum vöxtum. Að óbreyttu mun því
skuldabyrðin þyngjast mjög á næstu árum.
Meðan við ofveiðum til að hafa upp í útgjöld
okkar, erum við að lifa um efni fram. í fyrra jókst
einkaneyzla um 2% og samneyzla um 2%. Hvort
tveggja hefði átt að standa í stað. *
Af þessu má sjá, að nú og á næstunni getum við
ekki bætt lífskjörin. Það eina, sem hægt er að gera, er
að lagfæra launakjör hinna lægst launuðu á kostnað
hinna, sem betur mega.
Enn augljósara er, að ríki og sveitarfélög verða að
stöðva þenslu samneyzlunnar þegar í stað. Á erfiðum
tímum höfum við ekki efni á að bæta við meintar
sameiginlegar þarfir okkar.
Erfiðara verður fyrir okkur að spara í fjárfestingu.
Hún hefur á fimm árum minnkað úr 33% af þjóðar-*
framleiðslu í 25%. Það er hættulegt að klípa meira af
henni en orðið er.
Við getum hins vegar dregið úr opinberri stýringu
fjárfestingarinnar til óarðbærra greina á borð við
landbúnað og til óhóflega stórs fískiskipaflota. Við
getum nýtt fjárfestingarkrónurnar betur.
Aflatakmörk nægja ekki ein til að koma þorskafla
ársins niður í 300 þúsund tonn og hindra ofveiði í
öðrum stofnum. Núverandi kerfí er sjávarútveginum
of dýrt í skauti.
Finna þarf leiðir til að minnka flotann, sem notaður
er, og til að tryggja um leið, að arðbærasti hluti hans sé
notaður. Uppboð eða sala veiðileyfa er hugsanleg leið
til þess.
Ef ekki tekst að finna leið til að sameina minnkun
afla og hagkvæmari útgerð fiskiskipa, er aðeins um
það að ræða að sameina minnkun afla og minnkun á
einkaneyzlu og samneyzlu okkar allra. ^
DAGBLAÐIÐ. FIMMTUDAGUR 29. MAÍ 1980.
Afganistan:
Skæruliðar samein-
ast gegn sovézkum
innrásarmönnum
| — verið að koma á útlagastjórn í Pehawar í Pakistan
„SJÁLFSÖGÐ
MANNRÉTTINDI”
—á uppsprengdu verði
Fyrir skemmslu var frá því sagt i
Ijölmiðlum, að fyrir hendi væri i
borginni talsverður fjöldi ibúða, sem
gengi kaupum og sölum manna í milli
á „manneskjulegu” verði. Hér er um
að ræða ibúðir þær, sem byggðar
hafa verið á vegum Byggingafélags
alþýðu, Byggingafélags verkamanna,
Framkvæmdanefndar byggingar-
áætlunar, Stjórnar verkamannabú-
staða og Reykjavíkurborgar.
Þegar eigendaskipti verða á
þessum íbúðum er verðið á þeim
ótrúlega lágt, 2ja herbergja íbúðir eru
seldar á verði, sem nemur allt frá 8
millj. króna og upp í 12—15 millj.
króna. Sama gildir um stærri íbúð-
irnar. Og enginn getur kvartað, sízt
af öllu seljandinn, hann fær í sinn
hlut það sem honum ber samkvæmt
þeim reglum, sem þar um gilda og
honum var fullkunnugt um, þegar
hann keypti — hann fær sinn eignar-
hluta verðbættan til fulls og á ekki
rétt á meiru.
Sá einn fær,
sem nóg hefur
Með þessum hætti hefur tekizt að
koma þvi til leiöar, að almennt séð
halda þessar íbúðir áfram að þjóna
tilgangi sinum, þ.e. þeim að vera hús-
næði þess fólks, sem á undir högg að
sækja í því sjúka markaðsþjóðfélagi,
sem við lifum i, og metur alla hluti til
fjár, þar á meðal þau mannréttindi,
sem þykja „sjálfsögð”, en eru það
ekki i raun nema maður eigi nógu
mikla peninga. En nákvæmlega þau
eru sjónarmið markaðsþjóðfélagsins
í þeim mikilvægu mannréttinda-
málum, sem húsnæðismálin eru. Sá,
sem ræður yfir nógu miklu fé, á
flestra eða allra kosta völ i húsnæðis-
málunum. En vei þeim, sem ekki
hefur nógu mikið fé handa í milli, því